Þjóðviljinn - 26.04.1984, Síða 3
1
Fimmtudagur 26. aprfl 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
astofnunar þjóðarinnar
R SEÐLABANKANS
Æglssíða 54. Seðlabankinn á 50% eignarinnar. Húsið er skráð í
fasteignamati upp á 2.5 miljónir króna en brunabótamatið er 4.1
miljón. Leigulóð.
Einholt 4. Seðlabankinn á allt þetta hús en þar er Bóka- og mynt
safn bankans til húsa. Fasteignamat hússins er 15.8 miljónir króna
en brunabótamatið er um 30 miljónir króna. Leigulóð.
Kaikof nsvegur 1. Seðlabankinn á eins og alþjóð veit hvern einasta
kúbikmetra af steypu í þessari höll. Hér er um eignarlóð að ræða
sem er að mati 24.3 miljónir króna. Nú hefur bankinn varið um 120
miljónum króna til byggingarinnar.
um að við gerð ársreiknings bankans sé
hvorki farið að almennum lögum né
góðum reikningsskilavenjum. Það
þýðir, eins og vararíkisskattstjóri hefur
bent á, að efnahags- og rekstrarreikn-
ingar Seðlabankans sýna ekki raun-
verulega stöðu hans þeim sem á því
kunna að hafa áhuga.
í frumvarpi bankamálanefndarinnar
segir að í byrj un hvers árs skuli bankinn
greiða arð til ríkissjóðs sem nemi helm-
ingi hagnaðar næstliðins árs af inn-
lendri lánastarfsemi að frádregnum
öllum reksturskostnaði o.fl. Með því
að færa allar fjárfestingar í nýbygging-
um sem á sl. ári námu um 67 miljónum
króna, til gjalda á rekstrarreikningi, er
séð til þess að hagnaður bankans verð-
ur enginn. Engin önnur lánastofnun í
þjóðfélaginu hefur siðferðilega eða
lagalega heimild til að telja fjárfesting-
ar til almenns kostnaðar nema Seðla-
banki íslands. Segir Lúðvík Jósepsson
m.a. í séráliti sínu með frumvarpi um
Seðlabankann á þessa leið m.a.: „Ég tel
rétt að taka upp reglur um skatt-
greiðslur bankans, en álít þau ákvæði
sem um það fjalla í frumvarpinu ó-
fullnægjandi, einkum vegna þess að
verulegum tekjum bankans á að skjóta
undan skattlagningu“.
-v.
Bankinn þarf ekki að greiða krónu í eignaskatta!
Endurskoðandi Seðlabankans:
Athugasemd við
fréttaflutning
í forsíðugrein í Þjóðviljanum 17.
apríl sl. er því haldið fram, að
„furðulegar reikningsfærslur" séu
viðhafðar í ársreikningi Seðla-
banka íslands. Af þessu tilefni vil
ég, sem endurskoðandi bankans,
koma á framfæri eftirfarandi at-
hugasemdum:
1) Því er haldiö fram í þessari grein, að
hefði bankinn beitt venjulegum
reikningsskilareglum hefði hagnað-
ur orðið 400 milljónir króna í stað 95
milljóna króna taps. Hérer um hrap-
allegan misskilning að ræða, sem
verður að leiðrétta.
Ef bankinn hefði beitt þeim
reikningsskilaaðferðum, sem nú eru
almennt notaðar hjá
innlánsstofnunum og öðrum, hefði
tap á rekstrarreikningi orðið um 700
milljónir króna, en ekki hagnaður
upp á 400 milljónir króna eins og
haldið er fram í Þjóðviljanum. I
þessu sambandi eru fjárfestingar
bankans ekki gjaldfærðar og áhrif
verðlagsbreytinga eru reiknuð í sam-
ræmi við ákvæði skattalaga.
Samkvæmt efnahagsreikningi í
árslok 1982 var bókfært eigið fé
bankans 1312 milljónir króna en var
ári síðar 1492 milljónir króna, og
hafði samkvæmt því aukist að
nafnverði um 180 milljónir króna á
árinu 1983. Ef á hinn bóginn er tekið
mið af þeim breytingum á verðlagi,
sem áttu sér stað milli þessara tíma-
marka kemur annað í ljós. í skýring-
um í ársreikningi bankans kemur
fram, að bókfært eigið fé bankans
rýrnaði að raungildi á árinu um 655
milljónir króna, ef miðað er við
breytingar á gengi á SDR (sérstök
dráttarréttindi), en um 782 milljónir
króna ef miðað er við breytingar á
lánskjaravísitölu á árinu.
Af þessu má ráða, að fuilyrðingar í
Þjóðviljanum um verulegan hagnað
hjá Seðlabankanum á síðastliðnu ári
fá ekki staðist eins og raunar Ijóst
mátti vera af lestri ársreiknings
bankans, þar sem m.a. kemur fram,
að eigið fé lækkaði úr 15,1% í 9,6%
af niðurstöðutölu efna-
hagsreiknings.
2) f reikningsskilum bankans hafa fjár-
festingar í fasteignum og vélbúnaði
ávallt verið gjaldfærðar á kaup- eða
byggingarári, en það er viðurkennd
venja hjá sambærilegum stofnunum
í öðrum löndum. (Það sama gildir
raunar um ýmsar aðrar opinberar
stofnanir, sem ekki hafa peninga-
legan hagnað að markmiði).
