Þjóðviljinn - 28.07.1983, Page 9

Þjóðviljinn - 28.07.1983, Page 9
Fimmtudagur 28. júlí 1983 iÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 Skatturinn: Islenskir aðalverk- takar hærri en SIS Enginn dreifbýlismaður yfir milljón Skattskrá hefur nú verið lögð fram allsstaðar á landinu. Vegna skorts á samræmdum upplýsingum er erfitt um samanburð milli ára, en hækkun heildarálagningar virðist um 45-65% eftir lands- hlutum. í Reykjavík er hækkun einstaklingsálagningar 60,7%. Samkvæmt spá Þjóðhagsstofnunar frá júnímánuði sl. er áætluð hækk- un atvinnutekna á mann milli áranna 1982 til 1983 um 52,5%. Þorvaldur Guðmundsson greiðir hæstu skatta allra landsmanna, og Reykvíkingar skipa þrjú næstu sæt- in á þeim lista. Gjaldhæsti Reyk- nesingur er í fimmta sæti. 18 ein- staklingar greiða yfir milljón í gjöld, en í þeim hópi er enginn utan suðvesturhornsins. Upplýsingar hafa að vísu ekki borist um gjald- hæstu einstaklinga á Vestfjörðum og Vesturlandi, en skattakóngur dreifbýlisins þarutan er Magnús Stefánsson Akureyri (769 þús.). Gjaldhæst fyrirtækja og stofn- ana yfir landið eru íslenskir aðal- verktakar (62,6 milljónir), þvínæst SÍS (30,7 milljónir) og Reykjavík- urborg (18,3 milljónir). 1 Reykjavík er heildarálagning 3024 milljónir. Á fólk eru lagðar 2159,2 milljónir, á fyrirtæki og stofnanir 864,9 milljónir. Gjaldhæstir einstaklinga í Reykjavík eru Þorvaldur Guð- mundsson (4491 þús.), Gunnar Jensson (2161 þús.), Guðmundur Kristinsson (1976 þús.), Ingólfur Guðbrandsson (1699 þús.), Skúli Þorvaldsson (1243 þús.), ívar Daníelsson (1239 þús.), Gunnar Snorrason (1237 þús.), Órn Schev- ing (1227 þús.), Birgir Einarsson (1189 þús.), Gunnar Guðjónsson (1099 þús.). Gjaldhæstu fyrirtæki og stofnan- ir eru SÍS (30. 697 þús.), Reykja- víkurborg (18.311 þús.), IBM (17.308 þús.), Eimskip (15.100 þús.), Flugleiðir (14.565 þús.). Á Reykjanesi er heildarálagning 1564 milljónir. Á fólk eru lagðar 1310,9 milljónir, á fyrirtæki og stofnanir 252,6 milljónir. Gjaldhæstir einstaklinga eru Ragnar Traustason Kópavogi (1396 þús.), Magnús Björnsson Garðabæ (1291 þús.), Hreggviður Hermannsson (1166 þús.), Þormar Guðjónsson Keflavík (1163 þús.), Páll B. Samúelsson Garðabæ (1124 þús.). Gjaldhæst stofnana og fyrir- tækja eru íslenskir aðalverktakar (62.615 þús.l, Bandaríkjaher (5979 þús.), ISAL (5154 þús.), Byggingavöruverslun Keflavíkur (4983 þús.), Félag vatnsvirkja Höfnum (2706 þús.). Skattstjóri Vesturlandsumdæm- is vildi ekki gefa upplýsingar um heildarálagningu og hæstu gjald- endur, taldi að slíkar upplýsingar frá honum gætu brotið í bága við tölvulögin. Á Vestfjörðum er heildarálagn- ing 280 milljónir. Á fólk eru lagðar 228,6 milljónir, á stofnanir og fyrir- tæki 51,4 milljónir. Ekki er enn séð hverjir greiða hæst gjöld af fólki, en hæstu fyrir- tækin eru: Norðurtangi Isafirði (2.038 þús. kr.), íshúsfélag ís- firðinga (2.022 þús. kr.), íshúsfé- lag Bolungarvíkur (1696 þús. kr.), Kaupfélag Dýrfirðinga (1648 þús ). Á Norðurlandi vestra er heildar- álagning 208 milljónir. Á fólk eru lagðar 171,1 milljónir, á stofnanir og fyrirtæki tæpar 37 milljónir. Hæstu gjaldendur af holdi og blóði eru Jón Dýrfjörð Siglufirði (331 þús.), Einar Þorláksson Blönduósi (329 þús.), Sigursteinn Guðmundsson Blönduósi (327 þús.), Sveinn Ingólfsson Skaga- strönd (320 þús.), Guðjón Sig- tryggsson Skagaströnd (292 þús.). Gjaldhæstu lögaðilar eru Kaupfélag Skagfirðinga (4347 þús.), Togskip Siglufirði (1964 þús.), Kaupfélag A.-Húnvetninga (1341 þús.). Á Norðurlandi eystra er heildar- álagning 511 milljónir. Á fólk eru lagðar 439,3 milljónir, á fyrirtæki og stofnanir 71,9 milljónir. Gjaldhæstir einstaklinga eru Magnús Stefánsson Akureyri (769 þús.), Ólafur Ólafsson Húsavík (589 þús.), Teitur Jónsson Akur- eyri (582 þús.), Gauti Arnþórsson Akureyri (529 þús.), Oddur Thor- arensen Akureyri (493 þús.). Gjaldhæst stofnana og fyrir- tækja eru KEA (18.789 þús.), Manville Húsavík (5.631 þús.), Út- gerðarfélag Akureyringa (4088 þús.). Á Austurlandi er heildarálagn- ing tæpar 317 milljónir. Á fólk eru lagðar 258,8 milljónir, á fyrirtæki og stofnanir 57,9 milljónir. Gjaldhæstir einstaklinga eru Jónas Sigurbergsson Höfn (775 þús.), Eggert Brekkan Neskaup- stað (398 þús.), Þröstur Júlíusson Fáskrúðsfirði (328 þús.), Guð- mundur Sveinsson Seyðisfirði (321 þús.), Jens Magnússon Vopnafirði (297 þús.). Gjaldhæst stofnana og fyrir- tækja eru Sfldarvinnslan Nes- kaupstað (4276 þús.), Kaupfélag A.