Þjóðviljinn - 04.01.1984, Side 2

Þjóðviljinn - 04.01.1984, Side 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 4. janúar 1984 Friðargangan leggur af stað. Ljósm. Víkurblaðið Friðarhópur Húsvíkinga Blysför á Þorláksmessu Fjöldi Húsvíkinga tók þátt í friðarblysför á Þorláksmessu og var þar tekið undir ávarp friðar- hreyfinganna sem gcngust fyrir sams konar aðgerðum víða um land. Einkunnarorð Friðarhóps Hús- víkinga á Þorláksmessu voru: ís- land gegn kjarnorkuvá, Friður á jólum 1983, Biðjum leiðtoga þjóð- anna að leggja niður vopn og Brauð handa hungruðum heimi. Safnast var saman við Sund- laugina og gengið með tendraða kyndla að Húsavíkurkirkju þar sem séra Björn Jónsson flutti stutt ávarp. Þaðan var svo gengið að jó- Sr. Björn H. Jónsson ávarpar latré í bænum miðjum og þar flutt friðargönguna á tröppum Húsavík- ávarp fyrir friði. _v urkirju. Bókagerðamenn um atvinnurekendur , ,Engin takmörk fyrir frekjuiuii64 Nýir sjón varpsþœttir: Byggðir á þulum Theódóru Seinna í þessum mánuði hefjast hjá Sjónvarpinu upptökur á sjón- varpsþáttum, sem byggðir eru á þulum eftir Theódóru Thorodd- sen. f fyrstu er áætlað að gera 3 þætti, en hugsanlegt er að þættirnir verði alls sjö. Þórunn Sigurðardóttir, leikari, hefur samið upptökuhandrit og verður hún jafnframt leikstjóri. Þórunn sagði í stuttu samtali við Þjóðviljann að með nýrri upptöku- tækni sem Sjónvarpið réði nú yfir væri hægt að framkvæma ýmsar skemmtilegar tæknibrellur, sem æskilegar væru við gerð þessara þátta, þar sem þjóðsagna og ævin- týrablær væri ríkjandi. -S.dór Helgarmót í Ólafsvík Fyrsta helgarskákmót þessa árs verður haldið í Ólafsvík um næstu helgi. Það er jafnframt 22. helgar- mót tímaritsins Skákar og Skák- sambands íslands. Flestir bestu skákmenn þjóðar- innar verða meðal þáttakenda sem jafnan. Tefldar verða sjö umíerðir eftir Sviss-skák kerfinu. Fyrsta um- ferðin hefst eftir hádegi á föstudag en mótinu lýkur síðdegis á sunnu- dag. „Engin takmörk fyrir frekju at- vinnurekenda“, segir í félagsbréfi bókagerðarmanna, þar sem sagt er frá samningafundi við atvinnurek- endur. í fréttabréfi Prentarans segir frá því hvernig Félag bókagerðar- manna hefur árangurslaust reynt að fá atvinnurekendur til samn- ingafunda uns deilunni var vísað til sáttasemjara. Stéttarfélagið útlist- aði á fyrsta fundi kröfur sínar. „Nú höfum við allt að verja“ Síðan segir í fréttabréfinu. Atvinnurekendur vísuðu til „stóra bróður“ VSÍ og buðu uppá sömu „kræsingar". Þ.e. að við skenktum þeim aftur þau félags- legu réttindi sem okkur hefur tekist að ávinna okkur með mikilli bar- áttu á síðustu árum og áratugum. Gegn slíkum fórnum töldu FÍP menn hugsanlegt að til einhverrar launahækkunar gæti komið. Ekki var nefnt hversu mikla. En frá þeim VSÍ köppum hafa menn reiknað þetta „boð“ uppað 1%. Þessari ófyrirleitnu hugmynd at- vinnurekenda var að sjálfsögðu hafnað. Hin félagslegu réttindi eru ekki föl og verða varin hvað sem það kostar. Aldrei hefur verið gengið lengra en einmitt nú á rétt verkafólks. Eftir að kaupmáttur launa hefur verið skertur um amk. 40%, verð- lagsbætur afnumdar um 2ja ára skeið á sama tíma og dýrtíðin held- ur áfram, þá leyfa atvinnurekendur sér að koma með tillögur um að umsamin félagsleg réttindi séu rýrð. Það sem við skulum átta okk- ur á nú er að atvinnurekendur ætla sér að nýta útí ystu æsar það ástand sem ríkisvaldið skapaði með bráðabirgðalögunum. Atvinnu- rekendur og ríkisvaldið stefna að Sjónvarpsskermur fyrir sovéska sendiráðið Geir varð að sækja um leyfið Davíð vísar til byggingarnefndar Davíð Oddsson hefur fengið beiðni frá Geir Hallgrímssyni um að Sovét menn fái að setja upp ratsjárloftnet á sendiráðsbyggingu sína. Geir Hallgrímsson utanríkisráð- herra hefur sótt um leyfi til Davíðs Oddssonar borgarstjóra fyrir sov- éska sendiráðið. Utanríkis- ráðuneytið hefur skrifað Davíð Oddssyni bréf þarsem beðið er um leyfi fyrir sjónvarpsskermi þeim, sem valdið hefur nokkru umtali, við húseign sovéska sendiráðsins við Túngötu. Ráðuneytið varð við beiðni sendiráðsins um að æskja leyfisins til borgarstjórnar Reykjavíkur, en áður hafði umhverfismálanefnd borgarinnar mótmælt skerminum vegna útlitsbreytinga. Davíð borg- arstjóri upplýsir í Morgunblaðinu í gær að beiðni Geirs verði send byggingarnefnd borgarinnar til umsagnar. „Við erum aðeins að gegna formlegri skyldu okkar og tökum ekki efnislega afstöðu í þessu máli“, sagði Geir Hallgrímsson ut- anríkisráðherra þegar Þjóðviljinn spurði hann í gær um þessa beiðni. Kvað hann Póst og síma og bygg- ingaryfirvöld borgarinnar eiga næsta orðið í þessu máli. -óg/lg því að knésetja verkafólk og samtök þess. Nú er svo komið að ekki er lengur stætt á því að horfa aðgerðalaus uppá þann níðings- skap sem verið er að beita fólk dags daglega. Nú er svo komið að við höfum allt að verja“. Ólafur Jónsson látinn Ólafur Jónsson leiklistar- og bókmenntagagnrýnandi og ritstjóri Skírnis lést í gær. Hann var fæddur 15. júlí 1936, sonur hjónanna Jóns Guðmunds- sonar skrifstofustjóra í Rvík og Ás- gerðar Guðmundsdóttur kennara. Hann lauk fil.kand.-prófi frá Stokkhólmsháskóla árið 1962. Ólafur var blaðamaður við Tímann 1956-60, bókmennta- og leiklist- argagnrýnandi við Alþýðublaðið 1963-69, Vísi 1969-75, Dagblaðið 1975-81 og síðan 1981 við Dag- blaðið og Vísi. Hann var stunda- kennari við Háskóla fslands frá 1974. Eftir Ólaf liggja þrjár bækur og hann var ritstjóri nokkurra tímarita, síðast Skírnis, tímarits Hins ísl. bókmenntafélags, frá 1980. Fáir hafa haft jafnmikil áhrif og hann með menningarskrifum sínum í íslensk dagblöð og tímarit sl. 20 ár. Eftirlifandi kona Ólafs er Sigrún Steingrímsdóttir. Þjóðviljinn vott- ar henni og öðrum aðstandendum samúð sína.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.