Þjóðviljinn - 21.02.1984, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 21.02.1984, Qupperneq 3
Þriðjudagur 21. febrúar 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 Heitt í kolunum í Straumsvík: Þaö hefur verið logið til í fjöl- miðlum um kjör okkar og vinnu- aðstæður. Ríkisstjórnin og stjórn ísal virðast ætla að nota okkur til þess að halda kaup- gjaldi niðri í landinu. Við vitum að þessi verksmiðja verður ónýt ef hún stoppar. En nú hef- ur verið gengið svo á okkar hlut að við höfum ekki hagsmuna að gæta lengur. Þessi verks- miðja er ekki rekin fyrir okkur. Því segjum við með bros á vör: Fariði bara, slökkviði bara á þessu. Stóriðja á íslandi verður ekki rekin í þeim tilgangi að halda almennu kaupgjaldi niðri í landinu og við munum ekki láta nota okkur til þess. „Þeir eru ekki stórhuga eða miklir fyrir sér þessir kollegar þínir á þinginu Mega slökkva okkar vegna sögðu starfsmenn álversins, er þeir tóku Ellert B. Schram í karphúsið fyrir fréttaflutning DV af kjaradeilunni í Straumsvík Þetta eru nokkur þeirra tilsvara sem blaðamaður Þjóðviljans fékk að heyra hjá starfsmönnum álvers- ins í Straumsvík í gær. Þar virðist nú hitna í kolunum í réttu hlutfalli við það sem dofnar á kerjunum, en þar hefur straumnotkunin nú verið lækkuð úr 103 kílóamperum niður í 96. Þannig vildi til, þegar blaðamað- ur Þjóðviljans kom á vettvang, að þar var einnig mættur Ellert B. Schram ritstjóri DV í sérstöku boði starfsmanna, en með því vildu þeir leiðrétta villandi skrif ritstjórans í DV um kaup og kjör starfsmanna við álverið og rangar upplýsingar hans um þær kaupkröfur sem starfsmenn í Straumsvík hafa gert. 14-17 þúsund á mánuði Ritstjóranum varð fátt um svör, þegar hann fékk að vita að starfs- menn álversins hefðu 14-17.000 krónur í mánaðaríaun fyrir 8 stunda vinnudag í þeirri mengun og heilsuspillandi umhverfi sem þessi vinnustaður býður uppá. Honum var tjáð að hér væru ekki greiddar neinar bætur vegna heilsuspillandi aðbúnaðar og að vaktaálag næmi einungis 24% eins og í hverri ann- arri vaktavinnu. „Við teljum okkur hafa siðferðilegan rétt til þess að fá lífvænleg laun fyrir 8 stunda vinnu- dag, svo að við þurfum ekki að vinna 16 og stórauka þar með hætt- una á atvinnusjúkdómum. Ef þeir telja sig ekki geta greitt slík laun, þá mega þeir eins vel loka“, sagði einn starfsmaður í kerskála, þar sem mengunin var nú svo mikil að blaðamanni Þjóðviljans súrnaði í augun af stuttri heimsókn. „Við þjáumst af sviða í nefi, hósta og tárarennsli“, sagði einn starfsmanna. „Þeir hafa þurft að setja sérstakar mengunarvarnir í kringum stimpilklukkuna til þess að hún gangi, en þeir geta ekki séð til þess að við fáum hreint loft.“ Hundtíkin og lífsviðurværið Ritstjóri Dagblaðsins fékk að heyra það að DV væri eins og ísal- tíðindi, það flytti bara boðskap forstjórans: Ykkur virðist það al- gjört aukaatriði hvort fyrirtækið geti borgað mannsæmandi laun - sem allir vita að Isal getur. Það er eins og eina viðmiðun ykkar í kjar- amálum sé hvað einstæð móðir þurfi mikinn framfærslueyri til að geta lifað... Þeir eru ekki stórhuga eða miklir fyrir sér þessir kollegar þínir á þinginu: á sama tíma og einn kemur eins og flóðhestur í útvarpið og lýsir því yfir að það séu landráð að borga okkur mannsæmandi laun og annar segist farinn heim í fýlu ef samið verði um meira en 4% kauphækkun, þá hóta þeir að hlaupast af landi brott missi þeir einhverja hundtík sem þegar er orðin aflóga að því er sagt er. Þetta eru mennirnir sem þykjast bera ábyrgð í þessu landi - og okkur er lýst sem ábyrgðarlausum ofstopa- mönnum fyrir það eitt að vilja sjá okkar fólki fyrir mannsæmandi lífs- viðurværi. ÍSAL og elliheimilið Á það var bent að hlutfall launakostnaðar hjá ísal væri ein- ungis 8% þar sem það væri 14% í sambærilegum verksmiðjum er- lendis, og því væri verksmiðjunni í lófa