Þjóðviljinn - 28.04.1983, Page 1
TRÉIÐNAÐURINN
BLAÐAUKI
Þetta starf okkar hér hjá
T rétæknideildinni er til komið í
beinuframhaldi af
Markaðsátakinu í
húsgagnaiðnaði sem hófst
1980 og stóð á þriðja ár.
Tilgangur þess verkefnis var að
aðlaga húsgagna- og innrétt-
ingaiðnaðinn að breyttum
markaðsaðstæðum og leggja
grundvöll að útflutningi
húsgagna. Þetta starf skilaði að
flestradómi góðum árangri.
Hlutverk T rétæknideildarinnar
er að veita aðstoð fyrirtækjum
og einstaklingum ítréiðnaði
hérlendis, með því að veita
rekstrar-, tækni-, og
markaðsráðgjöf á öllum
sviðum tréiðnaðar, sögðu þeir
Hlöðver Ólafsson trétæknir og
ÞórðurMarkús Þórðarson
tæknifræðingur, starfsmenn
Trétæknideildar.
- Það er búið að ræða þessi mál í
mörg ár og taka saman metersháar
skýrslur um að eitthvað í þessum
dúr þyrfti að gera. í sambandi við
Markaðsátakið 'mikla var okkar
hlutverk að halda eftir þeim fróð-
leik og þekkingu sem þar kom fram
frá erlendum ráðgjöfum og fylgjast
með þróuninni hjá þeim fyrirtækj-
um sem tóku þátt í Markaðsátak-
inu og halda áfram upplýsinga- og
ráðgjafarstarfi fyrir tréiðnaðinn.
Auk þeirra Hlöðvers og Þórðar sér
Sigurður Guðmundsson viðskipta-
fræðingur um ráðgjöf varðandi
fjármál og stjórnun.
„Það er Ijóst að verkefnin framundan eru geysileg" Þórður t.v. og Hlöðver fyrir framan húsnæði Iðntæknistofnunar á Keldnaholti.
í sumar er ráðgerð helmingsstækkun á húsnæðinu sem bætir mjög úr aðstöðu Trétæknideildarinnar. Mynd-eik.
Leitað upplýsinga
um ólíklegustu hluti
Eitt stærsta verkefnið hjá okkur
síðustu misseri hefur verið ráðgjöf
og endurskipulagning Húseininga-
verksmiðjunnar Aspar í Stykkis-
hólmi. Sú verksmiðja var stækkuð
um helming og við skipulögðum
nýja húsnæðið og vinnsluferli. Þá
hefur stór hluti af okkar starfi farið
í ýmiss konar tækniráðgjöf til fyrir-
tækja og einstaklinga.
Varðandi val á vélum og tækja-
búnaði höfum við viðað að okkur
víðtækum upplýsingum. Það er
mikið hringt hingað og leitað upp-
lýsinga um ólíklegustu hluti sem
tengjast tréiðnaði á einn eða annan
hátt. Námskeiðahald verður stór
liður í okkar starfi og eins náið
samstarf við iðnfulltrúa í lands-
fjórðungunum.
Hvernig hafa tréiðnaðarmenn og
framleiðendur tekið þessari þjón-
ustu sem hér er veitt?
- Mjög vel. Það er ekki hægt að
segja annað. Þeir hafa veitt okkur
mikinn stuðning og við höfum ver-
ið að reyna að móta okkar starf
eftir þörfum þeirra og óskum.
Gæðaeftirlit
er stórt neytendamál
Hvar þarf helst að taka til hend-
inni í tréiðnaðinum?
- Það er víða sem þarf að taka til
hendinni. Eitt það fyrsta sem við
„Erum að snúa
vörn í sókn“
Rætt við Hlöðver Ólafsson og Pórð M. Þórðarson
starfsmenn Trétæknideildar Iðntæknistofnunar
þurfum að koma upp hér í stofnun-
inni, er aðstaða til gæðaeftirlits
með innlendri framleiðslu á hús-
gögnum og innréttíngum. Þetta
mál er búið að vera á döfinni frá því
1967 en ekkert hefur gerst ennþá.
Hér er mikið um neytendamál
að læða. Alþjóðlegir staðlar eru til
sem þarf að staðfæra. Þegar því
verki er lokið, verður fjárfest í
prófunartækjum og þá getum við
tekið til gæðakönnunar stóla,
hurðir og fleira. Athugað samsetn-
ingu, yfirborð límingar og svo
framvegis. Varan þarf að standast
lágmarksgæði til að fá viðurkenn-
ingu, og fólk getur þá séð hvaða
gæði hver vara uppfyllir.
Þurrt loft -
léleg líming
Hér er auðvitað um brýnt hags-
munamál fyrir innlendan tréiðnað
að ræða, vegna samanburðar við
innflutning, ekki síst vegna þess að
hérlendis er óvenju þurrt loft í hý-
býlum manna, og límd húsgögn
fara oft illa við slíkar aðstæður.
