Þjóðviljinn - 04.01.1984, Page 1

Þjóðviljinn - 04.01.1984, Page 1
DIÚOVIUINN 4hugamaður um ensku knattspy rn- una birtir fjörlega fróðleiksmola. Sjá 11. januar miðvikudagur 49. árgangur 2. tölublað Ég veit ekki lengur hvað til bragðs á að taka Þolinmæðin er þrotin Einstæð móðir - kennari - með tvö börn lýsir kjörum sínum „Yngra barn mitt gengur í notuðum fötum af eldri systkinum og öðrum börnum úr fjölskyldunni. Ég á ekki bíl og hef oft ekki efni á að kaupa strætisvagnakort. Ég hef ekki lengur efni á að fara í leikhús eða bíó. Ég sit með launaseðil janúarmánaðar í höndunum og nokkra fasta reikninga - raf- magnsreikning, hitareikning, afborganir, matarreikninga - og þegar ég legg þessa reikninga saman þá vantar mig nokkur þúsund krónur upp á. Ég er allan mánuðinn að bíða eftir næstu mánaðamótum í von um að þá komi færri eða lægri reikningar. Ég hef tekið lán úr afmælissjóði barnanna og úr flöskusjóðnum sem þau stofnuðu með því að selja tómar flöskur sem þau fundu úti. Ég er kennari og bý ein með tveimur börnum. Eg veit að ég hef það betra en margur annar. Samt ná endar ekki saman. Nú er þolinmæði mín á þrotum. Ég verð reiðari og reiðari yfir óréttlæti og skilningsleysi forráðamanna þjóðarinnar. Ég er að missa trúna á réttlæti og jafnrétti. Ég veit ekki lengur hvað á til bragðs að taka“. Úr opnu bréfi einstæðrar móður til Þjóðviljans í opnu birtum við myndir af veggblöðum og auglýsingum þar sem höfðað er til kvenna á mis- jöfnum tímum og mismunandi forsendum. Hirðum undirmáls- flskinn og látum þá sem vinna á dekki fá ágóðann segir Brynjólfur Oddson sjómaður frá Dal- vík í fyrri grem sinni um nýtingu á undir- málsflski. Hringlandaháttur sjávarútvegsráðherra Útgerðarmenn æfir Mikil reiði ríkir nú meðal útgerðarmanna hinna hefðbundnu vertíðarbáta í garð sjávarútvegs- ráðherra Halldórs Ásgrímssonar fyrir hringlandahátt í öllum málum varðandi þá vertíð sem nú er að hefjast. Fyrir utan það að fresta ákvörðun um kvótakerfið fram til febrúarloka, þá bætist nú tvennt við. í fyrsta lagi sú ákvörðun Halldórs að hverfa frá netaveiðibanni til 15. febrúar og hins vegar að leyfa ufsaveiðar utan kvóta. Fjölmargir aðilar höfðu sam- þessum málum. Varðandi það að menn á, að í allt haust hafi sjávar- band við Þjóðviljann í gær út af leyfa netaveiðar nú þegar, benda útvegsráöherra sagt að netaveiðar yrðu ekki leyfðar fyrr en 15. febrú- ar. Margir útgerðarmenn, sem láta báta sína nær eingöngu stunda net- aveiðar höfðu gert ráðstafanir til þess að láta þá fara á línu. Höfðu þeir fjárfest í veiðarfærum og út- búnaði sem þarf til línuveiðanna, en hefðu ekki lagt í þennan kostn- að ef þeir hefðu vitað að netaveiðin yrði leyfð strax. Aðrir ætluðu að nota tímann framtil 15. febr. til.að láta dytta að bátum sínum og höfðu pantað pláss fyrir þá í slipp. Hitt málið, ufsaveiðar utan kvóta telja útgerðaraðilar, annars- staðar en á Suðurnesjum og Suður- landi, ósanngjarna undanþágu. Útgerðaraðilar við Breiðafjörð, sem eingöngu stunda þorskveiðar yfir vetrarvertíðina, benda á að þessi undanþága með ufsann færi bátum á Suðurlandi 200 til 300 tonna forskot, þegar kvótakerfið loks kemur. Þjóðviljinn mun fjalla nánar um þetta hitamál á morgun. -S.dór.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.