Þjóðviljinn - 26.04.1984, Side 11
Fimmtudagur 26. apríl 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11*
íþró't'tir
Umsjón:
Víðir Sigurðsson
Mr. Nice Guy og hlnn nýl Burt Reynolds.
Hva& flnnst ykkur, stelpur?
Þeir tolla
í tískunni
Tveir af þekktustu lelkmönnum
ensku meistaranna í knattspyrnu, Li-
verpool, hafa skrifað undlr samning
við módelsamtök. Þetta eru mark-
vörðurinn lltríki frá Zimbabwe, Bruce
Grobbelaar, og markahœsti lelkmað-
ur Evrópu um þessar mundir, lan
Rush. Báðir eru taldlr eiga mikla
framtíð fyrir sér ( þessum „bransa“,
umboðsmaður þeirra, Charles Ro-
berts, telur Grobbelaar vera nýjan
Burt Reynolds, bœði í útlitl og per-
sónulelka, og að Rush sé elns og
skapaður ( hlutverk „góða stráks-
lns“, Mr. Nlce Guyl
-VS
Ferguson
til Spurs?
Alex Ferguson, framkvæmdastjóri skosku
Evrópubikarmeistaranna í knattspyrnu, Aberde-
en, er sterklega orðaður við stjórastöðuna hjá
Tottenham sem losnar í vor. Af þeim sökum hefur
Steve Archibald, markaskorarinn mikli hjá Tott-
enham, ákveðið að leika áfram með félaginu
næsta vetur. Archibald lék með Aberdeen undir
stjórn Fergusons áður en hann gekk til liðs við
Tottenham fyrir fjórum árum. Þessi tíðindi eru
hins vegar talin merkja að dagar Allans Brazil hjá
Tottenham séu taldir og Manchester United muni
enn á ný leitast við að fá hann til liðs við sig.
George Best, sá eini sanni, hefur tilkynnt að
hann ætli að sækja um stöðu framkvæmdastjóra
hjá Fulham en Malcolm MacDonald sagði henni
lausri um páskana af persónulegum ástæðum.
Litlar lfkur eru þó á að stjórn Fulham vilji ráða
Best, stjórnarformaður félagsins hefur lýst því
yfir að hann vilji allt aðra manngerð í stöðuna.
Coventry hefur ákveðið að kaupa Mick Fergu-
son frá Birmingham en hann hefur leikið með
Coventry sem lánsmaður í síðustu leikjum.
Ferguson lék með Coventry en var seldur til
Everton fyrir tveimur árum.
Tveir þekktir miðverðir, Dave Watson, sem nú
leikur með Derby, og Denis Smith, sem stýrir
nýbökuðum 4. deildarmeisturum York, eru lík-
legastir til að taka við stjórninni hjá Stoke City í
sumar. Bill Asprey var ráðinn til bráðabirgða til
vorsins en óvíst er hvort hann fái samning til
lengri tíma.
Newcastle og Chelsea, sem líklega leika bæði í
1. deild ensku knattspyrnunnar næsta vetur, vilja
bæði krækja í David Armstrong, sköllótta lands-
liðsmanninn hjá Southampton.
Watford sækist nú eftir því að ná í 18 ára gaml-
an markvörð frá Cardiff, Andy Dibble, sem hef-
ur vakið gífurlega athygli í 2. deildinni í vetur.
Sunderland missir líklega einn sinn efnilegasta
leikmann, Barry Venison, í vor. Hann er aðeins
19 ára en hefur þó leikið 100 1. deildarleiki fyrir
félagið. í staðinn hyggst Sunderland krækja í
bakvörðinn Barry Cowdrill frá WBA sem hefur
leikið mjög vel í vetur en missti stöðu sína þegar
Derek Statham náði sér af langvarandi
meiðslum.
-vs
Evrópumótin í knattspyrnu - undanúrslit:
Fjögur bresku liðanna
féllu úr keppni!
Liverpool-Roma Juventus-Porto Tottenham- Anderlecht
AS Roma leikur til úrslita í Evrópukeppni
meistaraliða á eigin heimavclli í Róm, gegn
Liverpool, þvífengu ítölsku meistararnir
framgengt í gærkvöldi með því að vinna
glæsilegan sigur á skosku meisturunum,
Dundee United, 3-0. Skotarnir höfðu unnið
fyrri leikinn á sínum heimavelli, 2-0, en í
gærkvöldi áttu þeir aldrei svar við
frábærum leik Rómverja.