Þetta er t.d. áberandi galli á borð-
stofuhúsgögnum. Einmitt þess
vegna er ástæða til að gera sérstak-
ar kröfur um þurrkun á timbri og
betri límingu en þekkist annars
staðar.
í heildina þá eru gæði íslenskra
húsgagna góð, og þær vörur sem
seldar eru erlendis eru í hámarks-
gæðaflokki. Islensk einingahús eru
líka góð framleiðsla, en auðvitað er
margt sem má laga og gera enn bet-
ur en er í dag.
Kæruleysi um
vinnuumhverfi
Hvaða þættir eru það helst?
- Það sem snýr að vinnustaðnum
sjálfum, vinnuumhverfinu, er víða
mjög ábótavant hérlendis. Menn
eru alltof kærulausir um öryggi og
starfsaðstæður allar. Það er stór
galli, sem hefur mikið að segja
gagnvart allri framleiðslunni og
rekstrarafkomu. Viðhaldi á flókn-
um og dýrum trésmíðavélum er
mjög ábótavant. Við fengum
danskan sérfræðing í viðhaldi
slíkra véla hingað til lands á dögun-
um og hann hefur örugglega haft
mikil áhrif á þá sem stjórna og
vinna með þessum vélum.
Þrif er vandamál í mörgum tré-
iðnaðarfyrirtækjum. Sum staðar er
varla hægt að fóta sig fyrir drasli.
Hér þarf hugarfarsbreytingu.
Sölumálin þarf að
taka í gegn
Sölumálin er annað stórmál sem
þarf að sinna vandlega. Þegar við
kynntum framleiðendum á sínum
tima okkar áætlanir voru þeir ekki
á því að markaðsmál væru mikið
vandamál. Við teljum hins vegar
að í þeim efnum ríki mikil van-
kunnátta. f sölumálum og mark-
aðsmálum hafa verið gerð stór og
dýr mistök á liðnum árum. Hlutir
sem mega ekki endurtaka sig. Því
hefur það verið stefna stofnunar-
innar að hingað verði ráðinn starfs-
maður sem hafi eingöngu með
þessi mál að gera, markaðsráðgjöf
og fjármálastjórn.
Erlendir söluaðilar hérlendis
hafa getað dreift vönduðum kynn-
ingaritum þar sem hlutirnir líta vel
út á pappír en raunin verður kann-
ski allt önnur þegar búið er að
kaupa. Einmitt þess vegna eru
gæðastaðlar bráðnauðsynlegir.
Bæði gagnvart innlendri sem inn-
fluttri vöru. Slíkt gæti treyst inn-
lendan iðnað og heft innflutning
um leið og hér er mikið neytenda-
mál á ferðinni. Fólk getur treyst á
slíkar gæðaprófanir.
Uppstokkun
í iðnaði
Hver hefur árangurinn orðið af
því starfí sem þegar hefur verið
innt af hendi í markaðs- og þróun-
armálum í tréiðnaði?
- Það er alveg víst, að þau fyrir-
tæki sem hafa tekið þátt í þessari
vöruþróun að einhverju marki,
hafa fengið margfalt til baka út-
lagðan kostnað vegna þessa. Það
eru ýmis fyrirtæki í tréiðnaði hér-
lendis sem hafa á undanförnum
árum gjörbreytt framleiðslu sinni
og allri vinnslu mjög til batnaðar.
Það er að verða viss uppstokkun í
iðnaði. Þau fyrirtæki sem hafa lagt
eitthvað á sig og haft augu og eyru
opin koma til með að standa sig
best, en auðvitað finna allir fyrir
þeim samdrætti sem nú er í samfé-
laginu. Sum fyrirtæki munu hætta
en önnur vaxa.
Verkefnin framundan
geysileg
Menn hafa haft miklar áhyggjur
af geigvænlegum innflutningi hús-
gagna og talið að sá iðnaður væri
að lognast útaf hérlendis?
- Það var hér vissulega stórt gat í
markaðnum sem erlendir aðilar
gátu og fylltu og meir en það. En
varðandi gæði, hönnun og verð, þá
hafa menn verið að snúa vörn í
sókn hér innanlands. Það eru til
aðiiar hér innanlands sem sjá
aðeins svart framundan, en þeir
eru líka margir sem sjá mikla
möguleika.
Innlenda framleiðsluvaran er
orðin mjög góð, en það sem vantar
er almenn vöruþekking og upplýs-
ingar til almennings og þar þurfa
Neytendasamtökin að vera virkari
aðili í framtíðinni. Það er ljóst að
verkefnin framundan hjá okkur
eru geysileg, sögðu þeir Hlöðver
og Þórður.