Þjóðviljinn - 27.08.1983, Blaðsíða 26

Þjóðviljinn - 27.08.1983, Blaðsíða 26
YV M?ifg - WUlJIVQíiW (>:n nh& X: - iriaJsH 26 SÍ»A - -ÞJÓÐVILJINN ■ Hclgin.27...-r,28. ágúst.lí>83. ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Kjördæmisráðstefna Ab á Vestfjörðum verður haldinn að Birkimel í V-Barðastrandarsýslu dagana 10. og 11. september. Gestur fundarins verður Svavar Gestsson, formaður Alþýðu- bandalagsins. Dagskrá: Laugardagur: Ráðstefnan hefst kl. 13.00. Skýrsla formanns. Forval og forvalsreglur. Framtíð byggðar á Vestfjörðum - lífskjör - atvinnuskilyrði. Stjórnmálaviðhorfið og fleira. Framsögu- maður Svavar Gestsson. Sunnudagur: Nefndarstörf hefjast kl. 9.00. Kl. 13.00: Skipulag flokksins. Framsögumaður Svavar Gestsson. Afgreiðsla ályktana. Kosning stjórnar og uppstillinganefndar. Áætlaö er að ráðstefnunni Ijúki kl. 17.00. Stjórn kjördæmisráðs „Grunnskóli/framhaldsskóli: ar á þroskandi nám, starf kennar- Samræmd heild eða sundurleitir ans og sjálfsmynd nemandans. heimar?“ Þessari spurningu ætla Auk þess er unnið í nokkrum val- kennarar að velta fyrir sér á upp- hópum og rætt um samræmingu eldismálaþingi sem Kennarasam- skólastiganna, skólaskyldu, náms- band Islands og Hið íslenska kenn- ráðgjöf, lög um skólamál og einn arafélag halda nú að Borgartúni 6 í valhópurinn hefur einkunnarorðin Reykjavík. „Fallinn með 4,9“. Um þetta efni heldur Gerður G. Að auki eru á þinginu flutt stutt Óskarsdóttir fyrirlestur og Ólafur erindi um ýmis efni tengd skóla- Proppé ræðir um áhrif samræming- starfi. Að þinginu loknu í kvöld gefst kostur á að ræða málin óform- | lega í „opnu húsi“ að Borgartúni 6. j Þingið er geysifjölmennt, þing- fulltrúar munu vera um 450 og sagði Valgeir Gestsson formaður KI að það teldist örugglega frétt í j útlöndum ef tæp 10% kennara á grunnskólastigi settust niður til að ræða skólamál. -m/ÞH Hverjum bjargar það jáS næst^' a Alþýðubandalagið Norðurlandi eystra Áríðandi félagsfundir Áríðandi félagsfundir verða í Alþýðubandalagsfélögunum á eftirtöldum stöðum í næstu viku: Húsavík mánudaginn 29. ágúst kl. 20.30 í Snælandi. Raufarhöfn þriðjudaginn 30. ágúst kl. 20.30. Þórshöfn miðvikudaginn 31. ágúst kl. 20.30. Steingrímur J. Sigfússon alþingismaður mætir á fundina. Félagar mætið vel og stundvíslega. Stofnfundur Alþýðubandalagsfélags á STÖÐVARFIRÐI Boðað er til stofnfundar Alþýðubandalagsins á Stöðvarfirði sunnudaginn 28. ágúst kl. 20.30. Alþingismennirnir Helgi Seljan og Hjörleifur Guttormsson koma á fundinn. Stuðningsmenn eru hvattir til að ganga í félagið. Undirbúningsnefndin. Alþýðubandalagið Fáskrúðsfirði Félagsfundur Alþýðubandalagið Fáskrúðsfirði heldur félagsfund á sunnudaginn 28. ágúst kl. 16.00. Alþingismennirnir Helgi Seljan og Hjörleifur Guttormsson mæta á fundinn. Hættir Albert viö að selja? Drukkið fyrir 74 miljónir á mánuði ÁTVR seldi áfengi fyrir 222 milj- ónir mánuðina apríl, maí og júní sl. Reykjavíkurríkin eru einsog vænta máttistórtækust í áfengissölu, seldu á þesum tíma fyrir 162 miljónir tæpar. Sé deilt í heildarsölu áfengis þessa mánuði með þremur fæst tal- an 74 miljónir, sem er mánaðarsala á áfengi fyrir tímabilið. í Reykjavík er selt 72,8% af heildinni. Á Akureyri er talan 9,3%, í Keflavík 4,9%. Þvínæst koma ísafjörður (3,4%), Vest- mannaeyjar (3,2%), Ákranes (2,5%). Á Seyðisfirði eru seld 2,3% áfengisheildarsölu, en á Sig- lufirði aðeins 1,2%. Allt þetta má sjá í tilkynningu frá Áfengisvarnarráði sem fylgist grannt með þessum málum. Þar eru líka tíndar til tölur fyrir sömu mánuði í fyrra. Hlutfallsbreyting milli áranna er mjög lítil og bendir til þess að jafnvægi og festa ríki í þessum efnum milli hinna