Þjóðviljinn - 05.07.1983, Page 15

Þjóðviljinn - 05.07.1983, Page 15
Þriðjudagur 5. júlí‘ 198^' 'ÞJ'ÓÐViLJÍNN - SÍÐA '19 RUV © 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn Tónleikar Þulur velur og kynnir 7.25 Leikfimi. Tónleikar. 7.55Daglegt mál. Endurt. þáttur Árna Böðvarssonar frá kvöldinu áður. 8.00 Fréttir Dagskrá 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð: Guðríður Jónsdóttir talar Tónleikar. 8.30 Mylsna Þáttur fyrir morgunhressa krakka. Stjórnendur: Ása Helga Ragn- arsdóttir og Þorsteinn Marelsson. 8.40 Tónbilið 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Stroku- drengurinn" ettir Astrid Lindgren Þýð- andi: Jónína Steinþórsdóttir. Gréta Ól- afsdóttir les (17). 10.35 „Man eg það sem löngu leið“ Ragn- heiður Viggósdóttir sér um þáttinn. 11.05 íslenskir einsöngvarar og kórar syngja 11.30 Blandað geði við Borgfirðinga Hverahitun húsa og brautryðjandinn Er- lendur Gunnarsson, Sturlu-Reykjum. Umsjón: Bragi Þórðarson. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn- ingar. Þriðjudagssyrpa - Páll Þorsteins- son. 14.00 „Refurinn í hænsnakofanum" eftir Ephraim Kishon í þýðingu Ingibjargar Bergþórsdóttur. Róbert Arnfinnsson les (7) Þriðjudagssyrpa frh. 15.20 Andartak Umsjón: Sigmar B. Hauks- son 16.20 Síðdegistónleikar. Álfred Sous og Endres-kvartettinn leika Óbókvartett i F-dúr K.370 eftir Wolfgang Amadeus Mozart / Kammersveitin i Stuttgart leikur Serenöðu fyrir strengjasveit op. 6 eftir Josef Suk; Karl Munchinger stj. 17.05 Spegilbrot. Þáttur um sérstæða tón- listarmenn síðasta áratugar. Umsjónar- menn: Snorri Guðvarðarson og Benedikt Már Aðalsteinsson (RÚVAK). 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar 19.50 Við stokkinn. I kvöld segir Gunnvör Braga börnunum sögu fyrir svefninn. 20.00 Sagan: “Flambardssetrið" eftir K.M. Peyton. Silja Aðalsteinsdóttir les þýðingu sina. (9) 20.30 Sönghátíð í Reykjavik 1983. Frá Ijóðatónleikum Gérards Souzay i Austur- bæjarbíói 27. f.m. Dalton Baldwin leikur á píanó. - Kynnir: Hanna G. Sigurðar- dóttir. 21.40 Útvarpssagan: „Leyndarmál lög- reglumanns“ eftir Sigrúnu Schneider Ólafur Byron Guðmundsson lýkur lestrin- um (6) 22.35 Skruggur. Þættir úr islenskri sam- tímasögu. 10. maí 1940 Umsjón: Eggert Þór Bernharðsson. Lesari með umsjón- armanni: Þórunn Valdimarsdóttir. 23.15 Rispur. Draumlönd í fjarska Um- sjónarmenn: Árni Óskarsson og Friðrik Þór Friðriksson. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. RUV 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Einmitt svona sögur Breskur teikni myndaflokkur gerður eftir dýrasögum Rudyards Kiplings. Þýðandi Guðni Kol- beinsson. Sögumaður Viðar Eggertsson. 20.50 Derrick 10. þáttur. Þýskur saka- málamyndaflokkur. Þýðandi Veturliði Guðnason. 21.50 Mannsheilinn - Nýr flokkur - Fyrsti þáttur Fræðslumyndaflokkur frá BBC. Heilinn er flóknasta líffæri mannslikamv ans og þrátt fyrir miklar rannsóknir er enn margt á huldu um starfsemi hans. I þessum myndaflokki er gerð grein fyrir því helsta sem vitað er um mannsheil- ann, einkum hvað varðar hugsun, minni, mál, skynjun og stjórn hreyfinga, ótta og loks geðsjúkdóma. Umsjónarmenn: Dick Gilling og Robin Brightwell. Þýðandi og þulur Jón O. Edwald. 