Þjóðviljinn - 28.07.1983, Page 5

Þjóðviljinn - 28.07.1983, Page 5
Fimmtudagur 28. júli 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5 Hungurraðir í draumalandi Ólafur Ragnar Grímsson skrifar Hugsjónir fjárhyggjunnar hafa lifað blómatíma. Frelsi fjármagns- ins leysir allan vanda. Slík lausnar- orð hafa skapað kjörfyigi í ýmsum löndum. Harðlína Reagans hefur veitt baráttukraft. Verslunarráðið á íslandi hefur kyrjað dyggilega í þessum halelú- jakór. I aðdraganda kosninganna birti það verkefnaskrá næstu ríkis- stjórnar. Fljótiega á vaidaferli fékk nýr fjármálaráðhcrra svo receptið skrautritað á stóru spjaldi. Ragnar í álinu og Albert í ráðinu voru báðir ánægðir með leiðarvísinn. Sælu- formúla frá ráðgjöfum Reagans skyldi einnig reynd hér. Veruleikinn á bakvið glansmyndina í fjölmiðlafári Vesturlanda hafa menn gleypt þá glansmynd, sem á- róðursmaskína Reagans hefur ætl- að veröldinni. Brosandi Ieiðtogar og ánægðir ráðgjafar hafa birst á sjónvarpsskermi. í heimsókn Bush fengum við íslendingar að kynnast sölumennskunni á eigin grund. Hagkerfið er á uppleið. Efna- hagsstefnan hefur borið árangur. Allt gengur samkvæmt áætlun. Slík voru svör varaforsetans. Boðskap- urinn í fullu samræmi við afurðir hinnar víðtæku áróðursmaskínu. En við og við fá þó almennir borgarar í öðrum löndum að gægj- ast á bak við glansmyndina. Þá blasir við napur veruleiki. Ömur- leg fátækt hefur heltekið milljónir manna í Bandaríkjunum. Lýsingar á lífi tugþúsunda fjölskyldna í sér- hverri borg minna á eymdina sem ríkti fyrir röskri hálfri öld, þegar heimskreppan var í algleymingi. Milljónir foreldra hafa glatað heimilum sínum og eru nú á flæk- ingi með börn sín. Hungur alþýð- unnar er orðið daglegt viðfangsefni borgaryfirvalda. í víðlesnu erlendu blaði var frá því skýrt fyrir skömmu, að borgar- stjórar víðsvegar að úr Bandaríkj- unum hefðu komið saman til fund- ar í þeim tilgangi einum að ræða, hvernig bregðast skyldi við hungri milljónanna, sem nú setur svip sinn á allar borgir í Bandaríkjunum. Skortur á húsnæði, klæðum og mat er orðinn svo knýjandi, að borgar- yfirvöld hafa sent matargjafir til hinna hungruðu fjölskyldna efst á verkefnalista. Biðraðir eftir mat Borgarstjórinn í Detroit, Co- leman A. Young, lýsti því yfir á hungurráðstefnu borgarstjóranna, að matargjafir til hins atvinnulausa og fátæka fjölda væru nú brýnasta úrlausnarefni bandarískra borgar- yfirvalda. Þótt stórfyrirtækin gætu sýnt aukinn gróða héldi alþýða manna engu að síður áfram að þjást milljónum saman vegna hungurs og örbirgðar. í sérhverri bandarískri borg væru nú þúsundir fjölskyldna sem ekki hefði lengur fjármuni til að kaupa sér mat. Þær yrðu að þiggja matargjafir frá borgaryfirvöldum, kirkjum og verkalýðsfélögum. Á ráðstefnu borgarstjóranna kom fram að álagið, sem hið vax- andi hungur skapar á stjórnkerfi borganna, væri orðið slíkt að víða fengju yfirvöld ekkert við vandann ráðið. Dæmi voru nefnd frá Det- roit, Denver, Nashville, Oakland og San Antonio um slíka ásókn hinna hungruðu atvinnuleysingja. Matargjafir borgaryfirvalda hefðu þorrið. Embættismenn og starfs- fólk neyðst til að vísa hungruðum íbúum borganna á brott. Biðraðirnar eftir mat frá yfir- völdum eru sífellt að verða lengri og lengri, sagð Fulton borgarstjóri