Þjóðviljinn - 26.10.1983, Page 3
Miðvikudagur 26. október 1983 ÞJÓÐVÍLJÍNN' - SÍÐÁ 3
Gæðum
pólitíkina
lífi og
fjon
segir Guðbjörg
Sigurðardóttir,
nýkjörinn formaður
Æskulýðsfylkingar
Alþýðubandalagsins
Starfsemi Æskulýðsfylkingar
Alþýðubandalagsins hefur
mjög glæðst uppá síðkastið,
sagði Guðbjörg Sigurðardóttir
nýkjörinn formaður Æskulýðs-
fylkingar AB í spjalli við Þjóð-
viljann í gær.
- Þingið okkar um helgina var
mjög líflegt og áhugi ungs fólks á
.sósíalisma hefur fremur færst í
aukana heldur en hitt. En við höf-
um gætt okkur á því, að fleira er
nauðsynlegt en pólitíkin þurr og
þess vegna höfum við lagt mikla
áherslu á almennt félagslíf.
- Samkvæmt þeim hugmynda-
lista sem við vinnum eftir er ýmis-
legt á döfinni. Þannig ætlum við að
halda áfram skálabyggingunni í
Sauðadölum. Við ætlum að setja
leshringi á laggirnar og við ætlum
að verða enn hressari í útgáfu-
starfseminni. Ætlunin er að frétta-
bréf komi frá okkur, dreifiritin
pólitísku sem notið hafa mikilla
vinsælda koma áfram út og fleira
bitastætt.
- Við leggjum áherslu á að sem
allra flestir verði virkir í félagslífinu
og vonum eftir enn meiri árangri í
Guðbjörg Sigurðardóttir formaður ÆFAB: Áhugi ungs fólks fer vaxandi.
Urskurðaraðilar í deilum íslands
og Alusuisse:
Þrir Banda-
ríkjamenn
Bandanskur lagaprofessor við Harvard, Stanely Surrey, hefur verið
tilnefndur af iðnaðarráðuneyti í dómnefnd, sem á að úrskurða um rétt
ríkisstjórnar íslands til að endurskoða reikninga ísals fyrir árin 1976-1980
og ákvarða framleiðslugjald aftur í tímann. Ncfndin á einnig að úrskurða
um atriði sem stangast á í aðal- og aðstoðarsamningi við Alusuisse um
þetta atriði.
Fulltrúi Alusuisse í nefndinni er
einnig þekktur bandarískur lög-
fræðingur, Leon Silverman. Hann
starfar fyrir stórt lögfræðifirma í
New York. Surrey er þó þekktari,
einkum fyrir að hafa verið aðstoð-
arfjármálaráðherra í stjórnum
Kennedys og Johnsons. Ekki hefur
verið gengið frá skipun odda-
manns, sem aðilar báðir koma sér
saman um. Nefndin á að skila áliti
innan 6 mánaða frá því hún var
fullskipuð. Að sögn Páls Flygering
verður þriðji maðurinn í nefndinni
einnig bandaríkjamaður.
Þá hefur verið gengið frá skipun í
dómnend skattasérfræðinga ís-
lenskra. Sú nefnd á að úrskurða um
hvernig reikna skuli afskriftir ísal á
gengistapi og menungarvarnabún-
aði og hvort fyrirtækið hafi rétt til
að leggja í varasjóð af nettóhagn-
aði sínum. Nefndin á einnig að úr-
skurða um hvort ríkisstjórnin á rétt
til að gera kröfu á sektarálagi
vegna vangoldins framleiðslu-
gjalds. Fulltrúi iðnaðarráðuneytis-
ins í nefndinni er Ólafur Nilsson,
löggiltur endurskoðandiw fulltrúi
ísals er Sigurður Stefánsson, einnig
löggiltur endurskoðandi og odda-
maður er Guðmundur Skaftason,
hæstaréttarlögmaður, sem einnig
er löggiltur endurskoðandi.
Þriðju nefndina sem bráða-
birgðasainkomulagið frá í haust
gerir ráð fyrir, skipa ríkisendur-
skoðandi, endurskoðandi ísals og
oddamaður, en verkefni hennar er
að reikna út skatta ísals samkvæmt
niðurstöðum fyrrnefndra tveggja
nefnda. í.
