Þjóðviljinn - 26.04.1984, Qupperneq 15
Fimmtudagur 26. aprfl 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
RUV 1
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Á viritum
degi. 7.25 Leikfimi
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð -
Ragna Jónsdóttir talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Hnífapara-
dansinn" eftir Jón frá Pálmhotti Höfundur
byrjar lesturinn.
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (utdr.). Tónleikar.
11.00 „Ég man þá tíð" Lög frá liðnum árum.
Umsjón: Hermann Ragnar Stefánsson.
11.30 Blandað geði við Borgfirðinga Um-
sjón: Bragi Þórðarson.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynning-
ar. Tónleikar.
14.00 Ferðaminningar Sveinbjarnar Egils-
sonar; seinni hluti Þorsteinn Hannesson
les (11).
14.30 A frivaktinnl Margrét Guðmundsdóttir
kynnir óskalög sjómanna.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar Gervase de Peyer,
Emanuel Hurwitz og Lamar Crowson leika
Trió fyrir klarinettu, fiðlu og píanó ettir Aram
Katsjaturian./Ann Griffiths leikurá hörpu lög
eftir André Caplet, Alec Templeton og Virgil-
ic Mortari/Josef Hála leikur píanólög eftir
Bohuslav Martinu/Karl Otto Hartmann og
Eberhard Buschmann leika Dúó fyrir tvö
fagott í F-dúr op. 3 nr. 5 eftir Francois Devi-
enne.
17.10 Sfðdegisvakan
18.00 Af stað með Tryggva Jakobssyni.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. Daglegt
mál. Sigurður Jónsson talar.
19.50 Við stokkinn Stjórnendur: Margrét Ól-
afsdóttir og Jórunn Sigurðardóttir.
20.00 Halió krakkar! Stjórnandi: Ragnheiður
Gyða Jónsdóttir. Aðstoðarmaður: Sólveig
Anna Jónsdóttir.
20.30 Staður og stund Umsjón: Ásta R. Jó-
hannesdóttir.
21.30 Gestur í útvarpssal Sigríður Ella Magn-
úsdóttir syngur aríur úr óperum eftir Gluck,
Donizetti, Massenet og Rossini. Marc Tar-
dus leikur með á píanó.
21.55 „Örvænting", einleiksþáttur eftir
Steingerði Guðmundsdóttur Geidaug
Þorvaldsdóttir flytur. Knútur R. Magnússon
les inngangsorð.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Fímmtudagsumræðan Umsjón: Her-
mann Gunnarsson.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
10.00-12.00 Morgunþáttur. Stjórnendur: Páll
Þorsteinsson, Ásgeir Tórr asson og Jón Ól-
afsson.
14.00-16.00 Eftir tvð. Stjómendur: Jón Axel
Ólafsson og Pétur Steinn Guðmundsson.
16.00-17.00 Rokkrásin. Stjór. endur: Snorri
Skúlason og Skúli Helgason
17.00-18.00 Lög frá 7. áratugnu n. Stjórnend-
ur: Bogi Ágústsson og Guðmundur Ingi
Kristjánsson.
( Rokkrásinnl, á Rás 2 kl. 16 f dag
verður pursafiokkurinn kynntur og
rættvið Egil Ólafsson og Tómas Tóm-
asson f beinni útsendingu. A mynd-
inni er Eglll.
Föstudagur
27. apríl
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttlr og veður
20.35 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Á döfinni Umsjónarmaður Kart Sig-
tryggsson. Kynnir Bima Hrólfsdóttir.
20.55 Skonrokk Umsjónarmaður Edda And-
résdóttir.
21.25 Kastljós Þáttur um innlend og eriend
málefni.
22.30 Griffin og Phoenix Bandarisk sjón-
varpsmynd frá 1976. Leikstjóri Daryl Duke.
Aðalhlutverk: Peter Falk og Jill Clayburgh.
Myndin er ástarsaga karis og konu sem eru
haldin ólæknandi krabbameini. Þrátt fyrir
það reyna þau að njóta þess sem lífiö hefur
að bjóða áður en það verður um seinan.
Þýðandi Guðrún Jörundsdóttir.
