Þjóðviljinn - 04.01.1984, Síða 11
Miðvikudagur 4. janúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
Dýri Guðmundsson.
Dýri í FH?
Talsverðar líkur eru á að Dýri
Guðmundsson, hinn sterki mið-
vörður sem undanfarin ár hefur
leikið með Val í knattspyrnunni,
gangi til liðs við sitt gamla félag,
FH. Dýri hafði áður ákveðið að
hætta að leika með Val og reiknað
var með að hann væri þar með bú-
inn að leggja skóna á hiliuna. Ekki
er að efa að Dýri komi til með að
styrkja verulega hið unga og efni-
lega lið FH í baráttunni um 1.
deildarsæti næsta sumar. - VS.
Þróttur
meistari
Þróttur varð í fyrrakvöld
Reykjavíkurmeistari í meistara-
flokki karla í innanhússknatt-
spyrnu. í undanúrslit komust
Þróttur, Valur, KR og Víkingur.
Þróttur sigraði Val 5-0 og KR vann
Víking 5-4. í úrslitaleiknum sig-
ruðu svo Þróttarar KR 7-5 eftir
framlengingu.
KR hlaut tvo Reykjavíkur-
meistaratitla, í 6. og 4. flokki, og
Þróttur sigraði einnig í 2. flokki.
Fram sigraði í 3. og 5. flokki en
Valur í meistaraflokki kvenna eins
og við höfum áður greint frá.
Leikið
aftur við
Möltu!?
Víðs vegar um Spán stóðu menn
á öndinni á þriðja í jólum. í einu
þarlcndu blaðanna var sagt að
Spánverjar yrðu að leika að nýju
gegn Möltu í Evrópukeppni lands-
liða í knattspyrnu, Knattspyrnu-
samband Evrópu hefði úrskurðað
það vegna ásakana um að Möltubú-
um hefði verið mútað til að tapa
leik þjóðanna á dögunum með 11
marka mun. Spánn þurfti að vinna
með þeim mun til að komast upp-
fyrir Hollendinga og fara í úrslita-
keppnina í Frakklandi og það
tókst, leikurinn vannst 12-1. Þessi
fregn kom eins og reiðarslag fyrir
marga en þegar á daginn leið átt-
uðu menn sig á hvað um var að
vera. Þriðji í jólum er nefnilcga 1.
apríl þeirra Spánverja, og fregnin
mikla að sjálfsögðu bara „aprfl-
gabb“! _VS
Juventus
heldur
forystu
Juventus er áfram með eins stigs
forystu í ítölsku 1. deildinni í knatt-
spyrnu eftir 2-1 útisigur á Avellino
um áramótin. Platini og Panzo
skoruðu mörkin. Roma marði
sigur, 1-0, á botnliðinu Catania og
Torino náði að sigra Sampdoria 2-
1. Það var fyrsti ósigur Brady, Fra-
ncis og félaga í Sampdoria í átta
leikjum.
Juventus er með 20 stig á toppn-
um, Roma og Torino hafa 19 stig,
Sampdoria 17, Fiorentina og Ver-
ona 16. Lazio 9 stig og Catania með
7 verma botnsæti deildarinnar.
-VS
iþróttir Viðir Sigurðsson
Sigurður Dagsson hætti snögglega með Val:
,JPersónulegar ástæður"
Ekkert verið rætt um að fá Youri Ilitchew aftur
Sigurður Dagsson, fyrrum
landsliðsmarkvörður í knatt-
spyrnu, hefur sagt stöðu sinni
sem þjálfari 1. deildarliðs Vals
lausri. kom það Valsmönnum í
opna skjöldu, í miðju Reykja-
víkurmótinu í innanhússknatt-
spyrnu, í fyrradag.
„Þessi viðskilnaður átti sér stað í
fullri vinsemd og er alfarið kominn
til af persónulegum ástæðum Sig-
urðar, engir árekstrar áttu sér stað
milli hans og leikmanna eða
knattspyrnustjórnarinnar. Næsta
skref okkar í málinu skýrist í dag
eða á morgun en enn sem komið
er, er útilokað að nefna einn öðr-
um fremur sem arftaka Siguröar",
sagði Sigtryggur Jónsson, formað-
ur knattspyrnudeildar Vals, í sam-
tali við Þjóðviljann í gær.
