Þjóðviljinn - 11.04.1984, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 11. apríl 1984
Gamanmál úr
undirheimum
Þjóðleikhúsið:
Gæjar og píur.
Söngleikur byggður á sögum og persón-
um eftir Damon Runyon.
Tónlist og söngtextar: Frank Loesser.
Handrit: Jo Swerling og Abe Burrows
Danshöfundur: Kenn Oldfield
Leikstjórn: Kenn Oldfield og Benedikt
Árnason.
Þýðing: Flosi Ólafsson.
Leikmynd: Sigurjón Jóhannsson.
Búningar: Una Collins.
Hljómsveitarstjóri: Terry Davies.
Lýsing: Kristinn Daníelsson.
Söngleikjum er einatt hætt við
leiðindum. Efniviðurinn kannski
orðinn morkinn, músíkin gæti ver-
ið úr hvaða söngleik öðrum sem
væri, tilfinningamálin forskrúfuð.
En Gæjar og píur, sem frumsýnd-
ur var á föstudagskvöld, er iangt
yfir meðalsöngleikinn hafinn.
Tónlistin er svosem ekki neitt sér-
stakt reyndar.En þeir sem leikinn
settir saman höfðu úr skemmti-
legum og sérstæðum efnivið að
spila, smásögum Damons Runy-
ons, sem kunni öðrum betur að
fara með slangurmál. Með útsmog-
inni notkun þess gerði hann glæpa-
menn, hórur og ýmiskonar utan-
garðslið annað úr New York að
prýðilegu skemmtiefni. íslenskir
unglingar kynntust þessum sögum
fyrir svosem hálfum mannsaldri í
þýðingu Páls Skúlasonar („Mislitt
fé“) og var ekki laust við, að þeir
sem prófuðu að smíða svalar sögur
af sjálfum sér og öðrum í gaggó
væru fyrr en varði farnir að herma
eftir fólkinu sem byggði hina hlægi-
legu og snurfusuðu undirheima
Damons Runyons.
Leikurinn er byggður á sögu af
hjálpræðishersstúlku sem er tekin
inn í veðmál tveggja fjárhættuspil-
ara og fer svo, að ástin sigrar bæði
hana og gamblarann sem þurfti á
Árni Bergmann
skrifar um
leikhús
henni að halda. Broslegur heilag-
leiki sem yfirtekur harðvítugan en
líka pínulítið broslegan syndara er
reyndar skrýtla sem fleiri en einn
hefur sagt. Hér eru möguleikar
hennar ágætlega nýttir með fjör-
legum texta og sambúð við allt aðr-
ar sögur og mikið persónusafn.
Flosi Ólafsson hefur þýtt textann
og smaug hann greiðlega inn í
hlustimar og vakti þau réttu við-
brögð. íslenska á sér vitanlega ekki
það safn slanguryrða sem delar á
Manhattan geta týnt upp úr vösum
hvenær sem er, en Flosi finnur
jafnan þýðingaleið sem er vel við
hæfi.
Hljóðkerfi er komið nýtt í húsið
og söngvarar eru magnaðir upp.
Hljómurinn er dálítið annarlegur,
en þar á móti kemur, að textar
skiljast betur en endranær. Þó dug-
ir þessi tækni ekki alltaf til og hefði
stundum mátt skrúfa dálítið niður í
rösklega spilandi hljómsveit undir
stjórn Terry Davies.
Sýningin ber þess reyndar öll
merki að nú hafi menn viljað leggja
sig rækilega fram. Ljós og leik-
mynd beina „réttri“ athygli að
miklum mannsöfnuði, sem reynist
einnig vera í „réttum" flíkum.
Leikararnir dansa og dansararnir
syngja og enginn fær að vera stikk-
frí. Hraðinn er góður og greiður.
Kenn Oldfield stjórnar hreyfingum
þessa fjölménna liðs um sviðið og
hefur á því dágóðan aga. Mér er til
dæmis til efs, að stór flokkur karla
hafi hreyft sig af samstilltari rögg-
Svo stór hópur karla hefur ekki fyrr hreyft sig á sviði með einbeittrl röggsemi.
Ljósm.: Atli.
Kostulegt par: Bessi Bjarnason og Sigríður Þorvaldsdóttir. Ljósm.: Atli.
semi en í senunni þegar skúrkurinn
ástfangni, Skæ Masterson, kemur
að sækja harkaraliðið á bænasam-
komu.
Ragnheiður Steindórsdóttir
leikur hjálpræðishersstúlkuna
Söru Brown. Sara verður einkar
geðsleg stúlkukind í meðförum
hennar, en það vantar í hana sveifl-
una á milli heilagleikans og fiðring-
sins, meiri tvíræðni þarf í þessa per-
sónu til að halda henni betur utan
við þá vellu sem ástarsagan býður
upp á. Egill Ólafsson er Skæ Mast-
erston, 'sem þarf sóma síns vegna
að hafa Söru með sér til Kúbu með-
an Mafían átti þar óðul stór. Egill
gerir þetta vel, hann er hinn erri-
legasti söngleikjamaður eins og
kunnugt er og getur talið áhoif-
anda áþað, að hörkutólið Skæ eigi
sér „mjúkan blett“ sem sé nógu
stór til að í gerjist ótrúleg ham-
skipti.