Með þessum hætti er bókfært eigið
fé bankans aðeins myndað af eignum
og skuldum, sem snerta eiginlega
starfsemi bankans, þ.e. erlendar
eignir og skuldir vegna hlutverks
bankans sem vörsluaðili gjaldeyri-
svarasjóðs landsmanna, og eignir og
skuldir, sem tengjast innlendri lán-
astarfsemi bankans.
Auk þess má benda á, að þar sem
það er í sjálfu sér ekki markmið með
starfsemi bankans að hagnast,
gagnstætt því sem á við um aðra
banka og fyrirtæki, skiptir bókfærsla
fasteigna og vélbúnaðar tiltölulega
litlu máli hjá bankanum. Aðalat-
riðið í þessu efni er, að því er Seðla-
bankann varðar, að upplýst sé í
ársreikningi, hvaða fasteignir og
lausafé bankinn á, en frá því er ræki-
lega skýrt í skýringum í ársreikningi
bankans.
Að lokum þetta, að mínu áliti
koma fram allar nauðsynlegar upp-
lýsingar í ársreikningi bankans til
þess að skynsamur lesandi geti gert
sér glögga grein fyrir afkomu og
efnahag hans.
Reykjavík, 25. apríl 1984.
Stefán Svavarsson,
löggiltur endurskoðandi.
Á morgun mun birtast svar við
athugasemdum Stefán Svavarsson-
ar og ítarleg fréttaskýring um mál-
efni Seðlabanka Islands.
- v.
- Það er nýtt í sögu Alþýðu-
bandalagsins. Hvers vegna núna?
„Það hafa síðastliðin þrjú ár ver-
ið starfandi óformleg kvenna-
samtök í Alþýðubandalaginu, svo-
kölluð Miðstöð kvenna. Starfsemi
hennar hefur verið á tíðum ansi
gloppótt og aðallega verið í kring-
um kosningar. Nú er búið að
breyta lögum flokksins og þau lög
heimila og gera jafnvel ráð fyrir
starfsemi áhugafélaga innan
flokksins. Því er fyllsta ástæða til
við vitum að sá áhugi er stundum
annar en áhugi karlmanna.
Það má gjarnan koma fram, að
það er kannski ekki rétt að stofna
sérstakt kvenfélag í Reykjavík,
heldur nái það yfir stærra svæði td.
sveitarfélögin í næsta nágrenni. Ég
veit, að konur í Hafnarfirði hafa
áhuga á því að starfa með okkur í
Reykjavík, fyrst um sinn.“
- Þið væntið auðvitað góðs af?
„Já, vissulega. Við sjáum fyrir-
mynd í Æskulýðsfylkingunni hér í
Flokksstarfíð mun eflast
segir Margrét S. Björnsdóttir um hugs-
anleg kvenfélög í Alþýðubandalaginu
„Eigum við að stofna kvennafé-
lag?“ er efni fundar, sem Miðstöð
kvenna boðar til í kvöld,
fimmtudag, að Hverfisgötu 105 kl.
8.30. Fundarefnið vakti forvitni
blaðakvenna á Þjóðviljanum og
því var slegið á þráðinn til einna
fundarbjóðendanna, Margrétar S.
Björnsdóttur.
- Á að stofna kvenfélag?
„Ég mun leggja til að hafinn
verði undirbúningur að stofnun
kvenfélags“, svaraði Margrét.
þess að formbinda þessa starfsemi
kvenna.“
- En hvað rekur konur til að
stofna sérfélag?
„Ég hef orðið vör við að konur
hafa haft áhuga á því að starfa
innan Alþýðubandalagsins en fæst-
ar þeirra hafa talið sig finna starfs-
vettvang innan þess. Mér finnst
það a.m.k. tilraunarinnar virði að
stofna kvenfélag þar sem konur
geta hist og starfað að þeim málum
sem þær hafa mestan áhuga á, og
Skákþingi íslands lokið
Áskell Örn
varð efstur
Um páskana var teflt í Páll Skúlason með 7vinning af 9
áskorenda- og opnum flokki á og annar varð Magnús Kjærnested
Skákþingi íslands. Efstur í með 7 vinninga. Þeir eru báðir í
áskorendaflokki varð Áskell Örn T.R. og munu tefla í áskorenda-
Kárason frá Akureyri, halut IVi flokki að ári.
vinning af 9 mögulegum. Annar Landsliðsflokki var frestað fram
varð Lárus Jóhannesson T.R. með á haust og mun hann að þessu sinni
7 vinninga. Þeir munu því tefla í verða óvenju þétt skipaður, því
landsliðsflokki að ári. flestir af okkar titilhöfum hafa þeg-
í opnum flokki sigraði Georg ar boðað þátttöku sína.
Reykjavík, sem hefur starfað mjög
ötullega og að fjölbreyttum mál-
um. Nú er farið að stofna æskulýðs-
fylkingar um allt land og ég hef satt
að segja ekki tölu á æskulýðsfé-
lögunum. Mér sýnist ekkert veita
af því að efla starfið innan Alþýðu-
bandalagsins og kvenfélög gætu
vissulega lagt þar sitt af mörkum."
SIGKLIS SIGURIIJARTAKSON
Minningarkortin eru til sölu á
eftirlöldurn stödum:
Bókabúð Máls og menningar
Skrifstofu Alþýðubandalagsins
Skrifstofu Pjóðviljans
Munið söfnunarátak i
Sigfúsarsjóð vegna
flokksrniðstöðvar
A Iþýðubandalagsins
. r*
1 ■