Þjóðviljinn - 05.07.1983, Síða 16
DJÚÐVIUINN
Þriðjudagur 5. júlf 1983
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur slma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Bush gætt
vandlega
George Bush, varaforseti Banda-
ríkjanna lendir á Keflavíkurflug-
velli í dag klukkan fjögur ásamt
konu sinni Barböru og sjö manna
„aðalföruneyti“, Evrópumálaað-
stoðarutanríkisráðherra, varafor-
setaskrifstofustjóra, öryggismála-
ráðunauti, varaforsetaferðaskipu-
lagningarráðgjafa, varaforsetainn-
anríkismálaráðgjafa (ha?) fulltrúa
varaforsetans og biaðafulltrúa
varaforsetans.
Aukaföruneyti skiptir svo
tugum, og í þeim hópi eru lífverðir
og leyniþjónustumenn. Þetta lið
ekur svo áfram vegina í tveimur
brynvörðum vögnum. Viðbúnaður
lögreglu er mikill, en lögreglu-
menn láta sér hvergi bregða og
hafa áður séð stóran staut í lítilli
grýtu þegar Mondale varamaður
Carters leit á landann um árið, þar-
áður Nixon og Pompidou, þaráður
L.B. Johnson þegar hann var vara-
forseti en sá mun fyrsti maður af
Hvítahússlekti að ríða í hlað hér-
lendis. Bush kemur hingað frá ír-
landi.
„Við gefum ekki upp hvað lög-
regluliðið verður fjölmennt,“ sagði
Bjarki Elíasson í samtali við Þjv. í
gær. „Það er misjafnt eftir þeim
stöðum sem Bush heimsækir".
Bjarki sagði að ekki yrði kallað til
lið utan af landi, lögreglan í
Reykjavík annaði umstangi innan-
borgar og utan borgarmarka yrðu
málin í höndum lögreglunnar í hér-
aði. Bjarki sagði að hin nýstofnaða
Víkingasveit kæmi ekki við þessa
sögu sem slík, limir hennar stæðu
bara sínar venjulegu vaktir. Sam-
vinna væri milli íslensku lögregl-
unnar og bandarískra öryggis-
manna. Þeir hefðu komið fyrir
nokkru og litið á staðhætti. Mann-
fjöldi í bandarísku öryggissveitun-
um væri ekki gefinn upp.
- Verða Bandaríkjamennirnir
vopnaðir?
- Það hefur ekki verið gefið upp.
- Er þeim leyfilegt að bera vopn?
- Já, ef þeir hafa fengið slíkt
leyfi hjá íslenskum stjórnvöldum.
- Hafa þeir sótt um slíkt leyfi?
- Ég sagði ekki að þeir yrðu
vopnaðir.
- Fengju þeir slíkt leyfi ef þeir
hafa sótt um það?
- Ef það væri þá væri það ekki
gert opinskátt.
- Þegar Bush var í Kaupmanna-
höfn var lögreglan með skyttur á
húsþökum. Ætlið þið ykkur
eitthvað þesskonar?
- Nei, við höfum ekki verið með
neitt slíkt hér, sagði Bjarki.
- m.
Dagskrá heimsóknarinnar:
Laxveiðar
og borðhald
Flugvélin „Air Force 11“ lendir á
Keflavíkurflugvelli í dag klukkan
Ijögur. Útúr henni stígur varafor-
seti Bandaríkjanna og tekur í hend-
ur forsætisráðherra Islands, utan-
ríkisráðherra, kvenna þeirra,
ráðuneytisstjóra, sendiherra Is-
lands vestra og Bandaríkjamanna
hér, lögreglustjóra Reykjavíkur og
Keflavíkurflugvallar, flotaforingj-
ans á Vellinum osfrv.
Síðan er haldið til Reykjavíkur,
en Bush gistir í gestahúsi forseta-
embættisins að Laufásvegi 72. í
kvöld heldur Bush uppá þjóðhá-
tíðardag Bandaríkjanna í sendi-
ráðinu (þjóðhátíðin var raunar í
gær) og situr kvöldverðarboð for-
sætisráðherra frá 19.55 til 22.25.
Á morgun ræðir varaforsetinn
við íslenska ráðamenn í Stjórnar-
ráðinu, fer síðan til Þingvalla og
snæðir hádegismat í boði forseta
þess alþingis sem kosið var 1979.