Brasilíumennirnir Cerezo og Falcao voru
óstöðvandi og réðu gangi leiksins. Roma
skoraði eftir tíu mínútur, markið var dæmt
af vegna rangstöðu, en það var forsmekkur-
inn að því sem koma skyldi. Pruzzo skoraði
tvívegis fyrir hlé, staðan 2-0 og liðin jöfn,
2-2. Eftir frábært spil fljótlega í seinni hálf-
leiknum komst Pruzzo í dauðafæri við mark
Skotanna en var felldur og dæmd víta-
spyrna. Di Bartolomei skoraði úr henni
þriðja markið, Skotarnir áttu aldrei mögu-
leika eftir það þrátt fyrir mikla baráttu.
Liverpool vann enn einn frækinn útisigur
á Evrópuvígstöðvunum; 2-1 gegn Dinamo í
Búkarest. Ensku meistararnir höfðu unnið
heimaleikinn aðeins 1-0 en eftir 11 mínútur
í Rúmeníu skoraði Ian Rush fyrir þá, fékk
boltann frá Graeme Souness og lyfti yfir
markvörð Dinamo. Orac tókst að jafna úr
frábærlega tekinni aukaspyrnu sex mínút-
um fyrir hlé en skömmu fyrir leikslok
tryggði Rush sigurinn, 2-1 og 3-1 saman-
lagt.
Bæði bresku liðin féllu
Vonir breskra hrundu í Evrópukeppni
bikarhafa þegar Aberdeen var slegið út af
Porto frá Portúgal og Juventus sigraði
Manchester United á Italíu. Juventus og
Porto leika því þar til úrslita.
Leikur Juventus og Man.Utd var hörku-
spennandi. Zbigniew Boniek kom Juventus
yfir eftir 13 mínútur og eftir það hélt Gary
Bailey markvörður Man.Utd liði sínu á floti
með stórbrotinni markvörslu. En 20 mínút-
um fyrir leikslok sló þögn á áhorfendapall-
ana í Torino þegar Norman Whiteside tókst
að jafna, 1-1. Par með var staðan jöfn 2-2
samanlagt og allt stefndi í framlengingu. En
þegar tvær mínútur voru eftir potaði Paolo
Rossi tuðrunni í marknet ManUtd eftir
aukaspyrnu, 2-1 og 3-2 samanlagt. Ensku
bikarmeistararnir sem léku án fyrirliða
síns, Bryans Robson, voru þar með fallnir
eftir miída baráttu.
í Aberdeen kom Porto frá Portúgal í
heimsókn, lið sem aðeins hefur fengið á sig
þrjú mörk í allan vetur í deildakeppninni
þar í landi. Porto vann fyrri leikinn, 1-0, og
stal jafnstórum sigri á Pittodrie í gærkvöldi.
Sigurmarkið á 76. mínútu var stórglæsilegt.
Silva skaust á milli varnarmanna Skotanna
og lyfti boltanum yfir Jim Leighton mark-
vörð í netið. Samanlagt 2-0 fyrir Porto og
Portúgalarnir mæta því Juventus í Basel í
Sviss í úrslitaleik þann 16. maí.
Arnór og fé-
lagar í úrslit!
í UEFA-bikarnum vann Anderlecht, lið
Arnórs Guðjohnsens, glæsisigur á Notting-
ham Forest frá Englandi, 3-0 í Brussel. For-
est hafði unnið fyrri leikinn 2-0 en naumt
var það hjá Belgunum. Scifo skoraði eftir
18 mínútur og Brylle bætti öðru við úr vít-
aspyrnu á 59. mínútu. Staðan því jöfn, 2-2,
samanlagt, en á 88. mínútu skoraði Vand-
enburgh markið sem kom Anderlecht
áfram. Arnór var í hópnum hjá Anderlecht
en kom ekki inná.
Tottenham mætir Anderlecht í tveimur
úrslitaleikjum, vann Hajduk Split frá Júg-
óslavíu 1-0 á White Hart Lane í London.
Hajduk hafði unnið fyrri leikinn 2-1 þannig
að Tottenham komst áfram á útimarkinu.
Eftir aðeins 7 mínútur skoraði Mike Haz-
ard beint úr aukaspymu og það dugði Tott-
enham þótt liðið léki nokkuð undir getu.
Hajduk fékk tvö góð færi til að jafna í síðari
Mlke Hazard kom Tottenham í úrslit Uefa-
bikarslns í gærkvöldi.
háltleik en Tottenham slapp með skrekk-
inn.
Sem sagt, fjögur bresk lið af sex féllu úr
keppni þannig að draumur breskra um að
eiga öll úrslitaliðin þetta árið hrundi hrapal-
lega til grunna.
-VS
Víkingur lenti sjö undir en mætir
samt Stjörnunni í úrslitaleiknum!
