Þjóðviljinn - 29.11.1983, Side 3

Þjóðviljinn - 29.11.1983, Side 3
ÞriÖjudagur 29. nóvémber 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐÁ '3 Læknaþjónustan í Garðabæ Dýrari leið og verri þjónusta segir Hilmar Ingólfsson bæjarfulltrúi „Hafi einhverjum dottið í hug að heilsugæslustöð sé tekin til starfa í Garðabæ þá er það leiður misskiln- ingur. Það sem hefur gerst er að meirihluti bæjarstjórnar hefur af- hent tveimur ágætum læknum stórt og glæsilegt húsnæði til afnota og tekið að sér að greiða þeim 22.000 króna kauptryggingu á mánuði. Engar ákvarðanir hafa verið tekn- ar um frekara starfslið og því engin hcilsugæsla hér á ferðinni heldur aðeins númerakerfi tveggja lækna“, sagði Hilmar Ingólfsson bæjarfulltrúi í Garðabæ í samtali við Þjóðviljann í gær. „Við minnihlutamenn fluttum um það tillöguhér í bæjarstjórn að í Garðabæ yrði komið á fót alhliða heilsugæslustöð, en samkvæmt lögum er okkur skylt að koma slíkri þjónustu á fyrir lok næsta árs. Hefði okkar tillaga verið samþykkt sæjum við fram á fullkomna heilsu- gæslu með ungbarnaeftirliti og öðru því sem þar er vant að vera. Þá hefði ríkissjóður staðið undir 85% byggingakostnaðar við stöð- Hilmar Ingólfsson bæjarfulltrúi í Garðabæ: hér er verið að nota fé bæjarbúa til að hrinda í fram- kvæmd þeirri stefnu að einkaaðilár eigi að yfirtaka opinberan rekstur. Læknarnir Bjarni Jónsson og Sveinn Magnússon, sem munu starfa í nýju húsi sem bæjarstjórn Garðabæjar hefur tekið í notkun. Ljósm. eik. ina, greitt sama hlutfall kostnaðar við búnað og tæki og að auki greitt laun lækna. Leiðin sem valin var þýðir aftur á móti að bæjarsjóður Garðabæjar kaupir húsnæðið al- farið svo og búnaðinn og greiðir að auki 22.000 króna kauptryggingu til læknanna tveggja á mánuði. Að vísu fékkst 800 þúsund króna styrk- ur frá ríkinu til húsakaupanna en engu að síður hefur þessi leið meirihlutans í för nteð sér að minnsta kosti 6 miljón króna kostnað fyrir bæjarsjóð umfram það sem hefði þurft að vera. Ofan á allt saman liggur ekkert fyrir um hvenær eða hvort hér rís alhliða heilsugæsla eins og risið hafa í öðr- um bæjarfélögum víða um land“, sagði Hilmar enn fremur. „Það er því verið að nota bæjar- sjóð hér í Garðabæ til að fram- kvæma steffu frjálshyggjumanna um yfirtöku einkaaðila á öllum op- inberum rekstri. Það eina jákvæða við allt þetta mál er að læknar eru teknir til starfa í Garðabæ en því miður er ekki séð hvort þeir fá yfir- leitt nokkuð að gera. Fólk getur eftir sem áður skipt áfram við sinn heimilislækni eins og ekkert hefði í skorist og er ekki skuldbundið til að ganga inn í númerakerfi meiri- hlutans hér í bænurn", sagði Hilm- ar að lokum. -v. Jón Rúnar Sveinsson, formaður BÚSETA: „Það liggja fyrir vilyrði frá félagsmálaráðhcrra um að lánkerfið verði opnað fyrir húsnæðissamvinnufélög“, segir nýkjörinn formaður Húsnæð- issamvinnufélagsins Búseta. Myndin er tekin á stofnfundinum sl.laugardag. Ljósm. Kristján. Framhaldsstofnfundur fyrsta húsnæðissamvinnufélagsins, sem stofnað hefur verið hérlendis, var haldinn á Hótel Borg sl. laugardag. Félagið hlaut nafnið BÚSETI og eru félagsmenn orðnir um 750 tals- ins. Á fundinum var gengið frá lögum félagsins og því kjörin stjórn. Formaður er Jón Rúnar Sveinsson, félagsfræðingur og