Þjóðviljinn - 29.11.1983, Side 11
Þriðjudagur 29. nóvember 1983 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 15
Fimm tónleikar til
styrktar Sólheimum
Margir af fremstu tónlistar-
mönnum íslendinga á sviði
dægurtónlistar munu á næstu
vikum og mánuðum standa
fyrir tónleikahaldi til stuðnings
byggingarsjóði Sóheima en þar
hefur um rösklega 50 ára skeið
verið starfrækt heimili fyrir
þroskahefta einstaklinga.
Markmiðið með tónleikahaldinu
er að safna fé til að reisa nýtt sam-
komuhús fyrir vistmenn á Sól-
heimum sem eru um 40 talsins. Það
sem fyrir er er orðið gjörsamlega
ónothæft, heldur hvorki vatni né
vindum. Sólheimar voru stofnsettir
árið 1930 af Sesselju Sigmunds-
dóttur og er því elsta starfandi
heimilið fyrir þroskahefta í
landinu. Þar dvelja ýmist þeir sem
eru mjög andlega vanþroskaðir
eða einstaklingar sem eru nær
sjálfbjarga um flesta hluti.
Til tónleikahaldsins, sent fengið
hefur yfirskriftina „Búum
systkinum okkar samastað", hafa
veri teknir til leigu margir af
stærstu samkomusölum í Reykja-
vík. Fyrstu tónleikarnir verða hald-
nir 1. desember og þar koma fram
Bubbi Morthens, Hrím, Rúnar
Júlíusson, og söngflokkurinn
Aldrei aftur. Sunnudaginn 4. des-
ember verða tónleikar í Safari og
þar verður Nýbylgjutónlist á dag-
skrá með ýmsum flytjendum og
þriðjudaginn 6. desember verður
dagskrá með klassískri tónlist, flyt-
jendur m.a. Garðar Cortes og
Kristinn Sigmundsson.
Fimmtudaginn 8. desember verður
dægurtónlist á dagskrá í Gamla bíó
en þar koma m.a. fram Egill Ólafs-
son, Ásgeir Óskarsson, Jóhann
Helgason, Magnús Þór Sigmunds-
son, Magnús Eiríksson og hljóm-
sveitin Mannakorn. Stærsta og um-
Framleiðsluráð landbúnaðarins:
7
Ahendingar af
gefnu tilefni
Á fundi sínum þann 23. nóv. sl.
gerði Framleiðsluráð landbúnað-
arins samþykkt, þar sem það, af
gefnu tilefni, lýsir yfir því að engin
ósk hafi komið frá því um að Sex-
mannanefnd verði falin verðlagn-
ing á eggjum né hcldur að hugmynd
hafi komið fram um slíkt frum-
kvæði af hálfu þess.
Síðastliðin 20-30 ár hefur Fram-
leiðsluráð ekkert frumkvæði átt að
verðlagningu Sexmanna-nefndar á
nýjum flokkum búvara.
Framleiðsluráð „hefur ekki veitt
Sambandi eggjaframleiðenda
einkasöluleyfi til heildsölu á eggj-
um.“ Heildsöluleyfið, sem Fram-
leiðsluráð hefur þegar veitt Sam-
bandi eggjaframleiðenda, er veitt
skv. 36. gr. laga nr. 95/1981, og
tekur gildi þegar það hefur stofn-
sett eggjadreifingarstöð.
Taki Samband eggjafram-
leiðenda ákvörðun um stofnun
eggjadreifingarstöðvar og fram
komi, að einhverjir eggjaframl-
eiðendur telji sig ekki geta staðið
að stöðinni, mun Framleiðsluráð
taka umsóknir um heildsöluleyfi til
afgreiðslu, enda uppfylli umsækj-
endur skilyrði stjórnvalda hverju
sinni um heilbrigðisskoðun og
flokkun eggja.
-mhg
fangsmesta tónleikahátíðin verður
svo á Broadway sunnudaginn 11.
desember en þar koma fram fjöl-
i margir u landsþekktir skemmti-
kraftar s.s. þær Edda Björgvins-
dóttir og Helga Thorberg, stór-
hljómsveit Gunnars Þórðarsonar
og ýmsar poppstjörnur af „gamla
sjrólanum“ s.s. Björgvin Halldórs-
®son, Engilbert Jensen og fleiri.
