Þjóðviljinn - 04.01.1984, Page 16
DWDVIUINN
Miðvikudagur 4. janúar 1984
Aðalsími Þjóðviljans er B1333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum simum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins i sima 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Innflutningur íslenskra aðalverktaka
Allt þetta drasl á Vellinum
heyrir undir varnarmáladeild
segir Albert Guðmundsson - Hef ekki kynnt mér
málið ennþá, segir Geir Hallgrímsson.
„Allt þetta drasl uppá Velli heyrir undir varnarmála-
deild og því veit ég ekkert um málið“, sagði Albert
Guðmundsson fjármálaráðherra, aðspurður um toll-
frjálsan innflutningíslenskraaðalverktaka til landsins.
Albert er sem fjármálaráðherra yfírmaður tollgæslunn-
ar nema þeirrar sem er á Keflavíkurflugvelli, hún heyr-
ir undir varnarmáladeild.
hægt að safna þessum upplýs-
ingum saman og ég skal láta
gera það. Sennilega hafa menn
látið nægja að líta á hverja
Þegar Þjóðviljinn sneri sér til sendingu fyrir sig til aðalverk-
Geirs Hallgrímssonar, utan- taka og því liggja tölur um inn-
ríkisráðherra, yfirmanns þess- flutning ekki á einum stað“,
ara mála á Keflavíkurflugvelli, sagði Geir.
sagðist hann aðeins hafa lesið Eigendur íslenskra aðalverk-
fyrirsögnina á frétt Þjóðviljans taka eru Sameinaðir verktakar,
um málið og að hann hefði því sem eiga 50%, en það er hópur
ekki kynnt sér það. íslenskra fjármálamanna, Reg-
„Hitt er annað að sjálfsagt er inn h.f., sem á 25%, en það er
fjármálafyrirtæki nokkurra
Framsóknarmanna, og síðan á
íslenska ríkið 25%.
Það sem vekur mesta athygli
í sambandi við tollfríðindi fyrir-
tækisins er að það hefur notað
hinn mikla gróða sem það hefur
haft af starfsemi sinni á Kefla-
víkurflugvelli, notandi tollfrjáls
tæki og tól, til að fjárfesta utan
Vallarins í stærstu húsasam-
stæðu, sem til er í landinu í eigu
eins fyrirtækis. - S.dór.
„Timburmaður“ Steingríms:
Hálfs mánaðar
meíri vinna
að afla tekna fyrir mótatimbrinu
Verkamaður sem tekur
laun samkvæmt 11. taxta
Dagsbrúnar er rúmlega 72
klukkustundum lengur að
vinna fyrir sama magni af
timbri í dag en hann var í
maímánuði á síðasta ári.
Þetta kemur fram þegar
borin er saman verðþróun
á algengri tegund timburs
í samanburði við launa-
þróun í landinu síðan rík-
ilstjórn Steingríms Her-
mannssonar tók við völd-
um.
V:
1 umræðum í útvarpsþætti nú í
Vtjamni tiltók Steingrímur Her-
mannsson dæmi um árangur ríkis-
stjórnarinnar í baráttunni við ó-
stöðugt gengi og hækkandi verð-
lag. Timburkaupandi hefði vikið
sér að honum og þakkað sérstak-
lega fyrir að timburverð hafi staðið
í stað í krónutölu síðan um mitt sl.
ár.
Ef borin er saman verðþróun á
timbri í samanburði við þróun
tímakaups verkafólks kemur í ljós
að 9. maí í vor var Dagsbrúnar-
maður í 11. taxta 1.576.8 klukku-
stundir að vinna fyrir 4000 metrum
af 1x6 uppsláttartimbri. í dag væri
þessi sami maður 72 klukkustund-
um lengur að vinna fyrir sama
magni, eða hvorki meira né minna
en 1.649.4 klukkutíma. Hér er um
að ræða magn til að slá upp mótum
fyrir meðalraðhúsi.
- v.
Það er rétt hjá forsætisráðherra að verð á timbri hefur lítið hækkað síðasta hálfa árið. En launin hafa
lækkað á sama tíma sem þýðir að kaupandinn á þessari mynd og við rákumst á í gær, er hálfum mánuði
lengur að vinna fyrir timburstaflanum nú en hann var í maímánuði sl. - Ljósm.: eik.