aðrir í stjórn eru: Auður Styrkársdóttir, Ásdís Ingólfsdóttir, Birna Þórðar- dóttir, Gísli Hjaltason, Guðni Jó- hannesson og Reynir Ingibjarts- son. Varastjórn skipa: Jón Ásgeir Sigurðsson, Harpa Njálsdóttir, Sigurjón Þorbergsson, Kolbrún Gunnarsdóttir og Páll Gunnlaugs- son. Á þriðja hundrað manns sótti framhaldsfundinn og að sögn Jóns Rúnars ríkti mikill áhugi á félaginu meðal fundargesta. Ávörp fluttu Eysteinn Jónsson, fyrrv. ráðherra, Og Birgir Marinósson, form. Landsambands ísl. samvinnu- starfsmanna. Eins og fólki mun væntanlega kunnugt af fjölmiðlaskrifum er húsnæðissamvinnufélagið opið öllum landsmönnum. Félagið mun byggja fyrir félagsmenn sína og eignast þeir ótakmarkaðan búset- urétt í íbúðum þeim, er þeir fá til umráða. Áætlað er, að búseturétt- indin verði seld á u.þ.b. fimm pró- sent af byggingarkostnaði, en síðan greiði búsetinn mánaðargjald til að standa undir rekstrinum. Reynir Ingibjartsson sagði í sam- tali við Þjóðviljann að stjórn Bús- eta væri mjög ánægð með þær við- tökur, sem félagsskapurinn hefði fengið hjá almenningi. Hann kvað símann hringja látlaust, en Reynir hefur skipulagt upplýsinga- og fé- lagasöfnun á vegum félagsins. Reynir kvað fólk úti á landsþyggð- inni sýna ekki minni áhuga en fólk á höfuðborgarsvæðinu og sér sýnd- ist því að það væri grundvöllur fyrir stofnun félaga af þessu tagi víðs vegar um landið. Jón Rúnar Sveinsson sagði, að bráðlega yrði farið að huga að lóð- um fyrir félagið og stefnt yrði að því að hefja framkvæmdir hið fyrsta. „Það liggja fyrir vilyrði frá félagsmálaráðherra um að lána- kerfið verði opnað fyrir húsnæðis- samvinnufélög og ef það stenst ætti okkur ekkert að vera að vanbún- að,“ sagði Jón Rúnar. Fólk getur gerst stofnfélagar fram að 15. desember n.k. Leigjendasamtökin, sími 27609, og Reynir Ingibjartsson, sími 21944, taka við umsóknum. I sömu símum er einnig hægt að skrá sig í starfs- hópa, en á framhalds- stofnfundinum var samþykkt að eftirtaldir hópar tækju til starfa: söfnun stofnfélaga (fram til 15. des.), „þinghópur“ (þrýstihópur), skipulags- og lóðamál, lagahópur, hópur um sparnað og fjármál, Sambandsstjórn Verkamanna- sambands Islands hélt fund fyrir helgi og þar var kosin fjögurra manna atvinnumálanefnd sem á að hafa það verkefni að kanna ræki- lega atvinnuástand í landinu. Er Jón Karlsson í Stykkishólmi for- maður nefndarinnar og er nú verið að undirbúa könnunina. tengsl við útlönd, .tengsl innan- lands, útgáfuhópur og fjölmiðla- hópur. Á sambandsstjórnarfundinum er því fagnað að ríkisstjórnin skuli hafa fallið frá banninu við frjálsum samningum en því er jafnframt mótmælt harðlega að skrefið skuli ekki hafa verið stigið til fulls og sérstaklega fordæmt að áður gerðir samningar skuli hafa verið af- numdir. ið mjög virkar innan BÚSETA og munu vera um helmingur ef ekki meira af félagsmönnum. Fundurinn lýsti sig samþykkan þeim viðho.rfum að gerð skuli til- raun til bráðabirgðasamninga þar sem lögð verði megináherslan á hækkun lægstu launa, þannig að lægstu laun verði að minnsta kosti 15 þúsund krónur. -v. Þess má geta, að konur hafa ver- -mhg V erkamannasambandið Kantiar atvinnnástand „Hefjuin framkvæmdir hið í‘yrsta“ 750 hafa gengið í félagið

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.