Þjóðviljinn - 19.04.1983, Side 10
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 19. apríl 1983
Rætt við Þórð Skúlason
á Hvammstanga sem skipar 2. sæti
G-listans I Norðurlandskjördæmi-vestra
Oft erfitt en allt-
af skemmtilegt
-Þettahefurverið
skemmtilegur tími en eins og
gefur augaleið þegar
- íbúatala eins þorps
tvöfaldast á aðeins 10 árum
þá hefur þetta oft verið erf itt
en alltaf skemmtilegt starf að
vera hér sveitarstjóri, sagði
ÞórðurSkúlason,
sveitarstjóri á Hvammstanga
og2. maðurálista
Alþýðubandalagsins í
Norðurlandi vestra í samtali
viðtíðindamann Þjóðviljans
sem heimsótti
Hvammstanga fyrir
skömmu.
Þórður Skúlason er fæddur og
uppalinn á Hvammstanga. Hann
var kjörinn í hreppsnefnd 1970, en
árið 1973 var hann ráðinn sveitar-
stjóri og hætti því í hreppsnefnd-
inni 1974.
Margt sem
kemur til
Nú eru íbúar á Hvammstanga
um 600 en voru ekki nema um 300
fyrir 10 árum síðan, hvað veldur
þessari miklu fólksfjölgun hér?
- Á því er ekki nein ein skýring
til, inní þetta spila sjálfsagt margir
samverkandi þættir. Mér dettur í
hug að nefna, að hér hafa verið
ágæt atvinnutækifæri við rækju-
vinnslu og fiskverkun, hér er rekin
mikil þjónustustarfsemi og svo má
heldur ekki gleyma því að við erum
með hitaveitu, sem hefur án nokk-
urs vafa sitt að segja, þegar fólk
velur sér stað til að setjast að á úti á
landi. Þá kemur einnig til breytt
viðhorf fólks til búsetu úti á landi,
sem er auðvitað afleiðing af upp-
byggingu atvinnulífsins á lands-
byggðinni, sem stjórnvöld hófu
1971.
Hefur þessi fólksfjölgun hjá ykk-
ur átt sér stað jafnt og þétt eða
hefur hún komið í stökkum?
- Segja má að þróunin hafi verið
jöfn sl. 10 ár, aldrei nein veruleg
,stökk. En hér er Iíka aðeins um 10
ára tímabil að ræða og því hefur
þessi mikla fjölgun leitt til ýmissa
erfiðleika fyrir sveitarfélagið, sem
hefur orðið á eftir með ýmislegt
sem að því snýr. Má þar nefna að
við erum á eftir með lagningu slit-
lags á götur, vegna þess að gatna-
gerðarfé hreppsins hefur mest allt
farið í að gera nýjar götur, þar sem
mikið hefur verið byggt á þessum
árum. Hingað hefur flust mikið af
ungu fólki með börn og því er
húsnæði grunnskólans orðið alltof
lítið. Nú og svo hefur verið hér ver-
ulegur húsnæðisskortur. Mig
langar að skjóta því hér inní að
þessi fjölgun stafar ekki bara af því
að fólk hafi flutt hingað, heldur
líka vegna þess að ungt fólk hefur
hætt að flytjast héðan, eins og það'
gerði á árunum áður. Á þeim árum
voru atvinnutækifæri hér fá og
eiginlega ekki um annað að ræða
fyrir ungt fólk en flytjast burtu.
Varst þú í slíkum hugleiðingum
sem ungur maður?
- Já, satt að segja hvarflaði það
að mér, en ég hef alltaf séð fleiri
kosti við það að búa úti á landi og
sat því kyrr og sé ekki eftir því.
Manntegi
þátturinn
í lífinu
Þú segir það hafa fleiri kosti að
búa úti á landi, nefndu mér
eitthvað til.
