Þjóðviljinn - 21.02.1984, Blaðsíða 10
14 SIÐA — ÞJOÐVILJINN Þriðjudagur 21. febrúar 1984
Könnun Neytendafélags Akureyrar:
J
Matvara hefur hækkað
um 37%
en kaup aðeins um 12 prósent
Matvara hefur hækkaö að
meðaltali um 36,9 prósentfrá
því í maí í fyrra, en á sama tíma
hefur kaupgjald hækkað um
aðeins 12 prósent. Þetta þýðir,
að heimilin í landinu vantar um
25 prósent eða fjórðung upp á
að þau geti keypt sömu mat-
vöru nú og þau gátu í maí í fyrra
miðað við sama kauptaxta og
sama vinnutíma.
Þessar upplýsingar má lesa úr
könnun, sem Neytendafélag Akur-
eyrar og nágrennis hefur látið gera
á vöruverði í nokkrum verslunum á
Akureyri og hjá KEA á Grenivík
og KSÞ á Svalbarðseyri. Verð-
könnunin fór fram dagana 1. og 2.
febrúar sl., en Neytendafélagið
hafði gert sams konar könnun í
sömu verslunum hinn 9. maí í
fyrra. Kannað var verð á sömu
vörum í báðum tilfellum. Séu þess-
ar tvær kannanir bornar saman
kemur ofangreind niðurstaða í
ljós: þessi matvara hefur hækkað
um fjórðung umfram kaupgjald.
Mest hœkkun á
kjúklingum og eggjum
Við reiknuðum út meðalverð á
þeim vörutegunum, sem fengust í
sex verslunum eða fleiri af þessum
átta, sem NAN tók fyrir. Meðal-
verðið náði til beggja kannananna.
Þá kemur í Ijós, að kjúklingar hafa
hækkað mest í verði, eða um 75,6
prósent. Verð á kjúklingum er
nokkuð misjafnt í þessum verslun-
um. í maí var kílóið ódýrast hjá
KEA Hrísalundi á Akureyri og
kostaði þá 99 krónur. Nú kostar
það hins vegar 140 krónur, en kí-
lóið er ennþá ódýrast þar. KEA
Sunnuhlíð selur kflóið einnig á 140
krónur. Dýrustu kjúklingana er að
fá hjá KEA í Strandgötu og hjá
KEA á Grenivík, en á þessum
stöðum kostar það 155 krónur.
Næstmest hefur hækkunin orðið
á eggjum. Þau hafa hækkað um
60,3 prósent frá því í maí í fyrra.
Hafnarbúðin á Akureyri selur kí-
lóið ódýrast núna, eða á krónur 98.
Flestar verslanir selja kflóið á 99
krónur en KEA á Strandgötu og á
Grenivík selja kflóið á 115 krónur.
Verðlœkkun
á appelsínum
Appelsínur hafa lækkað í verði
frá því í maí í fyrra. Meðalverðið á
appelsínum var þá 46,20 krónur kí-
lóið en var nú 42,44 krónur kflóið.
Þetta varlækkun uppá8,l prósent.
Þetta er meðaltal, en misjafnt var
hvað appelsínur höfðu lækkað í
hinum einstöku verslunum. Má
nefna sem dæmi, að appelsínur
höfðu lækkað í hinum einstöku
verslunum. Má nefna sem dæmi,
að appelsínur höfðu lækkað úr
38,40 krónur kflóið hjá Hag-
kaupum í 29,75 krónur, hjá KEA
Sunnuhlíð höfðu þær lækkað úr
krónum 46,80 krónur í 44,80 og hjá
Búrinu höfðu appelsínur lækkað úr
krónum 58,30 kflóið í krónur
50,90.
Við teiknuðum súlurit af nokkr- maí j 1983 - febrúar 1984. Súluritið ræddu tímabili - á sama tíma og
um af þessum vörum og meðal- sýnir glögglega hinar miklu verð- kaupgjaldhefuraðeinshækkaðum
hækkun á verði þeirra á tímabilinu hækkanir sem orðið hafa á um- 12 prósent. Bilið er 25 prósent.
Flóamannajógúrtin hefur lækkað í verði vegna niðurfellingar aðflutningsgjalda á ávöxtum, sem notaðir eru
til jógúrtgerðarinnar. Samtímis kemur á markaðinn svokölluð léttjógúrt með tefjum og léttjógúrt með
rabarbara.
Verðlækkun á
Flóamannaj ógúrt
Mjólkurbú Flóamanna hefur
lækkað verðið á jógúrtinni sinni
og kosta nú lítil box krónur 13,50
(180 g) og þau stóru 29,90 (500
g). Er þá Flóabúsjógúrtin orðin
litlu dýrari en Húsavíkurjógúrt-
in, en 500 gramma box af henni,
sem Hagkaup selur, kosta nú
29,60 eða 30 aurum meira.
Verðlækkun þessi stafar af því
að fjármálaráðuneytið hefur fellt
niður toll og vörugjald af ávöxt-
um, sem notaðir eru í jógúrt, til
samræmis við niðurfellingu að-
flutningsgjalda af ávöxtum til
grautarframleiðslu.
Mjólkurbú Flóamanna lætur
nú á markað nýja tegund af jó-
gúrt, svokallaða léttjógúrt, en
hún er framleidd úr léttmjólk í
stað nýmjólkur og því að sama
skapi fituminni. Þessi jógúrt er
tvenns konar: með trefjum og
með rabarbara. Hún er í 500 g
femum (eins og Húsavíkurjóg-
úrtin eða svipuðum) og kostar
feman 26 krónur.