Þjóðviljinn - 04.01.1984, Qupperneq 15
♦ í « I ■ I I l » * I .'l'l
• n < • V , l.
Miðvikudagur 4. janúar 1984 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
RUV 1
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Á virkum
degi. 7.25 Leikfimi.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð - Hulda Jensdóttir talar
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barnanna: „Nú er
glatt hjá álfum öllum“ Umsjónarmaður:
Gunnvör Braga.
9.20 Leikfimi. 9.30Tilkynningar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.).
10.45 íslenskir einsöngvarar og kórar
syngja.
11.15 Ur ævi og starfi íslenskra kvenna
Umsjón: Björg Einarsdóttir.
11.45 íslenskt mál Endurtekinn þáttur
Guðrúnar Kvaran frá laugard. 17. des. s.l.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 Ella Fitzgerald syngur lög frá fjórða
og fimmta áratugnum
14.00 „Brynjólfur Sveinsson biskup“ eft-
ir Torfhildi Þorsteinsdóttur Hólm
Gunnar Stefánsson les (7).
14.30 Úrtónkverinu Þættir eftir Karl-Robert
Danler frá þýska útvarpinu í Köln. 1.
þáttur: Sönglagið Umsjón: Jón Örn
Marinósson.
14.45 Popphólfið -Pétur Steinn Guð-
mundsson.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar. Hljómsveit
Christophers Hogwoods leikur Forleik
nr. 2 í A-dúr eftir Thomas Augustine
Arne/Filharmóniusveit Berlinar leikur
Sinfóniu nr. 4 i e-moll eftir Johannes
Brahms; Herbert von Karajan stj.
17.10 Síðdegisvakan
18.00 Snerting Þáttur Arnþórs og Gísla
Helgasona.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Við stokkinn Stjórnendur: Guðlaug
María Bjarnadóttir og Margrét Ólafsdótt-
ir.
20.00 Ungir pennar stjórnandi: Hildur
Hermóðsdóttir.
20.10 Útvarpssaga barnanna: „Nikulás
Nickleby" eftir Charles Dickens Þýð-
endur: Hannes Jónsson og Haraldur
Jóhannsson. Guðlaug Maria Bjarnadóttir
byrjar lesturinn.
20.40 Kvöldvaka a. „Hetjuhugur" Þor-
steinn Matthiasson les eigin frásöguþátt.
b.Kór Dalamanna syngur Stjórnandi:
Halldór Þórðarson. c. Minningar og
svipmyndir úr Reykjavík. Edda Vilborg
Guðmundsdóttir les úr bók Ágústar Jós-
epssonar. Umsjón: Helga Ágústsdóttir.
21.10 Einsöngur Edda Moser syngur lög
eftir Roberl Schumann og Richard
Strauss: Irwin Gage leikur á pianó.
21.40 Útvarpssagan: „Laundóttir
hreppstjórans" eftir Þórunni Elfu
Magnúsdóttur Höfundur les (15).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins
22.35 í útlöndum Þáttur í umsjá Emils
Bóassonar, Ragnars Baldurssonar og
Þorsteins Helgasonar.
23.15 íslensktónlistSinfóniuhljómsveitis-
lands leikur, Páll P. Pálsson stj. a.
Hátíðarmars eftir Pál isólfsson. b. Ljóða-
lög eftir Bjarna Þorsteinsson. c. Nýárs-
nótt, balletttónlist eftir Árna Björnsson.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Rás 2 er útvarpað á FM-bylgju, 99,9
mhz, mánudaga-föstudaga kl. 10-12 og
14-18 fyrst um sinn. Meðan dagskráin er
á tilraunastigi verður hún ekki gefin út
fyrirfram.
RUV
18.00 Söguhornið Hildur álfadrottning -
íslensk þjóðsaga. Sögumaður Helga Ein-
arsdóttir. Umsjónarmaður Hrafnhildur
Hreinsdóttir.
18.05 Bolla Finnskur teiknimyndaflokkur.
Þýðandi Trausti Júlíusson. Sögumaður
Sigrún Edda Björnsdóttir. (Nordvision -
Finnska sjónvarpið)
18.20 Mýsla Pólskur teiknimyndaflokkur.
18.30 Ég, broddgölturinn og trompetið
(Jag, igelkotten och trumpeten) Finnsk
sjónvarpsmynd um litinn dreng sem fer
með föður sínum í brúarvinnu og finnur
upp á ýmsu til að liafa ofan af fyrir sér.
