Þjóðviljinn - 19.07.1983, Page 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 19. júlí 1983
Pakkað og vegið: Hjalti Guðmundson. „Útflutningurinn“ suður er um
háift annað tonn vikulega.
Hér er jógúrtmjólkin sýrð og ávextirnir settir útí. Vignir Sigurólason
hrærir saman. Ljósm. Leifur.
leiða fimm tegundir af jógúrt, með t
jarðarberjum, blönduðum ávöxt-
um,mandarínum,trefjum og sveskj-
um, „sem minnst hafa selst“
sagði Haukur. „Mörgum finnst
okkar jógúrt betri en fyrir sunnan.
Það er erfitt að segja hvers vegna;
smekkurinn er misjafn. Þótt
aðferðirnar séu svipaðar við jóg-
úrtgerðina er alltaf munur á fram-
leiðendum. Við notum til dæmis
ávexti frá öðru fyrirtæki en þeir
sunnanmenn. Svo er mjólkin eðlis-
betri á Norðurlandi. Hversvegna?
Ja, það er eins og útkoman verði
stundum betri þar sem skilyrðin
eru erfiðari.“
Sex ostagerðir
í Mjólkursamlaginu vinna um 30
manns, fleiri á sumrum, færri yfir
veturinn. Auk jógúrtarinnar eru
húsvískir ostar landsfrægir,en osta
gerðin er mannfrek. „Hér vinna
fleiri menn en í öðrum samlögum
ef miðað er við mjólkurmagn“
sagði okkur Haraldur Gíslason
samlagsstjóri. „Við framleiðum
sex ostategundir,og þaraf er stór
hluti smáostur sem er handunninn
og til þess þarf töluverðan mann-
skap. Osturinn selst nokkuð vel hjá
okkur, sérstaklega hefur Búrinn
komið vel út. Við byrjuðum á hon-
um fyrir tveim árum með eigin
uppskrift, og það hefur gengið vel.
Hann er að vísu nokkuð dýr, en
hann er feitur, góð vara. Það
skiptir máli fyrir gæðin hvort unnið
er úr rjóma eða undanrennusulli."
Haraldur sagði síðustu hækkun á
landbúnaðarvörum hafa komið illa
við söluna. Ostaneysla á íslandi
væri þó mikil og góð, og von væri til
að ostasala næði sér aftur á strik,
enda vandséð hvert neytendur ættu
að flýja ostinn.
Meiri samvinnu
„Já, jógúrtin. Hagkaup átti hug-
myndina, ekki við. En þetta hefur
gengið ágætlega. Ég ætlaðist aldrei
til að við yfirtækjum Reykjavík-
urmarkaðinn og við höfum ekki
breytt framleiðsluháttum hér.
Þetta eru svona um eitt og hálft
tonn sem við sendum suður á viku.
svolítið misjafnt eftir ferðum; það
er minna en við gætum selt. Þetta
er auðvitað viðkvæmt mál milli
samlaganna hér og fyrir sunnan,
hefur valdið leiðindum og ruglingi
sem þarf að finna leið útúr“ sagði
mjólkursamlagsstjórinn, „en ég tel
að öll þessi mál þurfi að vera á sam-
eiginlegum grunni. Það þarf meiri
samvinnu, eins í sölumálu m. Það
á að hugsa um hvað best er fyrir
bændur, það skiptir rninna máli
hver selur.“
Haukur
Haraldsson
verkstjóri.
Jógúrt frá Húsavík hefur þótt
mikið lostæti á suðvesturhorninu
eftir að farið var að selja hana þar í
verslunum, -og er ódýrari en sunn-
lensk jógúrt. Hún er framleidd í
Mjólkursamlagi Kaupfélags Þing-
eyinga og var enn verið að þegar
Þjóðviljamenn litu þar inn um nón-
bil sl. þriðjudag.
„Við erum að hætta í dag, hrein-
gerning tekur svona tvo tíma“
sagði Haukur Haraldsson verk-
stjóri. „Við þvoum allt og keyrum
hring með vatni. Fyrstu menn
koma hér um sexleytið og fara fyrir
seinna kaffi, aðrir mæta síðar og
fara fimm.“
Þeir í Mjólkursamlaginu fram-
Mjólkin
þykir betri
á Norðurlandi
Eitt ostakerið hreinsað. í þafl er mjólkinni hellt, fiátin hlaupa, og osturinn síðan skorinn niður í smástykki.
- m