Þau Sigríður Þorvaldsdóttir og
Bessi Bjarnason stóðu öðrum
fremur fyrir gamanmálum í
leiknum - fara með hlutverk Nat-
ans og Adelaide, fjárhættuspilara
og. söngkonu, sem hafa verið trú-
lofuð í fjórtán ár, og loks á að koma
hnappheldunni á Natan þrjótinn,
margfalleraðan í harki og tómri vit-
leysu. Þau eru kostulegasta par,
Sigríður reyndar stjarna kvöldsins.
Einhvernveginn tókst henni að
þræða á afar elskulegan og skop-
legan hátt einstigi góðu stelpunnar
vondu, röddin, látbragð og svipur
spiluðu öll saman þann ýkjustíl,
sem er alltaf undir aga, passað að
aldrei sé ofgert. Bessi á reyndar
mjög svipuð ummæli skilið, bak-
aður og teygður milli píu sinnar og
harkvímunnar. En semsagt: Fram-
ganga Sigríðar var alveg sérstak-
lega vel heppnuð, hvort sem hún
söng kvefaríu sína um heilsu-
farsraunir hinna ógiftu, lagði með
Söru á ráðin um endurbætur á
karlhrossum eða söng um skúnk-
inn setn mátti hirða aftur sín skinn
og aðrar gjafir, því hver pía hefur
sitt stolt.
Leikendur og dansarar eru
reyndar eins margir og fyrir komast
á sviði með góðu móti. Ýmsir
þeirra eiga sér ágætar stundir, til
dæmis Erlingur Gíslason í hlut-
verki erkibófans Júlíusar Stóra -r
stöfuðu frá óféti þessu undarlega
magnaðar víbrasjónir um allan sal.
ÁB
Holl og skaðleg streita
Þeir, sem lifa á síðari hluta
20. aldar, telja, að sjúkdómar
eins og blóðtappi, æðakölkun
og hár blóðþrýstingur séu eilífir
eins og heimurinn. En það eru
þó aðeins nokkrir áratugir síð-
an þessir sjúkdómar fóru að
breiðast út. Hinn kunni banda-
ríski hjartasérfræðingur P.
White minnist þess t. d. að árið
1911, þegar hann fékk læknis-
leyfi, hafði hann aldrei heyrt um
blóðtappatilfelli. Það var í upp-
hafi þriðja áratugsins sem Al-
exander Mjasnikov, verðandi
leiðtogi á sviði sovéskra hjarta-
lækninga, fylgdist með nokkr-
um blóðtappatilfellum og háum
blóðþrýstingi á sjúkrahúsi í
Leningrad.
Stórfelld aukning hjarta- og æða-
sjúkdóma minnir á faraldur, þó að
þessir sjúkdómar eigi ekkert skylt
við smitsjúkdóma. A þessum tíma,
á fjórða áratugnum, kom fram nýtt
hugtak, sem táknað var með enska
orðinu „stress" sem allur heimur-
inn þekkir (stress - spenna í
bókstaflegri merkingu). Höfundur
þessa heitis - hinn frægi kanadíski
vísindamaður, Hans Sele, lítur á
streitu sem viðbrögð líkamans við
óþægilegum áhrifum utan að frá.
Hann innleiddi einnig hugtakið
„aðlögunareinkenni" - samræmd
varnar- og aðlögunarviðbrögð lík-
amans, fyrst og fremst hins lokaða
kirtlakerfis, við streitu. Fyrsta stig-
ið - áhyggjur - felst í því að varnar-
öfl líkamans vígbúast, annað stigið
- mótstaða - líkaminn venur sig á
að vera stöðugt í óþægilegu ástandi
- og að lokum þriðja stigið - magn-
leysi - sem hefur í för með sér erfið
veikindi eftir langvarandi streitu og
oft hörmuleg endalok.
í dag eru það ekki aðeins hjarta-
og æðasjúkdómar, sem eru taldir
til sjúkdóma, sem valda streitu,
heldur einnig magasár og skeifu-
garnarsár, og ýmsar tegundir of-
næmis. Þegar verið er að lækna
þessa sjúkdóma, grípa læknar oft
m. a. til aðferða, sem beisla að-
lögunaröfl líkamans og auka þar
með aðlögunarmöguleikana.
