Þjóðviljinn - 24.03.1983, Page 19
BLAÐAUKI
Fimmtudagur 24. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 23
Sitthvað
um fjölda
fermingar-
barna
Nú á þessu vori (hvenær sem
þaö kemur nú) fermast í
landinu öllu 2.612 unglingar í
kirkjum þjóðkirkjunnar. Mester
fermt um páskana, eða 1.622
unglingar.
Fermingardagarnir og fjöldinn
hvern dag á landinu öllu er þessi:
27. mars 790
31. mars 351
4. apr. 481
10. apr. 510
17. apr. 253
21. apr. 88
24. apr. 139
Á Reykjavíkursvæðinu (Reykja-
vík, Seltjarnarnes, Kópavogur og
Hafnarfjörður) verða á þessu vori
fermd alls 1.813 börn. Flestar
verða fermingarnar 27. mars, eða
522 talsins.
í Akureyrarumdæmi (sem nær
frá Flrútafirði til Þingeyjarsýslna)
verða 97 fermingar þann 27. mars,
131 hinn 31. mars og 50 hinn 4.
apríl. Víða um land til sveita er
fermt á Hvítasunnudag, sem er 22.
maí.
í Vestmannaeyjum verða 45 ung-
lingar fermdir þann 24. apríl og síð-
an 25 á sjálfan hátíðisdag verka-
lýðsins, 1. maí, en hann ber upp á
sunnudag að þessu sinni.
FERMINGARGJOFIN
í ÁR
Rúm m/útvarpi, klukku, segulbandi,
bókahillu, rúmfataskúffu og dýnu.
EFNI: BEYKI
VERÐ KR. 12.960,- áklædi: rúskinnslíki
Rúm"-bez,ta verz.lun landsins
INGVAR OG GYLFI
GRENSASVEGI 3 108 REYKJAVIK. SIMI 81144 OG 33S30
Sérverz.lun með rúm
NÝ SKRIFVÉLABYLTING
BROTHER KYNNIR
MINNSTU SKRIFVÉL í HEIMI
EP-20 er bæði ritvél og reiknivél, skrifar á thermal pappír beint án litarbands eða á venjulegan
pappír með litarbandi. Leiðréttingar má gera á 16 stafa skermi áður en vélin ritar. Hefir rafhlöður og er
algjörlega hljóðlaus. Vegur aðeins 2,2 kg og kemst í venjulega skjalatösku án þess að taka nærri allt
plássið. Hin kjörna ferðaritvél. Tekur ekki afrit og hefir ekki P og Ð, en alls 132 stafi og alþjóðleg tákn
og merki.
MESTA BYLTING í RITUN SÍÐAN RITLISTIN VAR FUNDIN UPP.
Það er of langt mál að telja upp alla möguleika EP-20. Sjón er sögu ríkari. Komið og skoðið. Verð kr.
5.838.00
Borgarfell hf, Skólavörðustíg 23, sími 11372.
FRANCH MICHELSEN
ÚRSMÍÐAMEISTARI
LAUGAVEGI39 SÍM113462
Franch Michelsen, Laugavegi 39, hefur á boðstól-
um mikið úrval af Microma úrum fyrir dömur
og herra. Microma er svissnesk gæðavara, tilval-
in sem framtíðareign fermingarbarnsins. Þá
hefur Franch Michelsen einnig mikið úrval af
tölvuúrum, kvartsúrum og úrum af öllum gerðum
og stærðum. Sendum í póstkröfu. Sími 13462.
Microma úrin
IMICROMAI
v-SWISS QUARTZ-'