Þjóðviljinn - 15.03.1984, Blaðsíða 5
Fimmiudagur 15. mars 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐÁ 5
Deilan um Lánasjóðsskýrsluna:
• •
Ollu var haldið leyndu fyrir
stúdentum og stjóm sjóðsins
„Þetta eru alveg furöuleg viö-
brögö. Bæöi menntamálaráö-
herra og skýrsluhöfundurvlrö-
ast gera alla gagnrýni náms-
manna aö einhverju persónu-
legutilfinningalegu máli. Þetta
eru alveg óskiljanleg viðbrögð
og sýna kannski best að þessir
aöilar hafa engin svör við okkar
réttmætu gagnrýni“, sagöi G.
Pétur Matthíasson annarfull-
trúi stúdentaráðs í Lánasjóði ís-
lenskra námsmanna í samtali
viö Þjóöviljann ígær.
Viðbrögð stúdenta og annarra
námsmanna gegn þeim tillögum
sem lagðar eru á borð í nýopinberri
skýrslu, sem menntamálaráðherra
lét gera um endurskipuiag Lána-
sjóðsins, hafa verið mjög hörð, en
fulltrúar Vöku, félags íhaldsmanna
í Háskólanum, hafa hins vegar lítt
þorað að segja opinberlega. Vaka
hefur vitað af gerð umræddrar
skýrslu frá því í haust og fylgst
gjörla með gerð hennar, sem hald-
ið var vandlega leyndri fyrir öðrum
fylkingum námsmanna, sem þó
tókst að verða sér úti um eintak af
Okkar rökum gegn þessum niðurskurðartillögum hefur í engu verið svarað skýrslunm á vinnslustigi fyrir
segir G. Pétur Matthíasson fulltrúi stúdenta í stjórn LÍN: nokkrum vikum.
Hlutdrœg skýrsla
„Okkar rök og viðbrögð við
þessari skýrslu hafa á engan hátt
verið hrakin. Þau standa enda höf-
um við m.a. vísað til þess að það
eru ekki nema 2 ár liðin síðan Al-
þingi samþykkti þau lög sem Lán-
asjóðurinn starfar nú eftir. Vandi
Lánasjóðsins í dag byggist ekki á
því hvernig úthlutunarreglurnar
eru. Aðalvandinn er sá að við höf-
um orðið að taka lán til að sinna
skyldum sjóðsins og afborganir og
vextir af þessum lánum eru hærri
fjárhæð en sú sem við fáum inn í
endurgreiðslum. Vandinn felst því
alls ekki í lögum sjóðsins eins og
skýrsluhöfundur vill halda frani.
Þessi skýrsla er öll mjög hlut-
dræg. Það er nóg að benda á mál-
notkun í henni. Málið er ekki það
að hér þurfi einhver kerfisbreyting
að eiga sér stað, heldur hitt að lána-
sjóðurinn verði byggður upp. Töl-
ur í skýrslunni um endurgreiðslur
frá námsmönnum eru beinlínis
rangar og eins hefur framkvæmda-
stjóri sjóðsins sýnt fram á að
rekstrarkostnaður sjóðsins hefur
verið sá sami undanfarin ár á sama
tíma og umfang sjóðsins hefur auk-
ist til muna.“
Ekkert samband
við námsmenn
„Það er alveg ljóst að þessi
skýrsla er ekki annað en pólitísk
aðför að jafnrétti til náms. A engan
hátt var haft samband eða samráð
við námsmenn við gerð þessarar
skýrslu. Það er algerlega farið á
bak við okkur. Það er því síður en
svo óeðlilegt að það skyldi vera
miðlað til okkur upplýsingum um
efni þessarar skýrslu áður en hún
var opinberlega birt, ég tala nú
ekki um vegna þess að pólitískir
stuðningsmenn menntamálaráð-
herra hér í skólanum, Vökumenn,
höfðu haft þessa skýrslu undir
höndum í allan vetur, hvernig svo
sem því sambandi var háttað. Það
er eðlilegra að menn spyrji hvers
vegna aldrei var haft samband við
kjörna forsvarsmenn stúdenta og
stjórnarmenn í Lánasjóðnum.
