Þjóðviljinn - 05.07.1983, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 05.07.1983, Qupperneq 11
Þriðjudagur 5. júlí 1982 ÞJÓÐVILJÍNN — SÍÐÁ 15 Sérstætt dómsmál: Ummæli menntamála- ráöherra dæmd ómerk „Stefndi, Ingvar Gíslason, greiði stefnanda, Margréti Guðnadóttur, kr. 10.000.00 í málskostnað. Fram- angreind ummæli skuiu vera ómerk. Kröfur stefnanda um refs- ingu og fégjald til að kosta birtingu forsendna og dómsorð eru ekki tekin til greina. Dómi þessum ber að fullnægja innan 15 daga frá lög- birtingu hans að viðlagðri aðför að lögum.“ Þannig hljóða dómsorð borgar- dómara, Eggerts Óskarssonar, í málinu „Margrét Guðnadóttir gegn Ingvari Gíslasyni“ en þau voru kveðin upp í Bæjarþingi Reykjavíkur hinn 4. maí sl. Mar- grét Guðnadóttir er prófessor við læknadeild Háskóla Islands - Ing- var Gíslason er fyrrverandi menntamálaráðherra. Það telst til tíðinda, að æðsti yfirmaður menntamála landsins skuli sóttur til saka og dæmur og ummæli hans dæmd ómerk. f frásögninni af þessu einstæða máli er stuðst við endurrit úr Dómabók Bæjarþings Reykjavíkur. Sótt um prófessorembœtti Margrét Guðnadóttir var í ágúst- mánuði 1980 skipuð í dómnefnd skv. tilnefningu læknadeildar HÍ til að fjalla um hæfni tveggja umsækj- enda, sem sótt höfðu um prófess- Margrét Guðnadóttir: tatdi æðsta yfirmann menntamála í landinu hafá farið út fyrir öll velsæmis- mörk. orsembætti í ónæmisfræði við læknadeildina. Umsækjendur voru dr. Helga Ögmundsdóttir, læknir, og Helgi Valdimarsson, dósent. Auk Margrétar áttu sæti í dóm- nefndinni Guðmundur Pétursson, læknir, og Sigurður Samúelsson, prófessor, og var Margrét formað- ur nefndarinnar. Á almennum deildarfundi í læknadeild hinn 24. nóvember 1980 var ráðstöfun þessa prófess- orsembættis tekin til umfjöllunar og afgreiðslu, en dómnefndin hafði komist að þeirri niðurstöðu, að F.Í.B. félagar athugið Félag íslenskra bifreiðaeigenda efnir til full- trúakjörfundar fyrir umdæmi 1 - Höfuðborg- arsvæði, þriðjudaginn, 12. júlí n.k. á skrif- stofu félagsins að Borgartúni 33, Reykjavík kl. 20.30. Dagskrá fundarins: Kjör fulltrúa til fulltrúaþings F.Í.B. Atkvæðisrétt hafa allir fullgildir félagsmenn F.Í.B. sem greitt hafa árgjaldið 1983 og fram- vísa félagsskírteini við innganginn. Stjórn Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Laus staða Hldtastaða dósents (37%) í geislalæknisfræði við læknadeild Háskóla Islands er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf um- sækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 1. ágúst n.k. Starf yfirfiskmatsmanns á Snæfellsnesi Starf yfirfiskmatsmanns hjá Framleiðslueftir- liti sjávarafurða, með búsetu á Snæfellsnesi, er laust til umsóknar. Reynsla af framleiðslu og meðferð sjávar- afurða svo og matsréttindi í sem flestum greinum fiskmats æskileg. Umsóknir sendist sjávarútvegsráðuneytinu fyrir 15. júlí n.k. Sjávarútvegsráðuneytið, 30. júní 1983. báðir umsækjendur væru hæfir til að gegna stöðunni. í áliti dómnefndar var ekki mælt með öðrum hvorum umsækjandanum. í atkvæðagreiðslu um meðmæli deildarinnar varðandi þessa stöðu- veitingu hlaut Helga Ögmunds- dóttir 22 atkvæði,' Helgi Valdi- marsson 21 atkvæði,2 seðlar voru auðir og 1 ógildur. Ingvar veitir Helga embœttið Menntamálaráðherra, Ingvari Gíslasyni, var kynnt þessi niður- staða deildarfundarins með bréfi deildarforseta læknadeildar í des- ember 1980. Með bréfi dagsettu sama dag og bréf deildarforsetans, sem undirritað var af fjórum kenn- urum við læknadeild Háskólans, var ráðherra sendur undirskrifta- listi með nöfnum 41 kennara lækn- adeildar þar sem þeir mæltu