Þjóðviljinn - 19.04.1983, Page 5

Þjóðviljinn - 19.04.1983, Page 5
Þriðjudagur 19. apríl 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5 Svo segir Grákollur Fram að myndun núverandi ríkisstjórnar og reyndar allt fram að fjörbrotum hennar mun það almennt hafa verið trúa manna að óróinn í Sjálf- stæðisflokknum stafaði af per- sónulegri valdabaráttu, spurn- ingin væri aðeins um það hver ætti að hafa völdin, Gunnar eða Geir - eða þá Albert. Varla velkist neinn lengur í vafa um að þarna er einnig um skoðan- aágreining að ræða. Gunnar Gunnar á uppruna sinn í hinum þjóðlega armi borgarastéttar- innar Thoroddsen er af öðrum upp- runa og á sér annan hugarheim en Geir Hallgrímsson. Gunnar á uppruna í þeim armi íslenskrar borgarastéttar sem vann að því að heimta sjálf- stæði þjóðarinnar úr höndum Dana og átti sér íslenskar forn- bókmenntir að bakhjarli. Þess vegna er hann eins vel máli far- inn og raun ber vitni.Þess vegna stóð hann fyrst ásamt Sigurði Bjarnasyni frá Vigur gegn ásælni Bandaríkjanna hér á landi en lét því miður beygja sig þegar Sjálfstæðisflokkurinn sem slíkur tók aðra afstöðu. Geir Hallgrímsson á sér and- legan uppruna í heimi kaup- sýslumanna sem aðhyllast markaðshyggju og trúa á ágæti frjálsrar samkeppni sem er í rauninni aldrei frjáls heldur háð samvinnu og samtryggingu þeirra sem auðinn hafa og þar með völdin. Þess vegna er Geir miklu hallari undir hið alþjóð- lega auðvald hvort sem það birtist í persónu Reagans í Bandaríkjunum eða Margrétar Thatchers í Englandi. Þess vegna slær hjarta Geirs einnig með Alusuisse. Það hefur líka orðið nokkur eðlisbreyting á þessum svokall- aða Sjálfstæðisflokki sem stofn- aður var 1929 upp úr íhalds- flokknum og Frjálslynda flokknum. Upphaflega var þetta flokkur rísandi borgarast- éttar sem vildi halda áfram að brjótast undan yfirráðum Dana og efla íslenska atvinnuvegi, einkum sjávarútveg. Úr því um- hverfi var Ólafur Thors sprótt- inn. Á síðari árum hefur kaupsýslukjarninn í flokknum sífellt verið að stækka og eflast en frjálslyndis- og þjóðfrelsis- armurinn rýrnað að sama skapi. Þegar íslendingar höfðu losað sig við yfirráð Dana og íslenska auðstéttin fann að ekki var lengur hald í þeim og breska ljónið tók að veiklast fór hún að halla sér að því valdi sem hún taldi styrkast í grenndinni, am- eríska auðvaldinu. Og enda þótt fslenskir atvinnuvegir hafi eflst verulega á liðnum ára- tugum og þjóðarauður íslend- inga aukist að sama skapi van- Hjarta Geirs slær með kaup- sýslumönnum og Alusuisse treystir íslenska auðstéttin hin- um hefðbundnu atvinnuvegum og hefur tekið ofurtrú á erlent fjármagn í formi stóriðju. Nú hefur það einnig gerst að flokkur verkalýðsstéttarinnar, sem áður boðaði mesta al- þjóðahyggju undir kjörorðinu: öreigar allra landa sameinist, hefur sífellt orðið þjóðernis- sinnaðri og séríslenskari í af- stöðu sinni og boðar nú einingu um íslenska atvinnustefnu en stendur fast gegn erlendri ásælni. Ef Gunnari Thoroddsen hefði tekist að gera stjórn sína sterkari en raun varð á hefði hún sennilega orðið honum álíka hugstæð og Nýsköpunar- stjórnin varð Ólafi Thors á sín- um tíma. í þessum stjórnar- mynstrum fundu þeir þá þætti sem sem þeir vonuðu að væru í flokki sínum, Sjálfstæðis- flokknum, en