Þjóðviljinn - 15.09.1983, Side 1

Þjóðviljinn - 15.09.1983, Side 1
DJQÐVIUINN „Maður skorar svona mark bara einu sinni á ævinni”. Stórgóðir leikir íslensku lið- anna í Evrópu- keppnunum í knattspyrnu. Sjábls. 10-11 september 1983 fimmtudagur 208. tölublað 48. árgangur RISIÐ UPP! Takið þessu ekki þegjandi, sagði Einar Olafsson, formaður SFR, í mötuneyti Landspítalans í gær - Takiö þessu ekki þegjandi, taliöviö vinnufélagana, rísið upp og verjiö starfiö ykkar og þjóðfélag samhjálpar og samneyslu, sagði Einar Ólafsson formaöur SFR á vinnustaðafundi í mötuneyti Landspítalans í gær meö starfsfólki mötuneyta ríkisspítalanna. Hann ásamt Aöalheiöi Bjarnfreðsdóttur, Esther Jónsdótturog Kristjáni Thorlacius geröu grein fyrir harkalegum viðbrögðum stéttarfélaganna viö útboöshugmyndum ríkisstjórnarinnar. „Á fundinum í gær gerði fulltrúi ríkisvaldsins grein fyrir hugmynd- um ríkisstjórnarinnar um útboð á þjónustu mötuneyta spítalanna. Sagði hann að ákveðið hefði verið að bjóða þennan hluta þjónustunn- ar einsog ýmsa aðra þætti heilbrigðisþjónustu sjúkrahúsanna út á frjálsum markaði. Útboðs- frestur væri mánuður og ef stjórn- ananefnd ríkisspítala teldi sig fá hagstætt tilboð sem fullnægði kröf- um kæmi til uppsagna starfs- fólksins. Hamborgarafundur Alberts ber árangur Pétur í Aski að fá sjúkrafæðið? Hefur þegar fest kaup á tækjabúnaði Pétur Sveinbjarnarson hamborgarasali og fjármálamaður hefur fest kaup á tækjaút búnaði sem gerir kleift að fjöldaframleiða máltíðir fyrir stofnanir einsog sjúkrahús. Pétur Svcinbjarnarson hefur um áraraðir verið náinn samstarfsmaður Alberts Guðmundssonar í Sjálfstæðisflokknum. A kosningafundi Alberts fjármálaráðherra í Háskólabíói í apríl sl. gaf Pétur viðstöddum tvö þúsund hamborgara frá Aski. Gluggakarmar í Seðlabankahúsið Aðallega innflutnlngur „Gluggar og klæðning á húsið verður væntanlega boðin út í einu lagi og ég tel allt benda til þess að efniviðurinn verði keyptur erlendis frá”, sagði Stefán Þórarinsson starfs- mannastjóri Scðlabankans scm jafnframt á sæti í bygginga- nefnd Seðlabankahússins. Stefán sagði að stutt væri í að bygginganefndin sendi frá sér útboðsgögn. „Hins vegar er ljóst að við munum kaupa af innlendum aðila þó að efnið verði framleitt erlendis. Vinnan verður svo auðvitað unnin af is- lenskuin aðilum enda skýr fyrir- mæli um það frá stjórn bank- ans”, sagði Stefán að lokum. -hól í frétt í Þjóðviljanum frá 24. ág- úst sl. segir að fyrirtækið Veitinga- maðurinn hafi fest kaup á svoköll- uðu RS Thermic matreiðslukerfi sem mikið sé notað erlendis. Ekki sérhæft fólk Haft er eftir Pétri Sveinbjarnar- syni að ekki þurfi að ráða sérhæft fólk til starfa í mötuneytum og að fyrirtæki og stofnanir gætu sparað sér stórar upphæðir sem annars færi í „kostnað við eldhús í sér- hönnuðum eldhúsum á vinnu- stað”. Pétur Sveinbjarnarson veitinga- húsaeigandi sagði í viðtalinu að verð hverrar máltíðar færi eftir hversu margar máltíðir stofnanir og fyrirtæki keyptu. Starfsfólk á sjúkrahúsunum hefur miklar áhyggjur af hugsanlegum atvinnumissi ef til útboða ríkis- stjórnarinnar kemur. -óg/ór Uppsagnir vofa yfir hundruðum starfsmanna ríkisspítalanna. Hvað segja starfsmenn sjálflr um fyrirætlanir Alberts Guðmundssonar? Blaðrið í Steingrími Hermannssyni forsætisráðherra: „Óheppilegt slys”, segir jón Sigurðsson, forstjóri Járnblendiverk- smiðjunnar. Fulltrúar stéttarfélaganna Sókn- ar, Starfsmannafélags ríkisstofn- ana og formaður BSRB lýstu yfir harðri andstöðu við þessar hug- myndir. Starfsfólkið á fundinum og for- ystumenn stéttarfélaganna lýsti yfir vantrú sinni á að einkaaðili úti í bæ gæti sinnt þeirri þjónustu einsog eldhúsin og mötuneytin gera nú, þarsem bæði þarf að| koma til reynsla og sérþekking, enda þarfir sjúklinga fyrir fæði mjög mismun- andi. Aðalheiður, Einar og Kristján undirstrikuðu að hér væri á ferð- inni framhald þeirra árása á laun almenns launafólks og engu væri líkara heldur en ríkisvaldið sæi ekki nema eina leið til sparnaðar: ráðast á lægst launaða fólkið í landinu. Þau sögðu að hér væri á ferðinni tilraun til að taka samneyslu upp- ræta, samneyslu og færa „bisniss” sjónarmið til vegs. Hér væri ekki um sparnaðarsjónarmið að ræða, vegna þess að hugsanlegir einkaað- iljar myndu leggja útí starfsemina vegna gróðans eins. Um þetta væri pólitískur á- greiningur í þjóðfélagjnu og bentu þau á að heilbrigðisþjónusta ís- lendinga væri annáluð fyrir gæði og spurðu hvort einhverjir vildu pylsusala og hamborgarabraskara til að sinna líknar- og samhjálpar- störfum í heilbrigðisþjónustunni? Bentu þau einnig á að það væri kreppa í landinu og hver hefði efni á að kaupa þessa starfsemi? -óg

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.