00.10 Fréttir í dagskrárlok.
frá lesendum
Morgunn
við höfnina
Það hvílir drungi yfir bænum
og peningalyktin frá Fiskimjöls-
verksmiðjunni hvílir eins og þykk
grá kápa yfir höfninni. Það er
gott ef einhverjir græða, en slæmt
ef það er á kostnað láglauna-
mannsins. Úti fyrir er þungur sjór
og brimniður í honum, en flestir
netabátar á sjó. Trillukarlarnir
eru að bræða hann. Ef einhver
ieggur í hann fara allir. Ási í Bæ,
sem er á þilfarsbátnum Hvítingi
með bróðursyni sínum, er búinn
að fá ræs. Hann má því ekki vera
að því að tala við mig, en hrósar
ljóðunum mínum, sem birtust á
dögunum í Tímariti Máls og
menningar. Síðan er hann rokinn
og ég er einn eftir í hinni yfir-
| þyrmandi peningalykt utan
nokkurra trillukarla, sem enn eru
að bræða hann. Síðan leysa þeir á
Hvítingi landfestar, leggja í
hann, þótt brimniður sé í honum,
og fleiri fara að dæmi þeirra
frændanna á Hvítingi.
Það er ekki frítt við að mig
langi í bransann, en það verður
ekki við öllu gert. Maður verður
að taka heilsuleysinu eins og
hverju öðru hundsbiti. Ég geng
heim á leið og mæti Guðna Her-
mannsen, en hann er að fara af
stað með myndlistarsýningu.
Hann barmar sér yfir hve dýrt sé
að láta innramma, en hann er
brennandi af áhuga og engin upp-
gjöf í svip hans, og leiðir skiljast.
Hann fer inn í trésmíðaverkstæð-
ið Börk, sem er að smíða ramma
fyrir hann. Ég held heim eftir
hressandi og fræðandi morgun-
göngu
Magnús Jóhannsson
frá Hafnarnesi.
Þakkir fyrir Þýskaland
6343-1109 hringdi
og sagðist vilja lýsa yfir ánægju sinni með sýningu
myndarinnar Þýskaland, föla móðir í sjónvarpinu,
og vill hvetja sjónvarpið til þess að halda áfram að
sýna góðar myndir frá kvikmyndahátíðum. Sjón-
varpið sýndi einhvern tíma í vetur tyrknesku mynd-
ina Yol, sem sýnd var á síðustu kvikmyndahátíð og
nú kemur þessi stórgóða mynd. Full ástæða til að
þakka fyrir sig, sagði 6343-1109.
Rás 1 kl. 22.35:
Lyfjanotkun íþróttafólks
meðal mála hjá
Hemma Gunn
Hermann Gunnarsson hefur
umsjón með fimmtudagsumræðu
útvarpsins, Rásar 1, kl. 22.35 í
kvöld. Hlustendur geta hringt í
útvarpið, sími 22260, meðan á út-
sendingu stendur og komið með
spurningar.
„Ég ætla að fjalla um íþróttir í
landinu almennt", sagði Her-
mann í stuttu spjalli við blaðið
um þátt sinn. „Gestur þáttarins
verður Sveinn Björnsson, for-
maður íþróttasambandsins, og
við munum ræða um ýmis hugtök
í íþróttum, svo sem almennings-
íþróttir og keppnisíþróttir og
stöðu þeirra, svo og stöðu íþrótt-
anna, en það er talað um 80.000
iðkendur í íþróttahreyfingunni
þannig að þetta er nokkuð stórt
mál.
Þá mun ég einnig tala sjálfur
um þetta áhugamál mitt. Meðal
annars mun ég fjalla um Ólym-
píuleikana og þátttöku okkar í
þeim. Mér finnast Ólympíu-
leikamir orðnir að styrjöld milli
stórveldanna og ýmislegt miður
geðfellt er þar á seyði, eins og
lyfjanotkun og atvinnumennska.
Þetta er því að mínu mati lftill
vettvangur fyrir okkur núorðið.
Þá mun ég einnig koma nokk-
uð inn á ástandið hér á landi varð-
andi lyfjanotkun íþróttafólks.
