Þjóðviljinn - 27.08.1983, Blaðsíða 7
Helgin 27. - 28. ógúst 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
„Áhrifin af sjónum
koma kannski seinna”
Eyjólfur Einarsson opnar sýningu í Listmunahúsinu i dag. Hér stendur hann við eitt
verka sinna. - Ljósm. eik.
í dag kl. 14 opnar Eyjólfur Ein-
arsson málverkasýningu í List-
munahúsinu, Lækjargötu 2 í
Reykjavík. Sýningin er opin dag-
lega kl. 10 til 18, laugardaga og
sunnudaga kl. 14 til 18 og lokað
mánudaga. Sýningin stendur til 11.
september.
Við litum inn til Eyjólfs þegar
hann var að setja upp sýninguna.
„Ég er að prófa nýjar leiðir“ sagði
hann, „hér áður málaði ég aðallega
abstrakt, nú má segja að ég sé far-
inn út í súrrealisma. Myndirnar
eru málaðar sl. tvö ár, olíu- og
vatnslitamyndir um 60 talsins.
- Hefurðu sýnt oft?
- Þetta er áttunda einkasýning
mín auk þess hef ég tekið þátt í
fjölda samsýninga. Ég byrjaði fyrst
að læra höggmyndalist á námskeiði
hjá Ásmundi heitnum Sveinsyni,
þá var ég 11 ára og meðal nemenda
var Ragnar Kjartansson. Ég hætti í.
menntaskóla og vildi helga mig
myndlist og stundaði nám við
Listaakademíuna í Kaupmanna-
höfn 1962-64. Skólabróðir minn
þar var Tryggvi Ólafsson.
Fór á sjóinn til að afla fjár.
- Undanfarin tíu ár hef ég stund-
að sjóinn af og til. Var helst á vet-
urna en tók mér frí á sumrin. Mér
fellur vel að fara í skorpuvinnu og
mála á milli.
- Þú málar ekki nein áhrif frá
sjónum?
- Nei, ég segi stundum að ég fari
að mála sjóinn þegar lengra er liðið
frá ég var þar og rómantíkin farin
að blinda mig. Sjómennskan er allt
annað en rómantík
- Varstu ekki hræddur um mál-
arahendurnar á sjónum?
- Jú , stundum. Sérstaklega einu
sinni þegar ég skarst á fjórum fingr-
um og þurfti að fara í land að láta
sauma. Ég finn enn fyrir doða þar
sem ég var saumaður.
- Er erfitt að vera málari á ís-
landi í dag?
- Ja, ég vildi allavega ekki vera
að byggja. Annars er ég búinn að
koma mér upp ágætis aðstöðu
núna, við Fjölnisveginn. Áður var
ég að mála í kjöllurum og háaloft-
um. Ég vil taka það fram að ég fékk
þriggja mánaða starfslaun lista-
manna við síðustu úthlutun og
þakka fyrir það hér með. Þeir pen-
ingar komu sér mjög vel fyrir mig.
- Hvaða verð er á myndunum?
- Ætli ódýrustu vatnslitamynd-
irnar verði ekki á 5000 kr. og dýr-
ustu olíumálverkin á 40 þúsund,"
sagði Eyjólfur og sneri sér að því að
finna myndum sínum stað í List-
munahúsinu sem hann sagði vera
besta sýningarsal í bænum.
EÞ
INVITA innréttingar í ailt húsið
= þægindi og gæði
%
Bjóðum nú
'agsektir
ef umsaminn
afhendingardagur stenst
ekki ó sérsmíðuðum
eða stöðluðum
Invita innréttingum.
Yfir 40 mismunandi
tegundir.
NU BEINIST
AIHÉGLIN AÐ
IÐNSÍ1SIINGU
83
loNSÝNINGIN eráallra
vörum, enda sú stærsta frá
upphafi. Laugardalshöllin
iðaraflífi. Þarnagefstgullið
tækifæri á að kynna sér
mikið og fjölbreytt úrval
íslenskrar framleiðslu.
'ímsar merkilegar
nýjungar koma þarna fram
og sýningargestum er
boðið að bragða á
hverskonar réttum auk
þess að gera góð kaup.
Skemmtiatriði eru uppfærð
á sviði og 2-3 tískusýningar
daglega. Happagestur
hlýturdaglegavinning. Og
ekki mágleyma
veitingasalnum með því
sem þar er boðið uppá.
IðNSÝNING ’83 gagn og
gamanfyriralla.
OPNUNARTÍMAR: Virka
daga kl.3-10.helgar kl.1-10.
AÐGANGSEYRIR:100kr.
fyrirfullorðna, 40 kr. fyrir
börn 6-12ára.
ISLENSK FRAMTÍD
AÐNADI EftGGD
IDNSYNINfijfr
19/8-4/9 * III
I LAUGARDALSHOLL
FÉLAG ÍSLENSKRA ÐNREKENDA 50 ÁRA