Þjóðviljinn - 26.10.1983, Side 5
Miðvikudagur 26. október 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
J Friðarmálin kristölluð
Hótel Borg var þéttsetin á
ráðstefnu Lífs og lands á
laugardaginn en hún bar yfir-
skriftina ísland og friðarum-
ræðan. Kristinn Ragnarsson,
einn af forystumönnum sam-
takanna, sagði í samtali við
Þjóðviljann í gær að ætlunin
hefði verið að koma umræð-
unni niður á skynsamlegra plan
en algengast væri í fjölmiðla-
umræðu og hann áliti að það
hefði tekist. „Það þarf stór-
aukna fræðslu í þessum mál-
um“, sagði hann.
Blaðamaður Pjóðviljans kom á
staðinn skömmu eftir erindi Geirs
Hallgrímssonar utanríkisráðherra
og hlýddi á fulltrúa ýmissa samtaka
sitja fyrir svörum um frið, afvopn-
un og öryggismál. Um morguninn
höfðu verið flutt erindi og frum-
samið tónverk eftir Atla Heimi
Sveinsson.
Þeir sem voru á Borginni þennan
laugardagseftirmiðdag hlýddu með
athygli á mál þeirra sem tóku þátt í
umræðunni og var óspart klappað
þegar eitthvað viturlegt kom fram.
Sumir fengu samt ekkert klapp.
Birgir ísl. Gunnarsson, fulltrui
Sjálfstæðisflokksins, og Guð-
mundur Heiðar Frímannsson, full-
trúi Varðbergs, skáru sig nokkuð
úr í umræðunni og töldu friðar-
hreyfingunum flest til foráttu og
þær væru jafnvel stórskaðlegar
friði í heiminum. Fékk málflutn-
ingur þeirra litlar undirtektir.
Fulltrúar friðarhreyfinganna og
annarra stjórnmálaflokka en Sjálf-
stæðisflokksins bentu flestir á að
eyðingarmáttur kjarnavopna væri
nú margfaldur á hvert mannsbarn á
jörðinni og því jafnvægi milli stór-
veldanna í þessum efnum löngu
náð. Ólafur Ragnar Grímsson,
fulltrúi Alþýðubandalagsins sagði
það mikilvægast að ná nú samstöðu
um að frysta frekari kjarnorkubún-
að og stíga einhver skref til eyði-
Fulltrúar friðarhreyfina sitja fyrir svörum. Högni Oskarsson frá Samtökum lækna gegn kjarnorkuvá, Gunnlaugur Stefánsson frá Þjóðkirkju,
Arni Hjartarson frá Samtökum herstöðvaandstæðinga, Gerður Steinþörsdóttir og Kristín Astgeirsdóttir frá Friðarhreyfingu ísl. kvenna, Þór Sigfús
son frá Friðarhreyfingu framhaldsskólanema og Þorkell Sigurbjörnsson frá Friðarsamtökum listamanna. Auk þeirra er á myndinni ^Guðmundur
Heiðar Frímannsson frá Varðbergi. (Mynd: Magnús)
Ólafsson frá Framsóknarflokki,
Kristján Jónsson frá Bandalagi
jafnaðarmanna og Jóhanna María
Lárusdóttir frá Kvennalista.
Þeir sem sátu fyrir svörunt sem
fulltrúar ýmissa samtaka voru Árni
Hjartarson frá Samtökum her-
stöðvaandstæðinga. Högni Ósk-
arsson frá Samtökum lækna gegn *
kjarnorkuvá, Gunnlaugur Stefáns-
son frá Þjóðkirkjunni, Gerður
Steinþórsdóttir og Kristín
Ástgeirsdóttir frá Friðarhreyfingu
ísl. kvenna, Þorkell Sigurbjörns-
son frá Friðarsamtökum lista-
manna, Þór Sigfússon frá Friða-
rhreyfingu framhaldsskólanema og
Guðmundur Heiðar Frímannssori
frá Varðbergi.
- GFr
leggingar þeirra kjarnorkuvopna að fslendingar gætu sameinast um svörum þessir fulltrúar
sem til væru. Taldi hann sig geta að knýja á um slík skref. Auk Birg- stjórnmálaflokkanná: Árni Gunn-
lagt ýmis deilumál til hliðar til þess is ísleifs og Ólafs Ragnars sátu fyrir arsson frá Alþýðuflokki, Haraldur
Þeir spurðu fulltrúa stjórnmálaflokkanna, frá v. séra Gunnar Kristjánsson, Magnús Torfi Ólafsson blaðafulltrúi
ríkisstjórnarinnar, Kjartan Ragnarsson leikari og Þórður Harðarson læknir.