22.45 Dagskrárlok. Sjónvarp kl. 21.50 Skyggnst um í heilabúinu Klukkan 21.50 sýnir Sjónvarpið fyrsta þátt í nýjum fræðlsumynda- flokki frá BBC. Er þar fjallað um furðufyrirbærið mannsheilann. F>ótt „margt sé skrítið í kýrhöfðinu" og mannslíkaminn, eins og hann leggur sig, hið mesta völundarsmíði, þá mun þó heilinn taka öðrum líffær- um fram um flókna og duiarfulla gerð. Og þó aö læknar og vísindamenn hafi reynt að hnýsast í heilabúið eftir föng- um og orðið ýmislegs áskynja um það, er þó enn margt í myrkri um starfsemi þess. í þessum myndaflokki er gerð grein fyrir því helsta, sem vitað er um mannsheilann, einkum hvað varðar hugsun, minni, mál, skynjun og stjórn hreyfinga, ótta og loks geösjúkdóma. Umsjónarmenn þáttaris eru Dick Gilling og Robin Brigthwell en þýö- andi og þulur Jón O. Edwald. - mhg fr Sjónvarpið tryggi sér sýn- ingarréttinn Englandsfari hringdi og lét í Ijós ánægju með þýðingu og lest- ur sögunnar Flambard, sem Silja Aðalsteinsdóttir á heiðurinn af. Kvaðst Englandsfarinn hafa séð þessa sögu í enska sjónvarp- inu, sem framhaldsþætti, og væruþeir það besta, sem hann hefði séð af því tagi Bað Englandsfari Þjóðviljann að koma þeirri ósk á framfæri að Sjónvarpið tryggi sér sýningar- réttinn á þessum þáttum og sýni þá sem allra fyrst. Hrafnista í Hafnarfirði: Af hverju ekki strœtisvagnaferðir? Gömul kona á Hrafnistu í Hafn- arfirði hringdi og sagði að það hefði valdið töluverðri óánægju á þessu annars ágæta vistheimili fyrir aldrað fólk að engar strætisvagna- ferðir eru að húsinu. Þarna þú búa nokkur hundruð manns svo að það er á við heilt þorp úti á landi og yfirleitt ætti þetta fólk ekki bíl og væri margt vanbúið til að ganga alla leið út á Hafnarfjarðarveg til að ná í strætis- bíl þar. Ennfremur veldur þetta allt óarfa einangrun fólks sem vill halda sambandi við ættingja og vini. Hún sagði að erindi hefði bor- ist til Landleiða og bæjarstjórnar Hafnarfjarðar út af þessu máli en ekkert komið út úr því ennþá. Væri nú fólk orðið samfært um að ekkert yrði gert í málinu. Taldi hún þetta leiða af einkarekstri á almennings- farartækjum. Rauðgrani sendir eftirfarandi Ijóð, sem hann segir stoiið og skrum-| skælt: Órœkt í Hvíta húsinu Athugasemd Borgnesingur hringdi og vildi gera athugasemd við skrif Inga Hans Jónssonar frá Grundarfirði um starfmenn Vegagerðar ríkis- ins. Kvað hann þetta ómaklegan áburð og órökstuddan. Þarna væri hærra reitt til höggs en sæmilegt væri. Sagði Borgnesingurinn að Þjóðviljinn væri þekktur fyrir hófsama umfjöllun um slysfarir, en þarna hefði kveðið við annan tón og vildi hann láta í ljós óá- nægju með að sjá slíkt í blaðinu. Illgresi vex fyrir vestan, og veturinn bitur og sár kemur á dökkum kufli, kuldalegur og grár. Ó, hvað eg hata arfann, sem einatt stari eg á. Eg vildi að eg gæti gleymt að hann getur og vill og má. Því teyga eg lífsins lindir uns loga mun akur og gil. Illgresi vex fyrir vestan og veit ekki að eg er til. W J&L jSl-JSá Trúðar hafsins í gamla daga höfðu