Þjóðviljinn - 24.03.1983, Blaðsíða 20
24 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN ] Fimmtudagur 24. mars 1983
Blaklandsleikirnir gegn Færeyingum
Torfi Magnússon: „Ætlum að
keyra hraðann upp.“
Stúlkurnar allar úr
íþróttir
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
Leikmenn Vals og IR:
Lofa fjör-
ugum úr-
slitaleik
Úrslitaleikur bikarkeppninnar í
körfuknattleik, milli Vals og IR,
verður háður í Laugardalshöllinni í
kvöld og hefst kl. 20.30. Þetta er
lokalcikur keppnistímabils körf-
uknattleiksmanna, og má búast við
honum fjörugum og skemmti-
legum, enda lofuðu leikmenn
beggja liða því hátíðlega á blaða-
mannafundi í gær. Á undan, eða kl.
19, mætast KR og Njarðvík í úr-
slitaleik bikarkeppni kvenna.
Gangur leiksins í kvöld ræðst
mikið af því hvort lið nær að
stjórna hraðanum. „Við ætlum að
keyra hraðann upp,“ sagði Torfi
Magnússon fyrirliði Vals, „ÍR er
það lið í úrvalsdeildinni sem hefur
fengið fæst stig á sig í vetur, og er
það ekki síst vegna þess hve hægan
og rólegan sóknarleik liðið leikur.“
„Við komum til með að leika
eins og vanalega,“ sagði Pétur
Guðmundsson, risinn í IR-liðinu.
„Okkur gengur erfiðlega að ráða
við hraða og reynum að halda hon-
um niðri. Valsmenn skora mikið úr
hraðaupphlaupum og til að varna
því, munum við sækja hart fram í
að hriða sóknarfráköst undir þeirra
körfu. Ég lofa skemmtilegum leik,
en það er ljóst að við verðum að
spila betur en á meðaldegi til að
leggja íslandsmeistara Vals að
velli.“
„Valsmenn áttu skilið að hljóta
meistaratitilinn," sagði Jim Dool-
ey, þjálfari ÍR. „Þeir áttu jafna og
góða leiki í úrvalsdeildinni frá upp-
hafi til enda, eru í virkilega góðu
formi og leikirnir tveir gegn Kefla-
vík nú á dögunum voru þeirra bestu
í vetur. ÍR hefur farið vaxandi síð-
ari hluta mótsins svo það stefnir allt
í stórleik."
Bæði lið verða með alla sína
sterkustu leikmenn og meiðsli setja
hvergi strik í reikninginn. Tveir
síðari leikir liðanna í úrvals-
deildinni í vetur voru hörkuspenn-
andi og stórskemmtilegir, þau
unnu sinn hvort, og þótt nýkrýndir
íslandsmeistarar Vals séu kannski
örlítið sigurstranglegir þá hefur
komið í ljós síðari hluta vetrar að
ÍR getur tekið hvaða íslenskt lið
sem er í karphúsið, hvenær sem er.
Eins og Valsmennirnir Ríkharður
Hrafnkelsson og Kristján Ágústs-
son sögðu: „Því fleiri áhorfendur-
því skemmtilegri leikur,“ og það er
óhætt að mæla með þessari úrslita-
viðureign við alla körfuknatt-
leiksunnendur; þeir fá vafalaust
eitthvað fyrir aurana sína í Höllinni
í kvöld. -VS
Þrótti, ÍS og UBK
Enn sigur
hjá Bjarna
*■ Bjarni Friðriksson úr Ármanni
varö íslandsmeistari í opnum
flokki í júdó fimmta árið í röð en
keppnin fór fram um síðustu helgi.
Bjarni sigraði Kolbein Gíslason,
Ármanni, í úrslitaviðureign. Mar-
grét Þráinsdóttir, Ármanni, sigraði
í opnum flokki kvenna. Þetta var
annar hluti íslandsmótsins en sá
þriðji fer fram á laugardag. Þá
verður keppt í flokkum 17-19 ára,
14-16 ára og þyngdarflokkum
kvenna.
Enn á bratt-
annhjáFram
Leynimótinu mikla, fallkeppni
1. deildar karla í handknattleik,
var fram haldið í fyrrakvöld. Þar
munu Þróttarar hafa sigrað Fram
29-23 og Valsmenn ÍR 34-19. Val-
ur hefur því 21 stig, Þróttur 17,
Fram 14 en ÍR ekkert.
Lokastaðan
Lokastaðan í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik, sem lauk á mánu-
dagskvöldið, varð þessi:
Valur..........20 15 5 1796-1619 30
Keflavík.......20 14 6 1684-1666 28
ÍR.............20 9 11 1586-1600 18
Njarðvík.......20 8 12 1640-1690 16
KR........... 20 8 12 1694-1775 16,
Fram...........20 6 14 1705-1755 12
Kvennalandsliðið í blaki, scm
leikur þrjá landsleiki gegn Færey-
ingum hér á landi í næstu viku, hef-
ur verið valið. Það er alfarið skipað
stúlkum úr Þrótti, ÍS og Breiðabliki
og þær eru eftirtaldar:
Auður Aðalsteinsdóttir, ÍAS
Birna Kristjánsdóttir, ÍS
Björg Björnsdóttir, Þrótti
Hulda Laxdal Hauksdóttir, Þrótti
Jóhanna Guðjónsdóttir, Þrótti
Málfríður Pálsdóttir, ÍS
Margrét Aðalsteinsdóttir, ÍS
Oddný Erlendsdóttir, UBK
Sigurborg Gunnarsdóttir, UBK
Sigurlín Sæmundsdóttir, UBK
Þorbjörg Rögnvaldsdóttir, UBK
Birna verður einungis með í
þriðja leiknum, á miðvikudags-
kvölið. Þá verða þær Auður og
Margrét hins vegar ekki með,
verða flognar til síns heima norður
um heiðar.
