Þjóðviljinn - 28.07.1983, Side 15
Fimmtudagur 28. júlí 1983 lÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15,
frá lesendum
Gerið þetta
fyrir
hann Kristin
RUV0
Fimmtudagur
28. júlí
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Tónlelkar.
Þulur velur og kynnir. 7.25 Leikfimi. Tón-
leikar.
7.55 Daglegl mál. Endurtekinn þáttur Áma
Böðvarssonar frá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð. Bryndis Viglundsdóttir talar.
Tónleikar.
8.30 Mylsna. Þáttur fyrir morgunhressa
krakka. Stjómendur: Ása Helga Ragnars-
dóttir og Þorsteinn Marelsson.
8.40 Tónbllið
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstundbarnanna:„Dósastrák-
urinn“ eftir Christine Nöstlinger Valdis
Óskarsdóttir les þýðingu sina (9).
9.20 Leikfiml. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.).
10.35 Iðnaðarmál Umsjón: Sigmar Ármanns-
son og Sveinn Hannesson.
10.50 „Horfinn að eilifu", smásga eftir
Þröst J. Karlsson Helgi Skúlason les.
(Áð.útv. 30.09. '82).
11.05 Frá frægum hljómleikum.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynning-
ar. Tónleikar.
14.00 „Hún Antonia mín“ eftir Willa Cather
Þýðandi: Friðrik A. Friðriksson. Auður Jóns-
dóttir les (2).
14.30 Miðdegistónleikar Hljómsveit Ríkisóp-
erunnar í Vínarborg leikur „Vinarblóð", vals
eftir Johann Strauss; Anton Paulik
stjVConxertgebouw-hljómsveitin í Amster-
dam leikur forleik að „Jónsmessunætur-
draumi", ettir Felix Mendelssohn; George
Szell stj.
14.45 Popphólfið - Pétur Steinn Guðmunds-
son.
15.20 Andartak Umsjón: Sigmar B.
Hauksson.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Siðdegistónleikar Björn Guðjónsson
og Gísli Magnússon leika Trompetsónötu
op. 23 eftir Kari O. Runólfsson/Bemard
Wilkinson, Daði Kolbeinsson, Einar Jó-
hannesson, Joseph Ognibene og Hafsteinn
Guðmundsson leika Kvintett fyrir blásara
eftir Jón Ásgeirsson/LaSalle-kvartettinn
leikur Strengjakvartett nr. 3 op. 19 eftir Alex-
ander Zemlinsky.
17.05 Dropar Síðdegisþáttur i umsjá Am-
þrúðar Karlsdóttur. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Við stokkinn Guðbjörg Þórisdóttir held-
ur áfram að segja bömunum sögu fyrir
svefninn.
20.00 Bé einn Þáttur í umsjá Auðar Haralds og
Valdísar Óskarsdóttur.
20.45 Leikrit: „Málverk af frú Potter“ eftir
Carol Richards '
21.30 Gestir i útvarpssal Alan Hacker og
Karen Evans leika saman á klarinettu og
pianó. a. „Caoine“ eftir Charies Stanford. b.
Sex lög í þjóðlagastíl eftir Vaughan Wil-
liams. c. „An óg Mhadainn" eftir William
Sweeney.
22.00 Tónleikar
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Indlandsdvöl Jesú Krists Dagskrá
byggð á tíbetskum þjóðsögum um líf Jesú
Krists f Indlandi, Nepal og Palestinu.
Samantekt og umsjón: Gisli Þór Gunnars-
son. Lesari ásamt umsjónarmanni: Bergljót
Kristinsdóttir.
23.00 Á siðkvöldi Tónlistarþáttur i umsjá
Katrinar Ólafsdóttur.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Útvarp kl. 20.45
Að þessu sinni er fimmtudags-
leikrit Ríkisútvarpsins gamanleikur-
inn Málverk af frú Potter, eftir Carol
Richards. Þýðinguna gerði Margrét
Jónsdóttir en leikstjóri er Jill Brook
Árnason.
Leikritið gerist í bæjarfélagi, sem
ekki hefur vaxið mjög ört en er þó
orðið 100 ára. Vel þykir hlýða að
minnast þessa merkisafmælis með
einhverjum hætti og verður að ráði
að láta mála mynd af einhverjum
meiri háttar borgara bæjarins. Er til
þess verks ráðinn ungur og efni-
legur málari, uppalinn í afmælis-
bænum. En lítið bæjarfélag getur
átt ýmsa merkismenn ekki síður en
stórt og kann þá að vera úr vöndu
að ráða fyrir fyrirsætuna. Að lokum
verður ofan á að bæjarstjórafrúin
skuli verða viðfangsefni málarans
og á hún sjálf drjúgan þátt í því vali.
Vill auk heldur hafa ærna hönd í
bagga með því hvernig málarinn
vinni verkið. Málarinn lætur það
gott heita en hugsar sitt, og þegar
upp er staðið er málverkið af frúnni
nokkuð frábrugðið því, sem hún og
bæjarstjórnin ætluðust til en það er
önnur saga, sem verður sögð í
kvöld.
