Þjóðviljinn - 29.11.1983, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÖVILJINN Þriðjudagur 29. nóvfcmber 1983
Bláa stúlkan umvafin trénu. Messí-
ana Tómasdóttir og Anna Einars-
dóttir stýra brúðunum. Ljósm. -
Magnús.
Bláa stúlkan
,4>að
sem ég
vil gerau
segir Messíana
Tómasdóttir
„Ég efast um að fuilorðna fólkið
komi almennt, þó sýningin sé aðal-
lega ætluð því. Það er yfirleitt litið
á brúðuleikhús sem barnaskemmt-
un en kannski er von til að ná til
stærri hóps þegar saman kemur
tónlist og leikhús eins og hér er“,
sagði Messíana Tómasdóttir mynd-
listarmaður. Fyrir skömmu frum-
sýndi hún á Kjarvalsstöðum brúð-
uleikverkið „Bláu stúlkuna“ en
tónlistin er eftir Karólínu Eiríks-
dóttur tónskáld.
„Starfslaunin geröu mér kleift að
klára þetta“, sagði Messíana. „Ég
hafði reyodar löngu áður en ég
fékk þau, talað við Karólínu og það
segir sig sjálft að hálfs árs kennara-
laun hrökkva hvergi nærri til að
standa undir mörgum starfsmönn-
um eins og þessi sýning krefst, þ.e.
tónlistarmanna, leikara og sviðs-
manna. Þau eru því löngu uppurin
og vel það“.
„Þetta er rosalega gaman", sagði
Messíana ennfremur um tilurð og
æfingu verksins. „Ég veit ekki hve-
nær maður hefur tækifæri til að
gera slíkt aftur, en þetta er það sem
ég vil gera. Hér er allt ein leik-
mynd, - leikararnir líka.“
- Fáum við kannski íslenskt
brúðuleikhús bráðlega?
„Ég.hef ekki trú á því. Það er
ekki nóg að stofna brúðuleikhús af
því að fólk langar til að stofna
brúðuleikhús og fara síðan að leita
að verki. Þvert á móti verður verk-
ið fyrst að verða til og tjáningar-
mátinn eða formið að ráðast af því,
- brúðuleikhúsið er ákveðinn mið-
ill og það er ballettinn t.d. líka.
Fólk verður að vera tilbúið til að
vinna hlutina á mismunandi hátt
eftir því sem þeir krefjast, en ekki
láta miðilinn eða formið sitja í
fyrirrúmi. En það þyrftu að vera
betri möguleikar á því að setja upp
svona sýningar, - t.a m. styrkir af
einhverju tagi, því þetta er óhemju
dýrt.“
Bláa stúlkan er ljóðrænt lát-
bragðsverk með tónlist, -það fjall-
ar um frelsið, ástina og drauminn,
segir höfundur. Tónlist Karólínu
Eiríksdóttur skipar sama sess í
verkinu og tónlistin í ballettverki
og byggja hreyfingar brúðanna á
henni. Tónlistin sem er samin fyrir
fiðlu, píanó og klarinett verður
leikin á sýningunum af Guðnýju
Guðmundsdóttur, Snorra Sigfúsi
Birgissyni og Óskari Ingólfssyni.
Lýsingu annast Ágúst Pétursson og
Árni Ibsen aðstoðaði við leik-
stjórn. Anna Einarsdóttir leikari
stýrir brúðunum ásamt Messíönu
og Pétri Knútssyni.
Sýningar flytjast nú í Gerðuberg
og verða sem hér segir: Föstudag 2.
des. kl. 20, laugardag3. des. kl. 17,
sunnudag 4. des. kl. 17 og 18.
Forsala aðgöngumiða er í Bóka-
búð Máls og menningar. Sýningin
er ætluð fullorðnum.
-ÁI
Frumvarp um verslunarleyfi til innflutnings
Enginn áhugi á ódýr-
arí innflutningsversiun
sagði Svavar Gestsson á Alþingi í gær
Miklar umræður spunnust um
innflutningsverslunina í neðri deild
Alþingis í gær er Svavar Gestsson
mælti fyrir frumvarpi um
breytingu á lögum um verslunara-
tvinnu, þar sem gert er ráð fyrir því
að leyfi þurfi til innflutningsversl-
unar. Að hálfu Svavars var lögð
áhersla á að núverandi ríkisstjórn
hefði engan áhuga á hagkvæmari
innflutningsverslun, en talsmenn
stjórnarinnar töldu sig hafa náð
fram jafnvægi í inn- og útflutningi
með kauplækkunaraðgerðum.
