Þjóðviljinn - 28.04.1983, Blaðsíða 8
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 28. apríl 1983
BLAÐAUKI
Kostnaðartölur
VÍSITÖLUHÚSA
Rannsóknarstofnun
byggingariönaðarins hefur
nýverið sent f rá sér
kostnaðartölur hinna
svokölluðu vísitöluhúsa
miöað við verðlag í
desembermánuði 1982 og
afturá verðlagi
marsmánaðar 1983. Á þessu
tímabili óx vísitala
fjölbýlishússins um 20%,
einbýlishússins um 19% og
iðnaðarhússins um 18%.
Meginhlutverk vísitalna er að mæla hlutfallslegar breytingar bygging-
arkostnaðar og einstaka hluta hans, en upplýsingar um byggingarkostnað
á rúmmetra og fermetra geta einnig verið gagnlegar í ýmsum tilvikum og
hefur Rannsóknarstofnunin því ákveðið að birta þær tölur hér eftir fyrir
svokölluð vísitöluhús.
Þessar kostnaðartölur voru í desember og mars s.l.:
Verðlag í desembermánuði 1982
Vísitölustig 1. jan. 1983
Fjölbýlishús (vísitala 100 stig)....................... 2948,79 kr/mj
Einbýlishús(vísitala lOOstig)..........................4254,17 kr/m
Iðnaðarhús (vísitala 732 stig).........................7111,06 kr/m3
Verðlag í marsmánuði 1983
Vísitölustig 1. apríl 1983
Fjölbýlishús (vísitala 120 stig)....................... 3530,30 kr/m,
Einbýlishús(vísitala 119 stig).....■....................5073,51 kr/m'
Iðnaðarh ús (vísitala 864 stig).........................8393,97 kr/m
STfORNU
BIÍONDUNARIÆKI
frá Noregi
Bnina A-línan
T
Sterb og endingargóð tæfeí,
sem setja nýtisfeulegan
svip á umhverfið
UTSOLUSTAÐIR
Byggingavöruverslun Tryggva Hannessonar, Sidumúla 37, 105 Reykjavik
Byggingavöruverslun Jón Loftsson hf.. Hnngbraut 119, 107 Reykjavik
Axel Sveinbjörnsson hf., Hafnarbraut, 300 Akranes
Byggingavöruverslun Sigurjóns og Þorbergs, 300 Akranes
Verslunm Vík sf., 625 Ólafsfjöröur
Kaupfélag Hvammsfjarðar, 370 Búöardal
Jón Fr. Einarsson, Hafnarg./Aöalstr., 415 Bolungarvik
Hiti sf.. 600 Akureyri
Kaupfélag Langnesinga, 680 Þórshöfn
Kaupfélag Rangæinga. Rauðalæk
Miðstöðin sf , Faxastig 9, 900 Vestmannaeyjar
Kaupfélag Suðurnesja, járn og skip, 230 Keflavik
Stapafell hf., Hafnargötu 29, 230 Keflavik
Lækjarkot, Lækjargötu 32, 220 Hafnarfjörður
heiidversJun MarinóPétursson
SUNDABORG 7 124 REYKJAVÍK. SÍMI: 81044
En hver eru þessi svokölluðu vísitöluhús?
Fjölbýlishús í Reykjavík
er eitt endastigahús af þrem í fjögra hæða íbúðarblokk. í stigahúsi þessu
eru 10 íbúðir, þrjár 2ja herbergja, þrjár 3ja herbejgja og fjórar 4ra
h^rbergja íbúðr. Flatarmál (utanmál) hússins er 240 m" og rúmmálið 2844
m . Bifreiðageymslur fylgja ekki húsinu.
Einbýlishús
í nágrannabyggð Reykjavíkur, nánar tiltekið á einni hæð með áfastri
bifreiðageymslu. íbúðin er fjögur svefnherbergi, tvær samlægar stofur,
sjónvarpsherbergi, eldhús og bað, anddyri og forstofa. Bílskúrinn rúmar
tvo bíla. Þar er jafnframt geymsla, föndurherbergi, þvottahúskrókur og
so^pgeymsla. Flatarmál (utanrpál) íbúðar er 142,m og bifreiðageymslu 60
m . - Heildarrúmmál er 617 m . Lóðin er 840 m‘ með sólgarði mót suðri.
Iðnaðarhús
í Reykjavík. Iðnaðarhús þetta er einlyft, einn geimur fullfrágenginn að
utan og innan. Húsið er án allra innréttinga og tækja, nema hvað gert er
ráð fyrir hreinlæti$aðstöðu fyrir starfsfól^. Flatarmál (utanmál) iðnaðar-
hússins er 1077 m‘ og rúmmálið 5922 m .
Rétt er að benda á að kostnað þessara húsa er ekki unnt að bera saman
við byggingarkostnað hvaða annars húss sem er án þess að kynna sér gerð
og frágang viðkomandi húss og bera saman við lýsingu vísitöluhúsa, en
þeim er lýst í sérritum Rannsóknarstofnunar byggingariðnaðarins.-
Iðnhörmuðirá íslandi
Félagið Iðnhönnuðir íslandi hef-
ur starfað frá því í nóvember árið
1982. í þessu fagfélagi iðnhönnuða
eru nú 6 félagar.
Verksvið iðnhönnuða er m.a. að
gera iðnvarning þannig úr garði að
fullnægt sé framleiðsluhagkvæmni,
og notagildi. Stuðst sé við reglu-
gerðir og staðla. Samsetning,
styrkur, viðhald og öryggi sé full-
nægt og ýmislegt fleira s.s. litur,
hljóð, lykt, umbúðir, flutningur og
markaður, koma inn á verksvið
iðnhönnuða.
Stefna félagsins er að vinna að
framþróun íslenskrar iðnaðarvöru
í samvinnu við framleiðendur og
önnur samtök og stofnanir sem
standa að íslenskum iðnaði.
Félagar í Iðnhönnuðir íslandi
eru þeir: Ástráður Guðmundsson,
almenn hönnun og mótasmíði.
Ástþór Ragnarsson, nýhönnun,
vöruþróun og líkanasmíð. Einar
Þorsteinn Ásgeirsson, módelbygg-
ingar, leikföng og geómetrísk
formun. Einar Eberhardtsson,
iðnhönnun, tæki, vélar og áhöld.
Ernst J. Bachman, auglýsingar og
Gunnar Snæland, hönnun og
stjórnun.
Félagið Iðnhönnuðir á íslandi
hefur aðsetur að Álftamýri 9,
Reykjavík.