Fræðslukvikmyndin um gæðamálin:
„Hálfgerð skrípamynd”
þeim efnum á næsta starfsári. Þá
lítum við tilhlökkunaraugum til
skipulagsbreytinganna á Alþýð-
bandalaginu, sem gerir okkur von-
andi auðveldara fyrir. Allir sem
áhuga hafa á eiga að verða með í
sem mestu af þeirri starfsemi sem
við stöndum fyrir.
- Stjórnin sem kosin var á þing-
inu nú um helgina skipar 11 manns
og 4 varamenn. Við eigum eftir að
skipta með okkur verkum en við
erum öll staðráðin í að halda uppi
fjörugu starfi, sagði Guðbjörg Sig-
urðardóttir formaður Æskulýðs-
fylkingar AB að lokum.
—óg
_ Kvikmyndin sem ráðuneytið
lét gera um gæðamál er hálfgerð
skrípamynd, segja allir sjómenn
sem ég hef rætt við um máið,
sagði Skúli Alexandersson á al-
þingi í gær í umræðu um gæða-
málin í sjávarútvegi.
Skúli sagði að vinnubrögðin
sem sýnd væru í hinni umdeildu
mynd hefðu betur átt við fyrir tutt-
ugu árum heldur en nú og væri
sjávarútvegsráðuneytinu á engan
hátt til sóma.
Fyrirspurn Jóhanns
Kúld ekki svarað
Skúli vék síðan að þeirri fyrir-
spurn sem komið hefði frá Jó-
hanni J.E. Kúld um reglugerðar-
brot í kvikmyndinni en Jóhann
hafði birt fyrirspurn sína í Þjóð-
viljanum, þar sem hann spyr
Halldór Ásgrímsson hvort hann
muni ekki beita sér fyrir því að
koma í veg fyrir dreifingu mynd-
arinnar á myndbandi þar sem í
ljós hefði komið á reglugerð við
fiskaðgerð á kvikmyndinni.
Gerði Skúli fyrirspurn Jóhanns
að sinni.
Halldór Ásgrfmsson kvaðst ekki
getað svarað þeirri fyrirspurn
nema í löngu máli og var henni
því ekki svarað í gær. -óg
Seðlaprentun og 73% verðbólga
Hallarekstur þjóðarbúsins og mikil lánsfjárþörf sjávarút-
vegs og ríkissjóðs, „sem hvort tveggja veldur peninga-
myndun beint úr Seðlabankanum" reyna mikið á þol
banka og aðhald að almennum lánveitingum þeirra, segir í
lánsfjáráætlun. „Að óbreyttum horfum stefnir í 85%
aukningu innlána á árinu“ og væru út af fyrir sig viðunandi
árangur að tiltölu við u.þ.b. 73% verðbólgu."
690 m. kr. frá lífeyrissjóðum
Fjárþörf íbúðarlánasjóðanna er mjög mikil á árinu 1984
vegna ákvörðunar ríkisstjórnarinnar um hækkun lána til
íbúðabyggjenda. „Framlag úr ríkissjóði er samkvæmt
fjárlagafrumvarpinu 400 m. kr. Lánsfjáröflun til sjóðsins
er fyrirhuguð þannig að 690 milljónir króna verði aflað hjá
lífeyrissjóðum og 200 m.kr. verði aflað með sérstakri út-
gáfu skuldabréfa. Ríkisstjórnin stefnir að því að ná samn-
ingum um að bankakerfið fjármagni svonefnd fram-
kvæmdalán húsbyggingarkerfisins alls 115 m.kr. án
beinnar milligöngu húsnæðislánasjóðanna.“
Orkuframkvæmdir
þriðjungi minni
Áætlað er samkvæmt lánsfjáráætlun að byggingar og
mannvirki hins opinbera dragist saman um 9.8% á næsta
ári. „Samdrátturinn stafar allur af minni raforkufram-
kvæmdum en þær eru taldar dragast saman um rúmlega
þriðjung“.