Þessi ntál eru í brennidepli hér í
Háskólanum og það verður kosið
um þessi mál hér í stúdentaráðs-
kosningunum í dag. Þeir sem kjósa
Vöku eru að kjósa þessar niður-
skurðartillögur yfir sig. Menn verð
að standa saman og berjast gegn
þessari endaleysu", sagði G.P.
Matthíasson. - lg.
Skýrslan um Lánasjóðinn er ekki fræðileg
heldur uppfull af pólitískum yfirlýsingum
Allt byggt á
misskilningi
segir Ólafur Ástgeirsson formaður
Bandalags íslenskra sérskólanema
Ólafur Ástgeirsson: verið að gera
nám að forréttindum hinna ríku.
Ljósm.: eik.
„Þessi skýrsla þýöir það hreint
út sagt, aö þeir sem ekki hafa
nægilegt fjármagn eða njóta
ekki velvilja hjá þeim banka-
stofnunum, sem vísa á öllum
lánamálum til, geta hreinlega
gleymt því aö þeir hafi nokkra
möguleika á f rekara námi og
þar af leiðandi veröi námiö gert
aö forréttindum auðstéttarinnar
ílandinu“,sagöiÓlafur
Ástgeirsson, formaöur Banda-
lags íslenskra sérskólanema, í
samtali viö Þjóöviljann, um til-
lögur þær sem menntamála-
ráöherra óskaði eftir um mál-
efni Lánasjóðs námsmanna.
Innan BÍSN eru rúmlega 3000
nemendur sem stunda nám við 15
sérgreinaskóla. Formaður banda-
lagsins fékk skýrsluna ekki í sínar
hendur fyrr en á þriðjudag, en full-
trúa BÍSN í Lánasjóðnum var
meinaður aðgangur að skýrslunni
þegar hún var lögð fram í síðustu
viku.
Pólitískar ályktanir
„Höfundur þessarar skýrslu
heldur því fram að hér sé um fræði-
lega úttekt á Lánasjóðnum að
ræða. Slíkt er hreint rugl. Allt rit-
málið er samhræringur af fræði-
legum pælingum og síðan pólitísk-
um ályktunum höfundar. Til dæm-
is hvað snertir okkur hjá BÍSN, þá
virðist aðalvandi Lánasjóðsins
samkvæmt þessari skýrslu vera sá
að sérskólarnir hafa fengið rétt til
lántöku til jafns við Háskólann.
Það er aðalvandinn að fleiri eigi
rétt til lána en áður. Vandamálið
virðist vera að sífellt fleiri vilji
mennta sig. Auðvitað eru slíkar út-
leggingar ekkert annað en hrein
pólitík. Er það aðeins ákveðinn
hópur velmektugra sem má
menntast? Það er einmitt það sem
er megininntak í niðurstöðum höf-
undar.
Því er haldið fram í skýrslunni að
lán LÍN uppfylli ekki almenn hag-
fræðileg skilyrði um lán. Höfundur
álítur lánasjóð LÍN vera eins og
hverja aðra bankastofnun sem eigi
að hámarka gróða sinn með lán-
veitingum. Svo mikið sem ég veit,
þá hefur þetta aldrei verið mark-
mið né tilgangur þessa lánasjóðs.
Hann er hugsaður til að gefa öllum
þeim sem áhuga og getu hafa sama
rétt til náms burtséð frá fjárhags-
stöðu.
Það er ótalmargt annað sem má
finna að þessari skýrslu og þeim
niðurstöðum sem skýrsluhöfundur
ber á borð. Hann segist t.d. ekki
leggja mat á hvort styrkja eigi nem-
endur til náms. Það er hins vegar stunda hefur það gildi að geta borið
augljóst af allri skýrslunni að hún kostnaðinn við lánið. Ég er hrædd-
stefnir að niðurskurði. Það er sí- ur um að þá legðust niður ýmsar
fellt verið að ýja að því að þetta sé . deildir við Háskólann og þó nokkr-
allt svo dýrt. Það verði því að skera ir sérskólar ef þetta næði fram að
niður.“ ganga.“
Petta eru okkar réttindi
„Talað er um nám sem fjárfest-
ingu en það virðist enginn munur
vera gerður á því að hér er verið að
tala um lifandi fólk en ekki
steinsteypu. Þá er talað um að hætt
sé við að námsmenn líti á
lánasjóðskerfið í dag sem réttindi.