Sigtryggur sagði getgátur um So-
vétmanninn Youri Ilitchew, sem
þjálfaði Val fyrir nokkrum árum,
vera algerlega úr lausu lofti
gripnar, það hefði ekkert verið rætt
um að reyna að fá hann til starfa á
ný.
Við ræddúm við Sigurð sjálfan í
gær og hann staðfesti það sem áður
er sagt. „Þetta er einungis af per-
sónulegum ástæðum og ég hef ekk-
ert frekar um málið að segja“,
sagði Sigurður.
Það er slæmt fyrir Valsmenn að
sitja uppi þjálfaralausir á þessum
árstíma. Víðast hvar í efri deildun-
um er búið áð ganga frá þjálfara-
ráðningum og því afar fáir á lausu.
Það er því ekki ólíklegt að Vals-
menn verði að leita út fyrir land-
steinana og þá er draumurinn um
alíslenskþjálfaða l.deild 1984 úr
sögunni.
- VS.
Sigurður Dagsson.
Körfupíltar
2. flokkur kvenna í handknattleik:
—
Stjarnan, IA og
FH í efstu sætum
C-riðill:
í Kentucky
Fyrsta umferðin af þremur í yng-
ri flokkunum í handknattleik var
leikin skömmu fyrir jólin. Hér er
staðan í 2. flokki kvenna, tvö efstu
lið í A- og B-riðlum fara í úrslit
ásamt efsta liðinu í C-riðli.
A-riðill:
Stjarnan.........5 5 0 0 48-20 10
Vikingur..........5 3 1 1 50-32 7
Fylkir............5 2 1 2 37-29 5
Selfoss...........5 2 0 3 38-41 4
Keflavík..........5 1 1 3 28-38 3
Breiðablik........5 0 1 4 27-68 1
B-riðill:
Akranes...........5 4 1 0 54-33 9
KR................5 4 0 1 49-35 8
Þróttur R.........5 2 2 1 31-28 6
Afturelding.......5 2 1 2 38-31 5
Ármann............5 1 0 4 32-35 2
HK................5 0 0 5 12-54 0
FH..............4 4 0 0 39-26 8
ÍR..............4 3 0 1 37-25 6
Haukar..........4 1 1 2 36-31 3
Fram............4 1 1 2 28-35 3
ÍBV.............4 0 0 4 23-46 0
Stjarnan virðist örugg í úrslit í
A-riðli en Víkingur og Fylkir berj-
ast líklega um annað sætið. Akra-
nes, KR og Þróttur slást um tvö
efstu sætin í B-riðli og Afturelding
á jafnvel möguleika. í C-riðli er
hins vegar einvígi milli FH og ÍR
um eina úrslitasætið þar. í úrslita- i
keppninni leika liðin fimm einfalda
umferð, allir við alla, og íslands-
meistari verður sá sem flest stig
hlýtur. Nánar verður greint frá
öðrum flokkum á næstu dögum.
- VS.
Unglingalandslið pilta í körfu-
knattleik fór í fyrradag í viku kepp-
nisferð til Bandaríkjanna. Ferðinni
var heitið til Kentucky þar sem
leiknir verða fjórir leikir gegn
háskólaliðum. Ferðin er liður í
undirbúningi fyrir Evrópukepp-
nina, sem fram fer í Vestur-
Þýskalandi í apríl.
Af þessum sökum hefur 12. um-
ferð úrvalsdeildarinnar sem fram
átti að fara um næstu helgi verið
frestað þar sem piltarnir eru ekki
væntanlegir heim fyrr en á þriðju-
dag. í liðinu eru leikmenn úr öllum
úrvalsdeildarliðunum nema Val og
má þar nefna KR-ingana Guðna
Guðnason og Ólaf Guðmundsson,
Guðjón Skúlason og Sigurð Ingi-
mundarson frá Keflavík, Njarðvík-
inginn Kristinn Einarsson, Henn-
ing Henningsson úr Haukum og
Braga Reynisson úr ÍR.
Svipuð ferð var farin til Banda-
ríkjanna í fyrra, nema hvað þá voru
leikmenn 21 árs og yngri. Jón Sig-
urðsson, þjálfari og leikmaður KR,
hefur átt veg og vanda af undirbún-
ingnum og fór út með piltunum
ásamt Einari Bollasyni og Torfa
Magnússyni. - VS.
