Þjóðviljinn - 08.03.1984, Side 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 8. mars 1984
Alþjólegur baráttudagur kvenna í dag
Munið
baráttu-
fundinn
í kvöld
í dag, 8. mars, á alþjóölegum baráttudegi kvenna
gangast átta kvennasamtök í Reykjavík fyrir opn-
um baráttufundi í Félagsstofnun stúdenta. Fundur-
inn hefst kl. 20.30 og að honum standa Kvenna-
framboðið, Kvennalistinn, Miðstöð kvenna í Al-
þýðubandalaginu, Landssamband Framsóknar-
kvenna, Samband Alþýðuflokkskvenna, Konur úr
Bandalagi jafnaðarmanna, Samtök kvenna á vinn-
umarkaðnum og Menningar- og friðarsamtök ís-
lenskra kvenna.
Dagskrá fundarins er sem
hér segir: 1. Félagar úr Stúd-
entaleikhúsinu flytja söngva
eftir Bertolt Brecht, 2. Ávarp
fundarins flutt, 3. Edga Velés
frá Nicaragua flytur ávarp, 4.
Kvennahljómsveitin „Dúkku-
lísurnar“, Kaffihlé. 5. Brot úr
leikriti Nínu Bjarkar Árnadótt-
ur: „Súkkulaði handa Silju“, 6.
Ræða: Guðfinna Friðriksdóttir
verkakona, 7. Afmæli Ella:
Edda Björgvinsdóttir og Helga
Thorberg koma í heimsókn og
8. Kvennasönghópurinn leiðir
fjöldasöng.
Fundarstjórar verða þær
Ásthildur Ölafsdóttir og Ingi-
björg Hafstað.
í ávarpi fundarins er bent á
hið hrikalega misrétti kynjanna
sem blasir við hvert sem litið er.
í stjórnmálaflokkum, flestum
félagasamtökum, verkalýðs-
hreyfingunni og á vinnustöðum
eru það karlar sem sit j a nær ein-
ir að völdum, efstu launaflokk-
um, bílastyrkjum og öðrum
fríðindum. Pá er og undirstrik-
að að nýgerðir kjarasamningar
færi ekki konur nær launa-
jafnrétti og að kaupráns- og
niðurskurðarstefna stjórnvalda
bitni harðast á konum vegna
þess að það séu fyrst og fremst
konur sem skipi láglaunastétt-
irnar. Konur eru að lokum
hvattar til samstöðu og að
varpa af sér aldagömlu helsi
forsjár og kúgunar.
Söngvar eftir Bertolt Brecht verða fluttir af félögum úr Stúdentaleikhúsinu.
Aðgerðir kl. 17
á Hallærisplani
í dag, 8. mars á alþjóðlegum
baráttudegi kvenna hyggst hóp-
ur kvenna gangast fyrir mót-
mælagöngu og aðgerða í kjölfar
hennar. Mun hópurinn hittast á
Hallærisplaninu kl. 17 og eru all-
ar velkomnar.
í frétt frá hópnum segir: „Á und-
anförnum árum hafa konur ítrekað
bent á það misrétti, sem hér ríkir á
kjörum karla og kvenna. Við höf-
um fundað, ályktað, skrifað grein-
ar og myndað samtök kvenna til
þess að vekja athygli á þessari
staðreynd.
Edga Velés flytur ávarp á fundinum.
- Við höfum gert kröfur um úr-
bætur en án árangurs.
- Við höfum bent á að réttind-
amál kvenna almennt eru lakari en
karla. -
- Við höfum bent á að félagsleg
staða kvenna er lakari en karla.
- Við höfum bent á launamis-
réttið og þá staðreynd að konur
bera að meðaltali aðeins 2/3 af
launum karla úr býtum fyrir vinnu
sína. Þetta þýðir t.d. að unnin ár-
sverk karla skiluðu þeim 5.660
krónum hærri mánaðarlaunum
árið 1982 en unnin ársverk kvenna.
Nýgerðir kjarasamningar bæta á
engan hátt þetta óþolandi misrétti
þrátt fyrir fögur fyrirheit. Nú er svo
komið að þolinmæði okkar er á
þrotum!"
8. mars
- Alþjóðlegur
baráttudagur kvenna
Alþjóðlegur baráttudagur verkakvenna - 8. mars
- á sér meira en aldargamla sögu. Konur víðsvegar
um heiminn hafa notað þennan dag til að samein-
ast og leggja áherslu á þau baráttumál sín sem eru
efst á baugi hverju sinni.
Þann 8. mars árið 1857 lögðu
verkakonur í baðmullariðnaði í
New York niður vinnu til að
krefjast styttri vinnutíma og
sömu launa fyrir vinnu sína og
karlar fengu. Iðnverkakonur í
New York héldu baráttunni
áfram og fóru t.d. í kröfugöngu
þann 8. mars 1908 til að krefjast
Kiara Zetkin, sú fræga baráttukona.
kosningaréttar og mótmæla
ómanneskjulegum aðbúnaði á
vinnustöðum.
Árið 1910 var 8. mars gerður
að alþjóðlegum baráttudegi
verkakvenna á ráðstefnu sem
haldin var af róttækum konum í
Kaupmannahöfn. Frumkvæðið
átti hin fræga baráttukona,
Klara Zetkin.
Síðan tóku konur í mörgum
löndum þennan dag upp sem
baráttudag og rússneskar
verkakonur höfðu daginn t.d. í
heiðri árið 1913 þrátt fyrir lög-
reglubann og ofsóknir. Einnig
fóru þær í sögufrægt verkfall
þennan dag árið 1917.
Baráttuandinn hefur ekki
alltaf verið hinn sami á þessum
degi en þó hefur 8. mars verið
haldinn hátíðlegur með ýmsum
hætti víða um heim sem alþjóð-
legur baráttudagur kvenna í 74
ár.
í dag munu íslenskar konur
hittast á Hallærisplaninu kl. 17
til að leggja áherslu á kröfur um
bætta stöðu kvenna og verður
farið í stutta mótmælagöngu. í
kvöld gangast síðan átta
kvennasamtök í Reykjavík
fyrir opnum baráttufundi í Fé-
lagsstofnun stúdenta.
-jp