Þjóðviljinn - 29.11.1983, Síða 12

Þjóðviljinn - 29.11.1983, Síða 12
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 29. nóvember 1983 Skotíð á Friedman Út er komin bæklingur eftir Birgi B. Sigurjónsson hagfræðing, er nefnist Lokleysur peninga- magnshagfræðinga. Birgir gagnrýnir peningamagnshagf- ræðina (mónetarismann) og þá einkum kenningar Miltons Frie- dman með fræðilegum rökum. Sýnir hann meðal annars fram á að Friedman gerist sekur um hring- sannanir í mikilvægum atriðum. Ritið skiptist í kynningu á sögu peningamagnskenninga, umræðu um slíkar kenningar á 20. öld og loks gagnrýni á þær. Ritgerð Birgis er tengd rannsóknarverkefni hans um verðbólgu á íslandi, sem hann hefur unnið að undanfarin ár við Háskólann í Stokkhólmi. Höfu- ndurinn, sem hefur líka numið hag- fræði við háskóla í Reykjavík, Lundi og London, hefur áður skrif- að bókina Frjálshyggjan, sem út kom hjá bókaforlaginu Svart á hvítu fyrirtveim árum. Sama forlag dreifir Lokleysum peningamagns- hagfræðinga. ALÞYÐUBANDALAGIÐ Fullveldisfagnaður 1. desember verður fullveldisfagnaður að Hverfisgötu 105 klukkan 20.30. Dagskrá: Heimsókn frá El Salvador, formaður mannréttindanefndar El Salvador segir frá nýjustu atburðum þar. Upplestur á nýútkominni bók. Eldhress sönghópur. Kaffi og kökur. Að sjálfsögðu mætum við öll. Jólakort Æskulýðsfylkingin hefur gefið út jólakort. Kortið er að sjálfsögðu í anda þeirra hugsjóna er við berjumst fyrir. Kortið fæst að Hverfisgötu 105. ÁRÍÐANDI ORÐSENDING til styrktarmanna Alþýðubandalagsins Þeir styrktarmanna sem fengið hafa senda gíróseðla eru vinsam- legast beðnir að gera skil sem allra fyrst. Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins Skrifstofan opin Alla þriðjudaga og fimmtudaga verður skrifstofa Æskulýðsfylkingar- innar opin frá kl. 17-18.30, í flokksmiðstöðinni, Hverfisgötu 105. Áhugafólk er hvatt til að líta við eða hringja, síminn er 17500. Stjórnin. Auglýsið í Þióðviljanum Minning Guðjón Kr. Þorgeirsson Fœddur 13.nóvember 1905 - dáinn 13. nóvember 1983 Var ekki einhver að deyja á Landakotsspítala 13. nóvember s.i.? Jú, það slökknaði á skari hjá Guðjóni Þorgeirssyni til heimilis að Sundlaugavegi 26 í Reykjavík. Eftir sutta legu. Dauða hans bar við á afmælisdeginum 78 ára. Á sömu stundu og hann sá Ijós heimsins. Það verður sjaldan héraðsbrest- ur þó skorið sé á silfurþráðinn hjá mönnum eins og Guðjóni Þor- geirssyni, sem aldrei voru í þykj- ustunni. Unnu bara störfin þegj- andi og hljóðalaust á meðan stætt var og drógu dýr föng í þjóðarbúið án þess að segja frá. Eftir að Guðj- ón andaðist hefi ég verið að bíða eftir því að einhver honum nákom- inn stingi niður penna og segði frá lífi hans og starfi. Hvaðan kom hann, hvar vann hann öll sín mann- dómsár? Þetta hefur Logi sonar- sonur hans sagt okkur frá í fallegri minningargrein. Og þarf ég þar engu við að bæta. Ég vissi engin deili á Guðjóni, hafði aldrei séð manninn fyrr en hann kom í kjalla- rann að Hrafnistu í Hafnarfirði í endaðann apríl s.l. með vorið í fanginu og glettni í pírðum augum sem gaf von um málhreifan og skemmtilegan félaga. Ég er þannig gerður, að mér er ekki hægt að vera í kallfæri við mann sem ég ekki þekki nema að fá nafn og númer. Og svo gerðist hér, því ég var þar fyrir þegar Guðjón kom. En ég varð fyrir miklum vonbrigðum með blessaðan gamla manninn sem að vísu var yngri í árinu en ég. Hann átti svo bágt með að tjá sig. Fyrir nokkrum árum varð Guðjón fyrir þeirri sáru reynslu að fá hei- laáfall sem sljóvgaði svo bæði mál og minn að hann varð eins og svefngengill miðað við það sem áður var. Mikilvirkur og verkhag- ur. Líkamsþróttur hans var samt í góðu meðallagi. Gæddur stálvilja og svo miklu vinnuþreki að furðu sætti með svo slitinn, ellimóðan og stormhrakinn langferðamann. Hér á þessu ágæta heimili er reynt að hafa vinnu eða föndur fyrir þá sem hafa vilja og getu til þess. Vinnutíminn er 4-5 stundir á. dag og að sjálfsögðu ókeypis kennsla. Guðjón var búinn að vera hér tvisvar áður og því kunni hann öðrum