Staðan
Staðan í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik eftir sigur Keflvík-
inga á KR-ingum um áramótin:
Njarövík...........11 8 3 878-824 16
KR.................11 7 4 781-752 14
Haukar.............11 6 5 796-807 12
Valur..............11 5 6 899-842 10
Keflavík...........11 5 6 730-818 10
ÍR.................11 2 9 820-861 4
Stigahæstir:
Valur Ingimundarson, Njarövík...303
PálmarSigurðsson, Haukum........253
Krlstján Ágústsson, Val.........232
Þorsteinn Bjarnason, Keflavik...196
Jón Kr. Gíslason, Keflavík......187
Hreinn Þorkelsson, lR...........168
Jón Steingrfmsson, Val..........167
Jón Sigurðsson, KR..............163
Torfi Magnússon, Val............163
GunnarÞorvarðarson, Njarðvik....162
Fróðleiksmolar frá áhugamanni um ensku knattspyrnuna:
Af Brazíl Steinari Bond ofl.
Áhugamaður um ensku
knattspyrnuna hefur sent okkur
heilmikið bréf sem inniheldur
fjölmarga fróðleiksmola um
þetta geysivinsæla íþróttaefni.
Við orðlengjum það ekkert nán-
ar en reytum bréfin utanaf hverj-
um molanum á fætur öðrum...
Ekki var laust við kátínu hjá
áhorfendum á leikjum Liverpool-
liðsins milli styrjaldaráranna því í (
sama liðinu léku Elisha Scott sem
var enskur, Bob Ireland sem var
skoskur, Sam English sem var írsk-
ur, svo og George Poland sem var
velskur. Framkvæmdastjóri félags-
ins á þessum tíma var Don Welsh
frá eyjunni Mön. (Áhugamenn
kannast víst mætavel við svipað
dæmi úr nútímanum, lands-
liðseinvaldur Walesbúa og fyrrum
landsliðsmaður þar í landi heitir
Mike England - innskot VS).
John Bond, núverandi fram-
kvæmdastjóri 3. deildarliðs
Burnley, hefur þótt gjarn á að laða
til sín knattspyrnumenn í eldra
lagi. Liðið sem Burnley hefur á að
skipa er kallað „elliheimilið" og er
það engin furða því flestir leik-
mannanna eru um og yfir þrítugt.
Þegar téður Bond tók við Manc-
Alan Brazil og Steinar Birgisson -
hester City fyrir fjórum árum var
liðið í mikilli fallhættu og greip
hann þá til þess ráðs að fylla það af
gömlum kempum. Grannarnir hjá
Manchester United kölluðu Manc-
hester City því „lið áttunda áratug-
arins“, ekki út af gengi þess, heldur
aldurs leikmannanna!
Mestu og bestu „tæklararnir" í
ensku knattspyrnunni eru taldir
áþekkir leikmenn?!!
vera Hollendingurinn Martin Jol
hjá WBA og Remi Moses, Man.
Utd., sem er fyrrum leikmaður
WBA. Skyldi WBA leggja aðalá-
hersluna á „tæklingarnar“?
Oft er skammt stórra högga á
milli í ensku knattspyrnunni. Þann
26. desember 1963 vann Fulham lið
Ipswich 10-1 í 1. deild. Aðeins
tveimur dögum síðar mættust liðin
aftur, í Ipswich, og þá vann Ipswich
4-2. Skyldi það hafa verið vegna
vanmats leikmanna Fulham?
Þau lið sem oftast hafa unnið 2.
deildarkeppnina eru Leicester City
og Manchester City og hafa þau sex
sinnum orðið efst þar. Man. City
gæti e.t.v. komist uppfyrir Leicest-
er í þessari keppni, en það yrði
varla lengi því Leicester hefur ver-
ið iðið við að falla og koma fljót-
lega upp aftur undanfarin ár.
Fugl hvíslaði því í eyrað á mér að
mjög mikill svipur væri með skoska
landsliðskappanum Alan Brazil
hjá Tottenham og Víkingnum
Steinari Birgissyni, landsliðsmanni
f handknattleik. Skyldi Brazil vera
góður í handbolta?
Peter Shilton, markvörður Sout-
hampton og enska landsliðsins,
hefur skorað eitt deildarmark. Það
var árið 1967 er hann lék með
Leicester. Markið var ekki skorað
úr vítaspyrnu, heldur með heiftar-
lega föstu útsparki. Og gegn hverj-
um var Leicester að spila þanni
dag? Aumingja Southampton!