Landsráðstefna
Sha um helgina
Kvöldvaka á
laugardagskvöld
- Landsráðstefna verður í
Félagsstofnun stúdenta og
stendur í tvo daga, laugardag og
sunnudag, sagði Guðmundur
Guðlaugsson starfsmaður Sam-
taka herstöðvaandstæðinga í
viðtali við Þjóðviljann í gær.
- Starfið að undanförnu hefur
aðallega verið fólgið í því hjá okkur
á skrifstofunni að undirbúa lands-
ráðstefnu og senda út Dagfara. Þar
er gerð grein fyrir landsráðstefn-
unni, vangaveltur um stöðu Sha,
undirskriftasöfnun um kjarnorku-
Guðmundur Guðlaugsson starfs-
maður Sha. Reikna með að her-
stöðvaandstæðingar fari yfir hern-
aðaráform ríkisstjórnarinnar.
(Ljósmynd - Magnús).
vopnalaus Norðurlönd, menningu
og frið og fleira.
- Landsráðstefnan hefst kl. tíu á
laugardagsntorgun með skýrslum
og almennum umræðum. Eftir há-
degið verða flutt erindi tengd frið-
armálum og stöðu Sha og her-
stöðvamálsins. Um kvöldið verður
svo kvöldvaka í Félagsstofnun stú-
denta þarsem brugðið verður á
leik. Þar verður fjölbreytt dagskrá
söngur, upplestur og fleira gott.
- Á sunnudaginn starfa svo um-
ræðuhópar frameftir degi og verða
niðurstöður þeirra ræddar í al-
mennum umræðum og gengið frá
ályktunum og kjöri miðnefndar.
Áformað er að ráðstefnunni ljúki
um sexleytið á sunnudag, sagði
Guðmundur Guðlaugsson að lok-
um. -óg
Málfríður Einarsdóttír látín
Málfríður Einarsdóttir rithöfundur lést í gær, 84 ára að aldri.
Hún var fædd 23. október 1899 í Munaðarnesi í Stafholtstung-
um í Mýrarsýslu. Faðir hennar var Einar Hjálmsson bóndi þar
og móðir hennar var Málfríður Kristjana Björnsdóttir ljósmóð-
ir.
Málfríður Einarsdóttir úrskrifaðist úr Kennaraskóla íslands
árið 1921. Hún hóf ritstörf á síðari hluta 6. áratugarins og
hennar fyrsta bók kom út árið 1977. Hún hlaut viðurkenningu
frá Menntamálaráði árið 1978,starfslaun úr launasjóði rithöf-
unda 1979 og 1980 og árið 1980 hlaut hún listamannalaun.
Eiginmaður hennar Guðjón Eiríksson lést árið 1970.
Ágúst Ásgeirsson, framkvæmdastjóri markaðsdeildar og Pétur Eiríksson,
forstjóri Alafoss hf. Nýju teppin í baksýn. - Mynd: Magnús.
✓
Alafoss hefur sókn gegn innflutningi
á erlendum teppum:
Ný tegund af
ullarteppum
í gær kynnti Álafoss nýja tegund
af gólfteppum, sem fyrirtækið hef-
ur byrjað framleiðslu á. Hafa þau
hlotið nafnið ,,KRÓNÍ“. Tilraunir
með framleiðslu þessara teppa hafa
staðið yfir nú um nokkurra mán-
aða skcið. Árangurinn af þeim til-
raunum birtist nú í þessum nýju
gólfteppum.
Teppin eru alfarið unnin úr ull.
Þau eru í sex litum og verð þeirra
mjög hagstætt. Verð á fermetra í
þeim teppum, sem fyrirtækið hefur
framleitt til þessa, er frá kr. 756 til
1147. í nýju teppunum kostar
fermetrinn hinsvegar aðeins kr.
421. Hið lága verð byggist einkum
á sérstakri vinnslu úr garninu.
Með framleiðslu á þessum nýju
teppum viljum við koma til móts
við þarfir neytenda jafnframt því
sem við hefjum sókn gegn innflutn-
ingi á erlendum teppum, sögðu
þeir Álafossmenn.
Á þriðjudaginn hefjast svo sér-
stakir Álafossdagar og standa þeir
yfir í hálfan mánuð eða til 7. nóv.
Við athugum þá eftir helgina.
- mhg