fremur til verka. Hann var með þeim fyrstu í vinnusalinn. En sá tími sem ætlaður var til kennslu dugði Guðjóni ekki, heldur kom hann með verkefnið með sér niður í herbergi og vann stundum fram í vökulok. Einstakt ljúfmenni var Guðjón í öllu dagfari og ekki þó síst við mig. Slíkt umburðarlyndi. Sú rósemi. Henni get ég ekki lýst. Oftast hlust- aði hann á fréttir frá sjónvarpinu, en var samt vandur að myndefni. Því var það oft að ég glápti á skerm- inn meðan Guðjón var að vinna. Stundum afsakaði ég hávaðann. Uss, allt mátti vera eins og ég vildi. Mig minnir að það hafi verið annað kvöldið sem við deildum kjörum. Klukkan var að ganga eitt, og glansandi birta um allan salinn og ég eins og áður eitthvað að rissa. Ég sé að Guðjón er vakandi og strýkur augun nokkuð þreytulega. Ég spyr hann hvort ég eigi ekki að slökkva. Það stóð ekki á svarinu. Hann segir: „Ef þú hefur gagn af ljósinu þá skal ég hafa aftur augun.“ Eins og leiftuf kom það í hugann sem sagt var að meistarinn frá Nasaret hafi sagt við skóla- sveinana forðum. Það sem þið ger- ið þessum manni það gerið þið mér. Ég skammaðist mín og slökkti ljósið og gerði þetta ekki aftur. Ékki þarf að orðlengja að þessi framkoma, svona viðbrögð sögðu mér eins mikið um Guðjón Þor- geirsson og þykk bók í stóru broti. Hanna dóttir mín kenndi mikið í brjósti um Guðjón þegar hún vissi hvað mikið frá honum var tekið heilsufarslega. Hún bað mig að vera honum góður og sýna honum tillitssemi. Mig langaði oft að gera Guðjóni greiða og rétta honum hjálparhönd. En þess þurfti aldrei. Hér er valinn maður í hverju rúmi. Vinnustúlkurnar svo elskulegar við hann, svo og alla aðra, að þjónustu er ekki vant. Krakkarnir mínir komu í heim- sókn og fóru með okkur félagana í keyrslutúra um höfuðborgarsvæð- ið. Farið heim til þeirra. Drukkið kaffi, spjallað, spilað, sungið og hlegið. Dóttir mín heilsaði og kvaddi Guðjón með kossi eins og mig. Ég sá að það var honum gott innlegg. Enda þótt Guðjón ætti erfitt með málið þá leyndi sér ekki á and- litssvip og augnatilliti að hann var í hjarta sínu þakklátur með allt sem fyrir hann var gert. Guðjón átti marga góða vini. Börnin hans og makar þeirra og systur komu oft og sýndu honum elskusemi og hlýju. Enginn kom þó eins oft og tengdadóttirin Jónína. Hún kom á öllum tímum dagins, og umvafði gamla manninn eins og ástrík móðir. Að lokum þakka ég góð kynni og óska þessum skyndivini mínum til hamingju með nýju vistina. Ég skrifa og segi, þegar ég heyri góðs manns getið, þá kemur Guðjón í hugann. Vertu sæll, ágæti vinur. Það er skammt til endurfunda. Vertu sæll. Bjarni M. Jónsson. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlál og útför eiginmanns míns, föður okkar og tengdaföður Alfreðs G. Sæmundssonar Þóra Stefánsdóttir Sæmundur Alfreðsson Unnur St. Alfreðsdóttir Helga Alfreðsdóttir Björk Alfreðsdóttir Stefán Alfreðsson Maðurinn minn Jón Albertsson Háholti 27, Akranesi lést sunnudaginn 20. nóvember. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þakka sýnda samúð Elínborg Sigurdórsdóttir Erna J. Arnþórsdóttir Þorgeir Jónsson VÉLA- OG TÆKJALEIGA Alhliða véla- og tækjaleiga. Heimsendingar á stærri tækjum. Sláttuvélaleiga. Múrara- og trésmiðaþjónusta, % minni háttar múrverk og smíöar. BORTÆKNI SF. Vélaleiga, sími 46980 — 72460, Nýbýlavegi 22, Kópavogi, (Dalbrekkumegin) Steypusögun — Kjarnaborun — Vökvapressa. Auglýsið í Þjóðviljanum ALHLIÐA PÍPULAGNINGAÞJÓNUSTA Sveinbjörn G. Hauksson P i pulagningameistari Sími 46720 Ari Gústavsson Pípulagningam Simi 71577 GEYSIR Bílaleiga Nýlagnir Jarðlagnir Viðgerðir Breytingar Hreinsanir Car rental BORGARTÚNI 24- 105 REYKJAVÍK, ICELAND - TEL. 11015 Heliusteypan STÉTT Hyrjarhöfða 8. - Sími 86211. XI. STEYPUSÖGUN vegg■ og góltsögun VÖKVAPRESSA / múfbrot og fleygun KJARNABORUN fyrlr öllum lögnum Tökum að okkur verkefni um allt l.and. — Fljót og góð þjónusta. — Þrifaleg umgengni. ^ Verkpantanir Irá kl. 8—23. BORTÆKNI S/F Vélaleiga S: 46980 - 72460.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.