Þjóðviljinn - 21.02.1984, Síða 14
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 21. febrúar 1984
óawatikadufi
Htjóðfæri til sölu
góður og vel með farinn gítar-
magnari, 100 W HH, einnig
Yamaha rafmagnsgítar og 6
strengja kassagítar. Sláið á
þráðinn, sími 38748, Gunnar.
Til sölu
i 1. Nýlegt R.B. prinsessurúm
1x2 5.000 kr., nýtt kostar það
' 8.395 kr.
2. Atlas-frystikista 310 L með
hraðfrystihólfi, Ijósi og læsingu
9.000 kr.
3. Fjaðradýna frá Ragnari
Björnssyni 80x1.90, 2.000 kr.
Báðar með alullaráklæði.
4. Svampdýna frá Pétri Snæ-
land, 80x1.90 2.000 kr.
Dönsk eikarrúmgrind 80x1.90,
gölluð, fæst gefins.
Upplýsingar í síma 12829, e.kl.
17. Edda.
Til sölu
mjög góður vatnskassi í vörubíl
Mercedes-Benz týpa 1113-
eða 1313 sama hvort er. Mjög
góður kassi, selst á hálfvirði.
Upplýsingar í síma 1577 í
Vestmannaeyjum, Bjarni Guð-
mundsson.
Vantar
lítinn góðan ísskáp, og rúm-
góða kommóðu. Upplýsingar í
síma 46945. E.H.
Laghentur maður
Mig vantar smávægilega að-
stoð á litlu heimili t,d, viö að
laga barnarúm. Greiðla kemur
til greina í vinnuskiptum svo
sem í fataviögerðum. Upplýs-
l ingar í síma 30184.
Eldavélasamstæða
Husquarna — fjórar plötur og
stakur ofn til sölu. Nýuppgerð í
toppstandi. Upplýsingar í síma
18054 á kvöldin.
:Ungan mann
| vantar íbúð eða pláss fyrir
vinnustofu. Skilvíslegar
greiðslur. Upplýsingar í síma
12324.
Til sölu notuð Rafhaeldavél
Uppl. í síma 44473.
SOS!
Ég er að fara í stúdentspróf í
basic-forritun og bráðvantar
aukatíma, strax.
Getur einhver hjálpað mér?
Ingibjörg sími 13037?
Gardinur
til sölu (stóriss)
Góðar og ódýrar. Upplýsingar í
síma 16624 e.kl. 18.
Óskast keypt
tvíbreiður sófi. Upplýsingar í
síma 78422 e.kl. 17.
Óskast keypt
eldhúsborð úr tré og 2 - 4 koll-
ar. Einnig óskast sófasett alból-
strað, áklæði má vera lélegt en
stopp þarf að vera í lagi. Upp-
lýsingar í síma 31227.
Eg er að flytja til landsins
og vantar innbú.
Ég á þó gólfteppi vel með farin
1.25x4 og 8x4. Ef þú átt hús-
gögn, sófa eða annað sem þú
vilt losna við á lágu verði eða í
skiptum við teppin mín, vinsam-
lega hringdu þá í 78722 í kvöld.
Barnarúm
í ágætu standi fæst gefins, sími
19936.
Til sölu
Svartir Scala skór og góð ferm-
ingarföt (drengja). Upplýsingar
í síma 42109.
Til sölu
kvenmokkajakki, lítið númer,
sími 77257.
Óskast keypt
Erum að flytja í skápalausa íbúð
og bráðvantar rúmgóðan fata-
skáp á sanngjörnu verði. Upp-
lýsingar í símum 45747 og
13728.
Hjúkrunarfræðingur
óskar eftir lítilli íbúð, góð um-
gengni og öruggum greiðslum
heitið. Upplýsingar í síma
16408 e.kl. 18.
Bókaskápur
til sölu. Upplýsingar í síma
84908.
Barngóður unglingur
eða fullorðin kona óskast til að
gæta Maríu sem er 1 árs, 2 eftir-
miðdaga í viku á Sólvallagötu.
Upplýsingar í síma 27180.
Til sölu
hjónarúm með náttborðum,
kollum og snyrtiborði. Upplýs-,
ingar í síma 16796 í dag og
næstu daga.
Óskast keypt
loftpressa 300 mín/L loftdæla.
Upplýsingar í síma 66698.