Það kom fram á fundi sem að-
standendur hljómleikahaldsins
þeir Pálmi Gunnarsson og Óttar
Felix Hauksson stóðu fyrir að allir
þeir sem koma fram á þessum tón-
leikum munu gefa vinnu sína auk
þess sem samkomustaðirnir munu
ekki innheimta gjald fyrir að hýsa
skemmtanirnar.
„Meiningin er að safna um hálfri
miljón fyrir fyrsta áfanga af bygg-
ingu samkomuhússins. Húsið mun
kosta u.þ.b. 10 miljónir en það er
teiknað þannig að hver áfangi í
byggingu nýtist strax. Við reynum
jafnframt að vekja athygli á vanda-
málum þessa fólks, sem margir
virðast gleyma nema svo sem einu
sinni á ári,“ sagði Óttar Felix
Hauksson í sambandi við fjársöfn-
un þessa.
Pálmi Gunnarsson hefur stund-
að kennslu í Sólheimum og kvað
hann vart hægt að hugsa sér betri
nemendur en þá sem þar stunduðu
nám. Hann sagði það eftirtektar-
vert að tónlistargáfan væri mörgum
vistmönnum greinilega í blóð borin
þrátt fyrir mikla andlega fötlun á
öðrum sviðum.
Ef vel tekst til með söfnun þessa
verður hægt að hefjast handa með
byggingarframkvæmdir þegar
næsta vor, en samkomuhúsið verð-
ur til margra hluta nytsamlegt ekki
síður á sviði leikrænnar tjáningar
en tónlistar. Kvað Halldór Júlí-
usson forstöðumaður Sólheima
mjög brýnt að bæta úr aðstöðu-
leysinu. Núverandi samkomustað-
ur var upphaflega reistur sem
hænsnakofi og er ekki einu sinni
brúklegur sem slíkur nú. -hól.
Sólheimar í Grímsnesi. Húsaþyrping tilheyrir öll heimilinu fyrir þroska-
hefta. í Sólheimum búa nú um 40 manns. Forstöðumaður er Halldór
Júlíusson.
Núverandi aðstaða til samkomuhalds að Sóiheimum, hriplekur braggi
sem upphaflega var reistur hænsnfugli.
Athugasemd frá
V erðlagsstofnun
Vegna fréttar í Þjóðviljanum
fimmtudaginn 24. þ.m. vill Verð-
lagsstofnun að eftirfarandi komi
fram:
Hinn 7. sept. sl. ákvað Verð-
lagsráð 4,4-18,3% lækkun á há-
marksverði á vínarpylsum, kinda-
bjúgum, kjötfarsi og kindakæfu.
Gerðist þetta í kjölfar tímabund-
innar verðlækkunar á dilkakjöti.
Hinn 17. nóv. s.l. samþykkti
Verðlagsráð síðan 15,1 til 20,7%
verðhækkun á sömu vörum, vegna
hækkunar á verði kindakjöts 1.
okt. s.l.
Frá byrjun septembermánaðar
s.l. til dagsins í dag hefur verð á
áðurnefndum kjötvörum breyst
sem hér segir:
Vínarpylsur 15,0% hækkun,
kindabjúgu 0,9 % lækkun, kjötfars
10,2% hækkun, kindakæfa 2,0%
lækkun.
Álegg unnið úr kindakjöti hefur
á sama hátt hækkað unr 11,2 til
16,3% á sama tímabili.
Eins og fram kemur í áður-
nefndri frétt Þjóðviljans, hafa laun
hækkað um 4% á umræddum tíma.
/
Umboðsmenn Happdrættis Þjóðviljans 1983
REYKJANES
Mosfellssveit: Guðrún Arnadóttir Byggðaholti 8 s. 66798
Kópavogur: Ólafur Þ. Jónsson Skólagerði 3 s. 41157
Garðabær: Hilmar Ingólfsson Heiðarlundi 19 s. 43809
Hafnarfjörður: Sigríður Magnúsdóttir Miðvangi 53 s. 52023
Seltjarnarnes: Gunnlaugur Ástgeirsson Sæbóli v/Nesveg s. 23146
Keflavík: Sólveig Þórðardóttir Háteig 20 s. 92-1948
Gerðar: Kristjón Guðmannsson Melbraut 12 s. 92-7008
Sandgerði: Elsa Kristjánsdóttir Holtsgötu 4 s. 92-7680
VESTURLAND.
