Þjóðviljinn - 19.04.1983, Side 9
Þriðjudagur 19. aprfl 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
búsýslan
Höndin
duga ein
á tennur
Guðrún Gísladóttir, lektor við Tann-
læknadeild Háskóla íslands, hafði
samband við mig vegna pistils um
tannhreinsun með eplum, sem var hér
á Búsýslusíðunni fyrir nokkru. Benti
hún á, að það væri eldgömul bábilja að
halda því fram að tennur heinsuðust
þótt epli væru nöguð. Þótt eplin væru
holl og góð hreinsuðu þau ekki tennur.
„Tennur hreinsast aðeins með góðri
burstun“, sagði Guðrún í samtali við mig.
Skán myndast á tönnunum á einum sólar-
hring, svokölluð tannsýkla, og hún mynd-
ast hvort sem við borðum eða ekki. Tann-
sýklan er svo lífsseig, að það þarf að bursta
hvern flöt 6-8 sinnum 1 smni á sólarhring til
að ná henni í burt. „Það er ekkert efni, sem
verkar á tannsýkluna nema höndin og
burstinn“, sagði Guðrún.
Ég þakka Guðrúnu Gísladóttur kærlega
fyrir ábendinguna og kem þessu hér með á
framfæri. Og nú tökum við burstann á loft
og burstum vel 1 sinni á dag a. m. k. Ef vel er
burstað á þetta eina skipti á dag að nægja -
en þá þarf líka að bursta vel. Og munið að
engu skiptir hversu mikið hamast er, því
það er ekki krafturinn sem skiptir hér máli
heldur aðferðin. Góð og róleg á burstunin
að vera og ná til allra flata tannanna.
Hafið þetta í huga þegar þið rennið niður
smákökunum, sem þið lærið nú að baka.
ast
Smáköku
bakstur
í dag reynum við fyrir okkur í
smákökubakstri. Nú eru kosn-
ingar í fullum undirbúningi og
hreint ekki fráleitt að skella á
borð boxi hlöðnu fínum smákök-
um handa þeim sem strita í bar-
áttunni. Gott kosningainnlegg
það. Og hvað er yndislegra en
ilmandi eldhús þar sem kökurnar
streyma bústnar úr ofninum ofan
í þakkláta munna?
Nokkur atriði þarf að hafa í
huga í sambandi við smáköku-
bakstur og skulu þau helstu til-
færð hér. Eitt er að deigið þarf að
vera mátulega blautt. Ef deigið er
of þurrt verða kökurnar harðar
og leiðinlegar. Sé það of blautt
verða kökurnar hins vegar linar.
Það kemst fljótt upp í vana að
rata meðalveginn milli hveitis og
vökva. Prófið nokkrar kökur til
að byrja með og ef ykkur finnst
þær of harðar eða of linar þá er
bara að bæta í meiri vökva eða
hveiti.
Ef þið viljið nota hunang eða
síróp í stað sykurs skuluð þið
gæta að því, að í hunangi og sírópi
er vökvi en ekki í sykrinum. Á
móti þarf því að koma ögn meira
af hveiti.
Ef þið viljið fremur nota
smjörlíki en smjör í kökurnar,
skuluð þið samt nota smjör til—
helminga, því smjörið er oft það
sem gefur kökunum bragðið. Ef
þið setjið ögn af salti með smjör-
líkinu á bragðið ekki að breytast.
Það er vissara að gefa ofninum
gætur, því bökunartíminn fer
fyrst og ’fremst e'ftir stærð srhá-
kökunnar en ekki því sem gefið
er upp, og stærðin er eins mis-
munandi og við erum mörg.
Og þá skulum við bara byrja.
