Þjóðviljinn - 13.04.1984, Blaðsíða 16
DJÚÐVIUINN
Föstudagur 13. apríl 1984
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til fostudags. Utan þess tima er hægt að ná í blaöamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt ðll kvöld. 81333 81348 81663
Útboð Eimskips
hljóðaði uppá
„Keim“ málningu
Algjört einsdæmi
Heildverslun Garðars Gíslasonar flytur inn „Keim“ málningu
Engin dœmi þess áður að krafist sé í útboði notkunar á ákveðinni tegund!
„Mála skal skyggni Sundaskála 1
og 2 að utanverðu með hvítri máln-
ingu af gerðinni „KEIM“,“ segir í
útboði Eimskips um málningar-
vinnu á húseignum félagsins í
Sundahöfn sem gerð var í fyrra.
Málarameistari vakti athygli Þjóð-
viljans á því að hér væri getið sér-
stakrar tegundar af málningu, en
um er að ræða innflutta málningu,
sem heildverslun Garðars Gísla-
sonar flytur inn.
í útboðsgögnum er kveðið á um
að nota skuli KEIM málningu við
nýmálun 3040 fermetra, tvöfalda
umferð. Hjá heildverslun Garðars
Gíslasonar fengust þær upplýsing-
ar í gær, að verð KÉIM-málningar
á fermetra hefði í fyrra verið 44
krónur.
Hjá Innkaupastofnun ríkisins
fengust þær upplýsingar í gær, að
við útboð á málningarvinnu væri
stundum getið nokkurra hugsan-
legra tegunda, en það væri alltaf
getið um samsvarandi tegund.
Hins vegar væru engin dæmi þess,
að krafist væri notkunar á einni ák-
veðinni tegund. Sömu upplýsingar
F riðarvikan
hefst á morgun
Myndlistarsýning 20 myndlistarmanna verður opnuð formlega á morg- (
un í Norræna húsinu sem liður í friðarvikunni. Verkin eru flest ný. I
Uppistaðan í þcssum 20 manna hópi listamanna, eru myndlistarmenn sem j
voru í starfshóp um þemasýningu á stofnfundi Friðarsamtaka listamanna í
haust. I kjallara Norræna hússins verður starfrækt myndsmiðja fyrir börn
og fullorðna í friðarvikunni kl. 16 til 19 alla daga, þarsem kennarar og
myndlistarmenn munu leiðbeina fólki. Myndin hér að neðan er tekin í
Norræna húsinu í gær, þarsem listamennirnir voru önnum kafnir við
uppsetningu. (Ljóms.: -eik).
fengust hjá byggingadeild Reykja- Þess skal getið að Halldór H. skips, með meiru, er hluthafi í
víkurborgar Jónsson, stjórnarformaður Eim- Heildverslun Garðars Gíslasonar.
- lg./óg.
Halldór H. Jónsson er ekki í Arkitektafélaginu:
út á(5 iur en
var r< jkinn
Gekk
hann
segir
formaður
félagsins
„Mér finnst rétt að taka fram
að Halldór H. Jónsson er ekki
meðlimur í Arkitektafélagi ís-
lands þar sem sú starfsemi sem
hann stundar samrýmist ekki
siðareglum félagsins“, sagði Jes
Einar Þorsteinsson, formaður AÍ
í gær. „Halldór gekk úr félaginu
áður en hann var rekinn og það er
nyög sérstakt og þekkist áreiðan-
lega ekki í mörgum löndum að
hann skuli stunda þessa starfsemi
og kalla sig arkitekt.“
Jes Einar sagði mörg ár síðan
Halldór yfirgaf félagið. „Hann er
meðeigandi í fyrirtækinu Garðari
Gíslasyni hf. og veitti þar for-
stöðu innflutningsdeild. Hann
var farinn að stunda þessa starf-
semi og auðvitað vissu menn
það“, sagði hann. „Þegar farið
var að sauma að honum hafði
hann vit á því að fara úr félaginu.
í Helgarpóstinum sagði hann um
daginn að ástæðan væri sú að
hann vildi ekki standa í deilum og
vinstri menn í félaginu hefðu gert
honum lífið þar leitt. Þetta er al-
rangt.“
- Eru margir arkitektar sem
ekki eru í AÍ?
„Af þessari ástæðu er bara einn
og það er Halldór H. Jónsson. 3-4
eldri félagar hafa gengið út vegna
sérvisku, en svo er einn til, Ingi-
mar H. Ingimarsson, sem var al-
veg á takmörkunum. Hann lenti
upp á kant við tvo félagsmenn og
var kominn í málaferli út af því og
fór þá út. Hann er svona á svip-
uðu plani og Halldór H. Þar að
aukí eru nokkrir ungir menn utan
félagsins, menn sem hafa verið
heima í 1-2 ár og meiningin er að
fara að ræða við þá um inngöngu
á næstunni“, sagði Jes Einar Þor-
steinsson að lokum.
-ÁI.
Gífurleg óánægja meðal kennara í Reykjavík
81% kennara tilbúnir
að segja upp störfum!
Um 81% félaga í Kennarafélagi hafi ekki náðst leiðrétting á kjörun- vegum félagsins. 14% sögðustekki
Reykjavíkur eru reiðubúnir til að um fyrir þann tima, samkvæmt reiðubúnir til uppsagnar en 5%
segja upp störfum sínum í haust skoðanakönnun sem gerð var á skiluðu auðu.
Um 640 manns tóku þátt í skoð-
anakönnuninni eða um 85% þeirra
sem eru á kjörskrá. í Kennarafé-
lagi Reykjavíkur eru grunnskóla-
kennarar í Reykjavík, settir eða
skipaðir. Niðurstöðurnar voru
kynntar á fundi í gær.
í skoðanakönnuninni var spurt:
„Ert þú tilbúin(n) að segja upp
stöðu þinni, til þess að fá leiðrétt-
ingu á kjörum og endurmat á starfi
kennara?“ Samkvæmt heimildum
Þjóðviljans í gær, ríkir gífurleg óá-
nægja meðal kennara og miða þeir
uppsagnir við haustið.
-óg.
Samdráttur
hjá Strætó
Leið 15
felld niður
- Ákveðið hefur verið að fella
niður úr leiðakerfi Strætisvagna
Reykjavíkur leið 15, Melar-Hlíðar.
Leiðin dettur út 24. aprfl n.k.
í fréttatilkynningu frá stofnun-
inni segir að leiðin hafi lítið verið
notuð og að „flestir farþegar leiðar-
innar eiga annarra kosta völ til að
komast leiðar sinnar með vögnum
SVR“.
— óg.
Flugfreyjurnar:
Verkfalli
aflýst
Sáttanefnd í málið
I gær var skipuð sérstök úr-
skurðarnefnd í deilu flugfreyja og
Flugleiða. í henni eiga sæti fimm
manns, að sögn ríkissáttasemjara,
tveir frá hvorum deiluaðila og
oddamaður skipaður af sáttasemj-
ara, en það er Geir Gunnarsson.
Verkfallinu sem átti að hefjast á
miðnætti var aflýst. Nefndin á að
Ijúka störfum fyrir 30. apríl og
skera úr um hvort þörf sé fyrir 6
flugfreyjur eða ekki í DC-8 flugvél-
ar Flugleiða. Niðurstöður nefndar-
innar eru bindandi.
Nefndarmennirnir munu eiga að
fljúga með þessum þotum á Ame-
ríkuleiðinni og kanna þörfina fyrir
fleiri flugfreyjur.
-óg.