Akranes: Gunnlaugur Haraldsson Brekkubraut 1 S. 93-2304
Borgarnes: Sigurður Guðbrandsson Borgarbraut 43 s. 93-7122
Ólafsvík: Jóhannes Ragnarsson Hábrekku 18 S. 93-6438
Grundarfjörður: Matthildur Guðmundsd. Grundargötu 26 S. 93-8715
Stykkishólmur: Guðrún Ársælsdóttir Lágholti 3 s. 93-8234
Búðardalur: Gísli Gunnlaugsson Sólvöllum s. 93-4142
VESTFIRÐIR.
Patreksfjörður: Bolli Ólafsson Sigtúni 4 s. 94-1433
Bíldudalur: Halldór Jónsson Lönguhlíð 22 S. 94-2212
Þingeyri: Davíð Kristjánsson Aðalstræti 39 s. 94-8117
Flateyri: Jón Guðjónsson Brimnesvegi 8 s. 94-7764
Suðureyri: Sveinbjörn Jónsson Hjallavegi 21 s. 94-6235
ísafjörður: Smári Harðarson Hlíðarvegi 3 s. 94-4017
Bolungarvík: Kristinn Gunnarsson Vitastíg 21 S. 94-7437
Hólmavík: Hörður Ásgeirsson Skólabraut 18 s. 95-3123
NORÐURLAND VESTRA. Hvammstangi: Örn Guðjónsson Hvammst.br. 23 s. 95-1467
Blönduós: Sturla Þórðarson Hlíðarbraut 24 S. 95-4357
Skagaströnd: Guðmundur H. Sigurðsson Fellsmúla 1 s. 95-4653
Sauðárkrókur: Hulda Sigurbjörnsdóttir Skagfirðingarbr. 37 s. 95-5289
Siglufjörður: Kolbeinn Friðbjarnars. Hvanneyr.br. 2 s. 96-71271
NORÐURLAND EYSTRA.
Ólafsfjörður:
Dalvík:
Akureyri:
Hrísey:
Húsavík:
Raufarhöfn:
Þórshöfn:
Björn Þór Ólafsson
Hjörleifur Jóhannsson
Haraldur Bogason
Ástráður Haraldsson
Aðalsteinn Baldursson
Angantýr Einarsson
Dagný Marínósdóttir
Hlíðarvegi 61
Stórhólsvegi 3
Norðurgötu 36
Sólvöllum
Baughól 13b
Aðalbraut 33
Sauðanesi
AUSTURLAND.
Neskaupstaður:
Vopnafjörður:
Egilsstaðir:
Seyðisfjörður:
Reyðarfjörður:
Eskifjörður:
Fáskrúðsfjörður:
Stöðvarfjörður:
Breiðdalsvík:
Höfn:
Alþýðubandalagið
Gunnar Sigmarsson
Kristinn Árnason
Hermann Guðmundsson
Ingibjörg Þórðardóttir
Vilborg Ölversdóttir
Magnús Stefánsson
Ingimar Jónsson
Snjólfur Gíslason
Benedikt Þorsteinsson
Egilsbraut 11
Miðbraut 19
Dynskógum 1
Múlavegi 29
Grímsstöðum
Landeyrarbr. 6
Hlíðargötu 30
Túngötu 3
Steinborg
Ránarslóð 6
SUÐURLAND.:
Vestmannaeyjar: Edda Tegeder
Hveragerði: Magnús Agústsson
Selfoss: Sigurður R. Sigurðsson
Þorlákshöfn: Þorsteinn Sigvaldason
Eyrarbakki: Auður Hjálmarsdóttir
Stokkseyri: Margrét Frímannsdóttir
Hrauntúni 35
Heiðarbrún 67
Lambhaga 19
Reykjabraut 5
Háeyrarveg 30
Eyjaseli 7
s. 96-62270
s. 96-1237
S. 96-24079
s. 96-61704
s. 96-41937
s. 96-51125
s. 96-81111
s. 97-7571
s. 97-3126
s. 97-1286
s. 97-2397
S. 97-4149
s. 97-6181
s. 97-5211
s. 97-5894
S. 97-5627
S. 97-8243
s. 98-1864
S. 99-4579
S. 99-1714
s. 99-3745
s. 99-3388
s. 99-3244
Allar nánari uppíý~ingar á skrifstofu Þjóðviljans, Síðumúla 6 - Sími: 81333