Þjóðviljinn - 19.04.1983, Blaðsíða 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 19. aprfl 1983
Kosnlngafundur G-listans
Það ríkti sönn baráttugleði á kosningafundi Alþýðubandalagsins s.l. laugar-
dag í Háskólabíói. Húsfyllir var og að lokinni formlegri dagskrá fundarins var
opið hús í anddyrinu. Þar stöldruðu menn við hátt í klukkutíma og ræddu við
frambjóðendur og aðra um kosningaslaginn, einstök málasvið og málflutning
andstæðinganna.
A fundinum fluttu frambjóðendur á G-listanum ávörp, sungu og lásu upp.
„Óskabörn þjóðarinnar“, 14 manna leikflokkur flutti þríþættan leik um mál
málanna: álmálið, Bubbi Morthens söng og Guðmundur Ingólfsson lék á
píanó.
Á fundinum töluðu þau Guðmundur J. Guðmundsson, Arnór Pétursson,
Guðrún Helgadóttir, Ólafur Ragnar Grímsson og Svavar Gestsson. Guðrún
Hallgrímsdóttir las kafla úr Leigjandanum eftir Svövu Jakobsdóttur en fundar-
stjórar voru Margvét S. Björnsdóttir og Álfheiður Ingadóttir.
Á fundinum kom fram klofningsframboð á G-listanum í Reykjavík. „Söng-
sérframboð“ nefndu fjórir frambjóðendur sig og fluttu áróður sinn í gamanví-
sum. Þar voru á ferð Grétar Þorsteinsson, Margrét Pála Ólafsdóttir, Sigrún
Valbergsdóttir og Silja Aðalsteinsdóttir. Fengu önnur framboð, þ.á. m. G-
listinn þar sinn skammt.
„Óskabörn þjóðarinnar" sýndu á myndrænan hátt þrjá þætti álmálsins:
tapið á álverinu og viðbrögð við því, - hækkun í hafi og útsöluprísinn á raforku
til álversins. Voru þau hin skrautlegustu á að líta, talaður texti var nær enginn
en myndir og leikur alls ráðandi. Þeir sem „innrættu“ óskabörnunum voru
Árni Björnsson og Jón Hjartarson, en forsprakki þeirra var Guðjón Pedersen.
„Það cr langur sjóvegur frá Ástralíu til íslands“, - Óskabörn
þjóðarinnar túlka „Hækkun í hafi“ þar sem súrálsverðið
blæs út á leiðinni. LjósmAtli.
Elísabet Þorgeirsdóttir, Guðmundur Benediktsson og Álfheiður Inga- Vilhjálmur Vilhjálmsson, Kristinn Sigurjónsson, Fríða Kristinsdóttir og Margrét S. Björnsdóttir.
dóttir. Ljósm.-ívar. Ljósm.-ívar.