Auðvitað lítum við á þetta sem
okkar réttindi. Það hefur tekið
námsmannasamtökin áratugabar-
áttu að koma málum í það horf sem
þau eru í dag og auðvitað rísurn við
upp gegn öllum þeim breytingum
sem eru til skerðingar á þessum
réttindum. Það er alveg klárt.
Vissulega geta menn verið sam-
mála um að efla eigi Háskólann en
ég tel vafasamt að hrúga eigi öllu
sérgreinanámi þar inn. Það er ann-
ar grundvöllur undir flestum þeim
sérgreinaskólum sem við lýði eru
en Háskólanum. Það er ekki hægt
að horfa fram hjá því.
Þá segir í skýrslunni að eftir-
spurn eftir lánum eigi að byggjast á
mati viðkomandi einstaklinga á því
hvort það nám sem hann hyggst
Verðum að
mennta þjóðina
„Ég hef ekki enn minnst á að lagt
er til að hætt verði að taka tillit til
félagslegra aðstæðna við lán-
veitingar. Hvað er þetta annað en
pólitísk yfirlýsing? Þetta er atlaga
að jöfnum rétti allra til náms eins
og þessi skýrsla er öll út í gegn. Ég
held að sé á heildina litið þá sé þessi
skýrsla byggð á hreinum misskiln-
ingi. Ég tel allan þennan niður-
skurð út í hött. Það sem stefnt er að
í okkar þjóðfélagi er að rnennta
þjóðina, það eru almenn skilyrði
fyrir velmegun að þjóðin sé vel
menntuð. Það er alveg ljóst að við
verðum að mennta landsmenn,
ekki bara í dag heldur líka í allri
framtíðinni. Það er alveg ljóst að
þessi skýrsla er samin til þess að fá
fram ákveðnar niðurstöður sem
eru í pólitískri þágu íhalds- og
afturhaldsafla hér í landi sem vilja
einoka menntunina. Gegn því
verður að berjast", sagði Ólafur
Ástgeirsson. - Ig.
Skrúfudagur
á laugardag
Hinn árlegi Skrúfudagur Vél-
skóla Islands verður haldinn n.k.
laugardag þann 17. mars í Sjó-
mannaskólanum í Reykjavík.
Þennan dag mun almenningi gefast
kostur á að kynnast hinum ýmsu
kennslutækjum skólans og því scm
tengist námi í skólanum. Einnig
verður ný Handbók vélstjóra kynnt
en hér er um að ræða uppsláttarrit
fyrir vélstjóra. Auk þess verða
nokkur fyrirtæki með kynningu á
vörum, sem tengjast störfum vél-
stjóra, á staðnum.
Hin árlega kaffisala kvenfélags-
ins Keðjunnar verður með kaffi og
kökur á boðstólum í veitingasal
skólans.
Skólinn væntir þess að unglingar
sem áhuga hafa á að kynna sér vél-
skólanámið noti þetta tækifæri og
kynni sér aðstæður. Einnig eru for-
eldrar þeirra velkomnir og aðrir
aðstandendur. Kynningin hefst kl.
13.00.
Jónasar-
dagskrá
Leikfélagi Selfoss hefur verið
boðið með sýningu sína á „Þið
munið hann Jörund" eftir Jónas
Árnason á alþjóðlcga leiklistarhá-
tíð sem haldin verður í Dundalk á
írlandi í maí n.k. í tilefni af 25 ára
afmæli félagsins hcfur verið ákveð-
ið að þekkjast þetta boð og eru
leikfélagsmenn á Sclfossi byrjaðir
að æfa leikritið á ensku, en það er
skilyrði fyrir þátttöku á hátíðinni
að verk séu flutt á því tungumáli.
Leikfélagið hyggur á margskonar
fjáröflun vegna írlandsfarar og
hafa félagar m.a. æft söngva,
leikatriði og upplestur úr verkum
Jónasar Árnasonar og var sú dag-
skrá frumflutt sl. sunnudagskvöld í
Tryggvaskála. Jónas Árnason lét
gamminn geisa í Tryggvaskála og
verður höfundurinn einnig með í
för Leikfélags Selfoss um ná-
grannabyggðir með dagskrána
næstu tvær vikur. Næst verður Jón-
asar-dagskráin flutt á Selfossi 18.
mars. - ekh.