- Ég skal gera það. Þá má fyrst
af öllu nefna mannlega þáttinn í
tilverunni. í þorpi eins og
Hvammstanga þekkjast allir. Slíkt
skapar ákveðna samkennd þannig
að alla varðar um velferð hvers og
eins. Hér hjálpar fólk náunganum
ef eitthvað ber út af. Allar vega-
lengdir eru stuttar og það tel ég
vera kost. Félagslíf er hér mikið og
gott, samgöngur greiðar, ekki
nema 4ra stunda akstur til Reykja-
víkur eða flug frá Blönduósi ef
menn vilja það frekar.
En hverja telur þú helstu gall-
ana?
- Sennilega það hvað atvinnu-
framboð á svona stað er einhæft og
svo menntunarmöguleikar ungs
fólks og endurmenntun hinna
eldri. Þetta tel ég vera helstu ókosti
þess að búa úti á landi. Það færist
mjög í vöxt að ungt fólk leiti í fram-
haldsnám og þá verður það að leita
suður.
Er algengt að foreldrar flytji á
eftir börnum sínum?
- Nei, ekki svo mjög, það er
auðvitað til en ekki algengt eftir að
atvinnutækifærum fjölgaði hér.
En hvernig líkar fólki sem kemur
úr þéttbýlinu í Reykjavík að setjast
að á litlum stað eins og Hvamms-
tanga? .
- Ég held að ég megi fullyrða að
því líkar yfirleitt mjög vel, alla vega
er það hverfandi að fólk fari aftur
burtu. Mér virðist sem fólk hafi
fullan skilning á því að svona lítið
sveitarfélag getur ekki og mun
aldrei geta, veitt sömu þjónustu og
stóru bæirnir eða Reykjavík. Sem
dæmi get ég nefnt að við erum ný--
búin að byggja hér glæsilega sund-
RIKISSPITALARNIR
lausar stöður
LANDSPÍT ALINN
YFIRSJÚKRAÞJÁLFARI óskast viö endurhæfingar-
deild Landspítalans til a,ðstoöar yfirsjúkraþjálfara
Landspítalans.
Umsóknir er greini menntun og fyrri störf sendist
stjórnarnefnd ríkisspítala fyrir 9. maí n.k.
Upplýsingar veitir yfirsjúkraþjálfari Landspítalans í
síma 29000.
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR óskast á kvenlækninga-
deild 21A.
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR óskast til sumaraf-
leysinga á skurðstofu Landspítalans.
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR óskast til sumaraf-
leysinga við sótthreinsunardeild að Tunguhálsi 2.
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR óskast á Barnaspítala
Hringsins.
FÓSTRA ÓSKAST FRÁ %. JÚLÍ N.K. Á Barnaspítala
Hringsins.
SJÚKRALIÐAR óskast til sumarafleysinga á skurð-
stofu Landspítalans.
Upplýsingar um ofangreind störf veitir hjúkrunarfor-
stjóri Landspítalans í síma 29000.
MEINATÆKNAR óskast á lungnarannsóknastofu.
Upplýsingar veitir deildarmeinatæknir lungnarann-
sóknastofu í síma 29000.
GEÐDEILDIR RÍKISSPÍTALA
HJÚKRUNARDEILDARSTJÓRI óskast við geð
deild Landspítalans frá 1. júlí n.k. eða eftir samkomu-
lagi.
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR óskast til sumaraf-
leysinga á hinar ýmsu geðdeildir.
SJÚKRALIÐAR óskast til sumarafleysinga. Upplýs-
ingar um ofangreind störf veitir hjúkrunarforstjóri í
síma 38160.
RÍKISSPÍTALAR
Reykjavík, 17. apríl 1983.
Þórður Skúlason á Hvammstanga:
gott hljóð í fólki hér um slóðir.
Ljósm. S.dór.
laug, sem aftur veldur því að við
getum ekki ráðist alveg strax í við-
byggingu við skólahúsið, sem þó er
orðið aðkallandi verkefni.