Þarf einhver
að losna við svart-hvítt sjón-
varp (meö UFH) Mig bráðvant-
ar eitt.
Upplýsingar í síma 13047 e.kl.
7.
Lopapeysur til sölu
, Uppl. í síma 41639.
Styrkir til sérfræðiþjálfunar í Bretlandi
Samtök breskra iðnrekenda, Confederation of British Indu-
stry, veita árlega nokkra styrki til þjálfunar á vegum iðnfyrir-
tækja í Bretlandi. íslendingum gefst kostur á að sækja um
slíka styrki fyrir tímabilið 1984-85, en ekki er vitað fyrirfram
hvort styrkur kemur í hlut íslands að þessu sinni. Umsækj-
endur skulu hafa lokið fullnaðarprófi i verkfræði eða tækni-
fræði og hafa næga kunnáttu í enskri tungu. Þeir skulu að
jafnaði ekki vera eldri en 35 ára. Um er að ræða tvenns
konar styrki: Annars vegar fyrir menn sem hafa starfað 1-4
ár að loknu prófi en hafa hug á að afla sér hagnýtrar starfs-
reynslu í Bretlandi. Eru þeir styrkir veittir til 1-1V2 árs og
nema 291 sterlingspundi á mánuði, auk þess sem að öðru
jöfnu er greiddur ferðakostnaður til og frá Bretlandi. Hins
vegar eru styrkir ætlaðir mönnum, sem ekki hafa minna en 5
ára starfsreynslu að loknu prófi og hafa hug á að afla sér
þjálfunar á sérgreindu tæknisviði. Þeir styrkir eru veittir til 4 -
12 mánaða og nema 364 sterlingspundum á mánuði en
ferðakostnaður er ekki greiddur - .
Umsóknir á tilskildum eyðublöðum skulu hafa borist
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,101 Reykjavík, fyrir
25. mars n.k. Umsóknareyðublöð, ásamt nánari upplýsing-
um um styrkina fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
15. febrúar 1983.
ÓDÝRARI
barnaföt
bleyjur
leikföng
leikhús • kvikmyndahús
íf^ÞJÓÐLEIKHÚSIfi
Amma þó
FRUMSÝNING MIÐVIKUDAG
KL. 18.
laugardag kl. 15.
Sveyk í síðari
heimsstyrjöldinni
5. sýn. fimmtudag kl. 20.
6. sýn. föstudag kl. 20.
Skvaldur
laugardag kl. 20.
Skvaldur
miðnætursýning laugardag kl.
23.30.
Litla sviðið
Lokaæfing
I kvöld kl. 20.30. Uppselt.
miðvikudag kl. 20.30.
Fáar sýningar eftir.
Miðasala frá 13.15 til 20.
Sími 11200.
LKIKFKIAG
KIIYKjAVÍKUR
<9j<B
Hþ
Gísl
miðvikudag kl. 20.30,
fimmtudag kl. 20.30,
föstudag kl. 20.30. Uppselt.
Guð gaf mér eyra
laugardag kl. 20.30.
Fáar sýningar eftir.
Hart í bak
sunnudag kl. 20.30.
Fáar sýningar eftir.
Miðasala í Iðnó frá kl. 14 -19.
Sími16620.
PP|I
íslenska óperan
Síminn og
Miðillinn
í kvöld kl. 20
laugardag kl. 20.
Aðeins þessar 2 sýningar.
Örkin hans Nóa
miðvikudag kl. 17.30
fimmtudag kl. 17.30.
Rakarinn
í Sevilla
föstudag kl. 20.
La Traviata
sunnudag kl. 20.
Fáar sýningar eftir.
Miðasala er opin frá 15 - 19
nema sýningardaga til kl. 20.
Sími 11475.
flUSTURBÆJARRiíl
Nýjasta kvikmynd Brooke Shields:
Sahara
Sérstaklega spennandi og óvenju
viðburðarík, ný bandarísk kvik-
mynd í litum og Cinema Scope er
fjallar um Sahara-rallið 1929.
Aðalhlutverkið leikur hin óhemju
vinsæla leikkona Brooke Shields
ásamt Horst Buchholtz.
isl. texti.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
kvo*d og twtymwi »» nw
SIMI: 1 89 36
Salur A
Martin Guerre
snýr aftur
Ný frönsk mynd, með ensku tali,
sem hlotið hefur mikla athygli víða
um heim og m.a. fengið þrenn
Cesars-verðlaun.