Þýðandi Kristín Mántylá. (Nordvision -
Finnska sjónvarpip)
19.15 Hlé
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Árið 1983 - Hvar erum við stödd?
síðari hluti. Þýðándi og þulur Jón 0.
Edwald.
21.25 Dallas Bandariskur framhalds
myndaflokkur. Þýðandi Kristmann Eiðs-
son.
22.10 Úr safni Sjónvarpsins Til Seyðis-
fjarðar Frá heimsókn sjónvarpsmanna
til Seyðisfjarðar sumarið 1969. Brugöið
er upp svipmyndum af staðnum og saga
hans rifjuð upp. Umsjónarmaður Eiður
Guðnason. Áður sýnd í Sjónvarpinu á
þorra 1970.
frá lesendum
Þriðja sérframboð
kvenna til Alþingis
Kona hringdi
og benti á, að í hinu innlenda
fréttayfirliti, sem sjónvarpið
sendi út á gamlárskvöld og endur-
tók á nýársdag, hafi þess verið
getið, að konur hefðu boðið fram
sér lista við síðustu Alþingiskosn-
ingar. „Kona“ sagði, að þulurinn
hefði jafnframt látið þau orð
fylgja» að þetta væri i fyrsta sinn
sem íslenskar konur hefðu boðið
fram til Alþingis.
„Kona“ benti á, að þarna væri
ekki rétt með farið, því konur
hefðu áður borið fram sérstaka
kvennalista við Alþingiskosning-
ar og það meira að segja tvisvar:
árið 1922 er Ingibjörg H. Bjarna-
son var kjörin á þing af kvenna-
lista og árið 1926.
„Kona“ lét þess getið að kann-
ski væri almenningi vorkunn að
vita ekki um þessa hluti þar sem
sögubækur okkar héldu síður en
svo fram hlut kvenna. Fjölmiðla-
fólki væri hins vegar lítil vorkunn
-svo mikið hefði verið fjallað um
þessi fyrri framboð á sl. ári.
„Kona“ vildi m.a. benda á bók-
ina „Kvennaframboðin 1908-
1926“ eftir Auði Styrkársdóttur,
stjórnmálafræðing, en í henni
væri einmitt fjallað um öll sérf-
ramboð kvenna á íslandi á árun-
um, sem bókin nær til. Frá 1926
varð hlé á sérframboðum kvenna
til ársins 1982 að kvennaframb-
oðin komu fram í Reykjavík og á
Akureyri. Framboð Kvennalist-
ans við síðustu Alþingiskosning-
ar er þriðja sérframboð kvenna
til þeirrar stofnunar.
Orsökin tíl
niinnkandi
sölu á bókum
Bókabéus skrifar:
Bóksalar segja að sala á bókum
hafi verið dræmari nú um
næstliðin jól en undanfarin ár.
Þegar spurt er um orsakir þá
nefna flestir söluskattinn.
Víst hefur söluskatturinn sín
áhrif þar sem hann leggst ofan á
bókaverðið. En söluskatturinn er
ekkert nýtt fyrirbrigði. Hann ætti
því, út af fyrir sig, ekkert að
draga úr sölu á bókum frá því sem
verið hefur. Eru það ekki bara
einfaldlega minni peningaráð
fólks, sem þarna segja til sín?
Fjölmargir verða að neita sér um
annað en brýnustu lífsnauðsynjar
og eiga meira að segja, sumir
hverjir, full erfitt með að veita sér
þær. Það fólk kaupir ekki bækur
jafnvel þótt það hafi gert það
áður og hafi löngun til þess einnig
nú. Trúlega reynir það þá frekar
að kaupa hljómplötur, sem sagð-
ar eru tiltölulega ódýrari.
Auðvitað er trúlegt að afnám
söluskatts á bókum mundi
eitthvað örva sölu á þeim. En
hann er ekki frumorsök þess að
dregið hefur úr bókakaupum.
Hennar er að leita í efnahags-
þrengingum almennings.
