Þjóðviljinn - 22.09.1983, Qupperneq 9
Fimmtudagur 22. september 1983 WÓÐVILJINN SÍÐA 21
X ■
Sambandsþing UMFI:
Islendingum
ber að styðja
friðarbaráttuna
Svo sem fyrr hefur verið skýrt
hér í blaðinu var sambandsþing
Ungmennafélags íslands haldið í
Stapa í Njarðvíkum dagana 10. og
11. sept. sl. Fjöimargar ályktanir
voru samþykktar á þinginu, m.a.
þær, sem hér fara á eftir:
Göngudagur
fjölskyld-
unnar helgaður friði
Sambandsþingið... „lýsir yfir
ánægju með framkvæmd Göngu-
dags fjölskyldunnar og hvetur ung-
mennafélögin til áframhaldandi
eflingar hans. Jafnframt beinir
þingið því til stjórnar UMFI að sá
möguleiki verði athugaður að
helga Göngudaginn einhverju af-
mörkuðu verkefni hverju sinni.
Göngudagurinn 1984 verði.helgað-
ur friði milli þjóða”.
með því að hafa áhrif á innkaup
annarra”.
Ungmennabúðir
Sambandsþingið.. :„samþykkir
að hvetja aðildarsambönd sín til að
starfrækja ungmennabúðir og
bendir á þá miklu eflingu félags-
þroska barna og unglinga, sem felst
í þessu starfi. Jafnframt bendir
þingið á að stórauka kynningu á
starfsemi búðanna t.d. í Skinfaxa
o.fl. fjölmiðlum,,.
Áfengi og fíkniefni
Sambandsþingið...„minnir á hið
mikla áfengis- og fíkniefnavanda-
mál, sem nú ríkir hér á landi og
virðist fara vaxandi. Þingið skorar
á ríkisvaldið og félagasamtök að
auka fræðslu og áróður um skað-
semi og hættur þær, sem eru sam-
fara áfengis- og fíkniefnaneyslu. -
þingstorfum. Þormóður Asvaldsson form. HSÞ í ræðustól. Aðrir frá v.: Sigurður Geirdal, framkvstj.
UMFI. þingforsetar: Finnur Ingólfsson og Jóhann Geirdal, í vararstjórn UMFI: Magndís Alexandersdóttir
og Dóra Gunnarsdóttir.
Þingið skorar á alla aðila, sem
standa fyrir samkomuhaldi, ekki
síst aðildarfélög UMFI, að hvetja
eindregið til bindindis á slíkum
samkomum og standa vörð um
strangt áfengisbann í öllu íþrótta-
starfi. Þingið beinir því til samtaka
sem vinna að bindindismálum að
efla samstarf sín á milli til aukinna
áhrifa í baráttunni gegn hverskon-
ar neyslu ávana- og fíkniefna”.
Þrastaskógur
Sambandsþingið...„samþykkir
að fela stjórn UMFI að hefja strax
á næsta ári markvissa uppbyggingu
á íþrótta- og útivistarsvæði í Þrasta-
skógi við Sog. Gera þarf heildar-
skipulag um nýtingu skógarins í
framtíðinni og skulu frumdrög að
því lögð fyrir næsta sambandsráðs-
fund. Þingið telur að í heildar-
skipulaginu þurfi að gera ráð fyrir
húsnæði, sem geti hýst ungmenna-
hópa, sem dvelji í skóginum. Þing-
ið samþykkir að framkvæmdir við
byggingu húsnæðis hefjist þegar
efni og ástæður leyfa, en viðunandi
hreinlætisaðstöðu verði komið upp
sem allra fyrst. - Kannaður verði
möguleiki á samráði við land-
eigendur Alviðru og hluta Önd-
verðarness um hugsanlega samnýt-
ingu jarðanna”.
