Þjóðviljinn - 28.07.1983, Qupperneq 3
Fimmtudagur 28. júlí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA»3
Það var nóg að gera inni við Laugardalshöll í gær, þar sem unnið er að því að reisa tvær skemmur og grafa
þarf tvo metra niður á fast til að setja niður álstöng frá Álfélaginu fyrir Iðnsýninguna í ágúst. - Ljósm. -eik.
Samtökin 78:
Mótmæla orða-
vali í s jónvarpi
Talað um kynvillinga 1 þýðingu
Samtökin ’78, félag lesbía og
homma á íslandi hafa sent frá sér
yfirlýsingu vegna þýðingar þáttar
sem birtist I sjónvarpinu mánudag-
inn 25.júlí sl. í yfirlýsingunni segir:
„Samtökin ’78 félag lesbía og
homma á íslandi, mótmæla harð-
lega niðrandi orðavali um homma,
sem Sjónvarpið leyfði sér í íslenskri
þýðingu þáttarins „Tvö nútíma-
mein“. í frumtexta var ekki tekin
afstaða til þessa þjóðfélagshóps
með því að kenna hann við neins
konar villu, og er því allt tal um
„kynvillinga“ á ábyrgð Sjónvarps-
ins. Á það skal bent að Ríkisút-
varpinu ber sérstök lagaskylda að
gæta hlutleysis gagnvart þjóðfé-
lagshópum.
Lesbíur og hommar una ekki
fordómafullu og afstöðumótandi
orðavali af þessu tagi.“
Undirbúningur að Iðnsýningunni á fullu:
Skemmur og álstöng
rísa á útisvæði
Nú er unnið af kappi inni við
Laugardalshöll við að reisa tvær
skemmur, sem standa eiga utan við
höllina og hýsa ýmis stærri fyrir-
tæki á Iðnsýningunni, sem opnuð
verður 19. ágúst. Auk þess er Ís-
lenska álfélagið að undirbúa
niðursetningu 8 metra hárrar ál-
stangar, sem á að standa á miðju
útisvæðinu.
Stasrri skemman sem nú er verið
að reisa er um 250 fm og þar munu
15 aðilar sýna, m.a. steypustöðvar,
Sementsverksmiðjan, Isí. járn-
blendiverksmiðjan, Hampiðjan,
Álverið, fyrirtæki f sjávarútvegi,
járnsmiðjur og fleiri. Garðasmiðj-
an reisir járngrindina í smiðjunni
en Börkur sér um klæðninguna. Þá
verður reist minni skemma, um 90
fm, og mun Garðahéðinn sjá um
uppsetningu hennar.
Bjami Þór Jónsson hjá Félagi ís-
lenskra iðnrekenda sagði í viðtali
við blaðið að nú væri að komast
form á sýninguna, eins og hún lítur
út á papprínum, en mikil vinna
væri í ýmsum þáttum hennar, ma.
tískusýningunum, sem verða mjög
fullkomnar. Fenginn verður full--
kominn Ijósabúnaður úr leikhús-
unum og þarf væntanlega tvo ljósa-
menn til að stjórna þeim. Þá verða
mörg fyrirtæki með mjög nýstár-
legar kynningar á framleiðslu
sinni, sem að þessu sinni er ein-
göngu innlend, enda sýningin hald-
in í tilefni 50 ára afmælis Félags ísl.
iðnrekenda.
þs
Akureyri
Aukíð atvinnuleysl
Atvinnuleysi á Akureyri er mun
meira í ár en í fyrra. Að sögn Hauks
Torfasonar á Vinnumiðlunarskrif-
stofu Akureyrar voru 178 skráðir
atvinnulausir í júní og voru atvinn-
uleysisdagar samsvarandi því að
112 hafi verið atvinnulausir allan
mánuðinn. í lok júlí í fyrra voru 58
skráðir eða sem svarar 45 atvinnu-
lausum allan mánuðinn. Ekki taldi
Haukur góðar atvinnuhorfur í
haust, sérstaklega ekki í byggingar-
iðnaði.
„Fólk fór minna á vertíð eftir
áramót nú en áður, vegna gæfta-
leysis og lítils afla. Verkafólk hér
fer mikið á vertíð í Vestmanna-
eyjum, Höfn eða Þorlákshöfn á
veturna. í vetur var algengt að um
120 manns skráðu sig á mánuði. í
sumar hafa þeir bæst við sem sagt
er upp á vorin t.d. ræstingakonur í
skólum en þær fá ekki atvinnuleys-
isbætur fyrr en þær hafa tekið út
,orlof í 24 daga.