ein- dregið með því, að Helga Valdi- marssyni yrði veitt prófessorsstað- an (Helgi varð dósent við lækna- deildina 1974). f lok desember 1980 skipaði menntamálaráðherra Helga Valdimarsson í embætti prófessors í ónæmisfræði við lækn- adeild Háskóla íslands. Athugasemdir í útvarpi í kvöldfréttatíma Ríkisútvarps- ins hinn 3. febrúar 1981 var fjaliað um veitingu þessa prófessorsem- bættis og var í því sambandi leitað álits Ingvars Gíslasonar, Víkings Arnórssonar, deildarforseta læknadeildar, svo og Margrétar Guðnadóttur. Þar með hafði verið vakin athygli á veitingunni, og næst gerist það, að Kvennréttindafélag Islands sendir Jafnréttisráði bréf, þar sem þeim tilmælum er beint til ráðsins, að það taki til meðferðar veitingu embættisins. í bréfi þessu er þess farið á leit af hálfu Jafnrétt- isráðs áð Ingvar Gíslason veiti um- sögn sína varðandi veitingu em- bættisins með tilvísun til laga um jafnrétti karla og kvenna. Hin œrumeiðandi ummœli mennta- málaráðherra í júnímánuði 1981 var greinar- gerð sú, sem Ingvar Gíslason sendi Jafnréttisráði birt í Þjóðviljanum, Tímanum og Vísi og auk þess flutt í Ríkisútvarpinu. Fram kemur í Dómabók Bæjarþings Reykjavík- ur, að Ingvar Gíslason hafi tekið ákvörðun um birtingu þessa, „Þar sem fjölmiðlar höfðu hvað eftir annað fjallað um mál þetta, oftast á þann veg, að brotið hefði verið gegn jafnrétti kynjanna um veit- ingu prófessorsembættis í ónæmis- fræði. Með birtingu á greinar- gerðinni vildi stefndi koma sjónar- miðum sínum á framfæri, í eitt skipti fyrir öll.“ Ummælin, sem birt voru, eru þessi: „En ég get ekki legið á því lengur, eins og við mig er látið, að Margrét Guðnadóttir hefur við viss tækifæri brugðist hlutlægnisskyldu sinni og trúnaði sem formaður dómnefnd- ar. Alveg sérstaklega brást hún trúnaði samnefndarmanna sinna þcgar hún lagði dómncfndarálitið fyrir læknadeild til atkvæða- greiðslu. Af því hef ég órækar frá- sagnir. Hún hafði framsögu f.h. dómnefndar, en hagaði máli sínu þannig, að það var „samfelld fram- boðsræða f.h. Helgu Ögmunds- dóttur“, eins og einn áheyrandi orðaði það í mín eyru og bar þar í öllu saman við það sem aðrir höfðu að segja um ræðuflutning for- mannsins í það sinn. Þar sem ég þekki til þykja það ekki heiðarleg vinnubrögð, þegar framsögu - naður nefndar notar ræðutíma sinn til þess að reka áróður fyrir einka- skoðunum sínum og villa um fyrir áheyrendum hvað varðar skoðanir annarra nefndarmanna.“ Allt dœmt \ ómerkt Það eru þessi ummæli, sem borg- ardómari dæmdi ómerk hinn 4. maí. Þess ber að geta, að Margrét Guðnadóttir óskaði eftir því við ríkissaksóknara með bréfi dags. 3. desember 1981, að opinber rann- sókn færi fram á aðdróttunum og ærumeiðingum þeim, sem voru í greinargerð stefnda. Ríkis- saksóknari hafnaði þessari beiðni og því höfðaði Margrét einkamál á hendur Ingvari, og sýnist full á - ;tæða hafa v^rið til.þrátt fyrir við- brögð ríkissaksóknara (hvað sem þeim nú olli). í forsendu dómsins er hann rök- studdur svo: „Ekki er unnt að fallast á þá rök- semd stefnda, að hin umdeildu um- mæli geti ekki talist vera ærumeið- andi í garð stefnanda almennt séð. Þótt umræða almennt kunni að vera opnari en áður, þá eru mál- frelsinu eftir sem áður takmörk sett og æra manna vernduð lögum sam- Ingvar Gísiason: allt dæmt ómerkt og Ingvari gert að greiða máls- kostnað Margrétar. kvæmt. Þá er og á það að líta, að ummæli þau, sem mál þetta er sprottið af tengjast ekki þjóðmál- aumræðu með þeim hætti að leiða kunni til rýmkaðs málfrelsis. Stefndi þykir ekki hafa sýnt fram á í þessu, að framganga stefnanda á greindum fundi læknadeildar, eða við önnur tækifæri, hafi verið með þeim hætti, að réttlætt geti þau um- mæli er hann viðhafði, og aðila- skýrsla stefnanda, sem stefndi byggir á að þessu leyti, þykir held- ur ekki gefa tilefni til þess.