eru ekki lengur eins ráðandi, trúna á íslenska athafnasemi og eflingu ís- lenskra atvinnuvega í vinnusátt án stéttaátaka, auðshyggju og oftrúar á erlent fjármagn. En sitt er hvað von og veru- leiki. Gunnar Thoroddsen eldist eins og aðrir. Qg þótt honurn tækist um sinn að lyfta merki frjálslyndis og íslenskrar atvinnustefnu munu varla aðrir í flokki hans taka við því merki. Til þess hafa markaðshyggju- menn, Sem þeir af hugtakarugl- ingi kalla frjálshyggju, bæði ungir og gamlir, hreiðrað þar of vel um sig og treyst völd sín. Þess vegna er það í rauninni stórhættulegt ef Sjálfstæðis- flokknum, eins og hann er núna, tekst að ná hreinum meirihluta í þessum kosn- ingum. Þjóðleikhúsið GRASMAÐKUR eftir Birgi Sigurðsson Lýsing: Arni Baldvinsson Leikmynd og búningar: Ragnheiður Jónsdóttir Leikstjóri: Brynja Benediktsdóttir Fyrri leikrit Birgis Sigurðssonar, þau sem þessi leikhúsgestur hér hefur séð, einkenndust af sterkri ljóðrænni hneigð, viðleitni til að magna lífsmyndina málfari og lík- ingum skáldskaparins. Grasmaðk- ur er um margt skyldur hinum fyrri verkum, en áherslur eru aðrar. Ljóðrænu og táknasmíð er miklu meir í skefjum haldið. Áherslan er á tiltölulega raunsæislega lýsingu persóna og aðstæðna. Hér er þó ekki um „lágværan'" realisma að ræða. Fjölskyldan, sem lýst er, gæti sýnst fremur venjuleg, stirð sambúð hjónanna Unnar og Har- aldar enn eitt dæmið um þreyttan vítahring hjónabands, fæð sú sem táningurinn Gréta leggur á föður sinn og stjúpmóður dæmigerður kynslóðavandi nú og hér. En þar með er ekki nema hálf sagan sögð. Því rithöfundur vill gjarna stækka þessar „venjulegu aðstæður" þetta dæmigerða fólk. Heiftin og örvíln- unin er langt yfir venj ulegum stofu- hita. í skápum minnisins skröltir í hinum frægu beinagrindum, sem Gísli Alfreðsson og Margrét Guðmundsdóttir í miðju valdatafli Sakleysinginn og þeir sem töpuðu þola helst ekki dagsins ljós. Pers- ónurnar eru teymdar eins langt fram á ystu nöf og sennileikinn leyfir - að þær afhjúpi sig þeim mun rækilegar fyrir bragðið. Og inntak afhjúpunarinnar verður fyrst og fremst það, að í þeim litla prívatheimi þar sem öll- um tilfinningum og tengslum - milli manns og konu, foreldra og barna, bræðra og málkunningja - hefur verið snúið upp í valdatafl þar sem ÉG skal hafa MITT fram, í þeim heimi er ekki líft. Texti Birgis Sigurðssonar kemur þessum kjarna hans máls um margt ágætlega vel til skila. Hann er vel reyndur samtalasmiður og sýnir drjúga hugkvæmni í því að miðla brýnustu upplýsingum um fólkið á sviðinu um leið og spurningar um hið ósagða og óþekkta herða á at- hygli áhorfandans. Birgir tekur sér meðal annars fyrir hendur eitt þeirra verkefna sem erfiðast eru, ekki síst á okkar tímum, en það er að smíða „jákvæða“ persónu. Sú er Bragi, systursonur húsfreyju, skáldhneigður piltur að vestan, sem hefur lent í ástarsorg sem nærri reið honum að fullu. Það er Bragi sem dregur fram eymd hjónanna með því að vera öðruvísi en þau - með því að eiga sér enn trú á undur lífsins og vináttunnar og - ef vel gengur - skáldskaparins. Sigurður Sigurjónsson kom með hæfilega kímilegri túlkun vel til skila því sakleysi, sem bjargar hinum „já- kvæða“ frá mörgum hættum og gefur honum um leið sérkennilegt innsæi. Hinn saklausi á