Leikendur eru: Þórhallur Sig-
urðsson, Baldvin Halldórsson, Sig-
ríður Þorvaldsdóttir, Bryndís Pét-
ursdóttir, Steindór Hjörleifsson,
Borgar Garðarsson og Jóhanna
Norðfjörð. - mhg
Hákur skrifar:
Ætli það geti skeð að þeir séu
eitthvað skyldir, Jónas stýrimað-
ur, listmálari, ritdómari, leiklist-
ardómari, danslistardómari, rit-
höfundur, skáld o.s.frv. og Kri-
stinn Snæland, „blaðasali, sendi-
sveinn, snúningastrákur, iagerm-
aður, pressumaður, vegavinnum-
aður, iðnnemi, rafvirki, rafverk-
taki, leigubflstjóri, erindreki,
sveitarstjóri, (það þarf ekki að
segja þeim það á Flateyri), út-
beiðslustjóri, rútubflstjóri, vöru-
bflstjóri, sjómaður“ og rafmagns-
fræðingur?
En þannig titlar Kristinn sig í
DV nú nýlega. Hefur sennilega
ekki treyst DVtilað kynna nema
„haus og sporð“, eins og hann
Maður með 17 titla.
orðar það, en Kristinn kann nú
betur við að hafa „miðstykkið“
með líka.
Ja, tarna er nú meiri fjölhæfnin
og má Jónas bara fara að vara sig.
En því koma mér í hug ættar-
tengsl milli þessara afreksmanna
að um margt eru þeir líkir í skrif-
um sínum og „kommarnir" eink-
um eitur í beinum beggja. Jónas
er að vísu ritfærari og kemst
skemmtilegar að orði, þnfCrist-
inn bætir það upp með stór-
yrðunum. Aftur á móti verður
ekki á milli séð um sleggju-
dómana.
Kynningarpistill Kristins í DV
á víst að öðru leyti að vera „svar“
við grein þeirra Árna Sigurjóns-
sonar og Björns Birgis Sigurjóns-
sonar í DV þann 14. þ.m., eða
svo segir hann a.m.k. Enginn
maður, sem lesið hefur báðar
greinarnar, getur þá séð að Krist-
inn haggi við nokkru einasta at-
riði í grein þeirra félaga. Kristinn
hefði því alveg getað látið nægja
kynninguna á sjálfum sér og
sleppt hinu. Og sjálfs sín vegna
hefði hann nú átt að gera það.
En undir eitt skal tekið með
Kristni; „Mér finnst sjálfsagt að
lesendur geri upp á milli minnar
vitlausu greinar og greinar
„menntamannanna" 14. júlí sl.“.
- Já, þið megið endilega til með
að gera þetta fyrir hann Kristin.
En ég efast um að Jónas hefði
beðið sömu bónar.
barnahorn
Skrýtlur
Jón og Gunni voru í berjamó.
Jón: Sjáðu öll berin Gunni.
Gunni: Þetta eru ekki ber, kjáninn
þinn. Það eru bara eggin úr lömbunum.
Jón: Nú, þú átt við lambaspörð.
P: Ég veit um mann sem fer til Akur-
eyrar á hverjum degi.
M: Ertu frá þér, drengur.
P: Jú. Bflstjórinn sem ekur rútunni.
Emma er volandi af því hún hefur meitt
sig í tánni.
P: Vertu nú hörð vina mín.
E: Nei, ég vil vera mjúk.
Ljónamamma: Barn, hvað ertu að
gera?
Ljónsunginn: Ég er að elta veiðimann
kringum trén.
Ljónamamma: Er ég ekki búin að
banna þér að leika þér að matnum.
Að búa tU
kassabfl
Til þess að búa til kassabfl þarf að fá
góðan trékassa eða spýtur, hamar og
nagla og hjól. Hjólingetið þiðfengið
t.d. af gamalli barnakerru eða gömlu
þríhjóli og svo getið þið fengið gott sæti
einhvers staðar eða bara setið á púða.
Ekki er nauðsynlegt að hafa alvöru
stýri, það er enginn vandi að stýra með
bandi sem þið bindið sitt hvoru megin í
þverspýtuna sem heldur framhjólun-
um. Stelpur, þið getið þetta líka en
passið ykkur á umferðinni. Best er að
leika sér á bflunum á gangstéttum eða
göngugötum.
Það voru alla vega bílar sem sáust á götum Hafnarfjarðar þegar kassabflarallið fór
þar fram, Þessi var frekar vel útbúinn með alvörustýri og flottu sætii Eigandi
bflsins er Ivar Þór Ágústsson, 10 ára, og virðist hann líka vera Kiss-aðdáandi. ívar
sagði að pabbi sinn hefði hjálpað sér að smíða bflinn. - Ljósm. - eik.