Þjóðviljinn - 19.07.1983, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 19.07.1983, Blaðsíða 14
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 19. júlí 1983 Yfirlýsing frá Samtökum um kvennalista Albert og hin hagsýna húsmóðir Stefna hinnar hagsýnu hús- móður var eitt af kjörorðum Sam- taka um kvennalista í kosningabar- áttunni. Margir hrifust af þessari hugmynd og nánari útfærslu henn- ar og hugtakið hin hagsýna hús- móðir varð mörgum tamt á tungu fyrir kosningar. Nú hafa þessi fleygu orð ratað í munn Alberts Guðmundssonar fjármálaráðherra um leið og hann boðar niðurskurð á sviði mennta- og menningarmála (Tíminn 14. júlí, Þjv. 15. júlí 1983). Víst er, að ekki hafa allir skilið þessa stefnu rétt og er fjármálaráð- herrann sýnilega í þeim hópi. „Við verðum að taka upp kjör- orð Kvennalistans og haga okkur eins og hagsýn húsmóðir. Við erum með hagsýna húsmóður en fyrir- vinnu, sem er lasin í augnablikinu, og barnahóp, sem er kröfu- harður“, er haft eftir fjármálaráð- herra í Þjóðviljanum í dag, þar sem rætt er um málefni Lánasjóðs ís- lenskra námsmanna. Afstaða fjármálaráðherrans og Samtaka um kvennalista til barna- hópsins er augljóslega ekki hina sama. Kvennalistakonu dytti aldrei í hug að skerða rétt barna sinna til menntunar, þótt fjárhagur heimil- isins þrengdist um stundarsakir. Frekar drægi hún að skipta um teppi á stofugólfinu, þótt það gamla væri farið að láta á sjá, sam- anber ótímabæra ákvörðun ríkis- stjórnarinnar um byggingu nýrrar flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli. Breytt verðmætamat var annað kjörorð Samtaka um kvennalista. í því felst einmitt að setja manngildi og farsæld einstaklingsins og um leið þjóðarheildar ofar skamm- tímasjónarmiðum stundargróða og rányrkju. Hin hagsýna Kvenna- listahúsmóðir veit, að mennt er máttur, hún veit, að ein af helstu auðlindum þessa lands er fólkið sem landið byggir, þekking þess og tæknikunnátta. Þess vegna ver hún fé sínu á þrengingartímum til menntunar barna sinna fremur en að fjármagna flugstöð eða fara í Tívolí. Fyrir þá sem hættir til að hugsa helst í krónum og aurum, má ennfremur benda á, að lán náms- manna eru að fullu verðtryggð og skila sér aftur. Samtök um kvennalista biðjast eindregið undan því, að kjörorð þeirra sé notað til að afsaka „sparn- aðaraðgerðir" eins og niðurskurð á námslánum. Þau telja slíkar aðgerðir alls ekki í anda stefnu hinnar hagsýnu húsmóður. SÍNE félagar Sumarráðstefnan verður haldin laugar- daginn 23. júlí n.k. í Félagsstofnun stú- denta við Hringbraut og hefst kl. 14:00 stundvíslega. Fjölmennið. Umræðuefni skv. lögum. Munið lánamálin. Stjórnin félags- Lausar kennarastöður Almenn kennarastaða í 6. bekk og staða smíðakennara eru nú lausar við Grunnskóla Hafnarhrepps. Góð vinnuaðstaða. Húsnæði á staðnum. Upplýsingar veita Sigþór Magnússon í síma 97-8148 og Guðmundur Ingi Sigbjörnsson í síma 97-8321. Styrkur til háskólanáms í Japan Japönsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa íslendingi til háskóla- náms í Japan námsárið 1984-85 en til greina kemur að styrktímabil verði framlengt til 1986. Ætiast er til að styrkþegi hafi lokið há- skólaprófi eða sé kominn nokkuð áleiöis í háskólanámi. Þar sem kennsla við japanska