-Skaftfellinga (3954 þús.), Kaupfélag Héraðsbúa (2757 þús.). í Suðurlandsumdæmi er heildar- álagning 327 milljónir. Á fólk voru lagðar 269 milljónir, á stofnanir og fyrirtæki 58 milljónir. Gjaldhæstir einstaklinga eru Bragi Eiríksson Selfossi (392 þús.), Daníel Daníelsson Selfossi (354 þús.), ísleifur Halldórsson (335 þús.), Sveinn Guðmundsson Eyrarbakka (228 þús.), Marianne Nielsen Vík (220 þús.). Gjaldhæst stofnana og fyrir- tækja eru Mjólkurbú Flóamanna (2.387 þús), Bifreiðastöð Selfoss (1.039 þús.), Leigan Selfossi (812 þús.). I Vestmannaeyjum er heildará- lagning 131 milljón. Á fólk eru lagðar tæpar 109 milljónir, á fyrir- tæki og stofnanir 22,5 milíjónir. Gjaldhæstir einstaklinga eru Kristmann Karlsson (566 þús.), Björn Karlsson (399 þús.), Óskar Kristinsson (374 þús.). Gjaldhæst fyrirtækja og stofn- ana eru Vinnslustöðin (2052 þús.), Hraðfrystistöð Vestmannaeyja (1958 þús.), Fiskiðjan (1696 þús.). Allar tölur eru birtar án ábyrgðar, enda kærufrestur ekki útrunninn. Persónuafsláttur og annar afsláttur er ekki reiknaður með í tölum hér að ofan. - m. Onnur dvalarvika á Laugarvatni „Vel ég læt í eyra þér” Sagt frá lifandi starfi og leik Önnur dvalarvika Alþýðu- bandalagsins í Héraðsskólanum á Laugarvatni á þessu sumri þótti lukkast með afbrigðum vel. Alls voru þátttakendur 81 talsins, sá yngsti þriggja vikna, en hinn elsti áttræður. Lánið lék við hópinn og á þessu rosasumri komu þrír sól- ardagar, þannig að mikið var um útiveru, gönguferðir, reiðtúrar, rútuferð um Laugardal og Bisk- upstungur, knattspyrnukeppni Þórður Helgason for með gamanmál á kvöldvökunni og hér sést hann afhenda Guðrúnu Jóhannsdóttur verðlaun í vísnagátukeppninni sem var mjög vinsæl dægradvöl. Milli þeirra stendur Guðrún Helgadóttir, en hún flutti gamanþátt á kvöldvökunni. Vísurnar sem Þórður lét menn glíma við voru 12 talsins. Hér kemur sýnishorn: „Hörkutól ég hentugt er. / Heitið dável bæjum fer. / Álfar vist sér völdu hér. / Vel ég læt í eyra þér.“ þar sem gamlir snillingar sýndu góða takta að ógleymdum báts- Það sem mesta hrifningu vakti á kvöldvökunni var frumflutningur á leikritinu: „Kvöldverðarboðið - Bossableyja - Afi flækist fyrir.“ Hö- fundar voru jafnframt flytjendur verksins. Á myndinni má sjá frá vinstri: Önnu Maríu Einarsdóttur, Þórarinnu Söebech, Ljósbrá Bald- ursdóttur, Hlöðver Sigurðsson, Bryndísi Ólafsdóttur. Auk þeirra léku Davfð Ólafsson og Hulda Skúladóttir. Leikstjóri var Hrafnhildur Guð- mundsdóttir. ferðum á vatninu. Margir komu við sögu til að gera dvölina ánægjulega, en þó sérstaklega starfsfólk Héraðsskólans. Guð- mundur Birkir Þorkelsson sagði frá sögu- sveitarinnar og skóla- haldsins á Laugarvatni. Óskar Ólafsson og Margrét Gunnars- dóttir voru fararstjórar í göngu- ferðum. Arnór Karlsson leiðsög- umaður um nálægar byggðir. Svavar Gestsson spjallaði um stjórnmál líðandi stundar, Bald- ur Óskarsson sýndi myndir og sagði frá Tansaníu og Á-Afríku en hann hafði einnig stjórn dval- arvikunnar með höndum. Hrafn- hildur Guðmundsdóttir annaðist bamagæslu. Mikið var spilað og sungið, félagsvist og bingó, sund og gufubað stundað af krafti. Síðasta kvöldið var mikil mat- arveisla og að henni lokinni kvöldvaka sem tókst með mikl- um ágætum og komu flestir þátt- takendur fram. Síðan var stiginn dans fram eftir nóttu við undir- leik þeirra Sigurðar Hlöðvers- sonar og Baldurs Óskarssonar. Hér á síðunni birtast nokkrar myndir frá kvöldvökunni Það sem er sérstaklega ánægju- legt við þessar samvemstundir á Laugarvatni er að fjölskyldur, ungir og gamlir sameinast í upp- byggj andi og skemmtilegu félags- lífi.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.