Við erum í sókn
Hvernig starf er það að vera
sveitarstjóri?
- Það er mjög fjölbreytt og
skemmtilegt. Maður hittir marga
og kynnist mörgum, en þeir sem
vilja rólegt starf, ættu ekki að ger-
ast sveitarstjórar. Stundum er
maður feginn þegar hann rýkur
upp með stórhríð og fáir eru á ferli,
þá vinnst manni oft tími til að ljúka
störfum sem annars væri ekki unnt.
Snúum okkur að öðru, hvernig
leggjast kosningarnar í þig?
- Mjög vel, það er gott hljóð í
fólki og ég er sannfærður um að
Alþýðubandalagið er í sókn í þessu
kjördæmi. Málefnastaða okkar er
sterk og Ragnar Arnalds hefur
staðið sig afskapiega vel sem þing-
maður fyrir Norðurland vestra og
þá ekki síður sem ráðherra. Al-
þýðubandalagið hefur alltaf átt
nokkurt fylgi hér á Hvammstanga
en svo buðum við fram við sveitar-
stjórnarkosningarnar sl. vor og
fengum mann í hreppsnefnd. Fylg-
ið reyndist mun meira en flestir
áttu von á og það fer vaxandi. Nú
erum við að fara af stað á fullri ferð
í kosningaundirbúningi og kosn-
ingarnar leggjast vel í okkur hér.
Hestamennska
Það er til siðs að spyrja fólk um
áhugamál í svona viðtölum, hvað
gerir þú helst í tómstundum?
- Það er nú svo með mig að mín
áhugamál tengjast mjög starfinu,
en þar fyrir utan er ég í hesta-
mennsku. Ég á fjóra hesta og set
mig ekki úr færi að skreppa á bak
þegar tækifæri gefst. Ég hef haft
það fyrir sið að fara einu sinni á
sumri ríðandi fram á Arnarvatns-
heiði og liggja þar við í veiðiskap
nokkra daga og eins fer ég í göngur
á haustin. Þetta hvoru tveggja þyk-
ir mér ómissandi. Hér á Hvamms-
tanga er töluverð hestamennska og
í gegnum hana hef ég kynnst mörgu
góðu og skemmtilegu fólki, kynni
sem ég hefði ekki viljað missa af.
-S.dór.
Hlégarður
á fimmtudag:
Sigrún
Hjálmtýs-
dóttir syngur
Næstkomandi fimmtudag 21.
apríl 1983 kl. 20:30 verða haldnir
tónlcikar á vegum Tónlistarfélags
Mosfellssveitar.
Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran
syngur við undirleik Önnu Guð-
nýjar Guðmundsdóttur.
Áefnisskráerufjölbreytt, léttog
skemmtileg lög og kammerverk,
eftir Mozart, Schubert, Schumann,
Brahms, Rossini o.fl.
Sigrún Hjálmtýsdóttir og
Anna Guðný Guðmundsdóttir.
Þetta eru fyrstu tónleikar Sig-
rúnar, síðan hún hélt utan til náms,
en hún er nú á 3. ári við Guildhall
School of Music and Drama í
London.
Aðgöngumiðar verða seldir við
innganginn og eru allir velkomnir.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar
Heimili óskast á Suövesturlandi fyrir 10 ára
gamlan, talsvert heyrnarskertan dreng.
Einnig kemur til greina heimili, sem getur
tekið hann að sér um helgar og í skólaleyfum.
Upplýsingar gefnar í síma: 74544.
a_
Hálft starf
ÓNSKÓLI
Tónskóli Sigursveins D. Kristinssonar
óskar að ráða í hálft skrifstofustarf.
Góð kunnátta í íslensku, bréfaskriftum og
vélritun er nauðsynleg.
Vinnutími er kl. 14-18 virka daga. Umsóknir
leggist inn á auglýsingadeild Þjóðviljans
merktar „Tónskólinn“.