Sagan af Martin Guerre og konu
hans Bertrande de Rols, er sönn.
Hún hófst í þorpinu Artigat í frönsku
Pýreneafjöllunum árið 1542 og
hefur æ síðan vakið bæði hrifningu
og furðu heimspekinga, sagnfræð-
inga og rithöfunda. Dómarinn í máli
Martins Guerre, Jean de Coras,
hreifst svo mjög af því sem hann sá
og heyrði, að hann skráði söguna
til varðveislu. Leikstjóri: Daniel
Vigne. Aðalhlutverk: Gérard De-
Pardieu, Nathalie Baye.
Islenskur texti.
Sýndkl. 5 5.05, 7 og 11.05.
Salur B
Nú harðnar í ári
Cheech og Chong snargeggjaðir
að vanda og í algeru banastuði.
islenskur texti.
Sýnd kl. '5,9 og 11.
Bláa Þruman.
(Blue Thunder)
Islenskur texti.
Æsispennandi ný bandarísk stór-
mynd í litum. Pessi mynd var ein sú
vinsælasta sem frumsýnd var sl.
sumar í Bandaríkjunum og Evrópu.
Leikstjóri: John Badham. Aðal-
hlutverk: Roy Scheider, Warren
Oats, Malcholm McDowell,
Candy Clark.
Sýnd kl. 7.
Hækkað verð.
SÍMI: 2 2f 40
Hrafninn
flýgur
.... outstanding effort in combining
history and cinematography. One
can say: „These images will survi-
ve...“
úr umsögn frá
Dómnefnd Berlínarhátíðarinnar.
Myndin sem auglýsir sig sjálf.
Spurðu þá sem hafa séð hana.
Aðalhlutverk: Edda Björgvins-
dóttir, Egill Ólafsson, Flosi Ól-
afsson. Helgi Skúlason, Jakob
Þór Einarss.
Mynd með pottþétt hljóð
í Dolbystereo
Sýndkl. 5, 7og9.
TÓNABÍÓ
SIMI 31182
Eltu refinn
(After the Fox)
Óhætt er að fullyrða að í samein-
ingu hefur grínleikaranum Peter
Sellers, handritahöfundinum Neil
Simon og leikstjóranum Vittorio
DeSica tekist að gera eina bestu
grínmynd allra tíma.
Leikstjóri: Vittorio DeSica.
Aðalhlutverk: Peter Sellers, Britt
Ekland, Martin Balsam.
Sýnd kl. 5, 7.05 og 9.10.
ÍONBOOUI
cr 19 ooö
FRUMSÝNING:
Götustrákarnir
Afar spennandi og vel gerð ný
ensk-bandarísk litmynd, um hrika-
leg örlög götudrengja í Chicago,
með Sean Penn - Reni Santoni -
Jim Moody. Leikstjóri: Rick Ros-
enthal.
Islenskur texti.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 3 - 5,30 - 9 og 11,15.
Ég lifi
Stórbrotin og spennandi litmynd,
eftir metsölubók Martins Gray,
með Mlchael York og Birgitte
Fossey.
Islenskur texti.
Sýnd kl. 9.05
Hver vill gæta
barna minna?
Raunsæ og afar áhrifamikil kvik-
mynd, sem lætur engan ósnortinn.
Dauðvona 10 barna móðir stendur
frammi fyrir þeirri staðreynd að
þurfa að finna börnum sínum ann-
að heimili. Leikstjóri: John Erman.
Sýnd kl. 3.10, 5.10 7.10, 9.10 og
11.10.
Fljótandi himinn
Afar sérstæð og frumleg nýbylgju
ævintýra gamanmynd með Anne
Carlisle og Paula Sheppard.
Leikstj. Slava Tsukerman.
Sýnd kl. 3.05, 5.05 og 7.05.
Octopussy
„Allra tima toppur, James Bond"
með Roger Moore. Leikstjóri:
John Glenn.
Islenskur texti.
Sýnd kl. 3,10 - 5,40 - 9 og 11,15.
Skilaboð
til Söndru
Ný islensk kvikmynd eftir skáld-
sögu Jökuls Jakobssonar. Aðal-
hlutverk: Bessi Bjarnason.