Rómverjar og Grikk- ir hvalinn sem við köllum höfrung, mjög í hávegum og veittu honum þann heiður að móta mynd hans á pening, vasa og ýmsa dýrgripi. Þeir gerðu þetta ekki vegna þess, að þeim þætti höfrungarnir fallegar skepnur, heldur af því að þeir álitu þá vera vini mannanna og sérstaklega sjómanna og fiskimanna. Heimkynni höfrunganna eru aðallega í Miðjarðarhafinu og öðrum hlýj- um höfum en stundum kemur það fyrir að þeir elta ýmis skip langt út á Norður- Atlanshaf. Synda þeir þá í kjölfar skipanna, dansa, hoppa og kafa í öldunum með yndis- þokka ballettdansmeyja. Margt er skrýtið við höfrungana. Þeir anda með lungum eins og önnur spendýr. Höfrungar hafa mjög gaman af að leika sér, sérlega þó ungarnir, þeir leika sér alveg eins og kettlingar og alveg eins og kettlingar verða þeir virðulegri með aldrinum. Ogþað er raunar sorglegt því, að það er svo ganian að horfa á þá. Á Nýja-Sjálandi áttu þeir einu sinni höfrung, sem var mjög frægur, menn komu víðsvegar að úr heiminum til þess að sjá hann. Hann lék sér við börn, leyfði þeim að sitja á bakinu á sér og sitt hvað fleira. Margar sögur eru til um höfr- unga, en við látum þetta nægja að sinni. Ljósaperan Eins og þið eflaust vitið eru inni í öllum rafmagnsperum nokkrir örmjóir þræðir. Og það eru einmitt þessir þræðir sem gera það að verkum að ljós kviknar í þessum glerkúlum. Þegar uppfinningamaðurinn Tómas Edison, var að gera tilraunir með þessa uppfinningu sína, leitaði hann fín- gerðra þráða er nota mætti í þessum tilgangi. Hann hélt því fram að trefjar ákveðinnar bambustegundar væri það eina sem til greina kæmi að nota. Ekki þótti árennilegt að nálgast þessa bambustegund þar sem hún óx aðeins langt inni í frumskógum Suður- Ameríku. Ungur og hugdjarfur Iri, Mac Gow- ans að nafni, tók að sér það vandasama verkefni að síjórna leiðangri inn í frum- skógana tif. að ná í þennan ágæta bambus. Ferðin var löng og ströng og lentu leiðangursmenn í alls kyns mann- raunum. Eitruð skordýr, slöngur, krókódílar og rándýr herjuðu á þá og loks kom að því að allir leiðangurs- menn, að Mac Gowans undanteknum, gáfust upp og sneru heim á leið. Mac Gowans hélt ótrauður áfram ásamt nokkrum aðstoðarmönnum sín- um, sem allir voru Indíánar. Eftir langa hrakninga og margs konar erfiði náðu þeir áfangastað. Indíánarnir voru Mac Gowans ákaflega hjálplegir og er þess sérstaklega getið að dóttir höfðingjans hafi gert allt sem í hennar valdi stóð til að leiðangurinn mætti takast. Bambusrörin voru flutt niður eftir Amazonfljóti og síðan hina löngu leið heim í rannsóknarstofu Edisons. En þegar Mac Gowans kom heim eftir hina fræknu för, árið 1878, varð hann fyrir miklum vonbrigðum. Rétt fyrir heimkomu hans hafði tekist að finna aðra leið og auðveldari til að út- búa nothæfa þræði. Mac Gowans varð svo mikið um að sjá allt sitt erfiði unnið fyrir gíg, að hann sneri baki við um- heiminum og hélt aftur út í frum- skógana. Það er sagt að hann hafi síðar kvænst dóttur Indíánahöfðingjans. Og eitt er víst að síðan hefur aldrei til hans spurst. ©

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.