háskóla fer fram á japönsku er til þess ætlast að styrkþegi leggi stund á japanska tungu um a.m.k. sex mánaða skeið. Umsækjendur skulu ekki vera eldri en 35 ára. - Umsóknir um styrkinn, ásamt staðfestum afritum prófskírteina, meðmælum og heilbrigðisvottorði, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfis- götu 6,101 Reykjavík, fyrir 15. ágúst n.k. - Sérstök umsóknareyðu- blöð fást í ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 13. júlí 1983. Þökkum af alhug samúð og vináttu við fráfall Erlu Hálfdánardóttur og þökk til vina hennar. Aðalheiður Þórarinsdóttir og dætur. leikhús • kvikmyndahús Lorcakvöld Dagskrá úr verkum spænska skáldsins Garcia Lorca fimmtudag 21. kl. 20.30 föstudag 22. kl. 20.30 miðvikudag 27. kl. 20.30. Síðustu sýningar. Söngur Mariettu Finnskur gestaleikur laugardag kl. 20.30. Aðeins þessi eina sýning. Blanda (Tónleikar frá ýmsum öldum) sunnudag 24. kl. 20.30 mánudag 25. kl. 20.30. Aðeins þessar tvær sýningar. I Félagsstofnun stúdenta v/ Hringbraut, sími 19455. Húsið opnað kl. 20.30, miðasala við inn- ganginn. Veitingasala. SHASKOLABIOj sim. 271*0 " SlMI: 2 21 40 Starfsbræður Spennandi og óvenjuleg leynilög- reglumynd. Benson (Ryan O'Neal) og Kerwin (John Hurt) erfalin rann- sókn morðs á ungum manni, sem hafði verið hommi. Þeim er skipað að búa saman, og eiga að láta sem ástarsamband sé á milli þeirra. Leikstjóri James Burrows. Aðalhlutverk: Ryan O’Neil, John Hurt. Kenneth Mc Milland. Sýnd kl. 7, 9 og 11. Bönnuð innan 14 ára. TÓNABÍÓ SÍMI: 3 11 82 Rocky III „Besta „Rocky" myndin af þeim öllum." . B.D. Gannet Newspaper. „Hröð og hrikaleg skemmtun." B.K. Toronto-Sun. „Stallone varpar Rocky III í flokk þeirra bestu." US Magazine „Stórkostleg mynd." E.P. Boston Herald Amer- ican. Forsíðufrétt vikuritsins Time hyllir: „Rocky III" sigurvegari og ennþá heimsmeistari." Titillag Rocky III „Eye of the Tiger" var tilnefnt til Óskars- verðlauna í ár. Leikstjóri: Silvester Stal- lone. Aöalhlutverk: Sylvester Stal- lone, Talia Shire, Burt Yo- ung, Mr. T. Sýnd kl. 5 og 9.1.0. Tekin upp I Dölby stereo. Sýnd í 4ra rása Starescope . Stereo. Rocky II Endursýnd kl. 7 og 11.05. húsbyggjendur ylurinner dbgóóur Lilll SÍMI: 1 89 36 Salur A Leikfangiö (The Toy) Afarskemmtileg ný bandarísk gamanmynd með tveimur fremstu grínleikurum Bandaríkjanna, þeim Richard Pryor og Jackie Gleason i aðalhlutverkum. Mynd sem kemur öllum í gott skap. Leikstjóri: Ric- hard Donner. Islenskur texti. Sýnd kl. 5, 7, 9og 11. ________Salur B_________ Tootsie Bráðskemmtíleg ný amerísk úr- valsgamanmynd í litum. Leikstjóri: Sidney Pollack. Aðalhlutverk: Dustin Hoffman, Jessica Lange, Bill Murray. Sýndkl. 5, 7 9.05 og 11.10. ÁllKTUBBtJARHIl' Simi 11384 Eg er dómarinn (I, The Jury) Æsispennandi og mjðg viðburða- rik, bandarisk kvikmynd í litum eftir hinni þekktu sakamálasögu eftir Mickey Spillane, en hún hefur komið út í íslenskri þýðingu. Aðalhlutverk: Armand Assante, Barbara Carerra. Islenskur texti. Bönnuð innan 16 ára. Endursynd kl. 9 og 11. LAUGARÁ; réi Þjófur á lausu Ný bandarísk gamanmynd um fyrr- verandi afbrotamann sem er þjóf- óttur með afbrigðum. Hann er leikinn af hinum óviðjafnanlega Rlchard Pryor, sem fer á kostum í þessari fjörugu mynd. Mynd