Þjóðviljinn - 19.07.1983, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 19.07.1983, Blaðsíða 16
DJOÐVIUINN Þriðjudagur 19. júlí 1983 Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þesstíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663 Yerkamannabústaðir í Reykjavík: Framkv æmdir byrj / aðar á Artúnsholti Síðastliðinn föstudag var mikið um að vera hjá Verkamannabú- stöðum í Reykjavík: í Ártúnsholti tók borgarstjórinn í Reykjavík, Davíð Oddsson, fyrstu skóflustunguna að fyrirhuguðum Verka- mannabústöðum þar og þegar sú athöfn var afstaðin var haldið út á Eiðsgranda þar sem sýndar voru fullgerðar íbúðir þriðja bygg- ingaráfanga. Fulifrágengin fbúð með teppum, eldhúsinnréttingum og öðrum þægindum kostar ámóta og nýjar íbúðir tilbúnar undir tréverk á almennum markaði. í samtali viö Guðjón Jónsson formann stjómar Verkamanna- bústaða og fulltrúa Alþýðubanda-. lagsins þar, kom fram að í Ártúns-_ holti er ráðgert að úthluta 140 íbúðum sem verða í 25 sambýlis- húsum og verða 4-7 íbúðir í hverju húsi. Það er Teiknistofan h.f. sem hefur teiknað húsin og er ætlunin að síðustu íbúðirnar verði afhentar fyrir árslok 1985. Á Eiðsgranda verða 17 sambýlis- hús með 176 íbúðum og eru þær teiknaðar með það fyrir augum að misstórar fjölskyldur geti búið þar. Það er sama teiknistofa sem hefur teiknað þessar íbúðir - Teiknistof- an h.f. Ekki voru lóðirnar alveg eins og best verður á kosið: mjög djúpt var niður á fast og þurfti að skipta um jarðveg. Af þessum sökum hafa framkvæmdir tafist nokkuð og eru þær nú 3 mánuðum á eftir áætlun. Nú í júlímánuði hafa verið afhentar 40 íbúðir fullfrá- gengnar og sagði Guðjón að upp- steypu lyki nú í ágúst og til stæði að þær síðustu yrðu afhentar í júní 1984. Heildarverð íbúðanna á Eiðsgranda eru 250 miljónir og kvað Guðjón verð hverrar íbúðar hóflegt: fullfrágengin íbúð með teppum, eldhúsinnréttingum og öðrum þægindum kostar ámóta og nýjar íbúðir tilbúnar undir tréverk á almennum markaði. - gat Minnkandi lánstraust á alþjóðavettvangi? ísland er í 39. sæti á lista yfír iánstraust 107 ríkja og hefur ísland færst uppávið frá 41. sæti frá því hliðstæð könnun var síðast gerð, af tímaritinu Instuional Investor. Norræn kvikmynda hátíð hér 22.-23. júlí Dagana 22.-23. júlí munu samtök áhugamanna um kvikmyndagerð gangastfyrir Norrænni Kvikmyndahátíð hér í Reykjavík. Hátíð þessi er haldin árlega og nú í fyrsta sinn hér á landi. í tengslum við hátíðina sem verður haldin í Álftamýrarskóla fer fram samnorrænt námsskeið og 25.-28. júlí verður kvikmyndaleið- angur í Þórsmörk. Tímaritið framkvæmir slíka könnun tvisvar á ári og taka allt að 100 bankar í alþjóðaviðskiptum þátt í henni. í frásögn af þessari könnun í tímaritinu „Frjáls versl- un“, segir að viðkomandi löndum sé gefin stig frá núlli uppí hundrað. ísland er með 52.8 stig, en meðal- talið er 42.2 stig. Gefnum stigum hefur fækkað um 2.8 stig frá sl. ári. Þau lönd sem eru fyrir neðan Is- land teljast til vanþróaðra ríkja nema Áustur-Evrópulöndin og ísrael sem eru fyrir neðan Island. Þykir minnkandi stigafjöldi gefa vísbendingu um að lánadrottnar hafi „vantrú á íslensku efnahagslífi og stjórnarfari“. -óg Skálabremsur Sjálfstæð grindkúpa með högggleypum aftan til verndunar farþegarýmis. Stillanlegirstólar Rafmagnsrúðuþurrkur m/ tímarofa Rafmagnsrúðusprauta Kröftug miðstöð/loftræsting kr. 138.800 kr. 149.600 kr. 173.200 kr. 159.400 kr. 188.200 Rúmgott farþegarými fyrir 4 m/farangursrými fyrir aftan sæti Aukið farangursrými fæst á auðveldan hátt með því að leggja niður sætisbak Snúningshraðamælir Vindlingakveikjari o.fl.o.fl. tveir hljóðkútar Lada 1300 fólksb. Lada 1200 Station Lada 1500 Station Lada Safir Lada Canada Gormafjörðun m/tvívirkum dempurum Aflvélin er 1600 r.s. 55,8 kW (76 h.ö. DIN) Fjórtak/drifátak á öll hjól Sjálfstæð gormafjöðrun m/tvívirkum dempurum og jafnvægisstöng Diskabremsur LADA Sport Helstu mál: Helstu mál í mm 1.3,720 x b. 1,680 x h. 1,640 Eigin þyngd 1,150 Heildarþyngd 1,550 Hæð undir lægsta hluta í mm 220 Alsamhæfður 4 hraða aðalkassi 2ja hraða millikassi m/mismunadrifslæsingu tvöfalt hemlakerfi m/hjálparlofti Lágþrýstingshjólbarðar m/alhliða mynstri, stærð 685x16” Sporvidd: að framan í mm 1,430 að aftan í mm 1,400 Minnsti snúningshringur í m 5,5 Mesti klifurhalli í % 58 Hagstæöir greiðsluskilmálar Fyriraðeins kr. 266.100. Bifreiðar & Landbúnaðarvélar hf. Suðurlandsbraut 14 Síminn í söludeild er 31236. framan og Afturrúðuþurrka m/rafmagnssprautu Afturrúðuhitari

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.