Þjóðviljinn - 26.10.1983, Side 2

Þjóðviljinn - 26.10.1983, Side 2
■ ' ■ - ' \V,V 2 SIÐA — ÞJÓÐyiLJINN'Miðvikudagur 26. október !983 Háskólafyrirlestur Um ,jnorfólógíu” Dr. Wolfgang Wurzel, prófess- or frá Akademie der Wissensc- haften der DDR í Berlín, flytur tvo opinbera fyrirlestra í boði heimspekideildar Háskóla ís- lands og fslenska málfræðifélags- ins. Prófessor Wurzel er málvís- indamaður og fékk áhuga á ís- lensku af kynnum sínum við pró- fessor Svein Bergsveinsson, sem kenndi íslensku í Berlín ára- tugum saman. Fyrri fyrirlesturinn nefnist „Zur Vorhersagbarkeit vom morphologischen Wandel” og verður fluttur á morgun, fimmtudaginn 27. október kl. 17.15, í stofu 422 í Árnagarði. Síðari fyrirlesturinn nefnist „Die Morphologisierung von phonologischen Regeln: anhand von altgermanischen Um- lauterscheinungen”, og verður fluttur mánudag 31. október kl. 17.15 í stofu 422 í Árnagarði. Báðir fyrirlestrarnir verða fluttir á þýsku, en fyrirspurnum svarað á íslensku eða ensku. Öllum er heimill aðgangur. ■ '.y. ■ . • '■ ■■' .':■■ ' : ■ ; ■;;; ; ■ mynd: éík, Þríhjólastreita - Ég skal'Vera á undan upp - Iss, þú getur ekkert. - En ég er sterkari en allir gír- svartur eins og kók! drulluna. - Ég get það sem mér sýnist. ar og ég skal spýtta svo á - Og þú... og þú... ert þrí- - Nei, það verð ég. Ég er á þriggja gíra þríhjóli. undan þér að þú verður allur hjólafól... Tímaritið Mótorsport er komið út. Er þetta 14. tölu- blaðið frá upphafi og hefur salan aukist úr tæplega tvö þúsund ein- tökum í u.þ.b. sex þúsund. Allir Mótorsportklúbbar á landinu að- stoða við útgáfuna, en fyrirtækið Mótorsport er hinn eiginlegi út- gáfuaðili. Forsíðu nýjasta tölublaðsins prýðir glæsilegur antik farkostur sem var á bílasýningu í Essen í Þýskalandi. Fleiri myndir frá þeirri sýningu eru í opnu blaðs- ins. Fastir liðir, eins og bíll mánað- arins; skyggnst í skúra; viðgerð- arþáttur og innlendur og erlendar smáfréttir eru á sínum stað, auk greina um hraðskreiðasta bát á Islandi; sparakstur; hópakstur og ökuleikni fornbíla; bílasýningu á Akureyri; fjórhjóladrifsfram- leiðsluna o.fl. Einnig er sagt frá öllum keppnisgreinunum. Mótorsport fæst á öllum helstu blaðsölustöðum og kostar 60 kr. Tikkanen Hvernig á ég að geta treyst eigin- konu minni þegar ég veit að fíilin félagar mínir treysta á sínar? Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanóleikari. Eins og komið hefur fram í fjöl- miðlum þarf tvær forsendur fyrir áframhaldandi starfsemi ís- lensku hljómsveitarinnar: 1. að takist að safna 400 áskrifend- um fyrir 28. okt., 2. að vilyrði fáist frá stjórnvöldum um að afar erfið samkeppnisaðstaða hljómsveitarinnar verði bætt að nokkru leyti. Báðar þessar for- sendur þokast nær. Og nú stendur yfir lokaátakið. Stjórn hljómsveitarinnar hvetur alla þá, sem vilja gera henní kleift að stafa áfram, að taka nú höndum saman og sækja um áskrift fyrir næstu mánaðamót, Um næstu helgi mun stjórn hljómsveitarinnar funda af mik- illi „áfergju“ og verður þá tekin endanleg ákvörðun um fram- halclið. Ef ákveðið verður að fella seglin, verður boðað til blaða- mannafundar miðvikudaginn 2. nóv. að Fríkirkjuvegi 11 kl. 15.00 - en auðvitað er vonast til að komist verði hjá því. Fyrstu áskriftartónleikar ís- lensku hljómsveitarinnar af sex á öðru starfsári eru fyrirhugaðir í Neskirkjufimmtudaginn 10. nóv. Pétur Jónasson, gítarleikari. Guðmundur Egilsson, hljóm' sveitarstjóri. Kristinn Sigmundsson, söngvari. íslenska hljómsveitin Herðum róðurinn kl. 20.30. Á tónleikunum, sem bera yfirskriftina „Frá nýja heiminum” verða flutt sex tón- verk, sem tengjast Suður- og Norður-Ameríku. Hljómsveitin mun frumflytja tónverkið Summer-Soft, eftir Mark W. Phillips, samið sérstaklega fyrir íslensku hljómsveitina. Pá mun Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanóleikari, flytja Þrjár Jazz Pí- anó Prelúdíur, eftir eitt ástsæl- asta tónskáld Bandaríkjanna, George Gershwin. Annar ein- leikari kemur fram á þessum tón- leikum, Pétur Jónasson, sem leikur einn vinsælasta gítarkons- ert tónbókmenntanna, konsert brasilíska tónskáldsins Heitor Villa-Lobos. Síðari hluti tónleikanna hefst með tríói eftir Charles Ives, Largo, sem leikið verður af Sig- urði I. Snorrasyni, Hlíf Sigur- jónsdóttur og Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur. Þá mun Krist- inn Sigmundsson flytja nokkra negrasöngva, en Kristinn hefur vakið mikla athygli að undan- förnu fyrir vandaðan söng. Loka- verk þessara amerísku tónleika er hljómsveitarverkið Three Latin-Americín Sketches, eftir Aron Copland, en í verkum hans birtist tjáningargleði ameríkubú- ans í sinni fjörugustu mynd. Verkið er í raun tveir dansar í blóðheitum Suður-Amerískum stíl auk milliþáttar, sem ber yfir- skriftina „Paisaje Mexicano”, (mexikanskt landslag). Stjórn- andi á þessum fyrstu tónleikum verður Guðmundur Emilsson. Að því er stefnt, að öll 400 á- skriftarkortin seljist fyrir upphaf starfsárs og því munu miðar ekki fást í lausasölu. Sem fyrr segir þurfa umsóknir um áskrift að hafa borist skrifstofu hljóm- sveitarinnar að Fríkirkjuvegi 11 fyrir 28. okt., bréfleiðis eða sím- leiðis í síma 22035. Aðgöngumið- ar á fyrstu tónleikana verða af- hentir í skrifstofu hljómsveitar- innar 1.-5. nóv. Áskriftargjald er kr. 1600, sem greiða iná í tvennu lagi, fyrir 5. nóv. og fyrir 10. des. Þeir, sem kjósa að styrkja hljóm- sveitina sérstaklega geta gerst styrktarfélagar, en þeir greiða kr. 2.400 fyrir áskrift, sem borga má með sama hætti. -mhg

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.