Þjóðviljinn - 13.04.1984, Blaðsíða 10
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 13. aprfl 1984
A
Dagvistarheimili,
störf
Leikskólinn við Fögrubrekku
Félagsmálastofnun Kópavogs auglýsir lausa
stööu forstöðumanns leikskólans viö Fögru-
brekku, einnig stööur fóstra.
Umsóknarfrestur er til 1. maí n.k.
Dagvistarheimilið við Grænatún
Fóstrur óskast við dagheimilið Grænatún,
sem tekur til starfa í maí n.k.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl n.k.
Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðu-
blöðum sem liggja frammi á Félagsmála-
stofnun Kópavogs, Digranesvegi 12 og veitir
dagvistarfulltrúi nánari upplýsingar um starf-
ið í síma 41570.
Félagsmálastjóri.
m Frá
S menntamálaráðuneytinu
Menntamálaráöuneytiö auglýsir hér með lausar til umsóknar námstjóra-
stööur í eftirtöldum greinum:
íslensku, stærðfræöi, erlendum tungumálum (ensku, dönsku - ein staöa
eöa tvær hálfar), samfélagsgreinum (sögu, landafræöi, félagsfræði o.fl.),
náttúrufræöi (eölis-, efna- og líffræði), mynd- og handmennt, heimilisfræði,
tónmennt (tónmennt og tónlistarfræðslu), kristinfræði (hálf staða). Einnig
stöðu námstjóra fyrir byrjendakennslu.
Ráðið verður í stöðurnar frá 1. sept. n.k. Áskilin eru kennsluréttindi og
kennslureynsla, svo og fagleg og kennslufræöileg þekking i viökomandi grein
eða sviöi. Störfin taka flest til grunnskóla og skila grunnskóla- og framhalds-
skólastigs. Nánari upplýsingar veitir Menntamálaráðuneýtið, skóla-
rannsóknadeild, sími 26866 eða 25000. Umsóknir ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf skulu sendar Menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu
4-6, 101 Reykjavík, fyrir 20. maí n.k.
Tilkynning
til fóðurinnflytjenda
og fóðurseljenda,
frá Framleiðsluráði
landbúnaðarins
Frá og með mánudeginum 16. þ.m. breytist
álagning og innheimta kjarnfóðurgjalds.
Þurfa fóðurinnflytjendur og allir fóðurseljend-
ur að láta telja fóðurvörubirgðir sínar og fá
birgðatalninguna staðfesta af bæjarfógetum
eða lögreglustjórum, í Reykjavík tollstjóra.
Reykjavík 12. apríl 1984.
Framleiðsluráð landbúnaðarins.
Auglýsið í Þjóðviljanum
Sumarnámskeið
í Færeyjum
Enn eru sæti laus í sumarnámskeiði í Þórs-
höfn í Færeyjum 5.-20. júní. Ódýr og
skemmtileg námskeið fyrir alla kennara.
Nánari upplýsingar hjá Norræna félaginu og
Hjálmari Arnasyni sími 54133.
Þökkum innilega auösýnda samúð og hlýhug viö andlát og
útför fööur okkar, tengdaföður og afa
Guðmundar Valgeirs Sigurðssonar
Þórólfsgötu 8, Borgarnesi.
Þorgeir Guðmundsson Rebekka Benjamínsdóttir
Erla Guðrún Guðmundsdóttir Boge Petersen
Eydís Guðmundsdóttir Þorsteinn Benjamínsson
og barnabörn.