Þjóðviljinn - 22.03.1984, Blaðsíða 3
BLAÐAUKI!
Fímnitudagur 22. ’inars WS4 ÞJ'ÓÐVILJÍMN - SÍÐÁ 11
Gamla verksmiðjan er 3000
ferm. að flatarmáli en hin, sem síð-
ar var byggð er 8500 ferm. Hjá
fyrirtækinu vinna að jafnað yfir 300
manns. - Við kaupum alla ull, sem
fáanleg er, en það verður að segjast
sem er, að hún er ærið misjöfn að
gæðum. íslenskir bændur myndu
hagnast vel á því að sýna ullarfram-
leiðslunni meiri sóma. Kynbætur
fjársins í þá átt þyrftu ekkert að
draga ur öðrum kostum þess. Samt
sem áður hefur okkur tekist að
framleiða hér fjölbreyttar, smekk-
legar og góðar vörur, enda er þess
vel gætt, að vinna alltaf með
fullkomnustu vélum, sem fáan-
legar eru. Um 80% af fram-
leiðslunni er flutt út en um 20%
fara á heimamarkað. Árlegt verð-
mæti útflutningsins er nú um 300
milj. kr. Við rekum söluskrifstofur
í Bandaríkjunum, Danmörku og
Svíþjóð og svo erum við með versl-
un í Reykjavík. Annar fer öll okkar
starfsemi fram hér í Mosfells-
sveitinni. Ekki er það ónýtt fyrr
hreppsnefndina og aðra sveitar-
búa.
Eitt skáld var með í förinni, Mar-
grét í Dalsmynni í Eyjahreppi
vestra. Undirritaður var svo hepp-
inn að Margrét sat í næsta sæti fyrir
aftan hann í bílnum og þær voru
ófáar vísurnar, sem laumuðust
fram yfir sætisbakið. Þær verða
ekki birtar hér, en hinn ágæti farar-
stjórni okkar, Oddný Björgvins-
dóttir, fól Margréti að þakka gest-
gjöfunum á Álafossi móttökurnar
og það gerði hún samstundis með
þessum vísum:
Bœndur RALA og brennivín
búnir eru að skoða,
ánœgjan af öllum skín,
enginn drakk til voða.
Lengi hefur þraukað þjóð,
þautir margar unnið.
Þótt íslensk ull sé ekki góð
úr henni er tœtt og spunnið.
Gestgjafar af viti og vilja
veittu af rausn og glœsibrag.
Bændur kœrar þakkir þylja,
þeir hafa skemmt sér vel í dag.
Og látum við þetta verða loka-
orðin.
-mhg
Samvinnu-
menn og
Esperanto
Samvinnumenn vítt og breitt
um véröldina, sem mæltir eru á
Esperantó, hafa nú stofnað
með sér samtök. Munu það
einkum vera samvinnumenn í
Ungverjalandi og Búlgaríu,
sem fyrir þessu standa.
Þátttakendur eru einnig m.a. frá
Bretalandi, Belgíu, Sovétríkjun-
um, V-Þýskalandi, Póllandi; Tékk-
óslavakíu, ftalíu, Japan og írlandi.
Samtökin gengust fyrir ráðstefnum
bæði 1982 og 1983 og voru þær í
Ungverjalandi. Tvær slíkareru fyr-
irhugaðar í sumar, önnur í Búlgar-
íu en hin í tengslum við alþjóðlegt
mót esperantista, sem verður í
Vancouver í Kanada. Ætlunin er
að framvegis komi samvinnumenn
árlega saman og ræði málefni sín á
alþjóðamótum esperantista.
Pví má svo bæta hér við að Esp-
eranto er meðal þeirra náms-
greina, sem kenndar eru í Bréfa-
skólanum. -mhg
Minnkandi
timbursala
Verulegur samdráttur hefur
orðið í timbursölu hjá SÍS á síð-
asta ári. Fluttir voru inn um 60
þús. rúmm, af timbri á móti 72
þús. rúmm. árið áður og munar
þar 20%. Horfur eru á sömu
þróun í ár.
Timbursala minnkaði meira út
um land en á Reykjavíkursvæðinu
og segir það sína sögu. En þrátt
fyrir minnkandi timbursölu hélt
Sambandið sínum hlut miðað við
það, sem verið hefur, nema í sölu
steypustyrktarjárns. Undirboð frá
Svíþjóð og Spáni gerðu þar strik í
reikninginn. En þá er þess að gæta
að undirboð geta verið
skammgóður vermir. -mhg
Kjrn.i i.an-oc; drhifakinn
I l-VSA MVKJW\'ANDAMAI IN I
I I n SKII’TI 1A RIK 01.1.’
skiir:ihr:iiini 15. Mini 54l>53 !l;ifn:irfirói.
Tilvalið fyrir:
• sumarbústaði
• fiskvinnslur
• heimili
• fyrirtæki i
matvælaiðnaði
§ bændur
• verslanir
Engin mús
inn í mitt hús
„HÁTÍÐNI HÖGNI"
Ver hús þitt fyrir músum,
rottum og öðrum meindýrum með
hátíðnihljóði (22kHZ - 65kHZ).
Tæki þetta er algjörlega skaðlaust
mönnum og húsdýrum.
Tækin notist innandyra og eru fyrir 220 v
Þau eru til í 4 stærðum.
Póstsendum
Upplýsingar í síma 12114 til kl. 20
HIN FRÁBÆRA V-ÞÝSKA EEÍSJ
TRÉSMÍÐAVÉLASAMSTÆÐA
FYRIRLIGGJANDI
Samanstendur af 10 tommu afréttara, 5
tommu þykktarhefli og 12 tommu hjólsög.
Auk þess er hægt að bæta við vélina fræs-
ara, bor, rennibekk, slípiskífu og bandsög.
Því er vélin ekki aðeins til heimilisnota eða
föndurs, heldur ákjósanleg við alla létta,
almenna trésmíðavinnu.
Vélin er knúin 2ja hestafla einfalsa mótor.
Verzlunin
Mest selda trésmíðavélin
í landinu
Laugavegi 29.
Símar 24320 - 24321 -
24322