lagið að hækka launin um 50%. Eg skal bjóða þér heim og sýna þér launaseðlana mína, sagði einn starfsmanna í skautasmiðju, sem hefur unnið fyrir ísal í 10 ár. - Konan mín er í 80% vinnu hjá elli- heimilinu í Hafnarfirði en hún hef- ur meiri ráðstöfunartekjur en ég, þegar búið er að draga skattana frá. Það virðist ekkert tekið tillit til þess að við vinnum hjá erlendum vinnuveitanda, sagði annar. - Það er eins og við eigum hér í deilu við ríkisstjórnina. Hér voru einu sinni greidd betri laun en á almennum vinnumarkaði. Þá var ríkisvaldið ekki að blanda sér í okkar samning- amál, og báðir aðilar sömdu af ábyrgð. Okkur hefur yfirleitt gengið vel að semja við fyrirtækið. En nú hefur hefur eitthvað breyst. Þetta er í annað skiptið á 15 árum sem okkar samningar fara fyrir sáttasemjara. Raforkuverð og launakostnaður Hver er munurinn á því hvort launahækkun verði hér eða hjá General Motors? Þetta eru hvort tveggja erlendir auðhringar, þeir framleiða Blazer-bíla, við fram- leiðum ál. Ekki er ríkisstjórnin að skipta sér af því þótt aðrir starfs- hópar íslenskir sem vinna hjá er- lendum aðilum fái launahækkanir. Það ætti bara að þýða auknar tekj- ur fyrir þjóðarbúið. Launakostn- aður þeirra minnkaði í dollurum um 131 miljón krónur á síðasta ári. Það er von að þeir gætu boðið ríkis- stjórninni 114 miljónir í hærra raf- orkuverð. Er það kannski þetta sem hangir á spýtunni? Er veriö að láta okkur greiða niður raforku- verðið? Fordæmið í ábyrgðartilfinningu Hvert er svo fordæmið sem þess- ir stjórnarherrar sýna okkur í hóf- semi og ábyrgðartilfinningu? spurðu starfsmenn í skautsmiðju. Jú, þessir starfsfélagar þínir aka um í fínum bflum og gorta af því. Sverrir Hermannsson, sem kallar okkur hátekjumenn gerir grín að Blasernum hans Steingríms og seg- ist sjálfur hafa haft vit á því að kaupa sér Range Rover fyrir al- mannafé. En þetta er ekkert hlægi- legt. Með sömu ábyrgðartilfinn- ingu gætum við álhúðað skautkerin hér og eldað síðan í þeim grjóna- graut handa allri þjóðinni þar sem það væri svo þjóðhagslega hag- kvæmt. Þannig létu starfsmenn álversins dæluna ganga yfir Ellert B. Schram ritstjóra DV í gærdag. Eins og gef- ur að skilja varð ritstjóranum fátt um svör. Hann hafði þó kjark í sér til þess að standa við þá skoðun sína að sér fyndist kaupkröfur starfsmanna óraunhæfar og ekki í samræmi við stefnu ríkisstjórnar- innar. Undirbúa iokun Eins og fram hefur komið í frétt- um hefur ekkert þokast í samning- aátt í heila viku. Sáttafundur stóð í allan gærdag og sagði Örn Frið- riksson að ekkert hefði gerst á fundinum seinnipartinn í gær. „Svo virðist sem þeir hafi aldrei ætlað sér að semja, og menn hljóta nú að búa sig undir það að loka verksmiðj- unni á næstunni." Við spurðum Örn hvort hann teldi að ríkisstjórnin væri með höndina í samningunum. „Það má vel vera að hún sé með puttana í þessu," sagði Örn. „Sú ákvörðun að minnka strauminn á kerunum var túlkuð af okkar mönnum þann- ig að ekki væri stefnt að því að semja. Það virðist nú vera að koma á daginn að sú túlkun var rétt.“ Jakob Möller fulltrúi verksmiðj- ustjórnarinnar í samningunum sagði í gær að ágreiningurinn stæði urri tilboð verksmiðjunnar um 3% bráðabirgðahækkun á móti 7% kröfu starfsmanna. Hann neitaði því að ríkisstjórnin væri með putt- ana í þessu og taldi alrangt að ísal stæði gegn því að semja. „Það virð- ist komast til til skila hjá starfs- mönnum um hvað deila þessi stendur", sagði Jakob að lokum. ólg. ®)Verkamannafélagið WDAGSBRUN ÁRÍÐANDI FÉLAGSFUNDUR Áríðandi fundur um samningamálin verður haldinn í Austurbæjarbíó, fimmtudaginn 23. febrúar kl. 17. Á fundinum verður skýrð staðan í samning- amálunum og tekin ákvörðun um afstöðu Dagsbrúnar. Stjórnin skorar á alla félaga að koma beint af vinnustað á fundinn. Stjórn Dagsbrúnar.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.