í Nashville. Og fólkið sem kemur og biður um mat verður sífellt yngra og yngra. Heilar fjölskyldur. Feður og mæður með börn sín sem nú eiga enga aðra leið, en koma til okkar og þiggja osta að gjöf frá borginni. í sérhverri stórborg hefur hag- speki fjárhyggjunnar skapað æ meiri neyð. I Deneverborg einni eru yfir eitt hundrað miðstöðvar, þar sem borgaryfirvöld, kirkju- deildir og verkalýðsfélög sjá um að dreifa mat til hinna atvinnulausu. Á hverjum degi myndast biðraðir rúmlega eitt þúsúnd manna við sér- hverja miðstöð í borginni. Heit máltíð er afhent án endurgjalds. Borgarstjórinn í Detroit áætlar að yfir 50.000 fjölskyldur í borginni fái í hverri viku matarpakka frá yfirvöldum. Embættismenn í Oakl- andborg í Californíuríki lýstu þeirri neyð, sem skapast hafði, þegar þeim mistókst að afla fæðu til handa 30.000 íbúum, sem ekkert fé 1 höfðu handbært til að kaupa sér mat. Aukning vandans birtist skýrt í frásögnum yfirvalda í San Anton- io. í þessari stórborg Texasríkis hefur neyðin vaxið svo á einu ári, að fjöldi hinna þurfandi hefur fimmfaldast. Feimnismálið mikla Bandaríkin hafa verið sæluríki fjárhyggjunnar. Reagan forseti er að skapa draumaland Verslunar- ráðsins íslenska. Markaðsdrottnun kapítalsins er þar í algleymingi. Gróði fyrirtækjanna fer vaxandi. Bush varaforseti flutti okkur frá- sagnir um mikinn árangur! Veruleikinn á bak við þessa glansmynd er hins vegar greinilega feimnismál. Hungrið í Bandaríkj- unum er vandlega falið f fjölmiðl- um. Örlög milljónanna brenna þó á borgarstjórunum vítt og breitt um landið allt. Þeir gefa osta, smjör, brauð og súpur til þeirra, sem þúsundum saman safnast að fæðumiðstöðvum borgaryfirvalda. Venjulegt fólk sem áður hafði næga vinnu. Feður og mæður með börn sín ung. Matargjafir til að forðast sult. Hungurraðir um land- ið allt. Áætlunarferðir BSI um verslunarmannahelgina Félag íslenskra bifreiðaeigenda Vegaþjónusta við ferðalanga Helstu Vegir Iiggja til allra átta um verslunarmannahclgina en hvort enginn ræður för skal ósagt látið. Bifreiðastöð íslands er með allar sínar ferðir á hreinu og birtum við hér yfirlit yfir helstu leiðirnar. Frekari upplýsingar er hægt að fá á BSÍ, Umferðarmiðstöðinni við Hringbraut, í síma 22300 en til að tryggja sér sæti er fólk vinsam- legast hvatt ti) þess að kaupa far- seðia með góðum fyrirvara! Þjórsárdalur - Gaukurinn ’83 Frá Reykjavík: Föstudag kl. 16.00, 18.30, 21.00 Laugardag kl. 14.00, 21.00. Sunnudag kl. 21.00. Mánudag kl. 21.00. Veðrið Veðurútlitið um verslunarmann- ahelgina er erfitt að segja til um þetta löngu fyrir helgi, en sam- kvæmt tölvuútreikningum þeirra á Veðurstofunni á’ann að ganga í norðanátt á laugardag með dumb- ungi og rigningu um norðanvert landið en bjartviðri gæti orðið um sunnanvert landið. Nákvæmari spá ætti aö liggja fyrir á fimmtudagskvöld eöa föstu- dagsmorgni. Eins og allir vita sem hafa ferðast eitthvað á íslandi þýðir ekkert að vera að bíða eftir góðu veðri. Það eina sem dugir er að búast sem best fyrir brottför og eiga allra veðra von og taka góða skapið með! - áþj. leiðir Frá Þjórsárdal: Sunnudag kl. 03.00, 17.00. Mánudag kl. 10.30, 17.00. Þriðjudag kl. 09.00. Fargjald m/áætlunarbíl, fram og til baka, kr. 360.00. Galtalækur Frá Reykjavík: Föstudag kl. 20.30. Laugardag kl. 13.30. Frá Galtalæk: Sunnudag kl. 16.30. Mánudag kl. 12.00, 16.00. Fargjald m/áætlunarbíl, fram og til baka, kr. 360.00 Þjóðhátíðin í Eyjum Þorlákshöfn-Herjólfur Fimmtudag kl. 11.00, 19.30 Föstudag kl. 08.00, 16.30 Laugardag kl. 11.00 Sunnudag kl. 16.30 Mánudag kl. 11.00, 19.00 Frá Þorlákshöfn: Fimmtudag kl. 11.00, 21.30 Föstudag kl. 09.30, 17.30 Laugardagkl. 