Þjóðviljinn - 11.05.1984, Síða 3

Þjóðviljinn - 11.05.1984, Síða 3
Föstiidagur 11. maí 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 íslenskt landslag er auðlind Verða útlend kvik- myndafélög látin borga? Ætti að skyida erlend kvikmyndafélög til að ráða ákveðinn hluta af starfsliði sínu við myndatökur á íslandi úr röðum innlendra fagmanna? Þessi spurning vaknaði í kjölfar tökunnar á myndinni Enemy Mine, sem unnin var að öllu leyti af erlendu kvikmynd- atökufólki. Jafnframt velta menn vöngum yfir hvort leggja beri aðstöðugjöld á slík félög, sem rynnu til styrktar innlendri kvik- myndagerð. í gær var stigið fyrsta skrefið til að móta stefnu í þessum málum þegar nefnd sú á Alþingi sem fer með lagafrumvarp fyrir Kvikmyndasjóð samþykkti að setja inn í drögin ákvæði sem heimilaði menntamálaráðuneytinu að setja reglugerð um kvikmyndastörf erlendra aðila á ís- landi. En fram til þessa hefur ríkið einungis litið á slíkt fólk einsog hverja aðra ferða- menn sem koma með ljósmyndavél á mag- anum inní landið. Samband kvikmyndaframleiðenda beitti sér m.a. fyrir að heimildarákvæði yrðu sett inn í lögin, og Hrafn Gunnlaugsson formað- ur þess kvað þetta hafa glatt þá kvikmynd- . aframleiðendur mjög. Hann sagði enn- fremur að það vantaði skýr ákvæði um að íslensk atvinnulöggjöf næði til erlendra kvikmyndaleiðangra, og raunar þyrfti að marka skýra stefnu um hvað væri íslensk kvikmyndalögsaga. Hrafn sagði að í kvik- myndalegu tilliti væri íslenskt landslag auð- lind sem ekki mætti ganga of nærri, fremur en öðrum náttúrufyrirbærum svo sem fálk- aeggjum eða fisknum í sjónum. Gísli Gestsson kvikmyndagerðarmaður, sem var umboðsaðili fyrir Enemy Mine, kvaðst þeirrar skoðunar að við myndir er- lendra aðila ættu íslendingar að vera „skap- andi þátttakendur, en ekki bara í þjónustu- hlutverki“, enda væri hér á landi kominn upp hópur fólks sem næði góðu máli á mæli- kvarða alþjóðlegrar kvikmyndunar. Nánar verður fjallað um íslenska kvik- myndalögsögu í Helgarblaði Þjóðviljans. -ÖS. Álviðræðum slegið á frest á þriðja mánuð „Þyngra í vöfum en menn skyldu ætla“ sagði iðnaðarráðherra á þingi ,J>að hefur ekkert gengið úr böndum ennþá en málið er þyngra í vöfum en menn skyldu ætla við fyrstu kynni“, sagði Sverrir Hermannsson iðnað- arráðherra þegar hann svaraði fyrirspurnum frá Hjörleifi Guttormssyni utan dagskrár um stöðu samninga við Alusuisse. Hjörleifur sagði það gott ef menn væru orðnir reynslunni ríkari og vonandi vitrari af henni fenginni. Iðnaðarráðherra upplýsti að veikindi dr. Ernst aðalsamnings- manns Alusuisse hefðu komið í veg fyrir allar samningaviðræður um raforkuverðshækkun á þriðja mán- uð. Fulltrúar Alusuisse hefðu ósk- að eftir ffestun á fundum þar sem „óþægilegt væri fyrir þá að skipta um formann sinnar samninga- nefndar og við hlutum að fella okk- ur við þá niðurstöðu“, sagði Sverr- ir. Hjörleifur benti hins vegar á að ef Alusuisse hefði haft áhuga fyrir viðræðum hefðu þeir skipað annan mann í nefndina, þeir hefðu íleiri en 1 forstjóra í sinni þjónustu. Þá kom fram við umræðuna að dómnefndir þær sem skipaðar voru til að skera úr um meint svik á verði aðfanga og skattgreiðslum og skila áttu áliti í síðasta lagi í liðnum mán- uði, munu ekki skila niðurstöðum fyrr en í haust og dómnefndin um aðföngin hefði að ósk Alusuisse fallist á að halda réttarhöldum lok- uðum. Hjörleifur sagði að með því að vísa þessum deilumálum úr gerðar- dómi til sérstakra dómnefnda væri staða okkar óvissari en ella og ákvörðun um lokaða málafærslu segði sína sögu í þeim efnum. Þá minnti Hjörleifur á þá hættu sem væri í því að Alusuisse segði upp í næsta mánuði samkv heim- ild samningsins frá í október sl. þeirri hækkun á raforkuverði úr 6 í 9.5 mills sem þá samdist