Sjónvarp kl.22.10
Seyðisfjörður sóttur heim
Klimori7( IQóU KrnnAn Qinn. — — . , — —.——
Sumarið 1969 brugðu Sjón
varpsmenn sér austur á Seyðis-
fjörð, tóku myndir af staðnum og
kynntu sér mannlíf þar. Myndir
og frásögn af þessari för birtust
svo í Sjónvarpinu á þorranum
1970.
Seyðisfjarðarkaupstaður á sér
langa og merka sögu og bar á sínu
blómaskeiði höfuð og herðar yfir
aðra þéttbýlisstaði á Austur-
landi. Mikill athafna- og menn-
ingarbær. Verslun hófst á Seyðis-
firði 1843. Norðmaðurinn Otto
Wathne rak þar umfangsmikla
starfsemi um aldamótin síðustu.
Til Seyðisfjarðar lá fyrsti sæ-
síminn til íslands. Þar var prent-
smiðja (og er kannski enn) og
blaðaútgáfa um eitt skeið. Þar
störfuðu þeir m.a. að blaða-
mennsku Skafti ritstjóri Jóseps-
son, Þorsteinn Erlingsson skáld
og Guðmundur G. Hagalín rit-
höfundur.
bridge
Isafjarðargoöiö, Arnar Geir Hinriks-
son, haföi samband viö þáttinn og kom
eftirfarandi spili á framfæri. Það kom fyrir
í jólatvímenning hjá Bridgefél. Isafjarðar
fyrir skemmstu. Óneitanlega meö
skemmtilegri spilum: X X Axxxx 9XXXXX
D 10XXXXXX
KD10XXXX GXX
D109 GX
DX ÁKGX ÁX KXX ÁK10X X
Vestur opnaöi á 1 hjarta, Norður sagöi
2 grönd (láglitir), Austur pass og suður
sagöi 7 lauf (hraustir strákar fyrir vest-
an...). Suður var Siguröur Óskarsson.
Útspil Vesturs var spaöadrottning.
Sagnhafi drap á ás, lagði niðurtvo efstu í
laufi, síöan spaöakóng og gosa, svo tig-
ulkóng og ás og tók laufin í botn. Enda-
staöan var þessi:
X
X
9
KD
D
10
GX
X
ÁX
Þegar laufaníu er spilað, varö Austur
að henda hjarta, sagnhafi mátti þá missa
spaðann sinn og Vestur varö aö grýta
norninni í hjarta. Síðustu tveir slagirnir
fengust því á hjartaásinn og hundinn í
Suöri.
Nett spil, ekki satt?
Umsjónarmaður hvetur spilafólk aö
senda inn skemmtileg spil, þvi trúlega
hefur verið griþiö í spil um hátíðarnar vítt
um land.
Tikkanen
Sannleikurinn kemur í Ijós
þegar meira er upp úr honum
að hafa en öðrum upplýsingum.
Gœtum
tungunnar
A tslensku er „þú“ aðeins
sagt um þann sem talað er við,
en alls ekki þann sem talað er
um, þó að enska fornafnið
„you“ sé stundum notað á þann
hátt.
Umbœtur
á Heimilis-
tœkjadeild
Að undanförnu hefur verið
unnið að breytingum á rafbúð
Heimilisdeildar SIS að Ármúla
3. Að sögn Bjarna Olafssonar
deildarstjóra, er þeim nú lokið
Breytingarnar eru einkurn
því fólgnar, að skipulagi versl
unarinnar hefur verið breytt
þannig að aukið veggrými fæst
til útstillingar á stærri 'tækjum.
Útbúið hefur verið og afstúkað
sérstakt horn fyrir hljómflutn
ingstæki, videó- og sjónvarps
tæki. Þar geta viðskiptavinirnir
tyllt sér niður og athugað varn-
inginn í ró og næði. Þá hefur,
samvinnu við 3-K á Selfossi
verið sett upp glæsilegt eldhús
með þeim tækjum, sem á boð
stólum eru hjá deildinni. Sitt
hvað fleira setur skemmtilegan
og aðlaðandi svip á verslunina
svo sem ný ljósaskilti í útstill
ingarglugga o.fl.
-mhg