þessi fékk frábærar viðtökur I Bandaríkj- unum á s.l. ári. Aðalhlutverk:Richard Pryor, Cic- ely Tyson og Angel Ramirez. Sýnd kl. 5-7-9 og 11. Q 19 OOO Frumsýning: Junkman Ný æsispennandi og bráð- skemmtileg bílamynd enda gerð af H.B. Halicki, sem gerði „Horfinn á 60 sekúndum" Leikstjóri H.B. Halicki sem leikur einnig aðalhlutverkið ásamt Christopher Stone - Susan Stone og Lang Jeffries Hækkað verð Sýnd kl. 3.15 5.15, 7.15, I greipum dauðans Sýnd kl. 9.05 og 11.05 Mjúkar hvílur- mikiö stríö Sprenghlægileg gamanmynd með Peter Sellers í 6 hlutverkum las- amt Lila Kedrova-Curt Jurgens. Leikstjkóri: Roy Boulting Endursýnd kl. 3.10, 5.10 og 7.10. Hver er morðinginn? Æsispennandi litmynd gerð eftir sögu Agöthu Chrlstie, Tíu litlir negrastrákar með Oliver Reed, Rlchard Attenborough, Elke Sommer, Herbert Lom. Leikstjóri: Peter Colllnson. Endursýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11. Slóö drekans Spennandi og flörug karatemynd með hinum eina sanna meistara Bruce Lee sem einnig er leikstjóri. Endursýnd kl. 3.05, 5.05 og 7.05. Hlaupiö í skaröiö Snilldarlega leikin litmynd, með David Bowie - Kim Novak - Mar- la Schell og David Hemmlngs, sem jafnframt er leikstjóri. Endursýnd kl. 9.10 og 11.10. SIMI: 1 15 44 Karate- meistarinn Islenskur texti. Æsispennandi ný karale-mynd með meistaranum James Ryan (sá er lék f myndinni „Að duga eða drepast"), en hann hefur unnið til plda verðlauna á Karatemótum víða um heim. Spenna frá upphafi til enda. Hér eru ekki neinir viðvan- ingar á ferð, allt atvinnumenn og verðlaunahafar í aðalhlutverkun- um svo sem: James Ryan, Stan Smith, Norman Robson ásamt Anneline Kreil og fl. Sýnd kl. 5, 7,9 og 11. SSStuii Sími 78900 Salur 1 cuass of m c-it. 3. Ný og jafnframt mjög spennandi mynd um skólalífið f fjölbrautar- skólanum Abraham Lincoln. Við erum framtíðin og ekkert getur stöðvað okkur segja forsprakkar klíkunnar þar. Hvað á til bragðs að taka eða er þetta sem koma skal? Aðalhlutverk: Perry King, Merrie Lynn Ross, Roddy McDowall. Leikstjóri: Mark Lester. Sýndkl. 5, 7,9 og 11. tjonnuo innan 16 ára. Salur 2 Merry Christmas Mr. Lawrence Heimsfræg og jafnframt splunkuný stórmynd sem ger- ist í fangabúðum Japana í síð- ari helmsstyrjöld. Myndin er gerð eftir sögu Laurens Post, The seed and Sower og leikstýrð af Nagisa Oshima en það tók hann fimm ár að full- gera þessa mynd. Aðalhlv: David Bowie, Tom Conti, Ryuichi Sakamoto, Jack Thompson. Sýndkl. 5, 9 og 11.15. Salur 3 Staögengillinn (The Stunt Man) STUNTMAN Frábær úrvalsmynd útnefnd fyrir þrenn óskarsverðlaun og sex gold- en globe verðlaun. Aðalhlutverk: Peter O’Toole, Ste- ve Railsback, Barbara Hershey. ,Sýnd kl. 9. Svörtu tígris- dýrin Hressileg slagsmálamynd. Aðal- hlutv.: Chuck Norris og Jim Backus. Sýndkl. 5, 7, og 11.15. Salur 4 Svartskeggur Sýnd kl. 5 og 7. Píkuskrækir (Pussy talk) Sú djarfasta sem komið hefur. Aðalhlutv.: Penelope Lamour og Nils Hortzs. Endursýnd kl. 9 og 11. Salur 5 Atlantic City Frábær úrvalsmynd, útnetnd til 5 Óskara 1982. Aðalhlutverk: Burt Lancaster, Susan Sarandon. Leikstjóri: Lou- is Malle. Sýnd kl. 9. = Viðvörun Gera aukaverkanir lyfsíns sem þú tekur þig hættulegan í umferðinni?

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.