dreifðu byggða. Á þessu er aðeins ein undan- tekning. Ríkið á Akranesi var ekki til í fyrra en hefur nú tekið til sín 2,5% af heildarsölunni. Á sama tíma hefur hlutur höfuðborgarinn- ar minnkað um 1,7%, úr 74,5 í 72,8, og hlutur Keflavíkur um 0,4%, úr 5,3 í 4,9. - m Lánskjaravísitalan kynnt eftir taugastríð hjá stjórnarflokkunum Hækkar um 8,1 % Verður 5,1 á húsnæðismálastjórnarlánum Lánskjaravísitala hækkar um 8,1% 1. september nk. Á hús- næðismálastjórnarlánum og náms- lánum er hækkunin þó ekki nema 5,1%, og er þá farið að miða við mánaðarlegan útreikning á þeim vísitölum sem lánskjaravísitalan byggir á, framfærslu og byggingar. Þessar tölur voru kynntar blaða- mönnum á fundi með forsætis- og viðskiptaráðherrum í gær. Sá fundur tafðist um tæpan klukku- tíma vegna þingflokksfundar sjálf- stæðismanna. Matthías Á. Mathie- sen var spurður hvort andstaða væri innan þingflokksins við þessa hækkun lánskjaravísitölunnar og sagði að það lægi Ijóst fyrir að menn væru síður en svo hrifnir af þessari miklu hækkun. Staðan væri hinsvegar þannig að þetta yrði svo að vera. „Þetta er alveg eins hjá mér“ skaut Steingrímur inní. Ráðherrarnir sögðu á fundinum að þessi hækkun lánskjaravísitöl- unnar væri að hluta til „leiðrétting“ vegna þess að verðhækkanir hafi verið vanmetnar við útreikning á vísitölunni í ágústbyrjun. Ríkis- stjórnin hefði verið öll af vilja gerð að sleppa þessari leiðréttingu og láta lánskjaravísitöluna hækka að- eins um 5,1%, en horfið frá því ráði vegna umsagnar lögfræðinga. Stjórnin hefði hinsvegar ákveðið að talan 5,1 gilti um húsnæðismál- astjórnarlán og námslán, enda væru þessi lán öll í höndum stjórn- arinnar. Ríkisstjórnin mun beina þeim tilmælum til lífeyrissjóða að þeir hækki ekki nema um 5,1%. „Það er skoðun mín að fjármagns- eigendur hafi fengið ríflega sinn hlut“ sagði Steingrímur Her- mannsson á blaðamannafund- inum. „Með hliðsjón af hratt hjaðnandi verðbólgu“ Lánskjaravísitalan verður í framtíðinni reiknuð út á grunni verðhækkana í hverjum mánuði og ekki áætluð eins og verið hefur þriðja hvern mánuð. Er þess vænst að þessi aðferð dragi úr stórstökk- um eins og nú. í fréttatilkynningu sem ríkisstjórnin sendi frá sér í gær er talið að verðbólgan verði nánast úr sögunni um jólaleytið, 30-35% talaði Matthías um á blaðamanna- fundinum. Á þá lánskjaravísitalan að hækka minna, og er t.d. talað um 1,2% hækkun 1. desember og þá miðað við verðbólguspá frá Þjóðhagsstofnun. í tilefni þessara spádóma hefur stjórnin óskað eftir því við Seðlabankann „að vextir og lánskjör verði nú endurskoðuð með hliðsjón af hratt hjaðnandi verðbólgu" eins og segir í fréttat- iikynningunni. Viðskiptaráðherra sagði á fundinum að búast mætti við vaxtalækkun um miðjan næsta mánuð þegar framfærsluvísitalan lægi fyrir. Ekkert rœtt um breytingu á húsnœðislánum Ráðherrarnir voru á fundinum í gær spurðir um frétt DV þar sem staðhæft er að Albert fjármálaráð- herra hafi lagt til á ríkisstjórnar- fundi í fyrrakvöld að fella niður verðtrygginguna á lánum frá Hús - næðismálastofnunog taka upp í staðinn 30% vexti. „Þessi frétt er alröng“ sagði forsætisráðherra. Enginn fundur hefði verið haldinn í fyrrakvöld og engar slíkar tillögur uppi frá Albert. -m Frá setningu Uppeldismálaþings. (Mynd: -eik-) Kennarar ræða skólamál Hjörleifur Gutt- ormsson Samræmd heild eða sundurleitir heimar? Almennur fundur Borgarfjörður eystri Alþingismennirnir Helgi Seljan og Hjörleifur Guttormsson verða á almennum stjórnmálafundi í Fjarðarborg laugardaginn 27. ágúst kl. 16. Fundurinn er öllum opinn. Alþýðubandalagið Helgi Seljan Valgeir Gestsson

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.