Þjóðviljinn - 11.05.1984, Page 1
UOWIUINN
_ -------
Það er ódýrara
að ferðast til
sólarlanda en
fara hringveg-
inn um landið.
Sjá8
maí
föstudagur
105. tölublað
49. árgangur
Skemmdu kartöflurnar frá Finnlandi:
Neytendur borga brúsann
sögðu 'forráðamenn Grœnmetisverslunarinnar á fréttamannafundi í gœr
Grænmetisverslun landbúnaðarins á enga
sjóði til og því er ljóst að neytendur verða að
greiða þann skaða sem verslunin hefur orðið
fyrir vegna skemmdu kartaflanna frá Finn-
landi í hækkuðu kartöfluverði. Þetta kom
m.a. fram á fréttamannafundi sem stjórn og
forstjóri Grænmetisversiunarinnar boðuðu
til í gær. Þeir voru spurðir að því hvort SÍS,
sem flutti kartöflur nar inn og tók fyrir það
umboðslaun ætti ekki að taka á sig skellinn,
hvort Sambandið væri ekki ábyrgt fyrir
þeirri vöru sem það flytti inn, en þessari
spurningu vildu þeir Ingi Tryggvason for-
maður stjórnar og Gunnlaugur Björnsson
forstjóri ekki svara afdráttarlaust.
Á fréttamannafundinum sögðu forsVars-
menn Grænmetisverslunarinnar að finnsku
kartöflurnar hefðu mjög lítið geymsluþol,
vegna þess að Finnar leyfa ekki notkun kemí-
skra efna af hollustuástæðum. Auk þess vildu
þeir kenna kaupmönnum að stórum hluta
um, sögðu þá hafa lélegar geymslur og oft
geyma kartöflur í allt að tvo mánuði.
Þá var það fullyrt af þeim Grænmetis-
mönnum að verslunin hefði það mikið aðhald
af neytendum og fjölmiðlum að tryggt væri
að hún kappkostaði að vera alltaf með sem
bestar kartöflur. Frjáls innflutningur myndi
því ekki tryggja neytendum betri vöru.
Þá má einniggeta þess að mat á kartöflum,
ríkismatið, fer þannig fram að 1 kg til 2 kg eru
tekin úr hverju TONNI sem sýnishorn um
gæði hinna 998 eða 999 kílóa, sem þá eru
eftir.
- S.dór.
Sjá bls. 5
Hnípnlr menn í vanda. Gunnlaugur Björnsson forstjórl Grænmetls verslunar ríklslns, Agnar Guönason stjórnarmaður og Ingl Tryggva-
son stjúrnarformaður fyrlrtæklsins. Ljosm.: eik.
889
Átta
s
Olym-
píufarar
útnefndir
Ólympíunefnd íslands til-
kynnti í gær nöfn átta íþrótta-
manna sem taka þátt í Ól-
ympíuleikunum í Los Angeles
fyrir íslands hönd í sumar.
Þeir eru frjálsíþróttafólkið
Einar Vilhjálmsson, Oddur
Sigurðsson, Vésteinn Haf-
steinsson og Þórdís Gísladótt-
ir, júdókapparnir Bjami Frið-
riksson og Kolbeinn Gíslason
og sundfólkið Tryggvi Helga-
son og Guðrún Fema Ágústs-
dóttir. Þá var greint frá úthlut-
un styrkja til íþróttamanna úr
afreksmannasjóði ÍSÍ, alls 270
þúsund krónur, og viðbótar-
styrkja frá Ólympíunefrid alls
300 þúsund krónur til einstak-
linga og sérsambanda.
- VS.
Sjá bls. 15
Kergja í stjórnarþingmönnum á alþingi
Bullandi ágreiningur
um mál og vinnubrögð
Ríkisstjórnin komin í vandrœði
með afgreiðslu margra stórmála
Mikil kergja er nú hlaupin í
stjórnarliða í þingflokkum Fram-
sóknarflokksins og Sjálfstæðis-
flokksins vegna stöðu ýmissa
stjórnarmála í þinginu. Áformað er
að þinginu Ijúki í lok næstu viku en
talið er útilokað að það takist, þar-
sem svo mörg ágreiningsmál eru
fyrir hendi milli þingflokkanna og
innan þeirra. Sjálfstæðismenn hafa
boðið uppá frestun á þinghaldi
fram i júní ellegar þá að frestað
verði að Ijúka þingstörfum þartil
sfðar.
Bullandi ágreiningur er um af-
greiðslu ýmissa mála á þinginu,
þannig að ekki eru taldar lflcur á að
leysist skjótlega. Þannig er
ágreiningurinn um túlkun á hús-
næðislöggjöfinni vegna Búseta enn
óleystur. Ágreiningur er um sparn-
aðaráform menntamálaráðherra
og vilja Framsóknarmenn ekki láta
sig í því efni. Kjördæmamálið er
fast í Neðri deild alþingis, þarsem
Páll Pétursson er í formennsku.
Stjómskipunarlög eru enn til um-
ræðu í fyrri deild, en þessi mál eru
efst á blaði forsætisráðherra og
Sjálfstæðisflokksins um nauðsyn-
lega afgreiðslu mála fyrir þinglok.
Pá er ágreiningur innan Sjálf-
stæðisflokksins um bindiskyldu
viðskiptabanka hjá Seðlabankan-
um. Ágreiningur er um frumvarpið
um Ríkismat sjávarafurða,
sérstaklega innan Sjálfstæðis-
flokksins. Ágreiningur er milli
stjórnarflokkanna um útvarpslag-
afrumvarpið. Þá er Mangó, kók-
ómjólkurmálið enn í ráðherra-
neftid og hefur ekkert heyrst um
þau mál um nokkurn tíma. Þá er
einnig ágreiningur innan stjómar-
flokkanna um kísilmálm-
iverksmiðjuna og um hvemig
þinghaldinu skuli hagað fram að
lokum og hvernig því skuli hagað.
-óg.
Truflanir á símakerfinu
Ekki á okkar vegum
segir formaður félags símamanna
„Mér er ekki kunnugt um að
símamenn standi fyrir einhverjum
skipulegum tmflunum á símakerf-
inu eins og látið er í veðri vaka“,
sagði Rannveig Guðmundsdóttir
formaður félags símamanna í sam-
tali við Þjóðviljann í gær.
Mikið hefur verið kvartað til
Pósts og síma undanfama daga
vegna truflana á símtölum og ó-
nefndir menn hafa hringt á dagblöð
og fréttastofur og tilkynnt að síma-
menn stæðu í skæruhemaði vegna
sérkjarasamninga.
Póst- og símamálastjóri hefur til-
kynnt að fylgst sé mjög vel með
símakerfinu og verði truflanir af
mannavöldum að ræða sé þar um
lögreglumál að ræða.
„Við eigum ekki í neinni kjara-
deilu, en það standa yfir samninga-
viðræður um sérkjarasamninga og
þeim viðræðum er ekki lokið enn-
þá. Þetta er allt á umræðustigi og
við munum hitta samninganefnd
ríkisins n.k. miðvikudag“, sagði
Rannveig Guðmundsdóttir for-
maður félags símamanna.
~lg-
Húsavík á fjórum síðum - Bls. 9-12