um. Upp- sagnarákvæði væru snara sem smeygt hefði verið um háls ráð- herra. Fyrirhuguð hækkun í 10 mills hefði ekki gengið eftir, vegna þess að álverð hefði snarlækkað á heimsmarkaði frá í haust en ekki hækkað einsog menn hefðu þá ver- ið vissir um. Iðnaðarráðherra sagði við um- ræðuna að hann hefði hætt við í bili að leggja fram frumvarp á þingi um nýjan meðeiganda og stækkun ál- versins „þar sem mál hefðu dregist meira úr hömlu en ég ætlaði". Varðandi hækkun raforkuverðs tók hann fram allt tal um „álit- legar“ tölur 18 - 20 mills ætti ein- göngu við nýja verksmiðju en ekki þá gömlu. Hjörleifur sagðist vona að sumarið færði okkur eitthvað ann- að en það að stjórnvöld gengju endalaust áfram í þá gildru sem auðhringurinn hefði komið þeim í með bráðabirgðasamkomulaginu frá því sl. haust. -Ig. Kjaradeila flugmanna og Flugleiða: Nota vonandi vikuna sem er báðum aðilum til góðs. Allt sagði Björn Guðmundssonformaður annað situr enn fast. r j n ,,Ég verð að játa það að ég er samnmganefndar flugmanna „Samgöngumálaráðherra fór fram á það við okkur að boðuðu verkfalli um helgina yrði frestað og þar sem að auki komst lítilsháttar hreyfing á málin í fyrrinótt, þá á- kváðum við að fresta verkfallinu um eina viku“, sagði Björn Guð- mundsson flugmaður en hann er formaður samninganefndar flug- manna í kjaradeilu þeirra við Flug- leiðir. Björn sagði að sú hreyfing sem komið hefði á samningamálum á fundi deiluaðila hjá sáttasemjara hefði verið um vinnufyrirkomulag, ekkert sérlega bjartsýnn á að lausn deilunnar sé í sjónmáli. Það er fundur í dag hjá ríkissáttasemjara og við skulum sjá hvað situr. Við höfum slakað til og frestað verk- falli um viku og við vonum að þeir Hugleiðamenn noti þennan viku- frest vel“, sagði Bjöm Guðmunds- son. - S.dór. „Björgun" eftir Ásmund Sveins- son mun brátt rísa elnhvers staöar vlð sjó í Reykjavfk. Sókn vill breyta bandorminum Starfsmannafélagið Sókn hcfur skorað á stjómvöld að breyta nokkrum atríðum f frumvarpinu um hinn sk. bandorm eða ráðstaf- anir til að fylla upp í fjárlagagatið. Er lögð áhersla á að allar útflutn- ingsbætur á landbúnaðarvörum verði felldar niður og þeir fjár- munir scm 'kparast notaðir til að greiða niður mjólk og dilkakjöt á innanlandsmarkaði. Þá er lagt til að gjald inn á göngudeildir og fyrir sérfræðingaþjónustu verði ekki hækkað þar sem þau bitni fyrst og fremst á fólki með skerta starfsorku. _ v Listaverk Ásmundar Sveinssonar „Björgun44 Fimm metra há bronsstytta komin til landsins og bíður þess að ákvörðun verði tekin um staðsetningu hennar í Reykjavík ,J>að er rétt að styttan er komin tíl landsins og bíður þess að ákvörðun verði tekin um hvar á að staðsetja hana, en það var skilyrði frá Ásmundi Sveinssyni að hún stæði við sjó“, sagði Othar EHing- sen kaupmaður í samtali við Þjóð- viljann í gær um listaverkið ,3jörgun“ eftir Ásmund Sveinsson myndhöggvara. Othar sagði að styttan væri steypt í brons og hefði verkið verið unnið í Englandi. Hann og fleiri aðilar hafa fjármagnað þetta verk og bíða þess nú að Reykjavíkur- borg ákveði hvar styttan á að standa. Forsaga þessa máls er sú að Ás- mundur skóp þetta listaverk 1936, þá litla styttu. Othar Ellingsen fékk hann svo til að gera stóra gipsmynd með það í huga að gera afsteypu úr bronsi og vann Ásmundur að gerð gipsstyttunnar á árunum 1956 til 1962. Þessa gipsmynd á Othar og hyggst láta setja hana upp í Sjó- mannaskólanum. Bronsstyttan sem reisa á í Reykjavík er 5 metra há og vegur mörg tonn að sögn Othars. Hann sagði að menn hefðu verið að láta sig dreyma um að afhjúpa hana á sjómannadaginn í júní nk. en fyrir- séð er að af því getur ekki orðið, þar sem ekki hefur verið valinn staður fyrir styttuna enn. - S.dór.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.