Læknar, sem kynnt hafa sér mál-
ið, fullyrða, að lyfjanotkun eigi
Hermann Gunnarsson að tafll. Þetta er nokkuð gömul mynd og sýnir ekki
eins mikið og nýjasta myndin af Hemma - hún er alveg æðisieg stelpur!
(Ég vona að ég móðgi engan og veit að Hemmi móðgast ekki!)
sér stað meðal íþróttafólks. Yfir-
leitt er aldrei um þessi mál talað -
þetta virðist mikið feimnismál -
en við verðum að geta talað um
þetta tæpitungulaust. Afleiðing-
ar lyfjanotkunar geta verið hrika-
legar og þetta bitnar fyrst og
fremst á unglingunum, sem alls
ekki þola þessi lyf. Þannig að það
verður að fara að taka á þessum
málum.“
Að lokum sagði Hermann
Gunnarsson: „Ég vil biðja þá
hlustendur sem hringja að vera
bæði stuttorðir og gagnorðir."
Þá höfum við það.
Rás 2 kl. 16.00:
Þursamir á fullu
Þursaflokkurinn margfrægi og margreyndi
kemur í heimsókn á Rás 2 kl. 4 í dag og nemur
þar staðar í klukkutíma eða svo. Það eru þeir
Snorri Skúlason og Skúli Helgason sem standa
fyrir þessari heimsókn í þátt sinn Rokkrásina.
Þursaflokkurinn er búinn að starfa frá árinu
1978 og hefur mikið vatn runnið til sjávar á
þeim tíma. Varla mun til sá landsins maður eða
kona er ekki hefur heyrt Þursanna getið. Um
tíma umbreyttust þeir í Stuðmenn við sýnu
minni fögnuð, ef eitthvað var. Á Rokkrásinni
verða leikin lög Þursanna, gömul og ný, og
sum sem aldrei hafa heyrst áður, en eru tilá
hljóðupptökum. Einnig verður rætt við þá fé-
lagana. Þursaflokkurinn er nú kominn á fullt
með nýja plötu og er hún væntanleg á markað í
næsta mánuði, ef allt fer sem horfir.
í tilefni
vorkom-
unnar
Vetur með sín veður reið,
viðsjáll fram úr máta,
þú ert farinn þítui leið,
þig munu fáir gráta.
HJ.
bridge
Sævin Bjamason í svert Ármanns J.
Lánissonar úr Kópavogi, hefði senni-
lega komið sterkiega til greina sem
höfundur besta spils íslandsmótsins í
sveitakeppni 1984: ÁDx 9xxx 9xx Kxx
X K9xx
ÁKGxx xxx
D10xxx XX
XX G108xx D ÁKx Áxxx DG10x
Sagnir gengu:
Suður Vestur Norður Austur
1 spaði 2 hjörtu 3 spaðarpass
4 spaðarpass pass pass
Spilið kom fyrir í leik milli sveita Ár-
manns og Þórarins, í 1. umferð úrslit-
akeppninnar.
Nú, Vestur tók á hjartaás og síðan
hjartakóng sem Sævin trompaði
heima. Nú tók Sævin á laufakóng, síð-
an laufaás og spilaði þriðja laufinu.
Austur átti slaginn og spilaði þriðja
hjartanu, sem Saevin trompaði heima.
Ás og kóngur í tígli teknir og siðan var
fjórða laufinu spilað. Vestur yfirtromp-
aði, og Sævin trompaði með drottn-
ingu í borði. Nú kom fjórða hjartað úr
borði og Sævin leit glettnislega á
Austur. Sama er hvað hann gerir. Ef
hann trompar lágt, yfirtrompar Sævin
og fær síðan alltaf tvo slagi á spaða.
Nú ef Austur trompar með spaða-
kóng, fær hann einnig tvo slagi á
spaða. Slétt staðið gaf 620.
Á hinu borðinu voru einnig spilaðir 4
spaðar, en þar fór sagnhafi þrjá niður,
eftir að hafa farið í spaðann, svínað
drottningu, gefið, og aftur spaði og þá
hrundi það spil.
Sveit Ármanns græddi því ein 14
stig á þessu spili og vann síðan leikinn
18-2. Nokkuð óvænt úrslit fyrir sveit
Þórarins, fv. íslandsmeistara.
Tikkanen
mörk.