Um miðja þessa öld fóru
streitusjúkdómar að aukast veru-
lega. Margir sérfræðingar hafa til-
hneigingu til að tengja þetta fyrir-
bæri afar örri vísinda- og tækniþró-
un, sem varð til þess að maðurinn
losnaði við mikið líkamlegt álag,
en skapaði jafnframt hættulegar
aðstæður fyrir tilfinningalegt og
sálrænt umhverfi.
Hvað skal gera? Það hljómar
barnalega, jafnvel í eyrum höfund-
anna sjálfra, að fara að kalla víg-
orð. „Aftur til samfélags þess, sem
ríkti fyrir iðnbyltinguna" - það er
ekki hægt að stöðva framfarir. Það
er varla hægt að losna undan nei-
kvæðum áhrifum umhverfisins.
En það er erfitt að koma fyrir
nokkrum alkunnum staðreyndum í
hugmyndir hugtaks Sele. Það er
varla hægt að gera sér í hugarlund
að ríkt geti meðal fjölda fólks
ástand, sem er neikvæðara fyrir til-
finningarnar heldur en þá 900
daga, sem þýskir fasistar sátu um
Leníngrad í heimsstyrjöldinni
síðari, en þó að furðulegt sé létust
varla nokkrir af háum blóðþrýst-
ingi eða magasári í hópi þeirra sem
létust og á þessum árum gleymdist
blóðtappi. En aftur á móti við að-
stæður sem eru hagstæðari fyrir
líkamannm lækkar ekki kúrfa
þeirra, sem bíða ósigur fyrir þess-
um sjúkdómum.
Sovésku vísindamennirnir Vikt-
or Rotenberg og Vladimír Arshav-
skí hafa lagt til að gerðar yrðu
breytingar á kenningu Hans Sele.
Þeir ganga út frá því að við þróun
streitusjúkdóma séu það ekki að-
eins hinir neikvæðu þættir um-
hverfisins, sem séu mikilvægir,
heldur einnig einstaklingsbundin
viðbrögð líkamans við þessum
áhrifum. Þannig varð til hugtakið
um virkni og var því skipt niður í
tvo flokka eftir að rannsökuð
höfðu verið ólík hegðunarferli
mannsins - virka vörn og passíva
vörn.
Fyrir fyrri viðbrögðin er ein-
kennandi að viðkomandi leitar út-
gönguleiðar úr því ástandi sem
skapast hefur og slíkt hefur í för
með sér orkumikið starf. Margra
ára rannsóknir leiddu í ljós að slík
hegðun örvar varnarkerfi líkamans
og stövar þróun mögulegs sjúk-
dóms. Á þessum hetjuárum gátu
Leníngradbúar ekki annað en ver-
ið virkir - þeir áttu allir þá sam-
eiginlegu hugmynd að verja borg-
ina og gefast ekki upp fyrir árásar-
aðilanum hvað sem gerðist. Þess
vegna urðu þeir sem létu líf sitt
ekki fórnarlömb streitusjúkdóma
„faraldursins“.
Passív vörn, þegar viðkomandi
hafnar af fúsum vilja leit að leið til
að komast út úr hinu óþægilega
ástandi, hefur í för með sér þrúg-
andi áhrif á líkamann og flýtir fyrir
sjúkdómnum og mögulega dapur-
legum endi.
Leitt að leið út úr ógöngum, við-
leitni til að halda áfram sköpunar-
starfi, er einnig afar mikilvægt atr-
iði á sviði öldrunarsjúkdóma. Al-
þekkt fyrirbæri, svokölluð „eftir-
launaveiki“ er, tengd minnkandi
starfi og leit hjá fólki, sem komið er
á eftirlaun, í kjölfar breytts líf-
smáta. Slík breyting hefur oft í för
með sér hraða þróun þungra og
þrálátra sjúkdóma, sem ekki er
hægt að sporna við.
Hins vegar stuðlar sköpunarstarf
á efri árum að lengra lífi og betri
heilsu. Viðerum oft undrandi á vís-
indamönnum, sem eru orðnir aldr-
aðir en eru í fullu starfi. Þar er það
sköpunargleðin, sem á „sökina“. f
þessu sambandi eru eftirtektarverð
ummæli Nikolajs Semenjovs, eins
elsta vísindamanns Sovétríkjanna,
handhafa Nóbelsverðlaunanna,
sem er að verða 88 ára gamall:
„Margir eru hræddir um, að
mikið andlegt álag, einkum hjá vís-
indamönnum, hafi auðveldlega í
för með sér alls konar andlegt
niðurbrot. En þegar vísindamaður
er að fást við viðfangsefni, sem
hann elskar út af lífinu, verða
álagsmörkin óeðlilega há án þess
að hafa skaða í för með sér. Aftur á
móti eru álagsmörkin afar lág, þeg-
ar viðkomandi er að fást við
eitthvað, sem færir honum ekki
ánægju. Þetta er furðulegur eigin-
leiki mannslíkamans.“
Lcóníd Starosclskí, kandídat í
læknisfræði (APN).