“ Og, eins og áður sagði, ber Ing- vari Gíslasyni, fyrrverandi menntamálaráðherra, nú að greiða Margréti Guðnadóttur, prófessor, krónur 10 þúsund í málskostnað. Lögmaður Margrétar var Gísli Gíslason og sagðist hann í samtali við blaðið líta svo á, að Ingvari bæri sjálfum að greiða þennan kostnað, ekki menntamálaráðuneytinu. Lögmaður Ingvars var Eiríkur Tómasson. ast Athugasemd frá aðstoðarforstjóra Landsvirkjunar Hr. ritstjóri Eftirfarandi óskast birt í blaði yðar. Á forsíðu Þjóðviljans þann 30. júní s.l. var birt frétt, þar sem því var slegið upp með stóru letri að stjórnarformaður Landsvirkjunar Jóhannes Nordal hafi látið vísa til- lögu um eðlilegt upplýsingastreymi til stjórnar Landsvirkjunar frá varðandi endurskoðun samninga við Alusuisse. Hér er um stórlega villandi fréttaflutning að ræða og ómakleg árás á stjórnarformann Landsvirkjunar. Óhjákvæmilegt er því að gera eftirfarandi athuga- semd. Á fundi stjórnar Landsvirkjunar þann 28. júní s.l. var lagt fram bréf frá iðnaðarráðuneytinu þar sem segir: „Iðnaðarráðherra hefur með bréfi dags. 14. júní 1983, skipað nefnd, „Samninganefnd um stóriðju", til þess að annast viðræður og samn- inga um orkufrekan iðnað. Eitt fyrsta verkefni nefndarinnar er að vinna að samningum við Alu- suisse, m.a. um hækkun rafórku- verðs til ISAL. í því efni hefur nefndinni verið falið að hafa nána samvinnu við stjórn Landsvirkjun- ar, sem verður hinn formlegi samn- ingsaðili um raforkuverðið.“ f tilefni af bréfi þessu lagði Guð- mundur Magnússon stjórnarm- aður fram eftirfarandi tillögu: „Stjórn Landsvirkjunar óskar eftir því að í samingum við Alusuisse verði haft fullt samráð við stjórn Landsvirkjunar og hafi hún ætíð greiðan aðgang að öllum upplýs- ingurn er snerta samninga um orkuverð." í umræðum um þessa tillögu kom fram hjá ýmsum stjórnarmönnum að hingað til hefðu stjórnarmenn ávallt haft greiðan aðgang að öllum þeim upplýsingum sem tiltækar væru hjá fyrirtækinu og væri engin ástæða til að véfengja rétt stjórnar- manna til að afla þeirra. Formaður tók fram að samráð yrði haft við nefnd þá, sem stjórn Landsvirkj- unar kaus á 462. fundi sínum 30. desember s.l. til að fjalla um verð- lagningu og söluskilmála til orku- freks iðnaðar, en ljóst væri að stjórn Landsvirkjunar hefðiþó síð- asta orðið í þessum efnum, þar sem ofangreind nefnd stjórnarinnar hafi ekkert umboð til samninga um þessi mál. Formaður lagði síðan fram eftirfarandi frávísunartillögu: „í bréfi iðnaðarrráðuneytisins dags. 23. þ.m. til stjórnar Lands- virkjunar eru lagðar fram tillögur um skipan samningamála við Alu- suisse, sem stjórn Landsvirkjunar getur samþykkt, auk þess sem í bréfinu er óskað náins samráðs Samninganefndar um stóriðju og stjórnar Landsvirkjunar. Með vís- an til þessa sé ég ekki ástæðu fyrir þessa tillögu og legg til að henni verði vísað frá.“ Gengið var til atkvæða um frá- vísunartillöguna og hún samþykkt með 6 atkvæðum á móti einu. Eins og ljóst má vera af ofan- greindu, mun stjórn Landsvirkjun- ar óhjákvæmilega fylgjast mjög ná- ið með starfi „Samninganefndar um stóriðju" hvað varðar raforku- verðið til ISAL og áðurnefnd frétt Þjóðviljans því byggð á misskiln- ingi eða rangtúlkun á því sem gerð- ist á áðurnefndum fundi stjórnar Landsvirkjunar. Reykjavík 1. júlí 1983 _ Jóhann Már Maríusson aðst. forstjóri

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.