Friðarbaráttan
Sambandsþingið...„lýsir yfir
stuðningi við málstað þeirra friðar-
hreyfinga og samtaka, sem af ein-
lægni berjast fyrir friði milli þjóða
heimsins. Sú óhugnanlega stað-
reynd blasir nú við að vígbúnaðar-
kapphlaup stórveldanna, sem m.a.
felst í takmarkalausri framleiðslu
gereyðingarvopna, hefur nú dregið
þjóðir heimsins fram á brún tortím-
ingar. Það er skoðun þingsins að
samkomulag stórveldanna um
stöðvun á framleiðslu gjöreyðing-
arvopna og eyðingu þeirra, og
aukin barátta fyrir almennum
mannréttindum hvar sem er í
heiminum, sé eitt mikilvægasta
skrefið til lausnar þeirri vá er við
blasir”. - Það er álit þingsins „að
íslendingum beri að leggja sitt af
mörkum til þeirrar friðarbaráttu
sem nú virðist vakna víða um heim
og jafnvel hafa þar forystu á ýms-
um sviðum. Ekki síst þeim sviðum
er snerta beint lífsafkomu íslend-
inga svo sem friðun Norður-
Atlantshafsins”.
-mhg
Skógrækt
Sambandsþingið... „samþykkir
að á næsta ári verði gert átak í skóg-
rækt á vegum ungmennafélaga.
Stefnt verði að því að planta amk.
jafnmörgum trjám og ung-
mennafélagar eru margir í landinu
eða um 26 þús. - Leitað verði sam-
starfs við Skógrækt ríkisins og
skógræktarfélög. Stefnt verði að
því að gróursetja sem víðast um
land”.
„Eflum íslenskt”
Sambandsþingið...„hvetur til
áframhaldandi baráttu undir kjör-
orðinu „eflum íslenskt”. Þingið
hvetur ungmennafélaga til að
halda vöku sinni í þessu efni og
kaupa ætíð innlenda framleiðslu
þegar því verður við komið og eins
s
Anamaðk-
arnir aftur
á kreik
Á laugardagskvöldið hefjast að
nýju sýningar hjá Leikfélagi
Reykjavíkur á leikriti Per Olov
Enquists Ur lífi ánamaðkanna, sem
frumsýnt var í vor og hlaut þá af-
bragðsgóðar viðtökur og umsagn-
ir. Það gerist í Kaupmannahöfn á
síðustu öld og aðalpersónur
leiksins eru ævintýraskáldið vin-
sæla H.C. Andersen og leikkonan
Jóhanna Lovísa Heiberg, sem þótti
ein fremst leikkona Norðurlanda á
sínum tíma. Með þessi hlutverk
fara Þorsteinn Gunnarsson og
Guðrún Asmundsdóttir og hlutu
þau bæði mikið lof fyrir túlkun sína
á þessum frægu persónum. í öðrum
hlutverkum eru Steindór Hjörleifs-
son, sem leikur Heiberg og Mar-
grét Ólafsdóttir, sem leikur gamla
konu, sem er á sviðinu alla sýning-
una.
Leikmynd og búninga gerir
Stcinþór Sigurðsson, Stefán Bald-
ursson þýddi verkið, lýsingu annast
Daníel Williamsson, Snorri Sigfús
Birgisson hafði umsjón með tónlist
en leikstjóri er Haukur J. Gunn-
arsson, sem getið hefur sér gott orð
fyrir sviðsetningar sínar víða um
Norðurlönd.
Hus: Ibuðahverfi við Granda. Byggt 1982. Arkitektar: Ingimundur Sveinsson og Egill Guðmundsson
ÞAÐ SKALVANDA
SEM LENGISKALSTANDA
Korrugal ál var valið sem þakefni á nýja rað- og einbýlishúsahverf-
ið við Granda í Vesturbænum i Reykjavík.
Hverfið stendur fyrir opnum Faxaflóanum, þar sem vindálag er
mikið og úrkoma oft lárétt eins og viðar hér á landi. Hér þurfti þvi
traust þak. Strangar kröfur voru einnig gerðar til nýtískulegs og
samræmds útlits húsanna. Valið var Korrugal ál.
Korrugal er vandað efni og úthugsað kerfi: Plötur, listar, smeygar,
vatnsbretti, horn. Snjallar og traustar festingar. Allt fyrirliggjandi.
Uppsetning er auðveld og greinargóðar upplýsingar fyrir hendi.
Korrugal er með innbrenndri, varanlegri lakkáferð sem flagnar aldrei.
Það er þvi sama hvort þú hugsar um uppsetningu, útlit eða
endingu. Lausnin er sú sama: Korrugal álklæðning.
TÖCGURHR
BYGGINGAVÖRUDEILD
Bíldshöfða 16
Sími 81530