11.00 Sunnudag kl. 17.30 Mánudag kl. 11.00, 21.00 Fargjald m/Herjólfi kr. 290.00 Fargjald m/áætlunarbíl kr. 170.00 fram og til baka Húsafell Frá Reykjavík: Föstudag kl. 12.30, 18.30, 22.00 Laugardag kl. 13.00 Frá HúsafcIIi: Sunnudag kl. 15.00 Mánudag kl. 15.00 margir eiga eftir að velta fyrir sér um verslunarmannaheigina. - Mynd: - gel. Ballferðir verða frá tjaldsvæðinu í Húsafelli að Brautartungu og Brún. Fargjald m/áætlunarbíl, fram og til baka, kr. 520.00. Þórsmörk Frá Reykjavík: Daglega kl. 08.30 og einnig föstudag kl. 20.00 Frá Þórsmörk: Daglega kl. 15.00. Tjaldstæði kosta kr. 50.00 Gisting í skála Austurleiðar kr. 100.00 á nótt. Fargjald m/áætlunarbfl, fram og til baka, kr. 750.00. Laugarvatn Frá Reykjavík: Föstudag kl. 10.00, 19.30 Laugardag kl. 10.00 Sunnudag kl. 10.00 Frá Laugarvatni: Sunnudag kl. 17.00 Mánudag kl. 16.00 Hjálparbifreiðir FIB verða á ferðinni um landið um verslunar- mannahelgina til að liðsinna öku- mönnum sem lenga í erfiðleikum með farskjóta sína. FÍB-menn hvetja fólk til að láta yfirfara bflinn áður en lagt er af stað í langferð og að þess sé gætt að algengustu varahlutir svo sem kerti, platínur og viftureim séu með í förinni. Allt of algengt er einnig að tjakkurinn nauðsynlegi hafi orðið eftir heima þegar skipta þarf um dekk. Hægt er að ná í FÍB-bflana á rás 19 á CB-talstöðvum og einnig er hægt að hafa samband við Tjalda- leiguna á Laugarvatni (99-6155) og Tjaldaleiguna í Þrastarlundi. Ef Tjaldstæði kosta kr. 50.00 á nótt (lágmarksgjald) Fargjald m/áætlunarbfl, fram og til baka, kr. 290.00 Sætaferðir frá Laugarvatni á ball- staði í nágrenninu. Arnarstapi Á Snæfellsnesi Ferðir í sambandi við áætlunar- ferðir vestur. Fargjald m/áætlunarbíl, fram og til baka, kr. 630.00. Þingveliir Daglega kl. 14.00 einnig föstudag kl. 20.00. Frá Þingvöllum: Daglega kl. 17.00 Fargjald m/áætlunarbfl, fram og til baka, kr. 160.00 allt um þrýtur þá situr Bjarni Pét- ursson við síma 17421 í Reykjavík og hjálpar fólki að komast í sam- band við þessa riddara þjóðveg- anna. Ferðir FÍB-bflanna um verslun- armannahelgina: FÍB 2: Vestur-Húnavatnssýsla. FÍB 3: Selfoss og austur. FÍB 4: Þingvellir. FÍB 5: Borgarfjörður. FÍB 6: Bjarkarlundur. FÍB 7: Höfn og Skaftafell. FÍB 8: Laugarvatn og Þrastar- lundur. FÍB 9: Vaglaskógur að Ásbyrgi. FÍB 10: Egilsstaðir að Atlavík. FÍB 11: Vík í Mýrdal. FÍB 12: Galtalækur og Þjórsár- dalur. Atlavík Frá Akureyri: Föstudag kl. 16.00 Frá Atlavík: Mánudag kl. 14.00 Fargjald m/áætlunarbíl, frám og tilbaka, 1.250.00. Einnig eru sætaferðir í Atlavík frá Húsavík, Egilsstöðum o.fl. stöðum. Laugar Frá Akureyri: Föstudag, fyrsta ferð kl. 17.30 og eftir það á klst. fresti meðan þörf er. Frá Laugum: Mánudag. Ferðir á u.þ.b. klst.fresti. Fargjald m/áætlunarbfl, fram og til baka, kr. 350.00. Einnig eru sætaferðir að Laugum frá Húsavík.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.