Þjóðviljinn - 24.03.1983, Síða 10
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 24. mars 1983
BLAÐAUKI
llmur María: „Ég á
bágtmeð að trúa
þessu með Adam
og Evu.“
Jón Óskar: „Fólk
verðurekkert
fullorðið við að
fermast frekar en
maður stækkar
þegarhanná
afmæli. “
Stór
vertíð hjá
sumum
Nú um páskana munu 1622
börn á landinu gangast undir
þá helgu og merkilegu athöfn,
sem fermingin er. Þau stað-
festa skírnina og eru tekin í
kristinna manna tölu - og hér
áðurfyrreinnig ífullorðinna
manna tölu. Okkur lék forvitni á
að vita dálítið um hugarheim
þeirra sem á þessum tímamót-
um standa og fengum í því
skyni þrjá unglinga til að tjá sig
umferminguna. Umræðustjóri
var Helgi Hjörvar.
Unglingarnir heita Anna Þóra
Benediktsdóttir, Ilmur María Stef-
ánsdóttir og Jón Óskar Hallgríms-
son og þau eru öll í Æfinga- og
tilraunaskóla Kennaraháskóla ís-
lands. Þær Anna Þóra og Ilmur
ætla að láta ferma sig í Háteigs-
kirkju, en Jón Óskar ætlar alveg að
sleppa því. Og við vindum okkur
auðvitað strax að Jóni Óskari og
spyrjum hvers vegna hann vilji
ekki láta ferma sig.
Jón Óskar: „Ég er voða lítið trú-
aður. Það er ýmislegt til í Biblíunni
- ég held t.d. að Jesús hafi verið til.
En þetta eru allt gamlar sögur og
ýmislegt hefur held ég skolast til“.
- Hefurðu lesið Biblíuna?
Jón Óskar: „Já, ég er að lesa
hana núna. Það er sumt skemmti-
legt, en maður á nú bágt með að
skilja allt“.
Þær Anna Þóra og Ilmur standa
þarna langt að baki þeim sem ekki
ætlar að fermast - þær hafa hvorug-
ar lesið Biblíuna. Ætla þó að gera
það einhvern tíma, segja þær. En
trúa þær?
Ilmur: „Já, ég trúi Biblíunni. Ég
trúi þvt t.d. að Guð hafi skapað
heiminn, en ég á bágt með að trúa
sögunni um Adam og Evu. Annars
lesum við sérstakt fermingarkver
hjá prestinum, og mér finnst að
það mætti vera skýrara. Það er lítið
um svör við ýmsu í þessu kveri og
maður fær svo sem litlar upplýsing-
ar. En ég trúi og þess vegna læt ég
fermast".
- Hvað táknar fermingin í þín-
um huga?
Ilmur: „Hún táknar það að
ganga inn í trúna - mér finnst nauð-
synlegt að trúa, en það fólk sem
ekki trúir finnst mér ekkert verra
fyrir vikið. En annars væri mér al-
veg sama þótt þetta væri aflagt.
Það eru ýmsir siðir í kirkjunni, sem
eru bara siðir og ekkert bráðnauð-
synlegir. Fermingin er einn slíkur
siður“.
— En þú Anna Þóra — hvers vegna
fermist þú?
Anna Þóra: „Ég trúi dálítið, en
er engin ofsatrúarmanneskja. Ætli
ég geri þetta ekki vegna þess að
allir aðrir gera þetta - en það er þó
ekki eina málið, ég trúi líka á
Guð“.
- En hvað táknar fermingin?
Anna Þóra: „Ja, það er nú það.
Ég veit það hreinlega ekki. Ég hef
verið að reyna að finna svör við
því, en fæ engin, hvorki hjá prest-
inum né öðrum. Ég er sammála
Immu um það, að maður fær litlar
upplýsingar um þctta".
I Æfingaskólanum eru 54 börn á
fermingaraldri og ætla öll að ferm-
Fermingaraldursbörnin ásamt umræðustjóranum Helga Hjörvar.