Haraldur Geir ekki með
Ein breyting hefur verið gerð á
karlaliðinu frá því skipan þess var
birt hér í blaðinu á þriðjudag. Hinn
hávaxni Haraldur Geir Hlöðvers-
son gefur ekki kost á sér og er þar
skarð fyrir skildi en í hópinn kemur
í staðinn Þórður Svanbergsson, ÍS.
Leikið í Keflavík
Nú hefur verið ákveðið að lands-
leikirnir á þriðjudag fari fram í
Keflavík. Það verða fyrstu blak-
landsleikirnir sem fram fara í þeirn
bæ og hefst kvennaleikurinn kl.
18.30 en karlaleikurinn kl. 20. Á
mánudag og miðvikudag verður
hins vegar leikið í Hagaskóla í
Reykjavík. Sama tímasetning
verður á mánudeginum og þriðju-
Síðustu leikirnir í 1. deild karla í
körfuknattleik fóru fram um helg-
ina. Þór frá Akureyri lék tvo leiki
sunnan heiða, tapaði 112-59 fyrir
Haukum og 107-88 fyrir Grinda-
vík. Áður höfðu Grindavíkingar
sigrað Skallagrím 102-61.
Lokastaðan í deildinni varð þessi:
Haukar.......16 14 2 1556-1131 28
Fyrri hluti unglingameistara-
móts Islands í badminton fer frain á
Akureyri um helgina og verður
keppt í flokkum 10-16 ára. Keppni
hefst kl. 9 á laugardagsmorgun en
úrslitaleikir fara fram á sunnudag
kl. 14.
Meistaramót íslands verður síð-
an haldið í Laugardalshöllinni 9,-
deginum en á miðvikudag hefst
kvennaleikurinn kl. 17.30, karla-
leikurinn kl. 19.
-VS
IS..............16 11 5 1408-1132 22
ÞÓrAk...........16 10 6 1323-1303 20
Grindavík.......16 5 11 1175-1330 10
Skallagrímur..16 0 16 1007-1563 0
Skallagrímur úr Borgarnesi
heldur sæti sínu í 1. deild þar sem
liðum verður fjölgað um eitt næsta
vetur. Haukar úr Hafnarfirði flytj-
ast hins vegar upp í úrvalsdeiidina í
fyrsta skipti.
10. apríl. Keppt verður í meistara-
flokki, A-flokki, öðlingaflokki og
æðstaflokki, í öllurn greinum karla
og kvenna ef næg þátttaka fæst.
Þátttökugjöld verða kr. 150 í
einliðaleik og 120 í tvíliða- og
tvenndarleik. Þátttökutilkynn-
ingar þurfa að hafa borist BSÍ fyrir
28. mars.
Þórsarar töpuðu báðum
og lentu i þriðja sæti
Unglingamótið i bad-
minton á Akureyri
Pétur Guðmundsson: „Vörnum
hraðaupphlaupum með því að
hirða fleiri sóknarfráköst.“
Reynir með
nýtt met
Reynir Kristófersson setti nýtt
íslandmet í 90 kg flokki í lyftingum
fatlaðra í Norðurlandamótinu í
bogfimi og lyftingum sem fram fór í
Finnlandi um helgina. Reynir varð
þriðji í 90 kg flokki og lyfti alls 110
kílóum.
Elísabet Viljálmsdóttir keppti í
bogfimi kvenna og varð í fjórða
sæti af tíu keppendum. Rúnar
Björnsson keppti í bogfimi karla og
varð í þrettánda sæti.
Næsta Norðurlandamót í bog-
fimi verður haldið hér á landi að
tveimur árum liðnum.
Aftureld-
ing með 5
Badmintonfólk úr Aftureldingu í
Mosfellssveit sigraði í fimm flokk-
um af sjö á UMSK-mótinu sem
haldið var í Garðabæ fyrir
skömmu.
Jón Björn Friðgeirsson vann í
einliðaleik drengja. Jón Gestsson
og Marteinn Þórsson í tvfliðaleik
drengja, Reynir Ö. Pálmason í ein-
liðaleik hnokka, Kjartan Níelsson í
einliðaleik karla og þeir Steinar
Haraldsson og Kjartan Níelsson í
tvfliðaleik karla.
Stjarnan úr Garðabæ átti hina
tvo sigurvegarana. Þeir voru Krist-
björg Jónsdóttir í einliðaleik
stúlkna og Kristbjörg og Björg
Pálsdóttir í tvíliðaleik stúlkna.