það jafnan á hættu að verða fórnarlamb heimsins, en hann getur einnig reynst sigursæll (eins og hér) vegna þess að hann er laus við valdataflið og skilur fólk betur en það sjálft. Sem betur fer er Bragi ekki óskeik- ull - hann hefur ráðlagt táningnum Grétu að fara ekki að heimsækja móður sína, sem stúlkan hefur gert fagra og mikla í fjarlægð - en í raun og veru er slík prófun draums í ver- uleika forsenda fyrir því að stúlkan geti bryddað upp á nýmælum í lífi sínu. Gréta var frumsýningarkvöldið í höndum Halldóru Gcirharðsdóttur (tvær kornungar leikkonur munu skiptast á um hlutverkin, hin er María Dís Cilia). Halldóru tókst ljómandi vel að skapa trúverðuga mynd af unglingi í uppreisn, sem er um margt ofur skiljanleg, en á í raun ekki inni fyrir þeirri hörku, illkvittni og ruddaskap sem hún brynjar sig með. Atli, sá sem snýr heim og getur lagt líf bróður síns í rúst endanlega, Árni Bergmann skrifar um leikhús er minnst hlutverka. Með það fer Hjalti Rögnvaldsson af óbrigðulu öryggi. Margrét Guðmundsdóttir fer með hlutverk Unnar, konunnar að vestan sem flúði slor og strit og ruddaskap og fann ekki betri ráð en vorkunnarhjónaband með efn- uðum manni sem hún hefur næsta litlar mætur á. Margrét lýsir vel beiskju þessarar konu sem lífið hefur stungið af, heift hennar. En það er sem vanti dýpt í persónuna, þá sem reynt er að gefa til kynna með yfirlýsingum um að hún hafi eitt sinn verið eins og frændi henn- ar Bragi. Áherslan í túlkuninni verður öll á hefndarhuginn og sekt Haraldar margfalda - svo mjög, að það undarlega gerist, að áhorf- endasamúð færist meir. yfir á karl- hólkinn en efni og fyrirætlanir sjálfsagt standa til. Gísli Alfreðsson fer með hlut- verk Haraldar, pabbadrengsins, íþróttagarpsins, fyrirniyndarborg- arans og karlrembusvínsins. Gísli átti vandaðan og blæbrigðaríkan leik, einkum í fyrri hluta verksins, sýndi vel eilítið broslega sjálfum- gleði Haraldar í bland við sterka tilhneigingu til sjálfsaumkunar. Uppgjörið og örvílnanin tókst síð- ur- kannski komast yfirmáta hrell- ingar þeim mun betur til skila sem þær eru lagðar nær þögninni. Leikstjórn Brynju Benedikts- dóttur er bersýnilega vandað verk og yfirvegað og heldur vel til skila bæði þeirri spennu og þeim tilefn- um til persónusköpunar sem text- inn býr yfir. Helst mætti efast, eins og fyrr segir, um þá útkomu sem túlkunin á Unni gefur, sem og um viss atriði í þeim atriðum þegar heimurinn er að farast. Það skal um leið fram tekið, að frumsýning- arstreitan, sem var nokkur, hefur sjálfsagt spillt fyrir einmitt í þeim atriðum sem síðast voru nefnd. Leikntynd og búningar Ragn- heiðar Jónsdóttur féllu vel að sýn- ingunni: formyrkvun hugans hafði sest að í stofunni þar sem klunna- legur stóll Unnar staðfesti fárán- leika hennar misheppnaða lífs, ætt- faðirinn horfði ströngu Bismark- auga yfir hrynjandi ríki sitt og hlá- leg bjartsýnisföt græn, alltof stór á pasturslítinn pilt, gáfu til kynn að samt kynni svo að fara að vor kæmi í bæ. ÁB. Meltaway Snjóbræðslukerfi í bílastæði, tröppur, götur, gangstíga, törg og íþróttavelli. Síminn er: 77400 Þú nærð sambandi hvort sem er að nóttu eða degi. PÍPULAGNIR Sf Smiðjuvegur 28 - Box 116-202 Kópavogur

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.