Súkkulaðidropar
'h bolli smjörlíki
1 bolli sykur
'h bolli mjólk
l'h hveiti
'h tsk. lyftiduft
1 egg
1/4 tsk. salt
1 plata suðusúkkulaði
1/4 bolli kakó
1 bolli saxaðar hnetur, t.d. valhnetur
1 tsk. vanilludropar
Notið bolla af venjulegri stærð,
þ.e. ekki stórar kaffirkrúsir. Og
notið alltaf sömu stærðina. Besta
suðusúkkulaðið að mínu mati er
Síríus-súkkulaði,en sjálfsagt fer
það eftir smekk. Þá vil ég geta
-þess, að hreint ekki er sama
.hvaða kakó notað er - kakóið
sem selt er hér í pokum er t.d.
ekki gott í kökur að mínu mati.
Látið smjörlíkið linast áður en
þið hrærið það. Hrærið saman við
sykur og eggi. Blandið öllum
þurrefnunum saman og hrærið
síðan útí ásamt mjólkinni. Hrær-
ið bræddu súkkulaðinu í, vanillu-
dropunum og bætið að síðustu
hnetunum Við.
Setjið með teskeið á vel
smurða plötu og bakið við 200° í
ca 10 mínútur.
Þessar kökur eru auðveldar í
tilbúningi og afskaplega ljúffeng-
ar. Þær geymast líka vel-þ.e.a.s.
ef þær fá að vera í friði!
Smákökur úr
sýrðum rjóma
1 bolli sýrður rjómi
2 bollar af sykri
1 bolti lint smjörlíki
2 hrærð egg
1 tsk. matarsódi
1 tsk. vanilludropar
Nóg af hveiti til að hnoða
Blandið öllu saman í þeirri röð
sem gefin er hér - síðast hveitinu.
Fletjið út í fremur þunna lengju.
Skerið síðan út í lengjuna; það
má nota vatnsglas eða nánast
hvað sem er. Ef börn eru á heim-
ilinu ættuð þið endilega að leyfa
þeim að vera með í ráðum. Þeim
finnast kökurkarlar og -kerlingar
yndisleg fyrirbæri og ekki myndi
þá saka að láta rúsínur í
augnastaði.
Bakið við meðalhita í um 10
mínútur. Þessar kökur eru ódýr-
ar, góðar og auðveldar í tilbún-
ingi. Þær geymast vel.
Rúsínudropar
2cgg
2 bollar sykur
2'h msk. brætt smjör
1 tsk. vanilludropar
1 bolli mjólk
3 bollar hveiti
2 tsk. lyftiduft
'h bolli steinlausar rúsinur
Hrærið eggin, sykurinn og
smjörið í 10 mínútur. Bætið síðan
við vanilludropum, mjólk, hveiti,
lyftidufti og rúsínum. Setjið með
teskeið á vel smurða plötu og
bakið við meðalhita í ca. 10 mín-
útur.
-ast
Agúrku-
salaí í
gúrku-
tíðinni
Nú eru agúrkur ódýrar, a.m.k.
miðaö viö þaö sem áðurvar.
Hægt er aö fá góða agúrku
fyrir minna en tuttugu krónur.
Því fannst mér tilvalið að gefa
hér eina góða uppskrift að a-
gúrkusalati.
Þetta salat er mjög vinsælt í
Mið-Austurlöndum og afbrigðið
sem hér er gefin uppskrift að
kemur upprunalega frá Tyrk-
landi. Hægt er að nota bæði
hreina jógúrt og sýrðan rjóma, en
sýrði rjóminn gerir salatið ögn
þyngra. Salatið er mjög gott með
fiskréttum og nánast ómissandi
með laxi.
1 agúrka
1,25 dl jógúrt eða sýrður rjómi
2 tsk. sítrónusafi
2 tsk. vínedik
2 tsk. sykur
steyttur pipar
ögn af salti
2 tsk. af mintu
Skerið gúrkuna í þunnar
sneiðar þversum, stráið ögn af'
salti yfir þær, leggið disk ofan á
þær og þungan hlut þar ofan á.
Látið vera í hálfa klst., en þerrið
þá sneiðarnar. Raðið þeim á
grunnan disk. Blandið öllu við
jógúrtina eða sýrða rjómann og
hellið yfir sneiðarnar. Kælið vel.
Stráið mintunni yfir rétt áður en
borið er fram.
Handa 6.