Skuldaauki Alberts
rúmur milljarður
Skuldaauki Alberts í Seðlabankanum á árinu nemur
þegar rúmum milljarði króna. „Tekjuskerðing ríkissjóðs
hefur valdið rekstrar- og greiðsluhalla sem áætlaður er um
2% af þjóðarframleiðslu. Mánuðina janúar-júlí nam
greiðsluhalli ríkissjóðs 1.327 m.kr. eða 15% af gjöldum
þess tímabils. Skuld ríkissjóðs við Seðlabankann nam
1.170 m. kr. í lok september og hafði hækkað frá ársbyrjun
um 1.014 m.kr.“
Virkjun sjávarfalla
Risafyrirtækið Lockhead Missiles and Space Company
hefur tryggt sér einkaleyfi hér á landi á aðferð og tækni til
Albert Guðmundsson fjármálaráðherra lagði fram láns-
fjáráætlun í gær og hér sést hann ræða við þingmenn
Bandalags jafnaðarmanna Stefán Bcnediktsson og Kol-
brúnu Jónsdóttur. Ljósm.: eik.
að virkja sjávarfallastrauma. Páll Theódórsson, eðlisfræð-
ingur sagði í gær að Bretar og V-Þjóðverjar væru hvað
fremstir í rannsóknum á þessari virkjunaraðferð en langt
væri frá að hún væri álitleg ennþá vegna mikils kostnaðar.
Hér á landi hefur lítt verið hugað að þessari virkjunarað-
ferð fremur en í öðrum löndum sem hafa óbeislaða
vatnsaflsorku.
Hitaveituátakinu nær lokið
í lánsfjáráætlun kemur fram að áætlað er að hitaveitu-
framkvæmdir aukist um 20% á næsta ári. „Um 3/4
hlutar af áætluðum hitaveituframkvæmdum á næsta ári
verða á vegum Hitaveitu Reykjavíkur. Framkvæmdum við
aðrar stærri hitaveitur er nær lokið, en hér er um að ræða
Hitaveitu Akureyrar, Hitaveitu Suðurnesja og Hitaveitu
Akraness og Borgarfjarðar“.
Blönduvirkjun seinkar enn
í lánsfjáráætlun kemur fram að 200 milljón kr. verði
teknar að láni fyrir Landsvirkjun vegna Blönduvirkjunar,
en því fé er að mestu ráðstafað vegna samninga. „Lántöku-
áform Landsvirkjunar voru hinsvegar mun meiri fjárhæð,
en þau reyndist nauðsynlegt að lækka." Þess ber að geta að
700 milljónir fær Landsvirkjun vegna Kvíslárveitna.
„Fyrirsjáanlegar afleiðingar þessa niðurskurðar eru að
gangsetning Blönduvirkjunar frestast a.m.k. til haustsins
1988“.
Hagstæður vöruskiptajöfnuður
Vöruskiptajöfnuðurinn var hagstæður sem nam
188.909.000 kr. í september, en í sama mánuði í fyrra var
hann óhagstæður um 302.399.000 kr. Flutt var út fyrir
rúma 2 milljarða króna en inn fyrir 1.8 milljón kr. ríflega.
Vöruskiptajöfnuðurinn fyrstu átta mánuði ársins er óhag-
stæður um 725.333.000 kr., en var í sömu mánuðum í fyrra
óhagstæður um 2.379.701 kr. Meðalgengi erlends gjald-
eyris í jan.-sept. er talið 99.9% hærra en það var í sömu
mánuðum 1982.
Hús fyrir atvinnuleikhópa
Menntamálaráðuneytið hefur óskað eftir því að Reykja-
víkurborg tilnefni einn mann í þriggja manna nefnd sem
kanna á húsnæðismál atvinnuleikhópa í höfuðborginni.
Nefndarskipunin er tilkomin vegna bréfs frá Leiklistar-
skóla ríkisins, þar sem lýst er áhyggjum út af húsnæðiseklu
sem atvinnuleikhópar búa við í borginni.
162 nauðungaruppboð
f síðasta tölublaði Lögbirtingarblaðsins, sem út kom sl.
föstudag eru auglýst 162 nauðungaruppboð á fasteignum
og skipum, öll utan Reykjavíkur. I Keflavík, Njarðvíkum,
Garðinum, Grindavík, Sandgerði og Vogum eru auglýst 45
uppboð, í Garðabæ og Mosfellssveit 80 uppboð, í Kópa-
vogi 26 og á Akureyri 11. í þessu sama tölublaði eru einnig
tilkynningar um þrjú bú sem tekin hafa verið til gjaldþrota-
skipta í Reykjavík.