Síðan flýgur Bush í lax í Þverá. Um
kvöldið býður Vigdís í mat að
Bessastöðum. Ekki vitað hvort
Bush leggur með sér úr Þverárferð-
inni.
Á fimmtudag rýnir varaforsetinn
í Konungsbók Eddukvæða á Árna-
safni, heldur 25 mínútna blaða-
mannafund að Hótel Sögu, fer út á
Keflavíkurvöll að heilsa upp á sína
menn og flýgur heim um eittleytið.
- m.
Lækjartorg kl. 5.30 í dag
Utiíundiir
Alþýðubandalagið í Reykjavík, Æskulýðsfylking Alþýðu-
bandalagsins, E1 Salvadornefndin á íslandi, Fylkingin og
Samtök herstöðvaandstæðinga efna í dag kl. 17.30., kl. hálf sex,
til útifundar á Lækjartorgi vegna komu George Bush varafor-
seta Bandaríkjanna hingað til lands. Á fundinum verður m.a.
mótmælt hernaðaríhlutun Bandaríkjastjórnar í Mið-Ameríku
og staðsetningu meðaldrægra eldtlauga Bandaríkjamanna í
Evrópu.
Á útifundinum verða flutt stutt ávörp af þeim Bjarnfríði
Leósdóttur, Sigurbjörgu Árnadóttur, Pétri Tyrfingssyni og'
Ólafi Ragnari Grímssyni. Þá mun Sif Ragnhildardóttir syngja
baráttusöngva. Að afloknum útifundi munu fundarmenn ganga
að bandaríska sendiráðinu með ályktun sem ætlunin er að
afhenda þar. ~«g*
„Ég er ekki viss um að ég vildi vera að fljúga mikið innanlands eða í millilandaflugi ef ég vissi hvernig álagið
er á flugumferðarstjórum“, segir Hallgrímur Sigurðsson í viðtali. Myndin er tekin af flugumferðarstjórum
að störfum á Reykjavíkurflugvelli. - Ljósm.: Leifur.
Hallgrímur Sigurðsson formaður Félags flugumferðarstjóra:
Spurning um öryggi
„Við gerum okkur grein fyrir því
að meðal almennings er stétt okkar
flugumferðastjóra ekki sérlega vin-
sæl, sem ekki þarf að telja óeðlilegt
ef miðað er við hversu mál okkar
hefur verið rangtúlkað í fjölmiðl-
um. Mér sýnist sem allt sé lagt á
versta veg fyrir okkur. Meginkröf-
ur okkar eru fyrst og fremst þær að
við viljum minnka óheyrilega yfir-
vinnu, stytta vaktirnar. Þetta er
spursmál um öryggi farþega í
lofti,“ sagði Hallgrímur Sigurðsson
formaður félags flugumferðar-
stjóra í samtali við Þjóðviljann í
gær. Flugumferðastjórar hafa far-
ið sér hægt undanfarið og vaktir
verið mjög undirmannaðar. Fyrri
part dags í gær voru þrír menn á
vakt í flugumferðarstjóra-
klefanum, en í gærkvöldi var
aðeins einn maður á vakt.
„í raun og veru er ekki neitt
verkfall að ræða, eins og margir
vilja halda. Menn eru einfaldlega
ekki óðfúsir að taka aukavaktir og
vilja ekki láta pína sig áfram. Við
viljum frí eins og aðrir menn. Sem
dæmi um óheyrilega vinnu flugum-
ferðastjóra má nefna sólarhrings-
vaktir flugumferðarstjóra á Kefla-
víkurvelli. f flugturninum á
Reykjavíkurflugvelli kemur það
oft fyrir að menn standi 16 klst.,
vaktir. Ég er ekki viss um að ég
vildi vera að fljúga mikið innan-
lands eða í millilandaflugi ef ég
vissi hvernig álagið er.
Meðfram kröfum um minna álag
hafa flugumferðastjórar farið fram
á hærri greiðslur fyrir aukavaktir.
Fjármálaráðuneytið og samgöng-
uráðuneytið hafa hafnað þeim
kröfum. Hallgrímur sagði að svo
virtist sem menn héldu að flugum-
ferðarstjórar væru með á milli 600-
700 þúsund krónur í árslaun og
jafnvel enn hærri tölur heyrðust.