Ceir vill hygla fyrirtœkjum með Fríhöfninni
-w—■————----------------------------------
s
Flugleiðir, Islenskur markaður eða
• • •
Athuga hvort fyrirtækin vilja yfirtaka
Fríhöfnina, segir utanríkisráðherrann
„Sá aðili sem yfirtæki starf-
semi Fríhafnarinnar yrði að
greiða fyrir það rekstrarleyfi,
þannig að til ríkissjóðs renni að
minnsta kosti jafnhá upphæð
eða hærri en er í myndinni að
óbreyttu starfsfyrirkomulagi“,
sagði Geir Hallgrímsson utan-
ríkisráðherra í samtali við
Þjóðviljann.
Þegar utanríkisráðherra tók
fyrstu skóflustunguna að nýrri flug-
stöð á Keflavíkurflugvelli lýsti
hann því yfir, að hagnaður af
rekstri Fríhafnarinnar gæti staðið
undir þeim lánum sem þyrfti að
taka vegna byggingarinnar. Nú
fyrir skömmu lýsti ráðherra því
hins vegar yfir að ríkið ætti ekki að
reka Fríhöfnina heldur selja hana.
„Það sem ég hef í huga er annað-
hvort útboð á starfrækslu Fríhafn-
arinnar eða samninga við aðila sem
áhuga sýndi og niðurstaða þeirra
samninga eða útboðs yrði að
tryggja í það minnsta jafn háar
tekjur og við gerum nú ráð fyrir að
fáist af Fríhöfninni", sagði Geir.
Þýðir það ekki að verðlag í Frí-
höfninni hækkar ef sá sem rekur
hana á að fá eitthvað fyrir sinn
snúð?
„Ég held að það sé ljóst að verð-
lag á vörum í Fríhöfninni hefur að-
hald að verðlagi í öðrum frí-
höfnum, gagnvart íslendingum
sem ferðast til og frá landinu. Þeir
myndu þá flytja sín Fríhafnarkaup
til annarra staða eða flugfélögin
myndu taka upp sölu í vaxandi
mæli um borð í vélunum eins og var
hér áður, ef verðlag hér yrði of
hátt.“
Má eiga von á tillögum frá þér á
þingi um sölu á Fríhöfninni?
„Það myndi ekki koma fram til-
laga um sölu á fyrirtækinu sem
slíku. Það sem ég er að láta kanna
er hvort hagkvæmt yrði að bjóða
reksturinn út ;öa gera samning við
annan aðila, Flugleiðir, íslenskan
markað eða einhvern annan aðila
um yfirtöku á rekstrinum gegn
gjaldi. Það er verið að kanna þessi
mál“, sagði utanrfkisráðherra.
- lg-
Verktakasamband Islands:
Hærri innflutningsgjöld en þekkjast annarsstaðar
„Það kom í ljós við könnun,
sem við létum framkvæma, að ís-
lenskir verktakar greiða hærri
gjöld af innfluttum tækjum til
starfscmi sinnar en þekkist hjá
sambærilegum aðilum í ná-
grannalöndum okkar“, sagði Ótt-
ar Örn Petersen, framkvæmda-
stjóri Verktakasambands ís-
lands, i samtali við Þjóðviijann í
gær.
Hann sagði að íslenskir aðal-
verktakar hefðu farið að keppa
við aðra íslenska verktaka þegar
Vesturlandsvegurinn var byggð-
ur og fengið þar ákveðið verk-
efni. Segja mætti að það hafi orð-
ið til þess að Verktakasamband
íslands varð til og síðan þá hafi
aðaiverktakar eingöngu unnið
innan Keflavíkurvallarsvæðisins,
enda væri annað algerlega óeðli-
legt, þar sem þeir greiddu ekki
toll af sínum tækjum.
Óttar Órn benti á að aðrar
atvinnugreinar, svo sem sjávarút-
vegur og landbúnaður, greiddu
mun lægri gjöld af þeim tækjum,
sem þær flyttu inn, heldur en
verktakar, sem væri að sjálfsögðu
í hæsta máta óeðlilegt.
- S.dór.