Sýndkl. 7.15, 9.15 og 11.15.
Ferðir Gúllivers
Bráðskemmtileg teiknimynd í
litum.
Sýndkl. 3.15 og 5.15.
Bráðsmellin ný bandarísk gaman-
mynd frá MGM eftir Blake
Edwards, höfund myndanna um
„Bleika Pardusinn" og margarfleiri
úrvalsmynda. Myndin er tekin og
sýnd 14ra rása Dolby Stereo. Tón-
list: Henry Mancini. Aðalhlutverk:
Julie Andrews, James Garner og
Robert Preston.
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Hækkað verð.
LAUGARÁS
B I O
Simsvar 1
32075
Cheech og
Chong’s
næsta mynd
Síðasta tækifæri að sjá þessa frá-
bæru gamanmynd með vinsæl-
ustu gamanleikurum seinni ára.
Endursýnd í nokkra daga.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Looker
Sakamálamynd með James Co-
burn.
Sýnd kl. 11.
Eyvindur Erlendsson og
Guðmundur Ingólfsson
fimmtudag kl. 20.30
Brecht söngvar
laugardag kl. 20.30
í Félagsstofnun stúdenta.
Veitingasala.
Miðapantanir í síma 22590 og
17017.
5&u*
SIMI 78900
Salur 1
Cujo
Splunkuný og jafnframt stórkost-
leg mynd gerð eftir sögu Stephen
King. Bókin um Cujo hefur verið
gefin út í miljónum eintaka víðs
vegar um heim og er mest selda
bók Kings. Cujo er kjörin mynd fyrir
þá sem unna góðum og vel gerð-
um spennumyndum.
Aðalhlutverk: Dee Wallace,
Christopher Stone, Daniel
Hugh-Kelly, Danny Pintauro.
Leikstjóri: Lewis Teague.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Hækkað verð.
Saiur 2
Daginn eftir
(The Day After)
Heimsfræg og margumtöluð stór-
mynd sem sett hefur allt á annan
endann þar sem hún hefur verið
sýnd. Fáar myndir hafa fengið eins
mikla umfjöllun í fjölmiðlum, og
vakið eins mikla athygli eins og
The Day Atter. Myndin er tekin í
Kansas City þar sem aðalstöðvar
Bandaríkjanna eru. Þeir senda
kjarnorkuflaug ti| Sovétríkjanna
sem svara I sömu mynt.
Aðalhlutverk: Jason Robards,
Jobeth Williams, John Cullum,
John Lithgow. Leikstjóri: Nicho-
las Meyer.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Sýnd kl. 5 7.30 og 10.
Ath. breyttan synmgartima.
Hækkað verð.
Salur 3
NÝJASTA JAMES BOND-MYNDIN
Segöu aldrei
aftur aldrei
Hinn raunverulegi James Bond er
mættur aftur til leiks í hinnisplunku-
nýju mynd Never say never again.
Spenna og grín í hámarki. Spectra
með erkióvininn Blofeld verður að
stöðva, og hver getur það nema
James Bond? Engin Bond-mynd
hefur slegið eins rækilega í gegn
við opnun I Bandaríkjunum eins og
Never say never again. Aðalhlutv.:
Sean Connery, Klaus Maria
Brandauer, Barbara Carrera,
Max von Sydow, Kim Basinger,
Edward Fox sem „M“. Byggð á
sögu: Kevin McClory, lan
Flemming. Framleiðandi: Jack
Schwartzman. Leikstjóri: Irvin
Kershner.
Myndin er tekin í Dolbv stereo.
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Hækkað verð.
Salur 4
Skógarlíf og
jólasyrpa Mikka
mús
Sýnd kl. 5.
La Traviata
Heimsfræg og splunkuný stór-
mynd um hina frægu óperu Verdis
La Traviata. Myndin hefur farið
sigurför hvar sem hún hefur verið
sýnd.
Aðalhlutverk: Placido Domingo,
Teresa Stratas, Cornell Macnell,
Allan Monk.
Leikstjóri: Franco Zeffirelli.
Myndin er tekin i Dolby stereo
Sýnd kl. 7.
Hækkað verð.
Njósnari
leyniþjón-
ustunnar
Sýnd kl. 9 og 11.
Áskriftarsími
81333