Hann sagði að sín grunnlaun væru
um 19 þúsund krónur á mánuði
miðað við 20. flokk opinberra
starfsmanna, 3. þrep. Kvaðst hann
telja sig vera í hærri kantinum og
með allri yfirvinnu ættu árslaunin
að vera í kringum 400 þúsund á ári.
Rannsóknaskipið Árni Friðriks-
son kom 1. júlí úr 12 daga leiðangri
á miðin milli Islands og Færeyja til
könnunar á kolmunnagöngum og
umhverfisháttum. Sem kunnugt er
þá er kolmunninn hlýsjávarfiskur
af þorskaætt, sem hrygnir vestur af
Bretlandseyjum, en gengur á
sumrin norður í haf í ætisleit og þá
oftast hlýsjávarmegin við skilin
milli kalda og hlýja sjávarins í
Norðurhafi.
Athuganir í þessum leiðangri á
kolmunnaslóð austur af íslandi við
mjög svo óregluleg skil heitra og
kaldra hafstrauma (hiti 0-7°),
sýndu að eins árs kolmunna (ár-
gangur 1982) gætti töluvert við góð
átuskilyrði í heita sjónum. Líklega
er um meira eða minna staðbund-
Hallgrímur sagði að í athugun
væri að kæra 6 vélar frá Flug-
leiðum, Arnarflugi og Flugmála-
stjórn vegna meints brots á sjón-
flugsreglum. Atvik þessi áttu sér
stað síðastliðið föstudagskvöld, en
samkvæmt verðurskilyrðum varð
að viðhafa blindflug. Þrjár þessara
véla voru Fokker-vélar Flugleiða,
tvær Arnarflugsvélar og ein vél
flugmálastjórnar.
-hól.
inn fisk að ræða. Eiginlegur göngu-
fiskur fannst ekki nema í litlum
mæli fyrir norðaustan Færeyjar eða
sunnan og austan við kalda sjóinn.
Sá fiskur gengur vart á íslandsmið
heldur miklu austar í hafinu.
Virðist þessi niðurstaða vera í sam-
ræmi við óvenju mikla víðáttu
kalda sjávarins (Austur-
íslandsstraumur) til austurs í vor.
Áætlað er að halda þessum rann-
sóknum á kolmunnaslóð næst ís-
landi áfram á næsta ári.
Leiðangursstjóri á r.s. Árna
Friðrikssyni var Sveinn
Sveinbjörnsson, en aðrir leiðang-
ursmenn voru Svend-Aage Malm-
berg, Ólafur S. Ástþórsson og
Héðinn Valdimarsson. Skipstjóri
var Kristján Sigurjónsson.
Kolmunninn gengur
*
vart á Islandsmið
Samstarfsnefnd um iðnþróun í Eyjafirði
Almennur iðnaður megin-
undirstaða atvinnuveganna
„Meginniðurstaða samstarfs-
nefndarinnar er sú að gera verði
stórátak í atvinnuuppbyggingu við
Eyjafjörð ef tryggja á áframhald-
andi og æskilega fólksfjölgun á
svæðinu. Verður sú uppbygging að
grundvallast á almennum iðnaði og
eru mögulcikarnir fjölmargir tii
nýsköpunar og þróunar á því sviði
að okkar mati.“
Þetta kom m.a. fram á blm.
fundi með samstarfsnefndinni á
Akureyri í gær er hún kynnti
skýrslu sína fyrir fjölmiðlum. Iðn-
aðarráðherra Sverri Hermannssyni
var afhent eintak á föstudaginn en
hann mun ekki ennþá hafa tjáð sig
um niðurstöðurhennar. Samstarfs-
nefndin var sett á laggirnar af fy rrv.
iðnaðarráðherra Hjörleifi Gutt-
ormssyni til að setja fram hug-
myndir og spádóma um iðnþróun á
Eyjafjarðarsvæðinu. Athygli vek-
ur að nefndin telur að byggðin í
heild sinni geti án teljandi röskunar
tekið við orkufrekum iðnaði en á-
hersla er lögð á það að enn liggi
ekki fyrir nægilegar upplýsingar úr
rannsóknum á náttúrufari til að
meta hugsanlega mengunarhættu
af slíkum iðnaði.
-áþj.