Svavar benti á í málflutningi sín-
um að þegar gengið væri harðar að
kjörum launafólks en um áratuga-
skeið væri helsta áhugamál
stjórnarliða að tilkynna á fuhdum
Verslunarráðs að gefa ætti bönkum
frelsi til að stofna útibú, taka upp
svokallaða frjálsa verslunarálagn-
ingufrá 1. febrúarn.k., aukaskatt-
frelsi hlutafjár og auðvelda leiðir til
gjaldeyrissóunar. Hinsvegar hefði
ekki verið stuðlað að hagkvæmari
innflutningi til landsins þrátt fyrir
að vitað væri að innflutningur til
landsins væri 20-30% dýrari en
þyrfti að vera vegna óskipulags í
innflutningsversluninni.
Svavar benti á skýrslu verðlags-
eftirlitsins frá 1978 þar sem lagt
hefði verið til eftirlit með
innkaupsverði erlendis, samnor-
rænar verðkannanir, sameiginlegir
útreikningar á tollum og inn-
kaupum, krónutöluálagning og
verslunarleyfi. Fyrstu tvö atriðin
hefðu komið tii framkvæmda og
skilað verulegum árangri svo og
aukið eftirlit með umboðslauna-
skilum. Frekari aðhaldsaðgerðumí
innflutningsversluninni hefði ekki
verið fylgt eftir, enda þótt það
hefði sýnt sig að þær skiluðu veru-
legum árangri.
Friðrik Sophusson og Jón Bald-
vin Hannibalsson lögðu mest upp
úr því í málflutningi sínum að Sva-
vari Gestssyni hefði verið nær að
framkvæma meira í sinni ríkis-
stjórnartíð heldur en að vera nú að
endurflytja gamlan draug. Benti
Friðrik Sophusson m.a. að vegna
gengisfestingar- ög kauplækkunar-
stefnu stjórnarinnar væru ísl. iðn-
aðarvörur nú á lægra verði en er-
lendar og innflutningur hefði dreg-
ist saman. Hann taldi að á tímum
lækkandi verðbólgu ætti að gefa
hlutina frjálsa, en aðhaldsaðgerðir
ættu við í verslun á óðaverðbólgu-
tímum.
Hörð orðaskipti urðu vegna
þessa máls á þinginu og komu þar
m.a. við sögu Albert Guðmunds-
son og Ólafur Ragnar Grímsson
eins og vikið er að annarsstaðar.
- ekh
Ólafur Ragnar spyr Albert á Alþingi
Hvar eru öll framvörpin?
Aðeins lögð fram í fjölmiðlum en ekki á þingi
„Það er hámark ósvífninnar þeg-
ar maður sá sem hefur flutt fleiri
frumvörp í fjölmiðium í haust en
allir ráðherrar samanlagt í tíu ár
kemur I ræðustól á Alþingi og ber
það á Alþýðubandalagið að það sé
að flytja frumvarp um verslunar-
leyfi eingöngu í áróðursskyni“,
sagði Ólafur Ragnar Grímsson
m.a. um ræðu Alberts Guðmunds-
sonar fjármálaráðherra í neðri
deild Alþingis í gær.
Ólafur Ragnar spurði hvar frum-
vörp Alberts um sölu 18 ríkisfyrir-
tækja væru. Ekki væru þau á borð-
um þingmanna. Hann spurði og
hvar frumvarpið um tollkrít væri
sem Albert hefði rekið á eftir allt
sl. kjörtímabil og lofað að leggja
fram í haust. Ekki væri það á borð-
um þingmanna. Þessum frumvörp-
um hefði ráðherrann \feifað í sjón-
varpi, útvarpi, fjölmiðlum og á
mannamótum í áróðursskyni, en
hverju sætti það að þau væru ekki
lögð fram á Alþingi?