Víkingar sigruðu þrótt í æsispennandi
leik í undanúrslitum bikarkeppni karla í
handknattleik í gærkvöldi. Hann fór fram í
Laugardalshöllinni og lokatölur urðu 23-20
eftir framlengingu. Staðan eftir venjulegan
leiktíma var 19-19 og þess má geta að Vík-
ingar höfðu náð að jafna aðeins 2 sekúndum
fyrir venjulegan leiktíma og var þar Sigurð-
ur Gunnarsson að verki.
í byrjun leiksins var ekki neitt sem benti á
líklegan Víkingssigur. Þróttarar skoruðu 7
fyrstu mörk leiksins og komust síðan í 10-2.
Víkingar náðu að minnka muninn niður í 4
mörk fyrir hálfleik, staðan þá 13-9. Víking-
ar voru mun ákveðnari í byrjun síðari hál-
fleiksins; þeir náðu að skora 4 fyrstu mörkin
og jafna 13-13. Liðin skiptust síðan á að
skora, Þróttur þó ávallt fyrri til. Víkingar
náðu að jafna 2 sek. fyrir leikslok og því
þurfti að framlengja leikinn um 2x5 mínút-
ur. Þá reyndust Víkingar mikið sterkari,
þeir skoruðu 4 mörk gegn aðeins einu marki
Þróttara og lokatölur því 23-20.
Kristján Sigmundsson, Karl Þráinsson og
Hilmar Sigurgíslason voru bestir Víkinga.
Hjá Þrótt voru þeir Páll Björgvinsson,
Páll Ólafsson og markvörðurinn Guð-
mundur A. Jónsson bestir.
Roberts og Lineker efstir á
innkaupalista Manch.United
Sampdoria og Juventus vildu kaupa Robson í sameiningu - Robson hló bara!
Manchester United, sem næstu vikurnar
berst við Liverpooi um enska meistaratitil-
inn í knattspyrnu, er þessa dagana með út-
sendara á hverju strái í því skyni að fínna
nýja leikmenn fyrir næsta keppnistímabil.
Efstir á lista Man.Utd eru nú Gary Lineker
hjá Leicester, annar markahæstir leikmað-
ur 1. deildar, og enski landsliðsmaðurinn
Graham Roberts en samningur hans við
Tottenham rennur út í vor.
Ron Atkinson, framkvæmdastjóri
Man.Utd, lýsti því yfir um síðustu helgi að
Bryan Robson, Ray Wilkins og Norman
Whiteside myndu allir leika með liðinu
næsta vetur ásamt fleiri góðum leik-
mönnum sem bætast ættu í hópinn. ítölsk
félög eru enn á eftir þessum þremur snjöllu
leikmönnum, AC Milano fylgdist með
Wilkins um páskana og Juventus og Sam-
pdoria voru sögð hafa áhuga á að sameinast
um að kaupa Robson. Landsliðsfyrirliðinn
Robson hló bara þegar honum bárust þess-
ar fréttir og sagði: „£g skil ekki hvernig
félögin færu að því að skipta mér á milli sín.
Þetta er fáránlegt og ég hef ekki minnsta
áhuga“. Wilkins viðurkenndi hins vegar að
það yrði erfitt að standast gott boð frá ítal-
íu. „Þegar ferli knattspyrnumanns lýkur
þarf hann að hafa lagt nógu mikið til híiðar
til að halda áfram að lifa eðlilegu lífi. Þess
vegna eru öll tilboð sem fela í sér háar fjár-
hæðir freistandi", sagði Wilkins.
-VS
Fyrir Víking skoraði Viggó Sigurðsson 6
mörk og þeir Karl Þráinsson og Sigurður
Gunnarsson 5 hvor.
Hjá Þrótti var Konráð Jónsson atkvæð-
amestur, hann skoraði 8 mörk, þá skoruðu
„Pallarnir" 5 mörk hvor.
í hinum leik undanúrslitanna gerði
Stjarnan sér lítið fyrir og sigraði Val með 21
marki gegn 19. Það verða því Stjarnan og
Víkingur sem leika til úrslita í bikarkepp-
ninni að þessu sinni. - L/F.
Celtic sigraði
Celtic vann Dundee 3-0 í skosku úrvals-
deildinni í knattspyrnu í fyrrakvöld og hef-
ur þar með 46 stig og þrjá leiki eftir. Aber-
deen er efst með 48 stig en á heila sjö leiki
eftir og þarf aðeins fímm stig úr þeim til að
tryggja sér meistaratitilinn.
KR vann í
7 marka leik
Enn einn markaleikurinn í Reykjavíkur-
mótinu í knattspyrnu leit dagsins Ijós í gær-
kvöldi þegar KR lék þar við 3. deildarlið
Fylkis. Sjö urðu þau alls, KR vann 5-2 og
fékk þar með aukastig. Þeir Vesturbæingar
hafa því 6 stig eins og Fram. Þróttur mætir
Fram á Melavellinum í kvöld kl. 19.