í júní skráðu 64 karlar sig atvinn-
ulausa, flest verkamenn eða 48 og
114 konur, þar af 89 verkakonur og
16 verslunarkonur. Ekki er mikið
um að skólafólk skrái sig atvinnu-
laust, sagði Haukur Torfason á
Akureyri.
EÞ
Blöndusamníngunum
frestað fram í ágúst
Samningunum um kaup og kjör
við væntanlega Blönduvirkjun hef-
ur nú verið frestað. Aðilar hafa set-
ið linnulítið á fundum með sátta-
semjara hátt á aðra viku en ekkert
þokað í samkomulagsátt. Næsti
formlegi fundur hefur ekki verið
ákveðinn, aðeins rætt um að tala
saman hinn 20. ágúst.
„Menn sáu engan tilgang í að
halda þessu áfram, það hefur ekk-
ert gerst hingað til“, sagði Hilmar
Jónasson hjá ASÍ í samtali við Þjv.
Hilmar sagði að það væri ekkert
víst að neitt nýtt yrði uppá teningn-
um í ágústlok. Ekkert hefði verið
ákveðið um aðgerðir af hálfu
verkalýðshreyfingarinnar í málinu.
„Það er rangt sem komið hefur
fram í fjölmiðlum að við í verka-
lýðshreyfingunni höfum beðið um
sumarfrí. Það var einfaldlega ekki
um neitt að tala við þá hinumegin."
Útboðum í fyrsta áfanga verks-
ins, jarðgöng, skal skilað 12. ágúst,
en Morgunblaðið hefur í fyrradag
eftir aðstoðarframkvæmdastjóra
Landsvirkjunar að hugsanlegt sé
að opnun tilboðanna verði frestað
„þar sem Landsvirkjun hefði ekki
hugsað sér að ráðast í nýjan verk-
þátt öðruvísi en samningar lægju
fyrir“.
„Það er rétt, þeir eru eitthvað að
ýja að því að fresta þessu enn einu
sinni“ sagði Hilmar. „Það er þá
þeirra innanríkismál og þeir geta
ekki kennt verkalýðshreyfingunni
um það. Þeir eiga að vita að það
tekur ákveðinn tíma að ná svona
viðamiklum samningum og þeir
eiga að gefa sér þann tíma.“
Helstu deilumál aðila eru for-
gangsréttur heimamanna til vinnu,
greiðslur fyrir ferðir á vinnustað,
aðstaða og kjör vegna séraðstæðna
við jarðgangnagerð og gildistími
samningsins.
- m
BULGARIA
0RL0FSFERÐIR
Alla mánudaga um Kaup-
mannahöfn og Sofiu til
Varna.
Besta baðströnd Evrópu
sumarhús - hótel-matar-
miðar. 80% uppbót á
gjaldeyri - skoðunarferðir
m.a. til Istanbul með skipi.
Ódýrasta landið í Evrópu.
Verð 3 vikur frá kr. 37.000
á Grand Hotel Varna en
kr. 28.000- á Shipka Am-
bassador.
Sumarhús kr. 25.000-
örfá sæti laus.
FERÐASKRIFSTOFA
KJARTANS
Gnoðarvogur 44
sími 91-86255
„TÍÐINDALAUST...
SÍDUR EN SVO!"
Segir Arnþór Helgason um nýútkomna hljómplötu Ingva Þórs Kormákssonar
Ljóð eftir:
Gunnar Dal
Pjetur Hafstein Lárusson
Sigfús Daðason
Ragnar Inga Aðalsteinsson
Þórarinn Eldjárn
Stein Steinarr
Hallgrím Thorsteinsson
SÖNGVARAR:
Guðmundur
Hermannsson
Mjöll Hólm
Sverrir Guðjónsson
Dreifing: Skífan
Útgefandi: I.Þ.K.
Umsaqnir
Sig. Rúnar Jónsson
(„Diddi fiðla"):
„Hér kveður við
nýjan tón miðað við
híjómplötuútgáfu
undanfarinna ára."
Arnþór Helgason:
„ . . . einstaklega
gott samræmi milli
Ijóðs og lags."