Þjóðviljinn - 21.02.1984, Side 16
mmii/mí Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til töstudags. Utan þess tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra startsmenn blaðsins í þessum simum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
Þriðjudagur 21. febrúar 1984 | 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins i síma 81663. Prentsmiöjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Vopnuð „víkingasveit“ kölluð út vegna bankaránsins:
Versta tilfellið
fram að bessu
segir Arnór
Sigurjónsson
þjálfari
sérsveitar
lögreglunnar
„Sérsveitin aðstoðaði við
ákveðna þætti leitarinnar
að ræningjanum, m.a. þar
sem hundur var látinn
fylgja eftir slóð í Brautar-
holti og nágrenni" sagði
Arnór Sigurjónsson að-
stoðaryfirlögregluþjónn,
sem sér um þjálfun sér-
sveitarinnar, við Þjóðvilj-
ann í gær.
Þegar vopnað rán var framið á
föstudagskvöldið var allt lögreglu-
lið borgarinnar kallað út, þar á
meðal sérsveitin, sem er hópur va-
skra manna sérþjálfaðra til að
meðhöndla vopnaða afbrotamenn.
Þjóðviljinn leitaði til Arnórs Sig-
urjónssonar eftir upplýsingum um
vinnubrögð og þjálfun sveitarinn-
ar.
Arnór Sigurjónsson þjálfari Sér-
sveitarinnar.
Arnór sagði að útkallið á föstu-
daginn hefði ekki verið hið fyrsta
sem sveitin hefði fengið, en það
hefur ekki komið alvarlegra mál
upp.
„Sérsveitarmenn eru valdir úr
hópi lögreglunnar og er farið eftir
líkamlegum og andlegum styrk
manna og hvort þeir eru tilbúnir til
að fara gegnum þá þjálfun sem
krafist er. Lögreglustjórinn í
Reykjavík ákvarðar valið. Hingað
til hefur enginn neitað kalli en
nokkrir hætt á meðan á æfingum
hefur staðið.“
„Fyrirmyndir og hugmyndir höf-
um við sótt til landa sem hafa mesta
reynslu í þessum efnum og þar fyrir
utan höfum við endurbætt og að-
lagað þessar hugmyndir íslenskum
aðstæðum og bætt við þær ýmsu
sem við teljum gagnlegt" sagði
Arnór Sigurjónsson sem hefur séð
um þjálfun sérsveitarinnar. Hann
vildi alls ekkert segja um þjálfun-
ina að öðru leyti en því, að hún væri
erfið bæði andlega og líkamlega,
enda markmiðið að þjálfa útvalinn
hóp lögreglumanna í að einangra,
handtaka eða yfirbuga vopnaða af-
brotamenn sem ógna lífi borga-
ranna.
Sérsveitin þurfti mjög skamman
tíma til að komast á vettvang á
föstudaginn sem og endranær, en
af leitinni að ræningjanum er ekk-
ert að frétta að sögn Njarðar Snæ-
hólms rannsóknarlögreglumanns.
jp
Lögreglumaður Sérsveitarinnar að störfum. Ljósm. eik.
0 I J
Stjarnan Garðabæ í úrslita-
keppnina í handknattleik:
„Eigum
möguleika“
„Það er frábært að vera komnir í
úrslitakeppnina um meistaratit-
ilinn, og eins gott að sleppa við
fallkeppnina. Eftir 14 leiki á sjö
mánuðum er ömurlegt, hreinasta
húmbúkk, að fara síðan í
fallkeppni þar sem úrslitin eru
ráðin fyrirfram. Nú höfum við 5-6
vikur til undirbúnings fyrir úrslit-
akeppnina, þær verðum við að
nota vel og sjá síðan hvað setur.
Þegar hún hefst eiga öll liðin jafna
Fögnuður í Laugardalshöllinni -
Garðbæingar komnir { úrslita-
keppnina annað árið í röð. Mynd:
-cik
möguleika, við ekki síður en aðr-
ir,“ sagði Eyjólfur Bragason,
handknattleiksmaður úr Stjörn-
unni, sem í fyrrakvöld tryggði sér
sæti í úrslitakeppninni um Islands-
meistaratitilinn í handknattleik
karla með því að vinna Þrótt 25-21 í
Laugardalshöllinni. Auk Stjörn-
unnar leika þar FH, Valur og Vík-
ingur en keppnin hefst í endaðan
mars.
-VS
Nánar á
íþróttasíðum
Hárgreiðslunemi með 4.970 krónur í mánaðarlaun segir frá:
ÞAÐ ERU ALLIR HRÆDDIR!
- Það cru allir hræddir um að vcrða
rcknir, sagði ungur nemi í hár-
greiðslu, sem hefur 4.970 krónur í
mánaðarlaun, en mcistarar í hár-
greiðslu hafa neitað að grciða svo
mikið sem lágmarkslaun. Um 200
nemar eru látnir sæta þessum afar-
kostum. Hárgreiðsluneminn sagði í
viðtali við Þjóðviljann í gær:
- Eg hóf námið fyrir nokkrum mán-
uðum og var sett á svokailaðn
reynslutíma. Eftir að reynslutíma lýk-
ur ciga nemar að fá samning, en það
gengur erfiðlega á stundum að fá
hann uppí hendurnar. Þannig hef ég
frétt af mörgum nemum sem beðið
hafa árangurslaust mánuðum saman
eftir samningi. Meistararnir nota
nemana sem varaskeifur sem þeir
geta hent frá sér þegar þeim hentar.
Eg veit af netnum sem fengu upp-
sagnarbréf eftir að hafa beðið eftir
'samningnum lengi. r-
- Auðvitað lifi ég ekki af tæpum 5
þúsund krónum á mánuði. Ég hafði
lengi aukavinnu og leigði íbúð mcð
vinkonu minni. lbúðin kostaði 7 þús-
und á mánuði og nú höfum við misst
hana. Síðan hef ég hvergi haft aðset-
ur, heldur fæ að liggja inni hjá vinum
mínum og kunningjum. Ég er þannig
algerlega uppá náð og miskunn ann-
arra kominn með mat og gistingu.
Stundum veit ég ekki hvar ég fæ að
borða eða hvar ég fæ að sofa þegar ég
fer úr vinnunni á kvöldin.
- Nemarnir virðast vera algerlega
réttindalausir. Við fáum enga launa-
miða. það er ckki greitt í lífeyrissjóð
fyrir okkur og við búurn við algert
öryggisleysi í atvinnumálum. A hár-
greiðslustofunum erum við látin
vinna öll verk. Við erum látin ganga í
verk meistaranna en auk þess eru
inargir nemar einsog t.d. á minni
stofu, látnir ræsta, þvo handklæðin og
þcss háttar.
- Nei, við fáum enga yfirvinnu
greidda, en hins vegar vinnum við
kauplaust á laugardögum. Mér er
heldur ekki kunnugt um neinn nema í
Reykjavík sem fær greidd lágmarks-
laun, þannig að samstaðan hjá
meisturunum er býsna góð. Hins vcg-
ar heyrist lítið frá nemunum sjálfum.
Það er af því aö það eru allir hræddir
um að verða reknir, sagði hár-
greiðsluneminn að lokum.
-óg