Ólafur Ragnar vakti einnig at-
hygli á því að samkvæmt yfirlýsing-
um Alberts ræki hann áfram
Heildverslun Alberts Guðmunds-
sonar á sína persónulegu ábyrgð
um leið og hann gegndi ráðherraá-
byrgð. Þetta væri einsdæmi og
þessvegna væri ef til vill ástæða til
þess að flytja sérstakt frumvarp
sem bannaði að veita ráðherrum
verslunarleyfi. í máli ráðherrans
og aðgerðum ríkisstjórnarinnar-
kæmi eins og skiljanlegt væri
greinilega fram með hverjum hags-
munahjarta þeirra aðila sem að
henni standa slægi. _ ejjj,
Ulvtur viður-
kenningu
í Miinchen
Guðrún Tryggvadóttir hefur
fyrst erlendra nemenda við Mynd-
listarakademíuna í Múnchen verið
valin sem „Byrjandi“ - en það þýð-
ir, að hún er önnur tveggja bestu
nemenda skólans sem fá að halda
sýningu á eigin verkum í hátíðasal
skólans.
Guðrún Tryggvadóttir hefur
stundað nám í Reykjavík, París og í
Múnchen síðan 1979 og hefur nú
nýlokið námi þar. Hún hefur sýnt
alloft hér heima, í Hollandi, Þýska-
landi og Bandaríkjunum - nú síð-
ast á Gullströndinni og í Rauða
húsinu á Akureyri.
Stuttar fréttir
Líkfundur
Líkið af skipstjóra Sandeyjar II, Guðmundi
Geir Jónssyni, fannst á föstudagskvöld en
vegna dimmviðris náðist það ekki fyrr en á
laugardag. Líkið fannst í sjávarbotni í ná-
munda við þann stað sem Sandey fórst.
Nýr sveitarstjóri
Viðar Már Aðalsteinsson hefur verið ráðinn
sveitarstjóri á Suðureyri og hóf hann störf um
síðustu mánaðamót. Viðar Már er fæddur á
Akureyri. Hann lauk prófi sem byggingatækni-
fræðingur frá Noregi. Hann hefur síðustu ár
verið bæjartæknifræðingur í Vestmannaeyj-
um.
Við krefjumst framtíðar
í setuliði Bandaríkjamanna á Miðnesheiði
eru nú 3081 hermaður, 300 tæknimenn og að
auki eru um 1000 íslendingar í þjónustu her-
liðsins í dag. Stærð bandarísku herstöðvanna í
landinu er um 9600 hektarar og þar hafa risið
457 byggingar sem samtals eru 335.500 hektar-
ar að stærð.
Þessar upplýsingar og margar fleiri koma
fram í nýju tölublaði Við krefjumst framtíðar,
sem kom út í 10.000 eintökum nú fyrir helgi.
Verið er að dreifa blaðinu á vinnustaði oe í
skóla.
f Við krefjumst framtíðar er margt fróðlegra
greina um vígbúnað og aukna stríðshættu. Þar
er m.a. rakinn efnisþráður nokkurra kvik-
mynda sem nú eru sýndar á kvikmyndahátíð
gegn kjamorkuvopnum.
Ábyrgðarmaður Við krefjumst framtíðar er
Árni Óskarsson.
5 nýir lögreglumenn
á ísafirði
Búið er að ráða fimm nýja lögreglumenn til
starfa á ísafirði, að sögn Vestfirska fréttablaðs-
ins, en nokkuð hefur grisjast úr lögregluliði
son, Gísli Breiðfjörð Árnason, Jónas Pétur
Hreinsson og Sighvatur Jón Þórarinsson. Alls
sóttu 21 um þessar fimm stöður.
Fyrstu lögin í haust
Fyrir utan fjölgun í fjárveitinganefnd hefur
Alþingi ekki verið athafnasamt í lagasetningu
þetta haust. Fyrsta frumvarpið varð að lögum
frá Alþingi í gær. Þá var samþykkt sem lög frá
efri deild heimild til hækkunar á kvóta íslands
hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, úr43.5 miljón-
um sérstakra dráttarréttinda í 59.6 miljónir
sérstakra dráttarréttinda. Seðlabankinn leggur
fram það fé sem þarf til hækkunar kvótans.
Kvótaaukningin eykur möguleika íslands til
hagstæðra lána frá sjóðnum.
Veiðar á netavertíð
bæjarins á undanförnum mánuðum eins og
kunnugt er af fréttum.
Þeir sem ráðnir hafa verið til lögreglustarfa á
ísafirði eru: Kjartan Ólafsson, Hlynur Snorra-
Sjávarútvegsráðuneytið hefur ákveðið að
veiðar í þorskfisknet hefjist í fyrsta lagi 15.
febrúar á næsta ári. Bátar þeir sem heimild
hafa til loðnuveiða á yfirstandandi loðnuvertíð
munu ekki fá leyfi til netaveiða á næstu neta-
vertíð.